Dagblaðið Vísir - DV - 04.04.2014, Side 10
10 Fréttir Helgarblað 4.–7. apríl 2014
Tækifæri Ummæli sem Sigmundur Davíð lét falla í kvöldfréttum RÚV á þriðjudag voru
tekin upp af elstu og einni virtustu fréttaveitu heims. Mynd SigTryggur Ari
Sigmundur í heimspressuna
Talaði um tækifæri fyrir Ísland vegna loftslagsbreytinga
Þ
að er að minnsta kosti einn
þjóðarleiðtogi spenntur fyrir
loftslagsbreytingunum,“ seg
ir í fyrirsögn á vefnum Head
light World sem líkt og margar aðr
ar erlendar fréttasíður taka upp
frétt AFPfréttaveitunnar þar sem
fjallað er um ummæli Sigmundar
Davíðs Gunnlaugssonar forsætis
ráðherra um loftslagsbreytingar.
Nýlega kom út afdráttarlaus
skýrsla Loftslagsnefndar Sam
einuðu þjóðanna þar sem kemur
meðal annars fram að afleiðingar
hnattrænnar hlýnunar verði gríðar
lega alvarlegar fyrir alla jarðarbúa
en sérstaklega þá allra fátækustu.
Er talað um uppskerubrest, erfitt
aðgengi að drykkjarvatni og aukna
tíðni flóða svo eitthvað sé nefnt.
„Augljóslega er þetta á heildina
litið neikvætt en í því felast þó tæki
færi til að bregðast við þróuninni
og bregðast sem best við henni og
það eru ekki hvað síst tækifæri sem
Ísland hefur,“ sagði Sigmundur við
RÚV á þriðjudag.
„Það skortir vatn, orkan verður
dýrari, það skortir landrými, þannig
að menn gera ráð fyrir því að mat
vælaverð muni fara hækkandi um
fyrirsjáanlega framtíð á sama tíma
og það er sífellt meiri þörf fyrir mat
vælaframleiðslu vegna þess að eft
irspurnin er að aukast. Þannig að
í þessu liggja tvímælalaust mikil
tækifæri fyrir Ísland. Við erum að
kortleggja þetta.“
Hefur forsætisráðherrann verið
gagnrýndur fyrir þessi ummæli,
meðal annars af stjórnarandstöð
unni, og hafa þau nú vakið athygli
erlendis. Agence FrancePresse,
eða AFPfréttaveitan, tók mál
ið meðal annars upp en um er að
ræða elstu og eina virtustu frétta
veitu heims. Stærstu fréttastofur og
dagblöð veraldar taka upp erlend
ar fréttir veitunnar og vitna í um
margvísleg málefni.
Margar erlendar fréttasíður hafa
nú birt frétt AFP í heild sinni þar
sem fjallað er um ummælin og við
brögð stjórnarandstöðunnar við
þeim. Er þar hægt að nefna frönsku
fréttastofuna France 24, Yahoo í
Bretlandi og bandarísku fréttasíð
una Global Post. Nánar er fjallað
um loftslagsbreytingarnar á síðu 20
í blaðinu. n mikael@dv.is
Þ
að hlýtur að vera met að
fólk fái meðferð í ára
mótaskaupinu vegna máls
eins og IKEAmálsins, sagði
verjandi Sigurjóns Jóns
sonar, Jóhann Karl Hermannsson,
við munnlegan málflutning í sam
nefndu máli. Hann segir að verði
umbjóðandi hans sakfelldur fyr
ir fjársvik verði að horfa til þess að
hann hafi þegar tekið út sína refs
ingu vegna umfjöllunar um IKEA
málið í fjölmiðlum. Sveinn Andri
Sveinsson, verjandi Arndísar Arnar
dóttur, tók í sama streng og sagði að
fjölmiðlaumfjöllun hefði bæði ver
ið mikil og óvægin en að auki hefði
framkvæmdastjóri IKEA farið mik
inn í fjölmiðlum.
dýr gjöf
Líkt og fram hefur komið áður hafa
þau Sigurjón og Arndís Arnardóttir
verið ákærð fyrir að hafa þann 7.
október 2012 blekkt starfsmann við
afgreiðslukassa í IKEA til að afgreiða
borðgrind að verðmæti 89.950 gegn
greiðslu 3.650. Það eru þau sökuð um
að hafa gert með því að koma fyrir
eða nýta sér að strikamerki af annarri
hliðareiningu, að verðmæti 3.650
króna. Nokkru síðar fór Arndís aft
ur í verslun IKEA með félaga sínum
og skipti hann borðgrindinni. Þau
skiptu svo inneignarnótu sem þau
fengu í staðinn í gjafabréf. Félaginn
fékk 8.000 króna gjafabréf, en Arn
dís gjafabréf fyrir 77 þúsund krónur.
Saksóknari málsins sagði framburð
þeirra Sigurjóns og Arndísar vera
ósannfærandi og ekki trúverðugan.
Borguðu kröfu iKEA
Málið vakti mikla athygli þegar
það kom upp, en þegar hafa tveir
einstaklingar, þau Snorri Steinn
Vidal og Sigurbjörg Þorvaldsdóttir,
verið dæmdir til tveggja mánaða
skilorðsbundins fangelsis fyrir að
hafa stolið vörum úr IKEA með því
að færa á milli strikamerki, af ódýr
ari vörum á dýrari. Arndís og Sig
urjón hafa hins vegar neitað sök.
Eins og áður hefur verið sagt frá fór
IKEA í einkamál við hópinn sem
telur fimm manns og vildi IKEA fá
650 þúsund krónur greiddar. Kraf
an var að fullu greidd. Þrátt fyrir að
hafa greitt kröfugerð neita Sigurjón
og Arndís sök. Mál á hendur einni
konunni var fellt niður hjá lögreglu.
Arndís og Sigurjón segjast hafa
borgað IKEA í þeirri von að losna
við frekari kröfur og málaferli. Þau
vildu „slútta“ málinu að sögn lög
fræðinga þeirra.
Spæjarskýrsla
„Að lögreglunni skuli detta í hug
að leggja þetta fram,“ sagði Sveinn
Andri Sveinsson, lögmaður Sigur
jóns Jónssonar, og átti þá við skýrslu
sem lögregla fékk afhenta frá IKEA.
Í skýrslunni mátti finna upplýsingar
um einstaklinga sem IKEA hafði
grunaða um að hafa stundað þjófn
að í versluninni á löngu tímabili.
Skýrslan var gerð sjö mánuðum áður
en brotið sem Sigurjón og Arndís
voru ákærð fyrir átti sér stað og sagð
ist Sveinn Andri undrandi yfir því að
hún væri hluti af gögnum málsins.
Það væri óviðeigandi.
Jóhann Karl sagði skýrsluna vera
„spæjaraskýrslu“ sem innihéldi bæði
persónunjósnir og aðdróttanir. Með
henni hefði IKEA gerst sjálfskipað
lögregluvald sem vildi negla ákærðu.
Minnisleysi
Líkt og DV hefur áður greint frá segj
ast þau Sigurjón og Arndís hafa keypt
borðgrindina í afmælisgjöf handa
vini sínum. Þeim fannst það ekki
óeðlilegt að svo stórt húsgagn kost
aði 3.650 krónur. Vininum fannst þó
gjöfin helst til of rausnarleg. En fram
kom að hann vildi skila henni og að
eins viljað þiggja 8.000 króna gjafa
bréf og fékk Arndís hins vegar af
ganginn. Sigurjón og Arndís neita því
sök að öllu og segjast ekki hafa beitt
blekkingum eða stundað fjársvik.
Arndís bar við minnisleysi og sagðist
hafa verið ólétt á þessum tíma, hún
hefði því ekki áttað sig á því að verð
munurinn hefði verið svo mikill.
Sjálfur sagðist Sveinn Andri ekki
vera hissa á því að Arndís og Sigur
jón bæru við minnisleysi. „Ég versla
sjaldan í IKEA og reyni að gleyma
heimsóknunum sem fyrst,“ sagði
Sveinn Andri og bætti því við að við
skiptavinir kæmu gjarnan þaðan út
sem andleg eyðimörk.
Týpískur karl
Bæði Sveinn Andri og Jóhann sögðu
að umbjóðendur sínir hefðu ekki
sýnt ásetning og bentu á að ekki
væri hægt að sanna að þau hefðu
skipt um strikamerki og ekki hægt
að bendla annað þeirra við það
frekar en hitt. Að auki benti Jóhann
á að Sigurjón hefði farið með Arn
dísi í verslunina þann 7. október en
að hann hefði ekki greitt fyrir vör
una né verið með í för þegar henni
var skilað. „Hann var týpískur karl
maður í verslunarferð með konunni
sinni,“ sagði Jóhann og sagði Sig
urjón því ekki hafa vitað hvað var
keypt, eða hvers vegna. Þá var bent
á að starfsmenn þekktu ekki mun
á strikamerkjum eða umbúðum í
IKEA og væri ekki uppálagt að gera
það og þess vegna ættu viðskipta
vinir verslunarinnar ekki heldur
að gera það. Málið hefur nú verið
dómtekið og má vænta dóms innan
fjögurra vikna. n
„Týpískur karl í
verslunarferð“
n Angi IKEA-málsins dómtekinn n Segjast saklaus af því að hafa stundað fjársvik
Ásta Sigrún Magnúsdóttir
astasigrun@dv.is
iKEA Saksóknari málsins
sagði framburð þeirra
Sigurjóns og Arndísar vera
ósannfærandi og ótrúverð-
ugan. Mynd SigTryggur Ari
„Ég versla
sjaldan
í IKEA og reyni
að gleyma
heimsóknun-
um sem fyrst