Dagblaðið Vísir - DV - 04.04.2014, Qupperneq 15
Helgarblað 4.–7. apríl 2014 Fréttir 15
„Þetta er
kristileg sápuópera“
Þ
að er erfitt að taka afstöðu
gegn föður sínum og í raun
allri fjölskyldunni,“ seg
ir einn þeirra sem DV ræddi
við vegna umfjöllunarinnar.
„Sigur björg er mjög staðföst, hún er
líka staðföst í trú sinni og stendur þess
vegna af sér ótrúlegustu hluti,“ segir
hann. Sjálf vildi Sigurbjörg ekki tjá sig
um málið þegar eftir því var leitað.
„Fjölskyldan er klofin, það er al
veg satt. Ég sé ekki að það sé hægt
að byggja brú þarna á milli á meðan
Gunnar er harður á því að koma til
baka sem forstöðumaður og Sigur
björg er hörð á því að halda sinni
stefnu,“ segir hann. „Kannski er bara
búið að kveikja í brúnni.“
Ekki hennar ákvörðun
„Mér finnst samt mikilvægt að það
komi fram að það er ekki Sigur
björg tekur þessar ákvarðanir. Kross
götur taka þessa ákvörðun og stjórn
Krossins fylgir. Sigurbjörg vék af fund
inum þegar sú ákvörðun var tekin. Ég
held að það sé mikilvægt að halda því
til haga – hún tók ekki þessa ákvörðun
og er meðvituð um að taka ekki þátt
í hlutum sem snerta Gunnar,“ segir
hann og segir að með því komist Sigur
björg undan því að gefa á sér höggstað.
„Hún græðir ekkert á því að vera í úti
stöðum við fjölskyldu sína, nema síður
sé. Þetta tekur auðvitað á hana.“
Skilja að Gunnar vill koma aftur
„Það skilja það allir að Gunnar vilji
koma aftur. Hann byggði upp Kross
inn og sinnti honum í þrjátíu ár,“ seg
ir einn viðmælenda DV sem er virk
ur í Krossinum. „Krossinn eins og
hann er núna er bara ekkert líkur því
sem hann var og ég held að Gunn
ar geri sér ekki alveg grein fyrir því.
Við höfum farið í aðra átt undir stjórn
Sibbu. Kannski höfum við þroskast,
fjarlægst það sem söfnuðurinn stóð
fyrir. Það hefur orðið mikil þróun og
breytingarnar eru miklar.“ Aðspurð
ur hvort hann myndi halda áfram í
Krossinum ef Gunnar yrði forstöðu
maður segir hann: „Nei.“
Miklar breytingar
„Mér þykir vænt um Krossinn og ég
hef verið þar lengi, en mér finnst betra
að vera þar nú, en nokkru sinni áður,“
segir einn heimildarmanna DV. Margir
taka undir það. Krossinn sé nú talsvert
breytt trúfélag og hafi tekið miklum og
örum breytingum frá því að Sigurbjörg
tók við sem forstöðumaður. „Ég er
ekki hlutlaus. Ég er harður stuðnings
maður Sigurbjargar og mér finnst hún
vera að standa sig vel. Hún er að koma
söfnuðinum á betri stað.“
Öllum sama
Stuðningsmenn Gunnars segja að
andrúmsloftið sé slæmt í Krossinum,
en þeir viðmælendur sem DV ræddi
við þvertaka fyrir það.
„Í Krossinum er enginn að velta
þessu fyrir sér, hver er að deila við
hvern eða hvernig fjármálum okkar
er háttað. Fólk er þarna til að iðka trú
sína og vill fá að gera það í friði. Allt tal
um að Krossinn logi í illdeilum er til
búningur. Hafandi sagt það held ég að
ég geti fullyrt að enginn vilji halda aft
ur aðalfund eins og gert var síðast. Það
hefði eiginlega þurft áfallahjálp eftir
þann fund,“ segir einn viðmælenda.
Viljum vera í friði
„Aðalfundur á að vera í apríl eða maí.
Það er ekki komin dagsetning á það og
eftir því sem ég best veit er enn ekki
búið að leysa úr þeim deilum sem
komu upp á síðasta fundi. Að segja að
þessar rannsóknir séu aðeins til þess
gerðar að halda Gunnari úti er bull,“
segir hann og segir að það sé smjör
klípa af hálfu Gunnars.
„Það var engin sérstök tímasetn
ing á því til þess að klekkja á Gunnari.
Það tekur langan tíma að fara í gegn
um svona bókhald og það var ekki gert
á nokkrum dögum. Þetta var niður
staðan og um leið og hún var ljós varð
að leita eftir rannsókn. Þetta snýst ekk
ert um Gunnar eða stöðu hans inn
an Krossins heldur snýst þetta um
að Krossinn – og Krossgötur þó þær
tengist söfnuðinum ekki beint – sé
með allt sitt á hreinu. Það er ekki hægt
að bjóða safnaðarmeðlimum upp á
annað,“ segir hann.
Ætti að fagna rannsókn
„Við viljum vera í friði. Krossinn þarf
ekki á meiri fjölmiðlaumfjöllun að
halda, hvers vegna heldur fólk að við
viljum fá svona umfjöllun, það væri
auðvitað miklu auðveldara að sleppa
þessu bara, en það er bara ekki í boði,“
segir einn þeirra sem segist vera alveg
sama hver sé forstöðumaður Krossins.
Hann kveðst þó ekki ósáttur við nú
verandi ástand. Viðmælendur DV eru
hissa á viðbrögðum Gunnars varð
andi rannsóknir á fjármálum Krossins
og Krossgatna. „Mér finnst athuga
vert hversu mótfallinn Gunnar er því
að rannsókn fari fram. Hafi hann ekk
ert að fela ætti það að vera sjálfsagður
hlutur og styrkja hans málstað í þessu
öllu. Þarna er verið að fara fram á að
óháður rannsóknaraðili skoði þetta.
Það má alveg deila um það hvort
það hefði átt að bera það strax undir
Gunnar og sjá hvort það ætti sér eðli
legar skýringar, en hann hefur ekkert
útskýrt þetta í fjölmiðlum heldur, til
dæmis í þessari grein sinni,“ segir einn
þeirra sem DV ræddi við.
„Þetta tekur
auðvitað á hana“
Krossinn aldrei betri, segja stuðningsmenn Sigurbjargar
Gunnar hættir sem for-
stöðumaður – 2010 Gunnar
ákveður að stíga til hliðar sem
forstöðumaður Krossins í kjölfar
ásakana um kynferðisbrot.
Sigurbjörg
Gunnarsdóttir
tekur við – 2010
Dóttir Gunnars,
Sigurbjörg, tekur við
sem forstöðumaður
af föður sínum.
Sigurbjörg kosin – 2012 Á aðalfundi bjóða
þau feðgin sig bæði fram. Athygli vekur þegar
Sigurbjörg talar gegn föður sínum og hvetur til
þess að hann verði ekki kosinn.
Aðalfundur fer úr böndunum – 2013 Kalla
þarf til lögreglu til að róa niður fundarmenn á aðalfundi
Krossins um sumarið. Fundurinn fer úr böndunum en lýkur
ekki með réttum hætti og því þarf þarf að funda að nýju.
Gunnari rekinn frá Krossgöt-
um – 2012 Gunnar er rekinn úr stöðu
framkvæmdastjóra Krossgatna í kjölfar
ósættis á milli hans og Sigurbjargar.
Guðmundur St. Ragnarsson segir þá að
gagnkvæmt traust hafi ekki ríkt á milli
Gunnars og stjórnarinnar.
Ásakanir um fjármálamisfærslu
– 2014 Fréttaskýringaþátturinn Kastljós greinir frá
því að stjórn Krossgatna hafi beðið um rannsókn á
meintri fjármálaóreiðu á þeim tíma sem Gunnar var
framkvæmdastjóri. Gunnar segir þetta vera hluta af
safnaðarpólitík til að veikja hans stöðu.
Steig til hliðar
Gunnar steig til hliðar sem forstöðu
maður árið 2010 vegna ásakananna
og Sigurbjörg tók við stjórnartau
munum. Sama ár giftu Gunnar og
Jónína sig á laun.
Árið 2012 varð svo ljóst að Gunnar
vildi taka aftur við Krossinum og
verða á ný forstöðumaður safnaðar
ins sem hann stofnaði. Við tók grimm
safnaðarpólitík og fljótlega varð ljóst
að söfnuðurinn sem og fjölskylda
Gunnars, myndi skipa sér í fylkingar;
með og á móti Gunnari.
Erfiðir aðalfundir
Á aðalfundi árið 2012 bauð Gunnar
sig fram til forstöðumanns, en hlaut
ekki brautargengi og dræma kosn
ingu. Rétt áður en atkvæði voru
greidd kvaddi dóttir hans, Sigurbjörg,
sér til hljóðs og hvatti fundarmenn
til þess að kjósa Gunnar ekki. Fund
urinn þótti hafa verið erfiður öllum
sem hann sátu, en hann komst þó
hvergi nærri aðalfundi sem haldinn
var sumarið 2013. Þá þurfti að kalla
til lögreglu til að skakka leikinn. Á
þeim fundi vildu bæði Sigurbjörg og
Gunnar veita Krossinum forystu.
Engin niðurstaða
Enginn niðurstaða fékkst í málið,
heiftin var gríðarleg á fundinum og
voru þar einstaklingar sem sýndu af
sér ógnandi tilburði gagnvart Sigur
björgu.
„Fólk var bara á öskrinu. Þess
vegna þurfti að kalla til lögreglu til að
skakka leikinn. Hún var fljót á svæð
ið og gat róað mannskapinn. Þá var
ákveðið að fresta honum og skipu
leggja þetta betur, en þetta er náttúr
lega í annað sinn sem þarf að fresta
þessu,“ sagði einn viðmælenda DV
sumarið 2013.
Allt hafði farið úr böndunum
áður en hægt var að ganga til kosn
inga. Hatrammar deilur um fundar
stjórn og umboð vegna kosninganna
reyndust erfiðar viðfangs og en sam
kvæmt heimildum DV hefur enn ekki
verið gengið frá þeim málum.
Erfið valdabarátta
Camilla Rut Arnardóttir, barnabarn
Gunnars Þorsteinssonar, hefur greint
frá því hversu erfið þessi valdabarátta
hefur verið fyrir fjölskylduna. Í við
tali við DV árið 2013 sagðist hún upp
lifa sem margir teldu afa hennar vera
nánast réttdræpan í samfélaginu
vegna alls þess sem hefði gengið á.
Hún sagði það vera sárt að sjá hann
missa tökin í trúfélaginu sem hann
stofnaði og byggði upp. „Þegar afi
var tilbúinn til þess að snúa aftur var
hins vegar tekið fyrir það og honum
meinuð endurkoma,“ sagði Camilla.
Svindl og bellibrögð
Ásakanir um svindl og bellibrögð
ganga nú að nýju milli herbúða
Gunnars og Sigurbjargar enda var
aðalfundur síðasta árs aldrei endur
tekinn. Búist er við því að aðalfund
ur verði haldinn á næstu vikum, en
hann á að halda í apríl eða maí. „Það
er varla að maður treysti sér í annan
svona fund,“ segir einn viðmælenda
DV. „Það væri nánast betra að sleppa
þessu. Fólkið hegðar sér svo fárán
lega.“ n
n Enn magnast deilurnar í Krossinum n Ásakanir um fjármálaóreiðu valda titringi n Gunnar segir þær tilhæfulausar
„Hafi hann ekkert
að fela ætti það að
vera sjálfsagður hlutur
Standa með Sibbu
Sigurbjörg á greinilega
marga vini og stuðnings-
menn innan Krossins.
„Fólk var bara
á öskrinu.
„Við viljum
vera í friði.