Dagblaðið Vísir - DV - 28.02.2014, Blaðsíða 22
Helgarblað 28. febrúar 201422 Fréttir Erlent
46 sjálfsvíg á
Golden Gate
Að minnsta kosti 46 einstaklingar
frömdu sjálfsvíg í fyrra með því
að stökkva fram af Golden Gate-
brúnni í San Francisco. Þetta
er mesti fjöldi á einu ári frá því
að brúin var opnuð árið 1937,
að því er fram kemur í frétt San
Francisco Chronicle. Nokkur
ár eru liðin síðan borgaryfir-
völd í San Francsico samþykktu
að öryggisgirðing yrði sett upp á
brúnni. Framkvæmdirnar hafa
hins vegar tafist ótæpilega þar
sem 45 milljónir dala, rúma fimm
milljarða króna, vantar til að
standa straum af kostnaðinum.
Þá hefur það verið gagnrýnt harð-
lega að á þessu ári stendur til að
gera endurbætur á brúnni til að
minnka líkur á umferðarslysum.
Kostnaðurinn við það verkefni
nemur 26 milljónum dala, tæp-
um þremur milljörðum króna.
Hafa gagnrýnendur bent á það að
aðeins einn hafi látist í umferðar-
slysi á brúnni á síðustu 15 árum.
Á sama tíma hafa nokkur hund-
ruð manns endað líf sitt með því
að kasta sér fram af brúnni.
n Hörmulegt ástand í Yarmouk í Sýrlandi n Innlyksa íbúar í sárri neyð
Í
Yarmouk-flóttamannabúðun-
um í Damaskus, höfuðborg Sýr-
lands, blasir ekkert við nema
algjör eyðilegging og neyð
þeirra þúsunda íbúa sem þar
búa. Harðir bardagar hafa geisað
í og kringum flóttamannabúðirn-
ar undanfarnar vikur og mánuði
og hefur matur og nauðsynleg lyf
verið af afar skornum skammti um
langt skeið. Lyce Doucet, frétta-
maður BBC, heimsótti flótta-
mannabúðirnar á dögunum og er
ekki hægt að segja annað en að
ástandið þar sé ömurlegt.
Setið um búðirnar
Yarmouk- flóttamannabúðirnar
voru opnaðar árið 1948 fyrir
Palestínumenn vegna átakanna
við Ísrael. Talið er að íbúar þar
hafi verið í kringum 150 þúsund
þegar borgarastyrjöldin í Sýrlandi
braust út árið 2011. Áður en átök-
in brutust út bjuggu ekki einung-
is Palestínumenn, eða afkom-
endur þeirra, í Yarmouk heldur
einnig sýrlenskar fjölskyldur og
var Yarmouk í raun eins konar út-
hverfi í Damaskus frekar en flótta-
mannabúðir í þeim skilningi. Fyrst
um sinn var allt með kyrrum kjör-
um í Yarmouk þótt átök væru víða í
Sýrlandi. Árið 2012 ruddust vopn-
aðir uppreisnarmenn inn í búð-
irnar og í kjölfarið flúðu tugir þús-
unda íbúa búðirnar. Talið er að
undanfarna átta mánuði hafi tutt-
ugu þúsund manns verið innlyksa
í Yarmouk, enda hefur sýrlenski
herinn setið um búðirnar og fá
afar fáir að fara inn eða út.
Fólk mótmælir
Flóttamannaaðstoð Sameinuðu
þjóðanna fyrir Palestínu (UNRWA)
fékk loks aðgang að Yarmouk þann
18. janúar síðastliðinn og höfðu
íbúar þá verið án matvæla- eða
lyfjaaðstoðar svo mánuðum skipti.
Samkomulag milli uppreisnar-
manna og sýrlenskra stjórnvalda
fól í sér að UNRWA fengi aðgang og
hafa íbúar síðan þá fengið takmark-
að magn af matvælum og lyfjum.
En betur má ef duga skal og seg-
ir Doucet að fjölmargir íbúa virðist
vannærðir og illa haldnir. „Við höf-
um aðallega borðað jurtir og krydd
undanfarnar vikur,“ sagði einn íbúi í
samtali við BBC. Annar, hin sextuga
Wafiqa, grátbað blaðamann um að-
stoð. „Gerðu það, gerðu það, taktu
okkur með þér. Við erum að deyja
hérna.“ Doucet lýsir því í grein sinni
sem birtist á vef BBC í vikunni að
fyrir aftan hana hafi þúsundir íbúa
troðist við öryggishlið UNRWA í
þeirri veiku von að fá matvælaað-
stoð. Eftirspurnin er meiri en fram-
boðið og ekki allir sem fá þá aðstoð
sem þeir þurfa á að halda. Þennan
dag var 60 matvælapökkum útdeilt
til íbúa og hefur það hleypt illu blóði
í íbúa Yarmouk hversu lítið aðstoð-
in er. Fólk hefur látið í sér heyra og
mótmælt fyrirkomulaginu.
„Ekki lengur í helvíti“
Filippo Grandi er yfirmaður UN-
RWA og ávarpaði hann íbúa
Yarmouk daginn sem BBC kom í
heimsókn. „Við höfum ekki gleymt
ykkur, heimurinn hefur ekki
gleymt ykkur. Við vonumst til að
ná til allra ef stríðandi fylkingar
leyfa okkur það.“ Grandi segist þó
þakklátur fyrir það að UNRWA hafi
fengið aðgang og þó aðstoðin sé
lítil sé verið að bjarga mannslífum.
„Það er mikil vinna framundan en
þetta samkomulag sýnir að það er
vilji til að bæta úr hlutunum hjá
öllum aðilum.“
Þegar Doucet yfirgaf Yarmouk
var henni litið um öxl. Hún lýsti
því að fyrir aftan hana hafi verið
hin sextuga Wafiqa sem virðist
hafa tekist að yfirgefa búðirnar, lík-
lega með aðstoð skyldmennis með
réttu tengslin. „Ég er ekki lengur í
helvíti. Núna þarf ég ekki að borða
gras lengur,“ segir hún. n
„Við erum að
Einar Þór Sigurðsson
einar@dv.is
Eyðilegging Þar
sem áður var rótgróið
íbúðahverfi fyrir flótta-
menn frá Palestínu er
nú ein rjúkandi rúst.
Beðið eftir aðstoð Íbúar Yarmouk fara í röð á hverjum degi og bíða eftir aðstoð. Því
miður hafa ekki allir fengið þá aðstoð sem þeir þurfa á að halda.
Grátbað um hjálp Wafiqa grátbað um
aðstoð og hefur nú yfirgefið Yarmouk.
Ekki gleymdir Filippo Grandi ávarpaði
íbúa Yarmouk og sagði að heimurinn væri
ekki búinn að gleyma þeim.
deyja hérna“26 dæmdir til dauða
Dómstóll í Egyptalandi hefur
dæmt 26 einstaklinga til dauða,
en allir voru þeir ákærðir fyrir
að leggja á ráðin um hryðju-
verk. Samkvæmt ákæru tilheyrðu
mennirnir hryðjuverkahópi og var
markmið hans meðal annars að
gera árásir á skip á leið um Suez-
skurðinn.
Aðeins eru örfáir dagar síðan
Ibrahim Mahlab, nýr forsætis-
ráðherra Egyptlands, tilkynnti að
hryðjuverkastarfsemi yrði upprætt
með öllum tiltækum ráðum. Virð-
ist þetta vera fyrsta skrefið í þá átt.
Rokkari réð
leigumorðingja
Tim Lambesis, söngvari banda-
rísku rokksveitarinnar As I Lay
Dying, hefur játað að hafa ráðið
leigumorðingja til að koma fyrr-
verandi eiginkonu sinni fyrir
kattarnef. Lambesis spurði einka-
þjálfara í apríl í fyrra hvort hann
gæti fundið einhvern sem væri til
í að myrða fyrrverandi eiginkonu
sína, en hún sótti um skilnað við
hann árið 2012. Í kjölfarið setti
maður sig í samband við Lambesis
og sagðist vera reiðubúinn að taka
verkið að sér. Lambesis var grun-
laus um að maðurinn sem um
ræddi var lögregluþjónn. Dómur í
málinu verður kveðinn upp 2. maí
næstkomandi og gæti Lambesis
átt yfir höfði sér níu ára fangelsi.