Dagblaðið Vísir - DV - 31.01.2014, Blaðsíða 26

Dagblaðið Vísir - DV - 31.01.2014, Blaðsíða 26
Helgarblað 31. janúar 201426 Fréttir Erlent „Held að ég sé enn fastur í námunni“ n Eftirmálar námuslyssins í Chile 2010 n Enginn hefur fengið bætur greiddar C hile-maðurinn Alex Vega er einn þeirra þrjátíu og þriggja námuverkamanna sem var bjargað úr San Jose-námunni í Atacama-eyðimörkinni í Chile árið 2010. Björgunaraðgerðin fang- aði athygli heimsbyggðarinnar og var meðal annars hægt að fylgjast með í beinni sjónvarpsútsendingu þegar hver námuverkamaðurinn á fætur öðrum var dreginn upp úr námunni. Þó svo að allt hafi farið vel að lokum glíma verkamennirnir enn við af- leiðingar einangrunarinnar, en 69 dagar liðu áður en þeim var bjargað. Gleymir hlutum „Ég fæ martraðir og vakna stundum upp og held að ég sé enn fastur í námunni,“ segir Vega í samtali við breska ríkisútvarpið, BBC, og bætir við að hann vakni upp öskrandi. Þetta er ekki eina vandamálið sem hann glímir við. Hann var til dæmis við- staddur fæðingu þriggja barna sinna án þess að muna eftir því. Hann gleymir hlutum, á erfitt með að ein- beita sér og glímir við miklar skap- sveiflur. Hann hefur reynt að vinna bug á erfiðleikum sínum með því að beinlínis horfast í augu við vandann. Reglulega fer hann ofan í námu sem er í eigu bróður hans og dvelur þar í stutta stund í einu. Hann segir að þetta hafi hjálpað honum og martröð- unum hafi fækkað. Lyf og meðferð hjá sálfræðingi hafa einnig gert sitt gagn. „Við erum á lífi, allir 33“ Sagan af námuverkamönnunum þrjátíu og þremur var ein stærsta frétt ársins 2010. Í ágúst það ár hrundi hluti San Jose-námunnar sem gerði það að verkum að námuverkamennirnir sem þar voru að störfum festust á 700 metra dýpri. Ekkert heyrðist frá þeim í sautján daga og töldu flestir að þeir væru löngu látnir. Borað var ofan í jörðina, upp á von og óvon, en þegar borinn kom aftur upp á yfirborðið var þar að finna miða sem á stóð: „Við erum á lífi, allir 33.“ Undirbúningur björgunaraðgerð- anna var langur og strangur og þurftu námuverkamennirnir að hafast við í sjö vikur til viðbótar neðanjarðar áður en þeim var loksins bjargað. Engar bætur greiddar Í umfjöllun BBC kemur fram að margir hafi búist við því að björt framtíð biði námuverkamannanna – það er jú einstakt að festast í námu í 69 daga og lifa til að segja söguna. Raunin er hins vegar önnur og glíma námuverkamennirnir flestir enn við andleg veikindi og þurfa á reglulegri aðstoð sálfræðinga að halda. Margir eru atvinnulausir á meðan aðrir fá fyrir salti í grautinn með hlutastörf- um. Einn dvelur á geðdeild í höfuð- borginni Santiago og að minnsta kosti tveir glíma við áfengis- og vímu- efnafíkn. Enn hefur enginn þeirra fengið bætur frá námufyrirtækinu sem rak San Jose-námuna. Heltekinn af þunglyndi „Fyrstu tvö árin eftir slysið leið mér ágætlega,“ segir Carlos Barrios, sem var 27 ára þegar slysið varð. Hann segir að hann hafi ekki fundið fyrir neinum sársauka, hvorki líkamlega né andlega, hann hafi spilað fótbolta og verið í vinnu í koparnámu hjá einu stærsta námufyrirtæki Chile. Hann lýsir því í samtali við BBC að skyndi- lega hafi í raun allt orðið svart og hann orðið heltekinn af þunglyndi. Barrios segir að hann hafi leitað til geðlæknis vegna veikinda sinna en sá hafi aðeins gefið honum töflur. „Ég varð háður þeim og er enn að taka þær,“ segir hann og bætir við hann fái martraðir og sé mjög myrkfælinn. Smeyk námufyrirtæki Omar Reygadas var einn af aldursfor- setum hópsins sem festist í námunni. Hann hefur verið án starfs í tæplega ár og segir að frægðin, ef svo má segja, hafi unnið gegn verkamönnunum. „Eftir slysið urðum við allir þekktir. Við þekkjum fjölmiðlamenn og fólk í æðstu stjórnstigum landsins,“ segir hann og bætir við að af þeim sökum séu námufyrirtæki smeyk við að veita þeim vinnu. Þeir eigi auðvelt um vik að láta vita ef til dæmis öryggismálum í námunum sé ábótavant. Ekki grundvöllur fyrir lögsókn Í ágúst í fyrra lauk saksóknari rann- sókn á námuslysinu og komst að þeirri niðurstöðu að enginn grund- völlur væri fyrir lögsókn gegn eigend- um San Jose-námunnar. Námu- verkamennirnir voru ósáttir við þá niðurstöðu en einnig gætti óánægju hjá yfirvöldum í Chile. Námuvinnslu- ráðherra Chile, Laurence Golborne, sagði að niðurstaðan væri „ótrúleg“ og benti á að til dæmis hafi aðeins ein útgönguleið verið úr námunni. Lög- um samkvæmt þurfa þær að vera að lágmarki tvær. Flestir námuverka- mannanna hafa síðan höfðað einka- mál á hendur fyrirtækinu, en nokkur ár gætu liðið þar til niðurstaða fæst í þau mál. Álitamál fyrir dómstóla Alex Vega segist hafa misst alla trú á stjórnvöldum og að þau hafi ekki heiðrað loforð sem þau hafi gefið. Hann bendir á að námuverka- mönnunum hafi verið lofað vegleg- um lífeyrisgreiðslum eftir atvikið, en þegar á botninn var hvolft hafi að- eins þeir fjórtán elstu í hópnum feng- ið slíkar greiðslur. „Þeir lofuðu að borga fyrir okkur tannlæknakostnað því mengað vatnið sem við drukkum skemmdi tennurnar í okkur. Það hef- ur ekki staðist,“ segir hann. Yfirvöld segja að takmörk séu fyrir því hvað hægt sé að greiða. Álitamál þurfi að fara fyrir dómstóla. Hollywood bankar upp á Eftir nokkra mánuði mun kvik- myndatökulið frá Hollywood koma til Chile til að hefja tökur á bíó- mynd um námuslysið. Meðal leikara í myndinni eru stórleikararnir Antonio Banderas, Martin Sheen og Juliette Binoche. Framleiðslu- fyrirtækið hefur lofað að námu- verkamennirnir fái hluta af tekjum myndarinnar. Hvort það verði til að létta mönnunum lundina skal ósagt látið. Staðreyndin er sú að þremur árum eftir atvikið glíma námu- mennirnir enn við eftirmála slyssins í San Jose-námunni. n Einar Þór Sigurðsson einar@dv.is Fær martraðir Alex Vega sést hér með tveimur af þremur börnum sínum. Hann vaknar á næturnar með martraðir en hefur reynt að horfast í augu við óttann. Leið ágætlega Carlos Barrios segir að fyrstu tvö árin eftir slysið hafi verið bærileg. Síðan hafi hann upplifað mikið þunglyndi. „Þeir lofuðu að borga fyrir okkur tannlæknakostnað því mengað vatnið sem við drukkum skemmdi tennurnar í okkur. Vaca í haldi í Bandaríkjunum Edgar Vaca, fyrrverandi lögreglustjóri í Ekvador, hefur verið handtekinn í Bandaríkjunum. Vaca hef- ur verið ákærður í heimalandi sínu vegna mannréttindabrota á níunda áratug liðinnar aldar. Er hann meðal annars sakaður um að hafa fyrirskipað mann- rán og pyntingar. Alþjóðleg handtökuskipun hafði verið gefin út á hendur honum og var Vaca handtekinn í höfuðborg Bandaríkjanna, Washington. Innanríkisráðuneyti Ekvador hefur gefið það út að Vaca verði framseldur til Ekvadors þar sem hans bíði réttarhöld. Dauða- dæmdur fangi tekinn af lífi Herbert Smulls, 56 ára Banda- ríkjamaður á dauðadeild í Missouri, var tekinn af lífi á miðvikudag, 21 ári eftir að hafa verið dæmdur til dauða fyr- ir morð. Smulls var sakfelldur í desember 1992 fyrir morð á eiganda skartgripaverslunar. Lögmenn Smulls reyndu fram á síðustu stundu að fá dauðadómnum breytt í lífstíðar- fangelsi, en án árangurs. Smulls varð þar með sjötti fanginn til að vera tekinn af lífi í Bandaríkj- unum á þessu ári og sá þriðji í Missouri frá því í nóvember. Leitað að raðmorðingja Lögreglan í Afríkuríkinu Tansaníu leitar að raðmorðingja sem talinn er hafa skotið átta manns til bana í skjóli nætur undan- farna daga. Fyrsta morðið var framið aðfaranótt sunnudags í bænum Tarime og nágrenni hans. Í öll skiptin voru pen- ingar og farsímar teknir af fórn- arlömbunum. Að sögn breska ríkisútvarpsins, BBC, hefur mikill ótti gripið um sig meðal bæjarbúa sem halda sig nú að mestu innandyra yfir nóttina af ótta við morðingjann.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.