Dagblaðið Vísir - DV - 04.04.2014, Side 23
Helgarblað 4.–7. apríl 2014 Fréttir Erlent 23 www.fi.is
Vorferðir
Apríl
12.04. Eyjafjallajökull
12.04. Kræklingaferð
17.04. Páskaskíðaferð í Tindfjöllum
Maí
01.05. Söguganga. Gunnlaugssaga Ormstungu
03.05. Birnudalstindur
03.05. Fuglaskoðun
05.05. Barnavagnavika
05.05. Morgungöngur
08.05. Eldfjalla- og gjótukönnun
08.05. Í fótspor eldklerksins
10.05. Hrútsfjallstindar
10.05. Þverártindsegg
14.05. Örgöngur um Breiðholtið
17.05. Heinabergsfjöll
18.05. Gengið í náttúrunni
24.05. Sveinstindur
24.05. Vorganga Hornstrandafara
25.05. Söguferð um Fljótshlíð og Eyjafjöll
31.05. Sveinstindur
Sjá nánar um allar ferðir á www.fi.is
Nánari upplýsingar og skráning er í síma 568 2533
eða í netpóst fi@fi.is
Skráðu þig inn – drífðu þig út
Mörkinni 6 | 108 Reykjavík | S: 568 2533 | www.fi.is
FERÐAFÉLAG ÍSLANDS
Ferðaáætlun FÍ 2
014Náðu þé
r í
Upplifðu náttúru
ÍslandsTímamóT í sögu afganisTan
n Afganir ganga til kosninga á laugardaginn n Hamid Karzai stígur til hliðar n Þingkona segir kosningarnar þær miklvægustu í sögu landsins
með Fabrizio Foschini.
Hann segir erfitt að spá fyrir um
hvað kosningarnar muni hafa í för
með sér. Of margir aðilar séu í spilinu
og átökin sem geisi ennþá afar flókin.
„En það er ljóst að eftir tíu ár af ríkis-
stjórn Karzai munum við sjá nýtt and-
lit. Þetta veldur mörgum Afgönum
áhyggjum enda vita þeir að friðsöm
valdaskipti hafa ekki átt sér stað síð-
an konungnum var steypt af stóli árið
1978. Margir búast við því að þeir sem
eru við völd núna muni vilja viðhalda
þeim völdum.“ Fólk bendi með-
al annars á að fjölskylda Karzai hafi
komið sér vel fyrir í valdastöðum og sé
innvikluð í flókna valdabaráttu stjórn-
mála og viðskipta.
Fabrizio bendir á að Karzai hafi til
að byrja með verið kallaður borgar-
stjóri Kabúl. Það hafi verið gert grín
að honum vegna þess að ítök hans
náðu lítið sem ekkert út fyrir höfuð-
borgina. Honum hafi hins vegar með
tíð og tíma tekist að auka ítök sín í
öllu landinu með því að veita þeim
sem sýndu honum hollustu embætti
og stöður víðs vegar um landið. Tal-
ar Fabrizio um „net bandamanna“ í
þessu samhengi sem hafi á endan-
um orðið til þess að Karzai tókst að
verða það sem honum var ætlað: For-
seti Afganistan. „Margir sjá þetta hins
vegar þannig í dag að fjölskylda hans
sé allt of innvikluð í stjórnmál lands-
ins til þess hann geti stigið frá í friði.“
Hætta á átökum
Málið snúist ekki einungis um að
þessir aðilar vilji halda völdum. Þeir
hafi nefnilega ágætis ástæðu til þess
að óttast að ef þeir sleppi valdatau-
munum alveg geti þeir orðið skot-
mörk uppreisnarmanna sem og póli-
tískra andstæðinga. „Við skulum ekki
gleyma því að þetta er land þar sem
mikið af vopnum skipta um hendur,
pólitískar aftökur eiga sér stað, mest-
megnis af hálfu uppreisnarmanna
en stundum standa pólitískir and-
stæðingar á bak við slíkt og kenna
kannski uppreisnarmönnum um
það.“ Hann segir þó ljóst að Karzai
muni styðja við friðsöm valdaskipti,
enda ekki maður vopna. Spurningin
sé hins vegar sú hvort aðrir geri það.
Fabrizio segir ýmislegt fleira við
kosningar í Afganistan valda áhyggj-
um. Nefnir hann að dæmi séu um víð-
tækt kosningasvindl í fyrri kosningum.
Fáir búist við sanngjörnum kosning-
um lausum við kosningasvindl en
spurningin snúist hins vegar um það
í hve miklum mæli það verði. Afganir
hafi áhyggjur af því að ef kosningarnar
verði eins jafnar og þær voru árið 2009
þegar tveir framjóðendur töldu sig
eiga tilkall til kosningasigurs, sé hætta
á því að stuðningsmenn þessara fram-
bjóðenda grípi til vopna. „Í slíkri stöðu
gæti ofbeldi brotist út. Vopnaðir hóp-
ar sem pössuðu sig ef til vill áður á því
að beita ofbeldi sem pólitísku vopni
vegna viðveru alþjóðaherliðsins gætu
litið til slíkra aðferða núna.“ Fabrizio
segir stjórnmálaflokka landsins þurfa
að átta sig á því að þeir verði að vinna
saman, sérstaklega í ljósi þess að al-
þjóðlega herliðið er að yfirgefa landið.
Hvað sem öðru líður munu Afganir
sjálfir ganga að kjörborðinu á laugar-
dag. Tíminn einn leiðir í ljós hvern-
ig fer en þeir íbúar höfuðborgarinn-
ar sem blaðamaður hefur rætt við
síðustu daga eru sammála um að al-
mennt líti fólk kosningarnar jákvæð-
um augum. „Afganir eru ánægðir með
að ganga að kjörborðinu til þess að
kjósa næsta forseta,“ segir Sayed Ali
Aqa Amiri, 23 ára hagfræðinemi við
Háskólann í Kabúl, í samtali við DV.
„Við vonumst til þess að kosningarnar
verði gagnsæjar og til þess fallnar að
afskipti erlendra ríkja af okkur verði
minni, sérstaklega Bandaríkjanna.
Ég sem afganskur ríkisborgari mun
nýta mér kosningarétt minn á laugar-
daginn.“ n
Þáttaskil Farkhunda
Zahra Naderi, 32 ára
þingkona sem starfar á
þjóðþingi landsins fyrir
National Unity Party
of Afghanistan, segir
að kosningarnar muni
marka þáttaskil í sögu
landsins.
Í dagsins önn Ávaxtasalar fyrirfinnast á hverju
götuhorni í Kabúl en þeir renna vögnum sínum oftar
en ekki yfir umferðarþungar götur. Mynd Jón BJarki
óljós framtíð Stjórnmálaskýrandinn Fabrizio Foschini segir erfitt að spá fyrir um hvað
kosningarnar muni bera í skauti sér en ljóst sé að Afganir standi á tímamótum.