Dagblaðið Vísir - DV - 28.02.2014, Page 50
Helgarblað 28. febrúar 201442 Skrýtið
Herinn byggði
heilan smábæ
n Notaður við æfingar fyrir hermenn n Kostaði 10 milljarða króna
V
ið fyrstu sýn virðist bærinn
Fort A.P. Hill í norðurhluta
Virginíu í Bandaríkjunum
vera ósköp venjulegur bær
með skóla, knattspyrnu-
höll, kirkju, mosku, bensínstöð, fimm
hæða sendiráðsbyggingu, neðan-
jarðarlestakerfi og íbúðarbyggingum.
Raunin er reyndar sú að enginn býr í
bænum og öll húsin standa að mestu
tóm. Ástæðan er sú að Fort A.P. Hill er
æfingastöð fyrir bandaríska herinn og
er óhætt að segja að ekkert hafi ver-
ið til sparað við að gera æfingaaðstöð-
una eins glæsilega og raunverulega
og möguleiki var á.
Tíu milljarða kostnaður
Æfingaaðstaðan var tekin í notkun á
dögunum en kostnaðurinn við verk-
efnið nam rúmlega níutíu milljónum
Bandaríkjadala, rúmum tíu millj-
örðum króna. Bærinn stendur á 120
hektara lóð og mun koma bandarísk-
um hermönnum til góða ef og þegar
að því kemur að þeir þurfi að berjast
á þéttbýlum svæðum; borgum eða
bæjum.
„Góð áhrif“
Það var The Asymmetric Warfare
Group, deild innan bandaríska
hersins, sem stóð að byggingu smá-
bæjarins sem var tekinn í notkun
í janúar síðastliðnum. Deildin var
stofnuð árið 2004 og sérhæfir sig í
þjálfun hermanna vegna hryðju-
verkaógnar. „Hérna getum við gefið
sköpunargáfunni lausan tauminn
og fundið lausnir á vandamálum
sem við höfum ekki getað áður,“
sagði John P. Petkosek, yfirmaður
The Asymmetric Warfare Group, í
samtali við breska blaðið Telegraph
á dögunum. „Það sem við munum
gera hér mun hafa góð áhrif á herinn
í heild sinni,“ bætti hann við.
Sex ára vinna
Bygging Fort A.P. Hill var sem fyrr
segir nokkuð kostnaðarsöm en
einnig tímafrek. Sex ár eru síðan
hugmyndirnar fóru á teikniborðið
og eru rúm tvö ár síðan framkvæmd-
ir hófust. Í umfjöllun vefsíðunn-
ar Gizmodo um bæinn kemur fram
að allt kapp hafi verið lagt á að gera
bæinn sem raunverulegastan. Á
neðanjarðarlestarstöðinni eru lestir
sem eru nákvæmlega eins og þær
sem notaðar eru í Washington,
höfuð borg Bandaríkjanna – jafnvel
merkingar á lestunum eru nákvæm-
lega eins. Þá svipar skólabyggingu
bæjarins mjög til þeirra sem al-
gengar eru í Írak og Afganistan. n
Gerviblóð og
bílsprengjur
Þó að Fort A.P. Hill sé einstakur bær er
hann ekki sá eini sem bandaríski herinn
notar við æfingar. Í óbyggðum Kaliforníu,
nánar tiltekið í Mojave-eyðimörkinni, má
finna risastóra herstöð sem heitir Fort
Irwin. Ólíkt Fort A.P. Hill hafa hermenn
fasta búsetu í Fort Irwin og búa þar að
jafnaði um átta þúsund manns.
Í Fort Irwin er mikil áhersla lögð á að
hermenn geti æft sig við kringumstæður
sem gætu mætt þeim á vígvellinum.
Herstöðin var opnuð árið 1980 og stendur
hún á 2.600 ferkílómetra lóð sem herinn
getur nýtt undir æfingar.
Blaðamenn Gizmodo heimsóttu
herstöðina í fyrra og skrifuðu athyglisverða
grein um það sem fyrir augu bar. Þar mátti
meðal annars finna lítið þorp, Ertebat Shar,
í afgönskum byggingarstíl þar sem meðal
annars mátti finna götusölumenn, eða öllu
heldur leikara til að gera þetta allt sem
raunverulegast. Meðan á heimsókninni
stóð var einnig sprengd bílsprengja og
gerviblóði dreift um allt.
Við æfingar í afganska þorpinu voru
120 hermenn úr svokallaðri Blackhorse-
deild í hlutverki uppreisnarmanna.
Hlutverk þeirra var að veita öðrum hópi
hermanna, í hlutverki bandaríska hersins,
mótspyrnu. Starf Blackhorse-deildarinnar
þykir eftirsóknarvert í Fort Irwin enda fá
hermenn þeirrar deildar sérstaka þjálfun,
meðal annars við að smíða sprengjur. Hlut-
verk þeirra er að halda lífi, ef svo má segja,
en ef þeir deyja er þeim einfaldlega vísað
úr hópnum og sendir til annarra starfa á
herstöðinni. Þannig er tryggt að hermenn
Blackhorse, í hlutverki uppreisnarmanna,
veiti bandarísku hermönnunum mikla
mótspyrnu sem skilar sér aftur í því að
hermennirnir fá betri þjálfun.
Einar Þór Sigurðsson
einar@dv.is
Moska Eins og sést var ekkert til sparað
þegar bærinn var byggður. Hér sést til
dæmis stór og mikil moska.„Það sem við
munum gera hér
mun hafa góð áhrif á
herinn í heild sinni.
Eins og í Washington Lestirnar
í Fort A.P. Hill eru nákvæmlega eins
og þær sem eru í höfuðborg Banda-
ríkjanna, Washington.
Raunverulegt
Í Fort A.P. Hill geta
hermenn æft sig
við aðstæður sem
gætu mætt þeim á
vígvellinum.
Notaði kortið
hennar mömmu
Móðir þrettán ára drengs í Bret-
landi hugsar tölvuleikjafram-
leiðandanum EA Sports þegj-
andi þörfina þessa dagana eftir
að sonurinn eyddi 800 þúsund
krónum með kreditkorti hennar
í tölvuleiknum FIFA 14. FIFA 14
er vinsælasti fótboltatölvuleikur
heims og stalst sonur konunnar
til að nota kreditkortið hennar
til að kaupa hina ýmsu fylgihluti
sem hægt er að kaupa í leikn-
um. Móðirin sagði í samtali við
breska ríkisútvarpið, BBC, á
dögunum að tölvuleikjafram-
leiðendur væru að „græða pen-
inga á óförum fólks“ eins og hún
orðaði það. „Þeir hljóta að þéna
ótrúlegar upphæðir á mjög auð-
veldan hátt. Sonur minn er eyði-
lagður yfir þessu núna þegar
hann sér hvað hann gerði. En
hann gerði sér enga grein fyrir
því að upphæðin væri svona há,“
sagði móðirin, Sue. Að sögn BBC
vildu forsvarsmenn EA Sports
ekki tjá sig um málið.
Leirslabbi
í andlitið
Lögreglan í Lancashire-hér-
aði, norðarlega í Englandi, leit-
ar nú hrekkjusvína sem slógu
afgreiðslukonu utan undir með
blautum fiski í matvöruverslun. 52
ára starfsmaður fiskborðs versl-
unarinnar Asda, í Accring ton, ber
að ung stúlka hafi verið að spyrja
um mismunandi fisktegund-
ir þegar hún lét til skarar skríða.
Fyrirvaralaust hafi hún tekið upp
einn fiskinn, leirslabba, og sleg-
ið afgreiðslukonuna utan undir.
Að svo búnu hljóp hún á brott.
Orange News greinir frá þessu.
Konan telur að vinur stúlk unnar
hafi staðið hjá og myndað atvikið
á síma. Lögregla hefur nú dreift
myndum úr öryggismyndavélum í
því skyni að hafa uppi á þeim.
Fyrsti laugardagurinn er 1. mars
Húsið opnar kl 10.45 og síðasta viðtal byrjar
kl 13.30. Viðtalið kostar 500 kr.
Ef það er bið eftir viðtali þá þarf ekki að bíða á staðnum heldur
fær hver miða með sínum tíma á og mætir aftur eftir því.
Allir velkomnir. Kaffi knús og Drekar á staðnum.
Drekarnir í Drekaslóð
Laugardagsopnun
í Drekaslóð
Borgartúni 3 (2. hæð)
drekaslod@drekaslod.is
Vegna mikillar aðsóknar
bjóðum við þolendum hvers
konar ofbeldis og aðstandendum
að koma í stutt viðtöl sem ekki
þarf að panta með fyrirvara.
Bara koma til okkar.