Dagblaðið Vísir - DV - 31.01.2014, Blaðsíða 36

Dagblaðið Vísir - DV - 31.01.2014, Blaðsíða 36
Helgarblað 31. janúar 201436 Fólk Viðtal „Hvað er Vestfirðingur að vilja upp á dekk?“ H alldór kemur gangandi til fundar við blaðamann frá vinnustað sínum í Borgar- túni. Hann gengur oft eða hjólar til vinnu frá heim- ili sínu sem er rétt austan við mið- bæinn. Hann hefur búið í Reykja- vík síðustu þrjú ár svo þeir sem halda að flogið hafi verið með hann í neyðarflugi til Reykjavíkur til að bjarga málum sjálfstæðismanna í Reykjavík geta hugsað sig tvisvar um. Hann er frjálslega klæddur og því fer fjarri að hann virki form- fastur. Hann er með spangir sem ræna hann öllum íhaldssvip. Það kemur enda í ljós að hann þarf ekki að setja slíkan svip upp. Hann er frjálslyndur fram í fingurgóma. Hann fær sér kaffibolla og spyr um asann á DV. Hann er forvit- inn um fjölmiðilinn og segist sjálf- ur ekki kippa sér upp við umfjöllun um málefni tengd honum. Öll um- ræða sé góð og honum hugnist ekki að hafa í kringum sig já-kór. Gagn- rýnin umræða skipti hann máli. Vill gagnrýni „Ég vil fá gagnrýni og ég vil sjálf- ur geta gagnrýnt,“ segir Halldór. „Ég var ekki með mikið af já-fólki í kringum mig í prófkjörinu. Ég er með mjög gagnrýninn hóp í kring- um mig sem hjálpar mér mikið. Það fara margir illa út úr stjórnmálum sem kunna ekki að taka gagnrýni og taka henni persónulega. Ég er með góðan hóp í kringum mig, hóp fólks sem stundaði með mér MBA-nám, fólk hefur líka haft samband sem vill taka þátt í baráttunni með mér. Fjöl- skylda mín tekur einnig ríkan þátt í kosningabaráttunni,“ segir Halldór og segist búa vel enda úr stórri og samrýndri fjölskyldu. Vill gera vel Stærð fjölskyldunnar er ekki orðum aukin. Halldór er að vestan og einn sjö systkina og alinn upp í náttúru- fegurðinni við Ísafjarðardjúp. Faðir hans hét Halldór Hafliðason og móðir María Guðröðardóttir. Bæði eru þau fallin frá. „Pabbi var frá Ögri við Ísafjarðar- djúp, mamma var líka frá Ísafjarðar- djúpi, Kálfavík. Þegar ég var eins árs fluttum við í Vesturbæinn á Fram- nesveginn en ég var enn á barns- aldri þegar mamma og pabbi tók við búinu á Ögri og við fluttum aftur vestur. Ég kom svo hingað til Reykja- víkur 16 ára gamall til þess að ljúka skólagöngu minni og bjó hér og í Grindavík og Garðabæ sem ungur maður.“ Spurður um gildin sem hon- um voru innrætt í æsku segir hann foreldra sína hafa hvatt þau syst- kinin til þess að vanda ávallt til verka í öllu því sem þau tóku sér fyr- ir hendur. Ef þau treystu sér ekki til þess, væri betra að sleppa því. „Bæði pabbi og mamma sögðu okkur að ef við ætluðum ekki að gera eitt- hvað vel þá ættum við að sleppa því. Mottóið mitt er að gera mitt besta. Ég vil ekki hætta fyrirfram við verk- efni – því ég ætla mér alltaf að gera vel. Pabbi var hrjúfur á yfirborðinu en við erum alin upp í miklum kær- leika og erum ótrúlega samrýnd.“ Sækir í náttúruna Sem dæmi um það reka Halldór og systkini hans ferðaþjónustu frá Ögri á sumrin. Þaðan fara þau í kajakferðir og reka Slow Food- veitingastað. „Þetta gerum við í sumarfríum og það auðgar líf okkar allra. Mamma gerði þetta með okk- ur í fyrstu. Pabbi féll frá árið 2009 þá orðin 76 ára gamall og móðir mín árið 2012 þá 69 ára gömul úr krabbameini. Þá hafði hún komið því í verk að við ættum þetta saman að verkefni við systkinin. Ég er auðvitað alinn upp við Djúpið og sæki í náttúruna þar. Kajakferðirnar sem við förum með ferðamenn í eru allt að fimm til sex daga langar og um Djúp og Jökul- firði. Þá eldum við handa þeim og sjáum um allt. Þau þurfa bara að róa og hjálpa til við að tjalda. Á meðan ég var bæjarstjóri fór ég í einn og einn túr í Jökulfirði fyrir önnur ferðaþjónustufyrirtæki til að finna það að ég væri lifandi. Tók þá part úr sumarfríinu í það. Þetta er eitthvað sem mér finnst æðislegt og ég finn að gerir mér gott.“ Erfiður tími Halldór segist lánsamur og lífið hefur leikið við hann. Hann nýtur þess að starfa við stjórnmál og hef- ur gaman af viðfangsefnum sínum. Hann nefnir aðspurður veikindi foreldra sinna sem eitt það erfið- asta sem hann hefur gengið í gegn- um í lífinu. Allir þurfi að kveðja for- eldra sína en reynslan hafi samt sem áður reynst honum erfið og veikindi móður hans óvænt. „Við áttum ekki von á veikind- um mömmu. Hún ætlaði að búa áfram í Ögri eftir fráfall föður míns. Hafði sigrast á krabbameini í nef- holi nokkrum árum áður. Hún fékk hins vegar aftur krabbamein og lést úr því meini. Þetta var auðvitað, eins og það er fyrir alla, mjög erfiður tími. Sjúkralega hennar var of löng fannst manni. Foreldrar mínir eru báðir jarðaðir við kirkjuna í Ögri, þar hvíla þau hlið við hlið.“ Missti hárið Fleiri atburðir í lífinu hafa mótað Halldór. Hann fékk nýja sýn á lífið þegar hann varð fyrir heilsubresti á fyrsta ári sínu sem bæjarstjóri. Þá bilaði ónæmiskerfið, hann missti hárið og varð fárveikur. Í fram- haldinu hefur hann notið þess enn frekar að njóta útivistar og leggja rækt við mannleg samskipti og eigin heilsu. „Ég veiktist mjög alvarlega á fyrsta ári mínu sem bæjarstjóri. Ég var 32 ára gamall og ónæmiskerf- ið bilaði. Það var sjálfsofnæmi. Ég missti allt hár og var fárveikur. Skjaldkirtillinn bilaði og það gekk illa að fá greiningu. Ég sýndi öll merki um að skjaldkirtillinn væri úr lagi. Skjaldkirtillinn varð ofvirkur, og ég hrundi niður í þyngd á með- an ég missti allan þrótt. Það er í raun ótrúlegt að sjá myndir af mér frá þessu tímabili. Ég var búin að fara til nokkurra lækna og ekkert gekk, svo loks uppgötvaði einn læknirinn hvað gekk að mér og þá var hægt að takast á við veikindin af fullum krafti sem gekk vel. Að öðru leyti hef ég verið heilsu- hraustur og í góðu formi, sérstak- lega síðari ár. Ég er fararstjóri í kajak- ferðum og lengri gönguferðum fyrir vestan og útivistin hefur bætt heils- una og líðanina. Mér finnst ég lán- samur. Ég hef alltaf verið að gera eitthvað skemmtilegt, auðvitað er það algjör klisja og frasi. En satt. Ég á mína slæmu daga en ég er alltaf að gera eitthvað sem ég hef rosa- lega mikinn áhuga á,“ segir hann. Kynntist konunni í fiskvinnslu Eiginkona Halldórs er Guðfinna M. Hreiðarsdóttir, sagnfræðingur og MA í hagnýtri menningarmiðlun, og eiga þau tvo syni og eina dóttur. Fyrir á Halldór einn son. Halldór og Guðfinna kynntust í fiskvinnslu. „Ég var 22 ára gamall og hún var rétt orðin tvítug og nýútskrifuð úr MR. Ég var verkstjóri hjá Þorbirni hf. í Grindavík og hún kom og sótti um vinnu. Þetta var að hausti til og hún lét þess getið að hún ætlað í há- skóla eftir áramót. Ég neitaði henni þess vegna um vinnu, vildi aðeins ráða fólk til lengri tíma. Guðfinna þrjóskaðist við svo ég réð hana á endanum. Við byrjuðum saman í janúar nokkrum mánuðum eftir að hún byrjaði að vinna hjá mér og við giftum okkur í júlí. Einn frændi minn sendi mér símskeyti við það tæki- færi sem að mamma var nú hálffúl yfir: Girndarráð gefast best. En ætli það sé ekki bara rétt?“ Segir Halldór og hlær. Nú eiga þau þrjú börn saman. Frumburðinn átti Halldór aðeins átján ára gamall. „Ég varð ungur faðir í fyrsta sinn og lagði mig fram um að halda tengslum. Það gekk á ýmsu við það en það varð til góðs að hann átti afa og ömmu í sveit fyrir vestan og þá reyndist barnsmóðirin standa sig ákaflega vel og gerir enn.“ Sagði nei við altarið Guðfinna sagði nei við altarið og þá varð uppi fótur og fit. Athöfnin endaði þó vel og út gengu Halldór og Guðfinna hjón. „Séra Baldur í Vatnsfirði gaf okk- ur saman í troðfullri kirkju. Honum var tamara að segja nafn föður míns en mitt og sagði við Guðfinnu: Vilt þú ganga að eiga Halldór Haf- liðason. Hún sagði bara nei. Hann leiðrétti sig og hún sagði þá já. Ég veit að einhverjir í kirkjunni hlupu út til þess að hlæja að þessu. Það var mikið kurr og mamma stóð upp og svona í öllum látunum. Á þessu sekúndubroti sem hún er að átta sig á þessu bjargar hún málunum og verður konan mín en ekki stjúpa.“ Stjórnmálamenn valda vonbrigðum Halldór er sagður skapgóður og seinþreyttur til vandræða. Hann er einnig raunsær og segist hafa áhyggjur af fylgi flokksins í borginni. Þótt hann hafi fulla trú á því að ná því upp í baráttunni sem sé enn ekki hafin. „Umræðan er ekki hafin, þegar hún hefst þá veit ég að okkur tekst að koma stefnu okkar skilmerkilega til skila og varpa ljósi á hana. Ég er raunsær stjórnmálamaður og hreinskilinn við sjálfan mig og aðra. Ég tek undir það til dæmis að stjórnmálamenn eru fólk sem veldur vonbrigðum. Það er af því að þeir teikna upp betri framtíð og spenna upp væntingar. Vilja fara á betri stað. Stundum tekst það ekki en það er starf stjórnmálamanna að gefast ekki upp á ferðalaginu. Nú getur fólk haft ótal skoðanir á því hvernig sjálfstæðismenn eru. En verkefni mitt hér í borginni er að seiglast áfram, vera staðfastur í því og trúa því að við höfum ýmislegt fram að færa. Það er ekki að öllu leyti í andstöðu við það sem aðrir flokkar bjóða upp á. Markmið okk- ar allra er betra samfélag. Við erum svo lánsöm, við njótum þess að við búum í góðu samfélagi sem við get- um gert betra. Sum samfélög eru í rúst og þar er markmiðið að kom- ast úr ömurleikanum. En þegar kjósendur eru að velta sér fyrir þvi hvaða aðferð er best til þess þá er það okkar hlutverk að teikna upp hugmyndafræði okkar. Við viljum góða þjónustu en samhliða viljum við líka leita allra leiða til þess að íbúar hafi sem mestar ráðstöfunar- tekjur.“ Vill gera breytingar á aðalskipulagi Halldór er eins og áður hefur verið kynnt formaður Sambands ís- lenskra sveitarfélaga og fyrrverandi bæjarstjóri á Ísafirði. Hann hefur starfað að sveitarstjórnarmálum frá því að hann var kjörinn í bæjar- stjórn Grindavíkur árið 1994 og síð- ar sem framkvæmdastjóri Fjórð- ungssambands Vestfirðinga í rúm tvö ár og sem bæjarstjóri Ísafjarðar- bæjar og oddviti sjálfstæðismanna í 12 ár. Nú bíður hann óþreyjufull- ur eftir því að sinna málum borgar- innar. „Ég bíð óþreyjufullur eftir því að fá að gera ákveðnar breytingar á aðalskipulagi höfuðborgarinnar. Það er ekki nægilegur skilningur á því að höfuðborgin sem hýsir allar helstu stofnanir Íslendinga þarf að vera aðgengileg. Ég skil þörfina á því að skoða Vatnsmýrina sem íbúðabyggð en það er framtíðar- músík. Mér finnst það eigi að vera kristaltært að ef ekkert kemur út úr þeirri vinnu þá þarf ekkert að flytja flugvöllinn eitt eða neitt. Það er hið minnsta skilyrði að hann sé í Reykjavík.“ Tími til kominn að opna skólakerfið Þá finnst Halldóri löngu kominn tími til þess að gera viðamiklar breytingar í skólakerfinu. Hann nefnir sem eitt dæmi fyrirkomu- lag til fyrirmyndar í Norðlinga- skóla en skólinn starfar á grund- velli bókunar fimm í kjarasamningi launanefndar sveitarfélaga og Kennarasambands Íslands. „Það hefur gefist vel þetta samkomulag og það myndi ég vilja fá almennt í samninga við kennara. Ég er auð- vitað í forystu í sambandinu en það byggist á samvinnu okkar við kennara hvort það tekst. Það eru tækifæri fólgin í því. Þess utan tel ég nauðsynlegt að opna skólakerfið meira. Við þurfum að vita nákvæm- lega hvernig hver skóli er að standa sig og í því sambandi vil ég aukna samræðu og samstarf við foreldra.“ Hann tekur dæmi um þörfina á slíku samstarfi hvað varðar skóla án aðgreiningar. „Hversu langt eigum við að ganga með skóla án aðgrein- ingar? Margir foreldrar fatlaðra barna hafa orðið til að gagnrýna fyrirkomulagið. Ég myndi aldrei vilja loka þessu en við getum gert betur. Við þurfum að endurskoða þetta allt saman.“ Samkeppni til góðs „Erum við alltaf að vinna með lægsta samnefnara? Erum við að halda aftur af fólki? Er það á kostn- að krakkanna sem geta orðið mik- ið afreksfólki í námi, atvinnulífi og verðmætasköpun. Þetta eru allt hlutir sem við eigum að þora að breyta. Mér finnst áhugavert að byrja kennslu fyrr, vel þess virði að láta reyna á það á fleiri stöðum þar sem það er mögulegt. Við erum hrædd við allt sem heitir einkaskóli og slíkt. En viljum á sama tíma vera í samanburði við hinar Norðurlandaþjóðirnar. Þar er hefð fyrir einkaframtaki og samkeppni við ríkisskólana. Hún er til góðs, slík samkeppni.“ Hvað er Vestfirðingur að vilja upp á dekk? Halldóri hefur verið tekið sem að- komumanni þótt hann hafi búið í Reykjavík í mörg ár sem ungur maður og haldið heimili í borginni frá árinu 2010. „Það sem er búið að vera mest krefjandi eftir prófkjör er að stilla saman strengina. Ég held að það hljóti alltaf að vera þannig. Ég er búinn að fara mjög víða og hitta fólk. Ég fæ góðar viðtökur en oft vill fólk spyrja hvað Vestfirðing- ur sé að vilja upp á dekk í Reykja- vík. En það er skemmtilegt að svara þeirri spurningu. Sér í lagi þeim sem halda að ég þekki borgina ekki neitt, að ég hafi komið hingað al- veg grænn í haust til þess að koma að málefnum borgarinnar. Stað- reyndin er sú að ég bjó í Reykja- vík í mörg ár og hef verið hér síð- an haustið 2010. Ég kem inn í þetta sem Reykvíkingur. Maður vill hlú að garðinum sínum, þar sem mað- ur býr. Og ég bý í Reykjavík. En ég er Vestfirðingur með gríðar- lega reynslu af rekstri fyrirtækja og sveitarfélags. Borgarbúar ættu að geta tekið því fagnandi að fá slíka reynslu inn í stjórnun borgarinnar.“ Halldór ætlaði sér ekki að fara aftur í pólitík eftir að hann hætti sem bæjarstjóri. „Ef þú hefðir spurt mig Halldór Halldórsson, oddviti sjálfstæðis- manna í Reykjavík, er stundum spurður að því hvað Vestfirðingur sé að vilja upp á dekk í borginni. Hér hefur Halldór hins vegar búið stóran hluta ævi sinnar. „Maður vill hlú að garðinum sínum, þar sem maður býr. Og ég bý í Reykjavík,“ segir hann. Kristjana Guð- brandsdóttir ræddi við Halldór um uppvöxtinn fyrir vestan, veikindin í bæjarstjórastóli sem kenndu hon- um að forgangsraða í lífinu og þau mál sem hann bíð- ur með óþreyju eftir að fá að takast á við í borginni. Kristjana Guðbrandsdóttir kristjana@dv.is „Ég missti allt hár og var fárveikur
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.