Dagblaðið Vísir - DV - 31.01.2014, Blaðsíða 62

Dagblaðið Vísir - DV - 31.01.2014, Blaðsíða 62
Helgarblað 31. janúar 201462 Fólk G-blettur í Nepal Sjónvarpskonan Sigríður Elva Vilhjálmsdóttir á ekki sjö dag- ana sæla á Facebook. Logi Berg- mann, vinnufélagi hennar á Facebook, kemst reglulega inn á aðganginn hennar og sendir frá sér ýmislegt í hennar nafni. Á þriðjudag var sett klippa úr þættinum Kolla sem fjallaði um leit að G-blettinum. Við færsl- una stóð: „Við Teitur Þorkels- son fundum minn í Nepal.“ Var þar átt við kærasta Sigríðar. Hún mun þó ekki hafa verið á Face- book og höfðu vinir hennar Loga grunaðan um að hafa komist inn á aðgang hennar aftur. „Raggi og konan í Bónus“ Fylgst er með ferðum fræga fólksins á Íslandi Í slendingar eru þekktir fyrir að vera nokkuð sama um frægt fólk og hvort sem það eru Hollywood- stjörnur sem heimsækja landið eða þjóðþekktir Íslendingar fá flestir að ganga óáreittir um göturn- ar og sinna sínu daglega amstri. En nú er fræga fólkið ekki lengur óhult því Facebook-hópurinn Frægir á ferð leggur áherslu á einmitt hið gagn- stæða. Þar birtast, líkt og nafnið gefur til kynna, myndir sem almenningur hefur tekið af fræga fólkinu á ferðinni og eru margar þeirra ansi skemmti- legar. Má þar til dæmis finna myndir af Ólafi Ragnar í IKEA, Gísla Marteini í göngutúr með hundinn og Ingi- björgu Pálmadóttur í röðinni á Bæj- arins beztu en þeir „frægu“ einstak- lingar sem á hópinn hafa ratað koma úr öllum áttum og meira að segja sér- stakur saksóknari fær ekki frið. Meðlimir hópsins eru nú rúmlega 1.500 talsins en hópurinn er opinn sem þýðir að allir geta fylgst með því sem þar fer fram, en hver sem er getur tekið mynd af einhverjum frægum og sett þar inn. Þeir sem áður voru laus- ir við paparazzi-ljósmyndara og brjál- aða aðdáendur gætu því þurft að hafa varann á til að halda einkalífinu út af fyrir sig hér eftir. n Hákarlasjómenn eftirminnilegastir Sigríður Halldórsdóttir segist ekki eltast við skrítið fólk Á huginn þróaðist hægt og ró- lega en ég byrjaði í þessum bransa eftir menntaskóla þegar ég starfaði sem skrifta á fréttastofu Ríkissjónvarpsins. Það var aldrei neinn æskudraum- ur hjá mér að starfa í sjónvarpi en með starfinu á fréttastofunni kvikn- aði áhugi á að fá að takast á við stærri og meiri verkefni,“ segir sjónvarps- konan Sigríður Halldórsdóttir sem áhorfendur þekkja úr Landanum. Mastergráða í alþjóða- samskiptum Þrátt fyrir ungan aldur hefur Sig- ríður starfað á RÚV í átta ár með hléum. Hún og fjölskylda henn- ar komu heim í sumar eftir árs dvöl í Barcelona þar sem Sigríður tók mastergráðu í alþjóðasamskiptum. Hlæjandi segist hún ekki nota nám- ið mikið í vinnunni. „Ekki beint en ég hef áhuga á þessu og langaði til að bæta við mig menntun.“ Sigríður, sem ólst upp í Vík í Mýr- dal og á Hvolsvelli en býr nú í Reykja- vík, segir vinnuna við Landann skemmtilega og fjölbreytta. „Það er gaman að fá tækifæri til að hitta allt þetta fólk sem maður hefði annars ekki tækifæri til að hitta og tala við það um hluti sem maður hefði aldrei annars fengið að forvitnast um. Í starfinu förum við víða og hittum marga. Hópurinn sem stendur að Landanum er líka mjög góður og skemmtilegur svo það er gaman í vinnunni.“ Saknar stelpunnar sinnar Sigríður þarf að ferðast um landið til að taka upp efni fyrir þáttinn. „Við förum vítt og breitt. Oftast kem ég heim að kvöldi en stundum för- um við í lengri ferðir. Í síðustu viku fór ég á sunnanverða Vestfirði í ferð sem átti að vera þriggja daga en varð fjögurra daga vegna ófærðar. Í svona tilfellum getur verið svolítið erfitt að vera í burtu frá litlu stelpunni minni. Ég hugga mig við að ég er örugg- lega uppteknari af aðskilnaðinum en hún, sem er bara í góðu yfirlæti hjá pabba sínum á meðan.“ Innt eftir eftirminnilegasta við- mælandanum nefnir hún hákarla- sjómenn á Vopnafirði. „Ég fór með tveimur hákarlasjómönnum út á Héraðsflóa til að vitja um hákarla- línu sem þeir höfðu lagt. Þetta var mjög skemmtileg ferð og ég var ánægð með innslagið sem við gerð- um svo úr myndefninu. Þetta voru flottir karakterar, þessir sjómenn, svo þeir koma fyrstir upp í hugann. Þetta er einmitt það skemmtilega við vinnuna; ég efast um að ég hefði far- ið á hákarlaveiðar nema af því að ég er í þessu starfi.“ Alls konar fólk Sigríður segir það misskilning að Landinn elti uppi skrítið og sérviturt fólk úti á landi. „Við leggjum einmitt ekki upp úr því heldur reynum við að tala við ósköp venjulegt fólk, sem er að gera áhugaverða og eftir- tektarverða hluti. Fólk er auðvitað af öllu tagi, en viðmælendur Land- ans eru ekki skrítnari en hver ann- ar. Svo tökum við líka efni upp á höf- uðborgarsvæðinu því við lítum svo á að landinn sé úti um allt land þótt við förum eflaust meira en flestir út á landsbyggðina.“ n Indíana Ása Hreinsdóttir indiana@dv.is „Það er gaman að fá tækifæri til að hitta allt þetta fólk sem maður hefði annars ekki tækifæri til að hitta. Nýkomin heim Sig- ríður kom heim í sumar eftir ársdvöl á Spáni. Erpur genginn út Rapparinn Erpur Eyvindarson er kominn með kærustu. Það var tímaritið Séð og heyrt sem greindi frá þessu en sú heppna heitir Sigrún Erlingsdóttir. Munu þau hafa verið að hittast um nokkurt skeið en sambandið núna orðið opinbert. Erpur er vel þekktur sem rapparinn Blaz Roca en einnig sem vinsæll sjónvarps- maður þar sem hann sló í gegn fyrir nokkrum árum sem Johnny International. Kynnir íslenska veitingastaði Matarbloggarinn Eva Laufey Hermannsdóttir var fengin til að sýna blaðamönnum frá tímariti breska stjörnukokksins Jamie Oliver íslenska veitingastaði síðastliðinn miðvikudag. Þetta skrifar Eva á bloggsíðu sína en hún hefur getið sér góðan orðstír í matreiðslu og er einn vinsælasti matarbloggari landsins. „Í dag eyddi ég deginum með blaðamönnum frá Jamie Oli- ver tímaritinu í Bretlandi. Við löbbuðum um Reykjavík og ég sýndi þeim marga dásamlega veitingastaði sem við erum svo heppin að eiga. Það var ekki leiðinlegt að monta sig af góða og fjölbreytta matnum okkar hér á Íslandi,“ skrifar Eva Laufey á bloggsíðu sína. Í Bónus „Raggi og konan í Bónus,“ stendur við þessa mynd af Ragga Bjarna. Á Bæjarins beztu „Á sumum veitinga- stöðum er engin VIP-röð,“ stendur við þessa mynd af Ingibjörgu Pálmadóttur í röðinni á Bæjarins beztu. Herbert á ferð Þessi mynd náðist af söngvaranum Herberti Guðmundssyni fyrir skemmstu.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.