Dagblaðið Vísir - DV - 31.01.2014, Blaðsíða 37
Helgarblað 31. janúar 2014 Fólk Viðtal 37
þá, þá hefði ég sagt nei. Ég þurfti á
sjálfsendurnýjun að halda og hugs-
aði með mér að maður kæmi í
manns stað. Ég vildi ekki koðna nið-
ur í því sem ég var að fást við. Ég
tel nauðsynlegt að skipta um starfs-
vettvang og umhverfi öðru hverju.
Ég tók að mér formennsku í Sam-
bandi íslenskra sveitarfélaga og
sá ekki eftir því. Þar reynir á aðra
hæfileika mína í rekstri og stjórnun
og ég hef lært mikið í starfi.
Í fyrravetur byrjaði hins vegar
áhuginn að krauma. Það var skorað á
mig að fara fram til Alþingis en ég var
ekki spenntur fyrir því. Í framhaldi af
því fór fólk að spyrja mig hvort ég gæti
hugsað mér að fara fram í Reykjavík.
Það varð til þess að ég leiddi hugann
að borgarmálum. Áður en ég vissi af
fékk ég brennandi áhuga fyrir því að
vinna að bættu lífi borgarbúa.“
Halldór er frjálslyndur sjálfstæðis-
maður og finnst flokkurinn hafa þró-
ast fullmikið í íhaldsátt. „Ég ætla að
leggja mig fram um það að við för-
um aftur á þann stað þar sem við eig-
um að vera sem er opinn, frjálslyndur
og umbótasinnaður flokkur. Það eru
grunngildin og þau standa fyrir sínu.
Ég gekk í þann Sjálfstæðisflokk, ég hef
unnið þannig í gegnum tíðina. Ég vil
að við séum alltaf með þessa hug-
myndafræði á hreinu.“
Vildi konu í annað sætið
En hvað með karlaslagsíðuna í
flokknum? Mun honum takast að afla
sér fylgis með karla í efstu sætum?
„Mér finnst eðlilegt að þessi umræða
hafi verið tekin um karlaslagsíðuna í
flokknum. Ég tók hana sjálfur í próf-
kjörsbaráttunni. Þegar fólk spurði
hvern það ætti að setja í annað sæti –
þá sagði ég að við gæfum ekkert slíkt
út en vildi hins vegar að kjósendur
mínir pössuðu upp á kynjahlutföllin.
Ég vildi helst að þeir sem höfðu ekki
skoðun á öðru en því að hafa mig í
fyrsta sæti settu konu í annað sætið.
Af hverju sagði ég þetta? Af því þetta
skiptir máli.
Ég er ekki án þeirra sterku
kvenna sem eru í flokknum. Við
erum þarna saman. Þegar út í bar-
áttuna er komið er ekkert mikið
verið að hugsa um sæti, heldur
bara hverjir verða borgarfulltrú-
ar. Ég trúi því að við náum að jafna
hlutföllin. Síðar ættum við að taka
umræðu um aðferðirnar sem við
notum, læra af þessu tímabili og
ef til vill hugleiða að taka upp
blandaðar aðferðir.“ n
„Maður vill hlú að
garðinum sínum,
þar sem maður býr. Og
ég bý í Reykjavík.
Vill rækta garðinn
Halldór Halldórsson var
viss um að snúa ekki aftur
í stjórnmálin eftir að hann
hætti sem bæjarstjóri á
Ísafirði. Honum snerist þó
hugur fljótt og örugglega
og er haldinn ástríðu
fyrir borgarmálum Reykja-
víkurbúa. Mynd Sigtryggur Ari