Dagblaðið Vísir - DV - 04.04.2014, Page 21

Dagblaðið Vísir - DV - 04.04.2014, Page 21
Helgarblað 4.–7. apríl 2014 Fréttir Erlent 21 R obert H. Richards, 47 ára meðlimur fjölskyldunnar sem á bandaríska stórfyrir­ tækið DuPont, var dæmd­ ur til átta ára fangelsis­ vistar eftir að hafa nauðgað þriggja ára dóttur sinni. Dómarinn ákvað hins vegar að skilorðsbinda allan refsitímann á þeim forsendum að Richards myndi ekki farnast vel í fangelsi. Dómurinn féll árið 2009 en var ekki birtur fyrr en nú, að því er The News Journal greinir frá. Fréttirn­ ar hafa vakið áleitnar spurningar um hvort sú staðreynd að maður­ inn tilheyrir efnaðri fjölskyldu hafi haft áhrif á niðurstöðu dómsins. Til­ efni þess að dómurinn hefur verið gerður opinber nú er sú staðreynd að fyrrverandi eiginkona manns­ ins, Tracy, hefur farið fram á að fá greiddar bætur vegna misnotkunar hans á börnum þeirra. Ekki birtur opinberlega Fram kemur á vefsíðu Business­ insider að ekki sé vitað hvers vegna yfirvöld í Delaware hafi ekki birt dóminn opinberlega á sínum tíma. Lögmaður eiginkonunnar fyrr­ verandi segir í samtali við miðil­ inn að hann hafi enga skoðun á því að dómurinn hafi ekki verið birtur opin berlega. „Ég vil bara að börn­ in fái bætur. Engar ráðstafanir hafa verið gerðar til bæta þeim þetta lífs­ tíðartjón.“ Richards játaði á sig nauðgunina, glæp sem við liggur allt að fimmt­ án ára fangelsisrefsing, samkvæmt News Journal. Dómarinn, Jan Jurden, dæmdi hann, eins og fyrr segir, til átta ára fangelsisvistar en ákvað að skil­ orðsbinda alla refsinguna. „Ákærða mun ekki farnast vel í fang­ elsi,“ sagði Jurden þegar hún kvað upp dóminn. Fáheyrt er að svona langur fangelsisdómur sé skilorðsbundinn að öllu leyti. Ákvörðunin hefur vakið furðu á meðal lögfræðinga á svæðinu þar sem Jurden hefur það orð­ spor á sér að vera hörð í horn að taka. „Það heyrir til algjörr­ ar undantekningar að fangels­ isvist reynist föngum vel,“ hefur News Journal eftir verjandan­ um Drendan J. O'Neil. „Fang­ elsi er refsing og til þess fallin að fjarlægja glæpamanninn úr samfélaginu. Fangelsisvist er sjaldnast góð fyrir fanga.“ Gróf brot Langafi Richards var Irenee du Pont. Richards er sjálfur ekki í vinnu heldur lifir hann á auðævum fjöl­ skyldunnar. Bent hefur verið á að fjölskylda Richards sé mjög efnuð og valdamikil. Hún hafi meðal annars stofnað lögmannsstofuna Richards Layton & Finger. Í stefnunni sem Tracy hefur lagt fram á hendur Richards segir að hann hafi stungið fingrum í leggöng stúlkunn­ ar á meðan hann stundaði sjálfsfró­ un. Þá hafi hann einnig misnotað 19 mánaða son þeirra. Richards hefur ekki játað það brot. n Baldur Guðmundsson baldur@dv.is Nauðgaði þriggja ára dóttur sinni Robert H. Richards dæmdur í átta ára fangelsi Misnotuð Móðir stúlkunnar vill bætur. „Ákærða mun ekki farnast vel í fangelsi Dæmdur Maðurinn er ekki í vinnu en lifir á auði fjölskyldu sinnar. Munu ekki gefast upp á leitinni Najib Razak, forsætisráðherra Malasíu, finnur til með aðstandendum farþega MH370 É g veit að fyrr en við finnum flug­ vélina geta margar fjölskyld­ ur ekki byrjað að syrgja. Ég get ekki ímyndað mér það sem þau ganga í gegnum. Ég lofa því að við munum ekki gefast upp á leitinni,“ sagði Najib Razak, forsætisráð­ herra Malasíu, á blaðamannafundi á fimmtudaginn í Perth í Ástralíu. Þar er hann staddur til þess að fylgj­ ast með leitinni að Boeing 777­þotu Malaysia Airlines sem hvarf þann 8. mars. 239 manns voru um borð í flugi MH370, sem var á leiðinni til Peking frá Kúala Lúmpúr, og eru þeir allir taldir af. Enn hefur ekkert brak fundist úr vélinni, þrátt fyrir að fjöl­ margir hlutir hafi fundist í hafinu. Orð Najib Razak hafa eflaust róað aðstandendur farþeganna en undanfarna daga hefur ver­ ið hávær orðrómur um að leit gæti verið endan lega hætt. Ættingjar kínverskra farþega, sem voru í meirihluta í flugvélinni, hafa ítrekað látið óánægju sína í ljós með stjórn­ völd í Malasíu og telja að þau búi yfir meiri upplýsingum um hvarf vélar­ innar en þau hafa gefið upp. Nýjasta útspil ættingjanna var að hóta því að fara í hungurverkfall. Leitin að vélinni er afar umfangs­ mikil og keppast flugvélar og skip við að fínkemba Indlandshaf. Fjölmörg lönd taka þátt í leitinni og hafa bæði Ástralar og Bretar sent kafbát til þess að safna gögnum neðansjávar. Auk þess hefur verið notast við gervi­ tunglamyndir og ratsjár til leitar­ innar, sem gæti tekið marga mánuði samkvæmt yfirvöldum í Ástralíu. n ingolfur@dv.is Staddur í Perth Razak er á leitarsvæðinu og hélt blaðamannafund. MyND REutERS Rafbílavæðing af stað í Noregi Sala á nýjum rafbílum í Noregi hefur aukist mikið undanfarin misseri. Er nú svo komið að fimmti hver nýr bíll á götunum í Noregi er rafbíll. Bandaríski rafbílaframleiðandinn Tesla virðist eiga upp á pallborðið hjá Norðmönnum. Í marsmánuði seldust 1.493 slíkir bílar, af gerðinni Tesla S, í Noregi en það samsvarar 10,8 prósentum af öllum nýjum seldum bílum í Noregi í mars. Í öðru sæti var Volkswagen Golf, en 624 slíkir bílar seldust. Forsetinn fyrirskipaði skotárásina Viktor Yanukovych, fyrrverandi forseti Úkraínu, fyrirskipaði skotárás á mótmælendur í Kænu­ garði í febrúar samkvæmt Arsen Avakov innanríkisráðherra. Bráðabirgðaríkisstjórnin hefur rannsakað málið á undanförn­ um vikum og komist að þessari niðurstöðu. Tólf leyniskyttur skutu á mót­ mælendurna og hafa þrjár þeirra verið handteknar. 76 manns voru skotnir til bana á dögunum 18.–20. febrúar en alls féllu yfir 100 manns í átökunum. Upphaf mótmælanna má rekja til þess þegar Viktor Yanukovych neitaði að skrifa undir samstarfssamning við Evrópusambandið. Legsteinn í stofunni Sænsk fjölskylda vissi vart hvað­ an á sig stóð veðrið þegar hún lagðist í endurbætur á húsi sínu í Fuglie í suðurhluta Svíþjóðar. Ha­ fist var handa við að rífa upp gólf í stofunni, en það sem við blasti undir stofugólfinu kom heldur betur á óvart. Stór og mikill leg­ steinn, tveir metrar að lengd, kom í ljós þegar gólfið var rifið upp. Þrjú nöfn voru grafin í leg­ steininn og kom í ljós að fólk­ ið sem um ræddi lést á árunum 1843 til 1884. Talið er að fólkið hafi búið í húsinu sem er alda­ gamalt steinhlaðið hús.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.