Dagblaðið Vísir - DV - 04.04.2014, Blaðsíða 14
Helgarblað 4.–7. apríl 201414 Fréttir
„Þetta er
kristileg sápuópera“
M
álefni trúfélagsins
Krossins komust aftur í
fréttirnar í vikunni í kjöl
far umfjöllunar Kastljóss.
Nú hafa áfangaheimilið
Krossgötur og Krossinn óskað eftir
því að sérstakur saksóknari fari yfir
bókhald beggja stofnananna með
tilliti til bókhaldsáranna 2008–2012.
„Þetta er kristileg sápuópera,“ segir
einn viðmælenda DV.
Stjórn Krossins segist hafa óskað
eftir rannsókninni eftir ábendingar
og upplýsingar frá stjórn Krossgatna.
Krossgötur eru sjálfseignarstofnun
og er ekki rekin af Krossinum, en
þar á milli eru þó sterk tengsl, enda
stofnaði Gunnar Þorsteinsson, fyrr
verandi forstöðumaður Krossins,
bæði Krossgötur og Krossinn. Við
þessa rannsókn er Gunnar mjög
ósáttur og segir hana smjörklípu,
helst til þess gerða að halda honum
utan við starfsemi Krossins, en þar á
að halda aðalfund fljótlega og kjósa
um nýjan forstöðumann. Sem kunn
ugt er gegnir því hlutverki nú Sigur
björg Gunnarsdóttir, dóttir Gunnars,
en milli feðginanna ríkir ósætti og
fljúga ásakanir á víxl úr herbúðum
stuðningsmanna Gunnars og Sigur
bjargar.
Skylt og rétt
„Ég held að stjórninni hafi verið rétt
og skylt, um leið og við fengum veð
ur af því að þarna gæti verið eitthvað
misjafnt í gangi, að það færi bara
strax til opinberra aðila,“ segir Guð
mundur St. Ragnarsson, stjórnarfor
maður Krossgatna. Krossgötur hafa
um árabil þegið framlög úr ríkis
sjóði til reksturs áfangaheimilisins.
Stjórn stofnunarinnar ákvað að ræða
ekki við Gunnar Þorsteinsson, fyrr
verandi framkvæmdastjóra, til að fá
skýringar á því hvers vegna lausafjár
munir sem keyptir voru fyrir stofn
unina skiluðu sér aldrei. Þess í stað
óskaði stjórnin eftir því við emb
ætti sérstaks saksóknara að opin
ber rannsókn færi fram á fjármálum
Krossgatna vegna bókhaldsáranna
2008–2012. Gunnar Þorsteinsson er
mjög ósáttur við afgreiðslu Krossins
og Krossgatna á málinu öllu og seg
ir það vera sett fram á þennan hátt til
að klekkja á honum.
Rekinn
Á mánudaginn var Sverri Gauk Ár
mannssyni sagt upp störfum, en
hann hefur starfað sem bókhaldari
fyrir Krossgötur. Hann hélt meðal
annars utan um bókhald á þeim
árum sem stjórn Krossgatna hefur
óskað eftir að verði sérstaklega rann
sökuð. Sverrir Gaukur vildi ekki tjá
sig um málið í samtali við DV, en
Guðmundur St. Ragnarsson staðfesti
þetta í samtali við DV.
Vilja rannsókn
Meðal þess sem stjórnin fer fram á
að verði skoðað eru bifreiðaviðskipti
upp á nokkrar milljónir króna og lán
til Krossins upp á rúmlega 1,3 millj
ónir króna.
Í bréfinu, sem sent var til sér
staks saksóknara og DV hefur und
ir höndum, er sérstaklega „ óskað
eftir því að skoðað verði hvort út
gjöld, sem gjaldfærð voru sem kostn
aður á Krossgötur í bókhaldi sjálfs
eignarstofnunarinnar hafi verið
vegna persónulegra útgjalda þáver
andi framkvæmdastjóra Krossgatna.
Svo virðist sem margir af þeim lausa
fjármunum sem keyptir voru af Elko
og/eða Byko á umræddu tímabili,
t.d. þvottavélar, kæliskápar, þurrk
ari, sjónvörp og fleiri heimilistæki,
hafi ekki skilað sér til sjálfseignar
stofnunarinnar að því er núverandi
stjórn best veit.“ Gunnar var fram
kvæmdastjóri Krossgatna á þessum
tíma.
Ekki allt með felldu
Í bréfinu kemur einnig fram að stjórn
Krossgatna hafi fengið vísbendingu
frá aðilum utan stjórnarinnar seinni
hluta árs 2013 um að ekki væri allt
með felldu varðandi fjármál og bók
hald Krossgatna fyrir ofangreind
bókhaldsár. Í bréfinu segir meðal
annars: „Þá telur stjórn Krossgatna
að nauðsynlegt sé að skoðað verði
hvort mögulegt sé að Krossgötur hafi
að einhverju leyti greitt hlut af kostn
aði þáverandi framkvæmdastjóra
vegna skilnaðar hans við þáverandi
eiginkonu sína. Fleiri atriði mætti
nefna t.d. eldsneytisúttektir fram
kvæmdastjórans og skyldra aðila,
viðskipti með bifreiðar o.fl.“
Langur aðdragandi
Átökin í Krossinum eiga sér langan
aðdraganda, en segja má að þau hafi
hafist um það leyti sem Gunnar Þor
steinsson og Ingibjörg Guðnadóttir
skildu, en vísað er til skilnaðar þeirra
í bréfi Krossgatna til sérstaks sak
sóknara. Nokkru síðar tók Gunnar
saman við Jónínu Benediktsdóttur
og voru, samkvæmt heimildum DV,
margir ósáttir við samband þeirra.
Árið 2010 steig fram hópur
kvenna, meðal annarra systur Ingi
bjargar, sem sökuðu Gunnar um að
hafa brotið gegn þeim kynferðis lega.
Fjölskylda Gunnars, börn hans, Ingi
björg og Jónína, stóðu þétt við bak
ið á honum. Fór svo á endanum að
lögregla lét málið niður falla og var
Gunnar aldrei ákærður fyrir kyn
ferðisbrot. Hann hefur höfðað mál
gegn Pressunni og talsmönnum
kvennanna vegna meiðyrða í tengsl
um við umfjöllun um ásakanirnar.
Átök síðustu ára
Krossinn stofnaður – 1979 Þau Gunnar og Ingibjörg
stofnuðu Krossinn árið 1979. Fyrst um sinn var félagið til húsa
í Auðbrekku, en flutti sig síðar í Hlíðarsmára.
Trúfélagið löggilt – 1982 Krossinn varð
löggilt trúfélag árið 1982. Skilgreina má söfn-
uðinn sem afsprengi hvítasunnuvakningarinnar.
Ingibjörg og Gunnar skilja
– 2009 Hjónin skildu árið 2009 en þá
höfðu þau fengist við mismunandi við-
fangsefni. Gunnar einbeitti sér að
Krossinum og Krossgötum, en Ingibjörg
var í verkefnum í Bandaríkjunum.
Jónína og Gunnar giftast – 2010
Gunnar giftist Jónínu Benediktsdóttur en
brúkaupið fór fram Kópavogskirkju. „Við erum
gríðarlega hamingjusöm og þakklát fyrir það
gleðiríka líf sem framundan er,“ sagði Jónína.
Krossgötur stofnaðar – 1993
Áfangaheimilið Krossgötur rekur 25 vistrými.
Dvalartími fólks er á bilinu sex mánuðir til
þriggja ára. Heimilið er í samstarfi við
opinbera aðila.
Kynferðisbrot – 2010 Fimm konur
stíga fram og saka Gunnar um kynferðisbrot.
Saksóknari hætti rannsókn málsins um sum-
arið 2011. Sesselja Engilráð Barðdal og Ásta
Knútsdóttir voru talskonur kvennanna.
n Enn magnast deilurnar í Krossinum n Ásakanir um fjármálaóreiðu valda titringi n Gunnar segir þær tilhæfulausar
Ásta Sigrún Magnúsdóttir
Rögnvaldur Már Helgason
astasigrun@dv.is/rognvaldur@dv.is