Dagblaðið Vísir - DV - 28.02.2014, Side 53
Menning 45Helgarblað 28. febrúar 2014
Syngur í fyrsta sinn á tónleikum
Kristján Hreinsson fagnar 50 ára hagyrðingsafmæli
É
g er búin að vera að æfa mig í
50 ár,“ segir Kristján Hreinsson
skáld léttur í bragði. Kristján
heldur sína fyrstu söngtónleika
um helgina og mun í fyrsta sinn flytja
eigin ljóð og lög en hann hefur hing
að til látið aðra um flutninginn.
Hann fagnar merkum áfanga í líf
inu að eigin sögn. „Ég er búinn að
vera skáld í 40 ár og hagyrðingur í 50
ár. Ég hef samið lög í 45 ár, þau skipta
hundruðum. Ég ætla að fagna öllu
þessu ásamt fleiru persónulegu sem
mér þykir þakkarvert á lífsleiðinni,“
segir Kristján og lofar að gestir fái
að njóta frásagnargleði hans á tón
leikunum en einhverju ætlar hann
að halda leyndu um tónleikahaldið
og einnig flytja lög og ljóð sem aldrei
áður hafa verið flutt opinberlega.
Hann hefur heimspekilegt viðhorf
til þeirra laga. „Ég á líklegast 200–300
lög sem enginn hefur heyrt nema
ég og einhverjir örfáir. Ég hef ekkert
í hyggju að gefa þau út, þau munu
bara lifa með mér. Ég flyt þau fyrir
fólk en langar ekkert að gefa þau út.
Það er ekki aðalmálið fyrir mér.
Það er kærleiksrík hugsun að baki
því að geta sent frá sér vísu sem flýg
ur eins og dægurfluga og kemur svo
aldrei aftur. Mér finnst það yndisleg
hugsun. Ef ljóð getur farið einu sinni
á kort og síðan gulnar það og eyðist.
Það er bara allt í lagi.“
Í ljósi langs ferils Kristjáns má
draga þá ályktun að hann hljóti að
hafa byrjað ungur að kveða og semja.
„Ég byrjaði að semja tónlist sem barn.
Það er ekkert nákvæmlega dagsett.
Elstu vísurnar sem ég orti eru frá því
að ég var um það bil sjö ára gamall.“
Naut hann leiðsagnar? „Já, að vissu
leyti, pabbi minn elskaði kveðskap,
Hreinn Ágúst Steindórsson, og kunni
ógrynni af vísum. Hann hafði þetta frá
móður sinni sem hét Oddný Hjartar
dóttir. Ég dróst að eldra fólki sem að
kunni vísur, þannig að hann beygðist
mjög snemma þessi krókur.“ n
kristjana@dv.is
Gagnrýnandi tekinn í gegn
n Popp og plebbahungur n Klikkaði á að mæta í svörtu n Hugsað meira en skynjað
flókinn lífsvefurinn spunninn af
miklum krafti af vefurunum sjö,
lífsgyðjunni til dýrðar. Og til þess
að komast inn í kjarnann þurftu
þátttakendur að hlíta ákveðnum
reglum um klæðaburð sem þessi
gagnrýnandi gerði ekki og var því
tekinn í karphúsið af fulltrúa eft
irlits og alsæis. Sá var aginn og
harkan uppmáluð af Hildigunni
Sverrisdóttur að minnsta kosti
á meðan hún sat við kennara
borðið. Þegar hún stóð upp glitti
hins vegar í smá Búnúeleffekt,
varðhundar borgarastéttarinnar
fylgja því miður ekki sömu regl
um og ætlast er til af almennum
þegnum samfélagsins.
Á gömlum slóðum
Inni í aðalrýminu þar sem allir
þátttakendur sameinast, bæði
listamenn og gestir, hefst sjálf
aðalsýningin enda allir tilbúnir
fyrir það sem í vændum er, alls
herjarskynjun þar sem öll skyn
færi verða fyrir áreiti, stjórnlaus
ar tilfinningar og óreiða taka við
af reglu og aga og ákveðin ham
skipti eiga sér stað. En þar deyr
því miður þátttaka gestanna sem
fór ágætlega af stað í upphafi.
Þeir standa upp á endann í ein
um hnapp úti í horni og virða þar
fyrir sér meginhluta gjörnings
ins aðgerðalitlir. Þótt öll skynfæri
séu virkjuð eins og sjón, heyrn
og lyktarskyn vantaði meiri
snertingu við það sem fram fór og
þar með glataðist ásetningurinn
að gera gestina að virkum þátt
takendum allan tímann. Um leið
verður gjörningurinn of kunnug
legur og minnir of mikið á gaml
ar slóðir í listgreininni. Hugsunin
að baki þessu öllu hefði þurft að
ganga lengra til þess að skynjun
in hefði orðið sterkari og áhrifa
meiri. Kannski hefði komið sér
betur að dreifa gestunum um
allan salinn, blanda þeim betur
saman við allan gjörninginn sem
fór fram vel smurður og fágaður
fyrir skynfærum okkar.
Já, það er kúnst að stunda
gjörninga, það vita þær stöllur í
Gjörningaklúbbnum, sem hafa
lagt mikið á sjálfar sig og alla
aðstandendur sýningarinnar í
Listasafni Íslands. Ekki skorti
hugmyndir, sjónræna útfærslu,
sokkabuxnaskóginn sem minnti
helst á stækkaðar myndir af
frumuvef eða jafnvel hugmynd
ir úr strengjafræðinni. Ofurdug
leg poppkornskonan fyllti reglu
lega í hítina en við fengum samt
ekki að bragða á því, þótt lyktin
hefði æst upp í manni plebba
hungrið. Þegar upp er staðið
hugsaði ég meira eftir þennan
gjörning en ég skynjaði. Kannski
var það meiningin, titillinn bara
blekking, leikhústrix. n
Sokkabuxnaskógur Ekki skorti
hugmyndir, sjónræna útfærslu,
sokkabuxnaskóginn sem minnti helst
á stækkaðar myndir af frumuvef eða
jafnvel hugmyndir úr strengjafræðinni.
Ert þú að skrifa bók?
R
ithöfundaþingið og vinnu
stofan Iceland Writers Re
treat verður haldið á Íslandi í
fyrsta sinn 9.–13. apríl næst
komandi. Á því geta rithöfundar
og aðrir sem hafa bók í bígerð tek
ið þátt í námskeiðum og vinnu
stofum sem þaulreyndir höfund
ar og ritstjórar sjá um. Stjórnendur
námskeiðanna hafa margir aflað
sér frægðar á alþjóðavettvangi fyr
ir skrif sín. Má þar nefna Geraldine
Brooks, handhafa Pulitzerverð
launanna, og Susan Orlean, sem
skrifar fyrir New Yorker. Upp
lýsingar um alla stjórnendurna
má finna á heimasíðu þingsins:
icelandwritersretreat.com
Erica Jacobs Green og Eliza Reid
stofnuðu og standa að íslenska
rithöfundaþinginu. Erica er frá
Bandaríkjunum og sinnir ritstjórn
og ritstörfum. Hún bjó á Íslandi frá
2011 fram í júlí 2013. Eliza er frá
Kanada. Hún flutti til Íslands árið
2003 og hefur rekið eigið fyrirtæki
á sviði markaðskynningar, texta
skrifa og viðburðastjórnar síðast
liðin níu ár. n
ritstjorn@dv.is
Geraldine Brooks leiðbeinir rithöfundum
www.fi.is
Lýðheilsu- og for
varnarverkefni F
erðafélags Ísland
sThe Biggest Winn
er!
Upplifðu náttúru
Íslands
Aðal samstarfsaðilar FÍ
Lýðheilsu- og forvarnarverkefni
Ferðafélags Íslands
· Fyrir feita, flotta, frábæra
· Fyrir þá sem þora, geta, vilja
· Taktu fyrsta skrefið
· Taktu eitt skref í einu
· Virkjaðu styrkleika þína með jákvæðum og
uppbyggilegum hætti
· Rólegar gönguferðir með stöðuæfingum
· Náttúruupplifun – útivera
· Mataræði – matseðill – mælingar
Kynningarfundur á Bolludaginn 3. mars kl. 19.00 í
sal Ferðafélags Íslands Mörkinni 6
Umsjón verkefnis: Páll Guðmundsson framkvæmdastjóri FÍ,
ásamt læknateymi, sjúkraþjáfurum og íþróttakennurum.
Bakskóli FÍ hefst 1. maí. Kynningarfundur haldinn eftir páska.
Nánari upplýsingar á www.fi.is og skráning er
í síma 568 2533 eða í netpóst fi@fi.is
FERÐAFÉLAG ÍSLANDS | Mörkinni 6 | 108 Reykjavík | S: 568 2533 | www.fi.is