Dagblaðið Vísir - DV - 31.01.2014, Blaðsíða 60

Dagblaðið Vísir - DV - 31.01.2014, Blaðsíða 60
Helgarblað 31. janúar 201460 Fólk Eyðilagði næstum kjólinn Jennifer Lawrence borðaði Doritos í búningnum B andaríska Óskarsverð­ launaleikkonan Jennifer Lawrence var næstum því búin að eyðileggja hvíta kjólinn, sem hún klæddist í American Hustle, með snakkáti. Lawrence er þekkt fyrir afslapp­ aða og hispurslausa framkomu og hefur ósjaldan talað um ást sína á mat í viðtölum og svo virðist sem matarást hennar nái alla leið inn á kvikmyndasettið. Búninga­ hönnuður myndarinnar, Michael Wilkinson, sagði frá því í viðtali á dögunum að Lawrence hafi næst­ um því eyðilagt hvíta kjólinn með því að borða appelsínugult Doritos er hún klæddist honum en krydd­ mylsna af snakkinu fór á kjólinn og skildi eftir sig blett. Wilkinson hafði sem betur fer vit á að útbúa fleiri en einn kjól fyrir leikkonuna, en alls voru fjórir eins kjólar saum­ aðir á Lawrence fyrir myndina. Wilkinson er tilnefndur til Óskarsverðlauna fyrir búninga­ hönnunina í American Hustle, en myndin er alls tilnefnd til tíu Óskars verðlauna, þar á meðal sem besta myndin. Lawrence er til­ nefnd sem besta leikkona í auka­ hlutverki og gætu það því orðið önnur Óskarsverðlaunin hennar í röð. Verðlaunin verða afhent þann 2. mars næstkomandi. n 1 Dwayne JohnsonDwayne „The Rock“ Johnson var sá leikari sem þénaði mest allra á síð- asta ári. Hann lék í myndunum G.I. Joe, Pain and Gain og Fast and Furious 6 og þénaði 1,3 milljarða Bandaríkjadala, eða um 150 milljarða íslenskra króna. 2 Robert Downey Jr.Robert Downey Jr. hefur löngum verið með hæst launuðu leikurum heims en árið 2013 lék hann í Iron Man 3 og þénaði 1,2 milljarða Bandaríkjadala, eða 138,3 milljarða króna. 3 Steve Carell Grínleikarinn góð- kunni, Steve Car- ell, þénaði 964 milljónir dollara, um 111,1 milljarð króna, á síðasta ári. Hann lék í myndunum The Way Way Back, The Incredible Burt Wonderstone og Despicable Me 2, en sú síðastnefnda var næsttekjuhæsta mynd ársins. 4 Vin DieselÁ árinu 2013 þénaði Vin Diesel 887 milljónir Bandaríkjadala, en það eru um 102,3 milljarðar íslenskra króna. Líkt og Dwayne Johnson lék hann í Fast and Furious 6 en hún fékk mikla aðsókn og halaði inn 789 milljónir dollara í miðasölu. 5 Sandra Bullock Sandra Bullock er tilnefnd til Ósk- arsverðlaunanna fyrir leik sinn í Gravity. Myndin hlaut afar góða að- sókn sem hefur skilað sér í kassann hjá Bullock því hún þénaði 862 milljónir dollara árið 2013, eða um 99,4 milljarða króna. Hæst launuðu leikarar 2013 topp 5 B arkhad Abdi er ein ótrúleg­ asta stjarnan í Hollywood. Ólíkt þeim fjölmörgu leikur­ um sem reyna fyrir sér í borg englanna svo árum skiptir til að slá í gegn hafði Abdi aldrei leikið áður en hann hreppti hlutverk í verð­ launamyndinni Captain Phillips. Hann kunni heldur ekki að synda, þrátt fyrir að stærsti hluti myndar­ innar sé tekinn á sjó, og þurfti að leggja mikið á sig fyrir hlutverkið en hann hefur nú verið tilnefndur til Óskarsverðlaunanna fyrir eins­ taka frammistöðu sem sjóræninginn Muse. Vann sem límósínubílstjóri Barkhad Abdi fæddist í Mogadishu í Sómalíu 10. apríl 1985. Fjölskylda Abdi fluttist þó stuttu síðar til Jemen þar sem hann ólst upp sem barn og árið 1999, þegar Abdi var fjórtán ára, flutti fjölskyldan til Minnea­ polis í Minnesota í Bandaríkjunum. Þar sótti hann meðal annars tíma í verkfræði við Minnesota State Uni­ versity Moorhead en lauk þó ekki námi. Eftir að hafa unnið við ýmis störf, meðal annars sem afgreiðslu­ maður í verslun, plötusnúður og síð­ ar límósínubílstjóri, heyrði Abdi af áheyrnarprufum fyrir Hollywood­ kvikmynd og ákvað að slá til, en sú ákvörðun átti eftir að breyta lífi hans til frambúðar. Tók stjórnina í hópnum Framleiðendur Captain Phillips ákváðu að halda áheyrnarprufur í Minneapolis til að leita að leikur­ um í hlutverk sómalska sjóræningj­ ans Abduwali Muse og áhafnar hans. Borgin varð fyrir valinu því þangað hafa fjölmargir Sómalar flust í gegn­ um tíðina en alls komu rúmlega þús­ und manns í áheyrnarprufur fyrir hlutverkin fjögur sem í boði voru. Ekki leið á löngu þar til Abdi og þrír félagar hans höfðu verið settir saman í hóp sem sjóræningjahópurinn til að sjá hvernig þeir ynnu saman. Fjór­ menningarnir pössuðu vel saman og hófu sjálfir að æfa sig undir hlutverk­ in en Abdi var fljótur að taka stjórn­ ina og stýra æfingunum. Þóttu þeir passa einstaklega vel saman sem hópur og Abdi henta vel sem leiðtogi þeirra, skipstjórinn Muse. Strangur undirbúningur Abdi og hinir sjóræningjarnir þrír, þeir Barkhad Abdirahman, Faysal Ahmed og Mahat M. Ali, þurftu að gangast undir strangan undirbún­ ing fyrir kvikmyndina þar sem Abdi lærði meðal annars að synda. „Paul [Greengrass, leikstjóri myndarinnar] sagði okkur að hann væri ekki bara að leita að leikurum – hann vildi að við yrðum sjóræningj­ ar,“ sagði Abdi eitt sinn í viðtali um myndina. „Svo með vikum af stífum æfingum og harðri þjálfun urðum við sjóræningjar. Ég kunni ekki að synda. Ég þurfti að læra að klifra. Það var ekki í boði að vera hræddur.“ Fjórmenningarnir þurftu líka að læra að stýra sjóræningjabátnum eins og þeir hefðu alist upp á honum, en sú þjálfun tók nokkrar vikur áður en þeir gátu farið með bátinn út á sjó. Hefur nóg á sinni könnu Líkt og fyrr segir hefur Abdi vakið mikla lukku fyrir túlkun sína á sjóræn­ ingjanum Muse og hefur þegar hlotið fern verðlaun og þrettán tilnefningar fyrir leik sinn í myndinni, þar á með­ al Óskarstilnefningu sem besti leikari í aukahlutverki. Óvenjuleg aðkoma Abdi að kvikmyndabransanum hef­ ur vakið mikla athygli vestanhafs og hefur hann verið fenginn í ófáa sjón­ varpsþætti í kjölfarið. Abdi hyggst flytja til Los Angeles í febrúar næstkomandi til að fylgja draumum sínum um frekari kvik­ myndaleik eftir en um þessar mund­ ir er hann að leikstýra kvikmynd í heimalandi sínu, Sómalíu, en hann hefur áður leikstýrt nokkrum tón­ listarmyndböndum. Auk þess hefur hann verið fenginn til að lesa hand­ rit að nokkrum sjónvarpsþáttum svo hann hefur nóg á sinni könnu og það verður spennandi að fylgjast með þessum efnilega leikara á komandi árum. n Lærði að synda fyrir Captain Phillips Hörn Heiðarsdóttir horn@dv.is n Barkhad Abdi hafði aldrei leikið áður n Tilnefndur til Óskarsins Flottir Abdi ásamt mótleikara sínum, Tom Hanks. Abduwali Muse Abdi í hlutverki sínu sem sjóræningja- foringinn Muse. „Ég kunni ekki að synda. Ég þurfti að læra að klifra. Það var ekki í boði að vera hræddur. Með matarást Lawrence hefur ósjaldan rætt um ást sína á mat í viðtölum. Bieber segist saklaus Kanadíska poppstirnið Justin Bieber segist saklaust af því að hafa ráðist á límósínubílstjóra í Toronto í Kanada, í lok desem­ ber. Bieber var fyrir skömmu ákærður fyr­ ir líkamsárás en hann fór sjálfur til lög­ reglunnar til að láta taka fingraför og mynd. Málið verður dómtekið 10. mars. Máls­ atvik eru óljós en fram hefur kom­ ið að bílstjóri hafi keyrt Bieber og fimm aðra farþega af næturklúbbi í Toronto 30. desember. Til átaka hafi komið og að einhver farþeg­ anna hafi lamið bílstjórann ítrekað í höfuðið og svo yfirgefið vettvang áður en lögreglu bar að. n
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.