Dagblaðið Vísir - DV - 31.01.2014, Blaðsíða 46

Dagblaðið Vísir - DV - 31.01.2014, Blaðsíða 46
Helgarblað 31. janúar 201446 Sport M anchester City getur unnið áttunda leik sinn í röð þegar liðið tekur á móti Chelsea í sannkölluðum toppslag í ensku úrvals- deildinni á mánudag. Leikurinn á Eti- had-vellinum verður síðasti leikur 24. umferðar deildarinnar en hinir leik- irnir fara fram á laugardag og sunnu- dag. City hefur verið óstöðvandi á heimavelli í vetur þar sem liðið hefur unnið alla 11 leiki sína. Í þeim hefur liðið skorað 42 mörk og fengið á sig 8. 6–3 fyrir City City skaust á topp deildarinnar á mið- vikudagskvöld þegar liðið valtaði yfir Tottennham, 5–1, á útivelli. Á sama tíma gerði Chelsea markalaust jafn- tefli á heimavelli gegn West Ham í leik þar sem Chelsea hafði mikla yfir- burði. Fyrir leikinn á mánudag er City sem fyrr segir á toppnum með 53 stig en Chelsea í 3. sæti með 50 stig. City hefur haft þokkalegt tak á Chelsea á undanförnum árum. Í síðustu 10 leikj- um þessara liða hefur City unnið sex leiki, Chelsea þrjá en einn hefur end- að með jafntefli. Markatalan er 16–12 fyrir City. Markahrókurinn Sergio Aguero fór meiddur af velli í leiknum gegn Tottenham og er óvíst hvort hann verði með gegn Chelsea. Nýliðar á Emirates Arsenal fær kærkomið tækifæri til að bæta fyrir vonbrigðin gegn South- ampton í vikunni þegar liðið tekur á móti Crystal Palace. Nýliðar Palace eru í þokkalegum málum í 14. sæti deildarinnar en Arsenal er í 2. sæti með 52 stig. Liverpool, sem vann stórsigur gegn Everton í vikunni, heimsækir The Hawthorns og mætir WBA. Liverpool er í 4. sæti með 46 stig en WBA í því fimmtánda með 22 stig. Þrátt fyrir stór- tap gegn Liverpool hefur Everton ekki sagt skilið við baráttuna um 4. sætið. Liðið er í 6. sæti deildarinnar með 42 stig og tekur á móti Aston Villa á Goodison Park á laugardag. Villa siglir nokkuð lygnan sjó um miðja deild þar sem liðið situr í 10. sæti með 27 stig. Ellefu af tólf gegn Stoke Englandsmeistarar Manchester United hafa átt í talsverðu basli á leiktíðinni eins og flestum er kunn- ugt. Liðið vann þó góðan sigur á Cardiff í vikunni og mætir Stoke á útivelli á laugardag. United hefur unnið ellefu af síðustu tólf leikjum sínum gegn Stoke í öllum keppnum. United þarf að komast á sigurbraut ætli liðið sér að eiga möguleika á að ná fjórða sætinu og þar með sæti í Meistaradeild Evrópu að ári. United er í 7. sæti með 40 stig en Stoke í 16. sæti með 22 stig. n Ekkert fær stöðvað Manchester City n Chelsea heimsækir Manchester City n United unnið 11 af síðustu 12 leikjum gegn Stoke Allt lagt undir Leikurinn á mánudag er einn af stærri leikjum tímabilsins í enska boltanum. Með sigri getur City náð sex stiga forskoti á Chelsea. Stefán Pálsson, sagnfræðingur og stuðn- ingsmaður Luton, er spámaður helgar- innar. Hann telur að City haldi sigurgöngu sinni áfram, United vinni annan leik sinn í röð og Liverpool misstígi sig gegn WBA. Laugardagur West Ham- Swansea 0–1 „Ég held að West Ham sé að sökkva hratt þó það muni ekki gleðja Gylfa Orrason vin minn að bera fram þann spádóm. Þeir tapa þarna, 1–0. Það kæmi mér ekki á óvart þó West Ham færi niður.“ Newcastle United - Sunderland 0–0 „Newcastle er mun sterkara um þessar mundir. Ég held samt að þessi leikur endi með markalausu jafntefli. Það verður mikið af áhorfendum berum að ofan sem munu gleðja áhorfendur.“ Stoke - Manchester United 1–2 „Manni sýnist Manchester United hafi aðeins verið að finna fjölina sína. Þeir klára þetta en þó ekki með neinni flugelda sýningu.“ Hull - Tottenham 0–3 „Tottenham-menn eiga að vera einu núm- eri stærri en Hull. Þeir snúa vörn í sókn og gætu jafnvel unnið nokkuð stóran sigur.“ Fulham - Southampton 2–2 „Draumaleikur hins hlutlausa áhorfanda. Fulham hefur aðeins gert eitt jafntefli á þessari leiktíð. Ég held að þeir bæti úr því, segjum 2–2.“ Everton - Aston Villa 1–2 „Þegar ég byrjaði að fylgjast með fótbolta var Villa Evrópumeistari og mér fannst það alltaf töff. Ég held við gætum séð fágætan útisigur hjá Villa.“ Cardiff - Norwich 1–0 „Er ekki bara tímaspursmál hvenær eig- andi Cardiff stillir upp liðinu sjálfur? Það er smá stemning í kringum komu Solskjær og það virkar. Þetta verður baráttusigur hjá heimamönnum, 1–0. Sunnudagur West Brom - Liverpool 1–1 „Þeir eru orðnir svo roggnir aftur Liverpool- mennirnir. Þeir eru kátir að vera komnir í 4. sætið sitt. Þeir verða slegnir rækilega niður á jörðina og þetta endar með jafntefli.“ Arsenal - Crystal Palace 2–0 „Palace-menn skora ekki mikið og Arsenal vinnur þetta. Ég er ekki viss um að þetta verði nein flugeldasýning samt.“ Mánudagur Manchester City - Chelsea 3–1 „City er á þannig flugi núna að maður sér ekki svo glatt hvernig það verður stöðvað. Ég held að þeir vinni þetta, 3–1. Vissir þú … … að Crystal Palace hefur tapað 9 af síðustu 11 leikjum sínum í úrvalsdeildinni. … að Fulham hefur tapað 12 af síðustu 15 leikjum sínum í úrvalsdeildinni. … að Aston Villa varð á miðvikudag sjötta liðið til að ná 300 sigrum frá stofnun úrvalsdeildarinnar. … að West Ham og Arsenal hafa oftast haldið hreinu í vetur, eða 10 sinnum. … að Christian Benteke hefur nú skorað í þremur úrvalsdeildarleikjum í röð eftir að hafa ekki skorað í síðustu ellefu þar á undan. … að Manchester City hefur nú skorað 66 mörk í deildinni, jafn mörg mörk og allt síðasta tímabil. … að aðeins Andy Cole, Alan Shearer, Ruud van Nistelrooy og Fernando Torres voru fljótari en Sergio Aguero til að ná 50 mörkum í úrvalsdeildinni. „Slegnir rækilega niður á jörðina“ Staðan 1 Man.City 23 17 2 4 68:26 53 2 Arsenal 23 16 4 3 45:21 52 3 Chelsea 23 15 5 3 43:20 50 4 Liverpool 23 14 4 5 57:28 46 5 Tottenham 23 13 4 6 30:31 43 6 Everton 23 11 9 3 35:24 42 7 Man.Utd 23 12 4 7 38:27 40 8 Newcastle 23 11 4 8 32:28 37 9 Southampton 23 8 8 7 31:27 32 10 Aston Villa 23 7 6 10 26:32 27 11 Swansea 23 6 6 11 29:33 24 12 Norwich 23 6 6 11 18:35 24 13 Hull 23 6 5 12 22:29 23 14 Cr.Palace 23 7 2 14 15:31 23 15 WBA 23 4 10 9 27:33 22 16 Stoke 23 5 7 11 22:37 22 17 Sunderland 23 5 6 12 22:36 21 18 West Ham 23 4 7 12 22:33 19 19 Fulham 23 6 1 16 22:50 19 20 Cardiff 23 4 6 13 17:40 18 Einar Þór Sigurðsson einar@dv.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.