Dagblaðið Vísir - DV - 28.02.2014, Side 51
Helgarblað 28. febrúar 2014 Skrýtið Sakamál 43
Lögga myrt
n Fadi stundaði fíkniefnaviðskipti í skjóli eðalvagnaleigu n Skuldum vafinn
í Lundúnu
B
reska lögreglukonan Nisha
Patel-Nasri var myrt þegar
klukkuna vantaði stundar-
fjórðung í miðnætti 11.
maí, 2006, á heimili henn-
ar í Wembley í Lundúnum. Nisha,
sem var 29 ára þegar hún mætti
örlögum sínum, fæddist í Luton,
var hindúi og samhliða lögreglu-
störfum rak hún hársnyrtistofu
skammt frá heimili sínu.
Árið 2003 giftist hún Fadi Nasri,
33 ára, sem átti rætur að rekja til
Beirút. Fadi rak eðalvagnaleigu frá
heimili hjónanna. Kvöldið áður
en Nisha var myrt höfðu hjóna-
kornin fagnað þriggja ára brúð-
kaupsafmæli sínu með því að eiga
notalega stund á veitingastað.
En Nisha hafði alið nöðru við
brjóst sitt og Fadi hafði sennilega
velt ýmsu öðru fyrir sér en helgi
hjónabandsins yfir matnum það
kvöldið.
Mislukkað innbrot
Hverfið sem hjónin bjuggu í
naut þess að glæpatíðni var al-
mennt lág, en laugardaginn fyr-
ir morðið reyndu þrír karlmenn
að brjótast inn á heimili þeirra – talið
var að um innbrotsþjófa hefði verið
að ræða. Mennirnir lögðu á flótta
þegar Nisha kom að þeim.
Í ljósi þess sem síðar átti sér stað
má efast um að innbrot hafi ver-
ið ætlun þremenninganna. Áður en
lengra er haldið má geta þess að Fadi
hafði þremur mánuðum fyrr tekið
upp náið samband við litháíska
vændiskonu og hann og Nisha voru
líftryggð sameiginlega – fyrir hvorki
meira né minna en 350.000 sterl-
ingspund.
Alblóðug með hníf
Rétt fyrir miðnætti, 11. maí, sást, að
sögn vitna, Nisha koma út af heimili
sínu með eldhúshníf í hönd en mað-
ur í hettupeysu sást hlaupa frá vett-
vangi. Síðar kom í ljós að Nisha hafði
hafði verið stungin inni á heimili
sínu en eytt sínum síðustu kröftum í
að staulast út fyrir þar sem hún hneig
niður. Hún skildi við á Northwick
Park-sjúkrahúsinu skömmu síðar.
Fadi lék hlutverk hins niður-
brotna eiginmanns og viðraði þá
skoðun sína að um mislukkað inn-
brot hefði verið að ræða – hvað ann-
að?
Til að bæta um betur reyndi hann
að afvega leiða lögregluna með því
að gefa upp nöfn fimm manns sem,
að hans sögn, vildu fyrirkoma Nishu.
Síðan skaust hann í frí með litháísku
vændiskonunni.
Bjó að leyndarmálum
Fadi hafði tryggt þau hjónin
nokkrum mánuðum fyrir morðið.
Hann var skuldum vafinn, skuld-
aði yfir 100.000 sterlingspund, og
eðalvagnaleigan var notuð til að
fela viðskipti með fíkniefni. Nisha
hafði ekki haft grænan grun um
þetta og þaðan af síður að ektamað-
urinn hefði setið í fangelsi um níu
mánaða skeið árið 1998 – þá hafði
hann reynt að aka yfir lögregluþjón
sem spurt hafði hann erfiðra spurn-
inga.
Í grjótinu kynntist Fadi 38 ára
fíkniefnasala, Rodger Leslie. Rodger
þessi setti sig síðar í samband við
dyravörð á næturklúbbi, Jason Jo-
nes, og réð hann til þess að sjá til
þess að eiginkona Fadi þyrfti ekki
að kemba hærurnar.
Fadi lét morðingjann – sem fékk
15.000 pund fyrir verkið – hafa hús-
lykla og skildi síðan eiginkonu sína
eftir eina heima þetta kvöld.
Eiginmaðurinn handtekinn
Fadi var handtekinn 27. febrúar,
2007, og fékk stöðu grunaðs manns
í málinu. Þrátt fyrir að hann hefði
fjarvistarsönnun var hægt með
gögnum símafyrirtækja að tengja
hann við áðurnefndan Rodger,
þaðan við Jason Jones og þaðan
við Tony Emmanuel, náunga sem
tengdist næturklúbbum.
Ennginn þessara manna taldist
merkilegur pappír en upptökur úr
eftirlitsmyndavél skammt frá þeim
stað sem morðvopnið fannst sýndu
silfurlitaða Audi-bifreið Tonys. Tony
viðurkenndi að hafa verið ráðinn til
að aka Jason að heimili Nishu og
Fadi, en fullyrti að hann hefði ekki
haft vitmneskju um áform Jason.
Líftryggingin var ástæðan
Þess var skammt að bíða að lyga-
vefur Fadi leystist upp. Upphaflega
hélt lögreglan að ástæða morðsins
hefði verið ósætti á milli Rodgers og
Fadi, en þegar upp var staðið viður-
kenndi Fadi að hafa ráðið Rodger
til verksins. Ástæðan var líftrygging
hjónanna því Fadi hefði getað fengið
útgreidd 100.000 pund.
Þann 28. maí, 2008, voru kveðn-
ir upp dómar í málinu; Tony
Emmanuel var sýknaður, en Fadi,
Jason og Rodger voru fundnir sekir
samkvæmt niðurstöðu kviðdóms.
Mánuði síðar fékk Rodger lífstíðar-
dóm og mælst til þess að hann af-
plánaði ekki skemmri tíma en 18 ár.
Jason og Fadi fengu lífstíðardóma,
með 20 ára lágmarksafplánun. n
„Síðan
skaust
hann í frí með
litháísku
vændiskonunni
Nisha Patel-Nasri
Eiginmaður Nishu
var ekki allur þar sem
hann var séður.
Allt í lukkunnar velstandi Nisha og Fadi þegar allt lék í lyndi, að því er virðist.