Dagblaðið Vísir - DV - 28.02.2014, Blaðsíða 14
Helgarblað 28. febrúar 201414 Fréttir Nærmynd
Þ
órólfur er mjög mikill
áhrifamaður hjá þeim.
Það er eitthvað sem allir
vita,“ segir þingmaður úr
stjórnar andstöðunni að
spurður um stöðu Þórólfs Gísla
sonar, kaupfélagsstjóra í Kaupfé
lagi Skagfirðinga, sem valdamanns
í Framsóknarflokknum. Kaupfé
lag Skagfirðinga er eitt öflugasta
fyrir tæki landsins og stundar með
al annars rekstur á sviði fiskveiða,
framleiðslu á landbúnaðarvörum
og stundar smásölu í héraði.
Í fréttaati liðinnar viku um þá
ákvörðun ríkisstjórnarinnar að slíta
aðildarviðræðum við Evrópusam
bandið hefur nafn Þórólfs Gísla
sonar ekki mikið komið upp í um
ræðunni. Þórólfur er hins vegar
einn áhrifamesti maðurinn á bak
við tjöldin í Framsóknarflokknum
og hefur verið um árabil. Þórólfur
sat meðal annars lengi í miðstjórn
flokksins. Tengsl hans og Gunnars
Braga Sveinssonar utanríkisráð
herra eru náin enda var ráðherr
ann starfsmaður Kaupfélagsins
og sveitar stjórnarmaður í Skaga
firði áður en hann settist á þing.
Norðvesturkjördæmi, Skagafjörð
urinn þar á meðal, er sögulega eitt
sterkasta vígi Framsóknarflokksins
í landinu og Þórólfur er valdamesti
maður flokksins í héraðinu.
Stórveldi Þórólfs
Þórólfur lúrir því undir yfirborðinu
rétt eins og frændi hans, Davíð
Oddsson, gerir á hinum vængnum í
ríkisstjórninni. Báðir eru þeir stæk
ir andstæðingar Evrópusambands
ins og líklega valdamestu mennirn
ir í flokkunum tveimur. Erfitt er að
tengja atburði liðinna daga á Al
þingi ekki við þessa tvo kafbáta í
íslenskum stjórnmálum en hags
munir þeirra mætast meðal annars
í Morgunblaðinu þar sem Kaupfé
lagið á tæplega 10 prósenta hlut.
Þórólfur er, ásamt frænda
sínum í Hádegismóum, einn
valdamesti maður landsins.
Munurinn á honum og öðrum
valdamiklum mönnum í við
skiptalífinu, eins og til dæmis
Þorsteini Má Baldvinssyni,
forstjóra Samherja, er að
Kaupfélag Skagfirðinga er
í miklu fjölbreyttari rekstri
í héraði en akureyska út
gerðarfélagið. Kaupfélag
Skagfirðinga er stærsti at
vinnurekandinn á svæð
inu, rekur stærstu mat
vörubúðina og er með
mikil pólitísk ítök í gegn
um Framsóknarflokkinn.
Þessi staða leiðir til þess
að Skagfirðingar þora
margir hverjir ekki að
gagnrýna kaupfélagið og
umsvif þess. „Menn fyrir
norðan þora varla að tjá
sig. Þarna er rekið ótrú
legt starf. Kaupfélagið
ræður öllu, það rekur
Skagafjörðinn. Eiginlega
er ekkert undanskilið.“
Þessu til stuðnings má benda á
að auk fiskveiða, kjötvinnslu og sölu
á matvöru þá á kaupfélagið flutn
ingafyrirtækið Vörumiðlun sem sér
um vöruflutninga til og frá Sauðár
króki og eins héraðsblaðið Feyki
sem er eini skagfirski fjölmiðillinn.
Því er það ekki langt frá sannleik
anum þegar sagt er að kaupfélagið
„ráði öllu“ i Skagafirði.
Enginn getur tekið það af Þórólfi
að hann hefur byggt upp stórveldi í
íslensku viðskiptalífi enda gefa all
ir viðmælendur DV kaupfélags
stjóranum það að hann sé góður
rekstrarmaður. „Þetta eru snyrtileg
ir rekstrarmenn. Þeir hugsa vel um
reksturinn og hverja rekstrarein
ingu. Þeir eru ólíkir mörgum kaup
félagsmönnum frá því í gamla daga
að því leytinu til. Þetta má segja
þeim til hróss,“ segir einn af við
mælendum DV úr viðskiptalífinu.
„Óskipt andúð“
Einn af heimildarmönnum DV úr
Skagafirði, sem ekki vill láta nafn
síns getið, segir að Þórólfur hafi haft
Evrópusambandið „á heilanum“
um árabil og að hann hafi
„óskipta andúð á Evrópu
sambandinu“.
„Þórólfur
og
kaupfélagið þrífast á póli
tískri fyrirgreiðslu, póli
tískum afskiptum, kerfi
sem ekki byggir á frjálsri
samkeppni eða röskun
á högun. Hann vill út
deilingu á hinum ýmsu
gæðum: Óbreytt sjávar
útvegskerfi, óbreytt
landbúnaðarkerfi, enga
samkeppni í mjólk eða
ostum, hann rekur eitt
stærsta sláturhús á Ís
landi og er með þriðjung
af sláturhúsamarkaðnum.
Þórólfur vill almennt séð
hafa óbreytt kerfi og í skjóli
fákeppninnar fá að víla og
díla. Og ef þú sérð þetta ekki
endurspeglast með miklum
hætti í stefnu Framsóknar
flokksins þá veit ég ekki hvað.
Þórólfur hefur alltaf litið á Evrópu
sambandið sem stórhættulegt fyrir
bæri.“
Þegar spurt er hvernig Þórólfur
getur tengst þeirri umræðu um slit
á aðildarviðræðum við Evrópusam
bandið er svarið á þá leið að tengsl
hans og Gunnars Braga Sveinssonar
auðveldi aðgengi hans að utanríkis
stefnu Íslendinga. Íbúi í Skagafirði
sem starfað hefur í sveitarstjórnar
málum í héraðinu og þekkir til
Gunnars Braga segist sannfærður
um náin tengsl ráðherrans og kaup
félagsstjórans. „Ég er alveg sann
færður um að þeir séu mjög nánir.
Einfaldlega vegna þess að
Gunnar Bragi hefði
aldrei farið inn
í pólitík
Valdamaðurinn
n Þórólfur Gíslason stýrir stórveldi í Skagafirði
Ingi Freyr Vilhjálmsson
ingi@dv.is „Hans
mottó
í lífinu er að
vera einn
„Þetta er
hegðunar-
mynstur eins og
hjá olígarka