Dagblaðið Vísir - DV - 28.02.2014, Qupperneq 42
Helgarblað 28. febrúar 201434 Neytendur
S
amkvæmt upplýsingum
á heimasíðu Útfararstofu
kirkjugarðanna er kostn-
aður við útför um það bil
530.000 krónur þrátt fyrir að
kostnaður vegna prestþjónustu við
kistulagningu og útför svo og kostn-
aður vegna grafartöku sé greiddur
af kirkjugörðunum. Kostnaður við
dánartilkynningar er ekki innifalinn
í útreikningum útfararstofunnar,
né heldur erfidrykkja en hún getur
verið nokkuð dýr. Kostnaður við
lesna tilkynningu í Dánarfregnum
og jarðarförum í útvarpinu fer eftir
fjölda orða en algengt verð fyrir til-
kynningu sem lesin er fjórum sinn-
um er um 30.000 krónur. Tilkynning
í Fréttablaðinu um andlátið kostar
18.912 krónur.
Margnota kista
Útfararþjónustan er önnur útfarar-
þjónusta sem kynnti nýlega nýjung
í líkkistum, margnota líkkistu. Hún
er smíðuð úr íslensku lerki og kostar
leiga á henni um 10.000 krónur. Inn
í þá kistu er rennt annarri mun ein-
faldari sem bæði má brenna og grafa
og kostar hún 70.000. Rúnar Geir-
mundsson útfararstjóri segir kistuna
hafa verið notaða þrisvar sinnum nú
þegar og mælist hún vel fyrir.
Samkvæmt Arnóri Pálssyni,
framkvæmdastjóra Útfararþjón-
ustu kirkjugarðanna, eru stærstu
útgjaldaliðirnir yfirleitt tónlistarat-
riðin og kistan. Hefðbundnar lík-
kistur kosta á bilinu um 120.000 og
upp í 325.000 eftir íburði og efni svo
með því að notast við margnota kistu
má helminga kostnaðinn miðað við
þá ódýrustu af hefðbundnu kistun-
um. Þá kostar kistuskreyting 34.000
krónur samkvæmt upplýsingunum
en við útfarir er einnig heimilt að
sveipa kistuna íslenska fánanum og
kostar það ekkert.
Með eigin sæng
Arnór segir nokkur ráð til að ná nið-
ur kostnaði. Þannig sé algengt að
hinn látni sé klæddur í sín eigin föt
og jafnvel jarðaður með sína eig-
in sæng og kodda. Samtals lækkar
það kostnaðinn um rúmlega 30.000.
Þá kostar 6 manna kór 85.288 sam-
kvæmt upplýsingum Útfararþjón-
ustu kirkjugarðanna en einsöngur
aðeins um 25.000. Þar má því spara
60.000. Fari útförin fram í kyrrþey
lækkar kostnaður við útfararþjón-
ustuna um 30.000 krónur auk þess
sem ekki þarf að greiða fyrir sálma-
skrá 41.495 krónur eða erfidrykkju.
Þess ber að geta að aðstandendur
hafa val um tónlistarflutning.
Erfidrykkjan dýr
Kostnaður við erfidrykkju fyrir
150 manns getur hlaupið á bilinu
225.000 til 400.000 eftir því hvar hún
er haldin og hvað boðið er upp á þar.
Algengt verð er þó um 300.000.
Dánarbætur misjafnar
Algengt er að stéttarfélög greiði
dánarbætur aðstandendum fé-
laga sinna. Þær er heimilt að greiða
þeim sem stendur straum af kostn-
aði við útförina. Mjög misjafnt er eft-
ir stéttarfélögum hversu háar dánar-
bæturnar eru, hversu lengi hinn
látni var sjóðfélagi, stærð og sam-
setning eftirlifandi fjölskyldu og svo
framvegis. Hjá sumum félögum er
upphæðin föst en hjá öðrum nem-
ur hún hlutfalli af mánaðarlaunum
hins látna.
Samkvæmt lögum ber sveitarfé-
lögum að bera kostnað af útförum
eigi dánarbú ekki fyrir kostnaðin-
um. Viðmiðunarmörk Reykjavíkur-
borgar hafa þó ekki breyst undan-
farin 10 ár og er upphæðin 160.000
krónur. n
Dauðinn er dýr
n Kostnaður við útfarir er mjög hár n Nokkrar leiðir til að lækka útfararkostnað
Auður Alfífa Ketilsdóttir
fifa@dv.is
Kostnaður
við útför
n Kista 149.393 kr.
n Sæng, koddi, blæja 21.166 kr.
n Líkklæði 9.605 kr.
n Útfararþjónusta 119.629 kr.
n Fossvogskirkja 6.600 kr.
n Organisti við útför 19.728 kr.
n Kór 6 manna 85.288 kr.
n Sálmaskrá 150 stk. 41.495 kr.
n Kross á leiði 12.677 kr.
n Skilti á kross 8.803 kr.
n Kistuskreyting 34.000 kr.
n Umsjónargjald 10.501 kr.
n Stefgjald 5.250 kr.
n Blóm á altari 8.000 kr.
Samtals: 532.135 kr.
Lægri útfarar-
kostnaður
n Margnota kista 70.000 kr.
n Sæng, koddi, blæja frá hinum látna 0 kr.
n Líkklæði - föt hins látna 0 kr.
n Útfararþjónusta 11 9.629 kr.
n Fossvogskirkja 6.600 kr.
n Organisti við útför 19.728 kr.
n Einsöngur 25.000 kr.
n Sálmaskrá 150 stk. 41.495 kr.
n Kross á leiði 12.677 kr.
n Skilti á kross 8.803 kr.
n Kistuskreyting - fáni 0 kr.
n Umsjónargjald 10.501 kr.
n Stefgjald 5.250 kr.
n Blóm á altari 8.000 kr.
Samtals: 327.683 kr.
Innifalið í þjónustu útfararstofa
n Sækja lík á dánarstað
n Hafa samband við prest fyrir aðstandendur
n Aðstoðar aðstandendur við val á líkkistu og líkklæðum
n Búa um hinn látna í líkkistu
n Aðstoða aðstandendur við val á organista og söngfólki
n Hafa umsjón með kistulagningarathöfn
n Útvega grafarstæði í kirkjugarði
n Undirbúa og hafa umsjón með útför
n Útvega og hafa umsjón með prentun sálmaskrár
n Útvega blóm og kistuskreytingar
n Útvegar nauðsynleg gögn svo sem brennslubeiðnir
n Útvega krossa og spjald á leiði
„Þess ber að geta
að aðstandendur
hafa val um tónlistar-
flutning.
Best að byrja
smátt
Auðvelda leiðin til að borga
niður skuldir
Þegar fólk byrjar að æfa fyrir
maraþon byrjar það ekki á að
skokka 42 kílómetra heldur
byrjar það á styttri
vegalengdum. Að
sama skapi er
besta leiðin til
að borga niður
skuldir sú að byrja
smátt. Það segir
Michelle Singletary í nýlegum
dálki í Washington Post.
Yfirleitt er mælt með því
að fólk byrji á að greiða niður
þá skuld sem ber hæsta vexti.
En jafnvel þótt það kunni að
vera skynsamlegast getur það
orðið til þess að fólk eigi erfitt
með að halda sig við niður-
greiðsluplanið. „Raunveruleik-
inn er sá að fólk hagar sér ekki
skynsamlega, þá væri það ekki
í fjárhagsvandræðum,“ segir
Singletary.
Vandinn er sá að það er erfitt
að halda sig við að greiða háar
fjárhæðir í hverjum mánuði ef
árangurinn er ekki sýnilegur.
Lausnin við því er að leggja til
hliðar skynsemisútreikninga og
einbeita sér fyrst að lægri upp-
hæðum sem hægt er að greiða
upp hratt til að byggja upp þol.
Hún mælir með því að fólk
skrifi lista eftir því hversu háar
upphæðir um ræðir þar sem
lægsta skuldin er efst en þær
hæstu neðst. Byrji svo efst á list-
anum og greiði bara lágmarks-
afborganir af öðrum skuldum á
meðan. Þegar sú fyrsta er full-
greidd á að byrja að greiða upp
þá næstu með sömu afborgun-
um.
Þetta er ekki fljótlegasta
leiðin til að greiða upp skuldir
segir Singletary en hún bendir
þó á rannsókn sem gerð var við
Northwestern University’s Kell-
ogg School of Management sem
sýndi fram á að raunhæf mark-
mið juku líkur á að þátttakendur
greiddu upp skuldir sínar.
Þrjú atriði sem Singletary
tiltekur til að auðvelda niður-
greiðslu skuldanna koma hér
á eftir:
1 Fara yfir bankayfirlitið línu fyrir línu. Öll endur-
tekin útgjöld, eins og hádegis-
mat með vinnufélögunum eða
vikulegan barreikning, er hægt
að einsetja sér að helminga.
Í næsta mánuði má svo bæta
fleiri útgjaldaliðum á listann.
Allir peningarnir sem sparast
ættu að fara beint í að greiða
skuldir.
2 Skapandi staðgenglar. Singletary tekur dæmi af
manneskju sem
hefur vanið sig
á að kaupa kaffi
latte á hverjum
morgni. Í stað-
inn má kaupa
tvöfaldan espressó
en eiga mjólk í vinnunni til að
bæta út í.
3 Draga úr útgjöldum. Ef fólk er áskrifandi að
tímariti má lesa
það á bókasafn-
inu, árskorti
í ræktina má
skipta út fyrir
skokk og sund
eða leiðbeiningar
á síðum eins og
Youtube. Dýru víni má skipta út
fyrir ódýrara og svo framvegis.
Niðurgreiðsla skulda Best að byrja
á lægstu upphæðunum.
Óeirðir vegna bananaverðs í Bretlandi
Aðbúnaður bananaverkamanna óviðunandi
B
ananaverkamenn í Suður-Am-
eríku búa oft við lélegar að-
stæður og vinna fyrir smánar-
legt kaup. Þetta kemur fram í
grein á vefútgáfu breska dagblaðsins
The Guardian nýlega en megnið af
banönum sem seldir eru í breskum
stórmörkuðum kemur þaðan.
Þar segir að þrátt fyrir verðbólgu
undanfarinna ára hafi verð á banön-
um lækkað enda noti breskir stór-
markaðir verð á banönum til að
auglýsa lágt verð. Lág laun verka-
mannanna eru ekki eina ástæðan fyr-
ir lágu verði heldur hafa bananarnir
verið úðaðir með rotvarnarefnum og
skordýraeitri.
Bresk verkalýðsfélög hafa vakið
athygli á slæmum aðbúnaði banana-
verkafólks og þrýst á verslunarkeðjur
um að breyta viðskiptaháttum sín-
um. Það hefur orðið til þess að
nokkrar verslanir, þeirra á meðal
Waitrose og Sainsbury´s bjóða núna
eingöngu upp á „Fairtrade“-banana,
það er banana sem hafa vottun upp
á að koma úr siðrænni framleiðslu.
Aðrir stórmarkaðir hafa ekki fylgt
fordæmi þeirra.
Þrátt fyrir þrýsting á bresk yfir-
völd um afskipti af bananaverslun-
inni segir blaðamaður yfirvöld hafa
tilhneigingu til að líta framhjá því
þegar slæmir viðskiptahættir skila
sér í lágu matvælaverði til neytenda.
En þó „Fairtrade“ bjóði upp á
siðrænna viðskiptamódel skekkir
krafan um lágt verð stærstu stór-
markaðanna alla bananaverslun
því jafnvel „Fairtrade“-bananar eru
seldir á ótrúlega lágu verði, allt niður
í sem svarar 130 krónur á kíló.
Í greininni í The Guardian segir
að yfirleitt verði uppþot vegna mat-
vælaverðs vegna þess að verðið sé
svo hátt, nú sé þó svo komið að hefja
verði baráttu fyrir hærra verði. Í
þessu tilfelli sé það einu siðferðilega
ásættanlegu viðbrögðin. n
fifa@dv.is