Dagblaðið Vísir - DV - 04.04.2014, Page 26
26 Umræða
1 „Ég iðrast óendanlega fyrir það sem ég hef gert
öðrum“
Hjörtur Júlíus Hjartarson, knattspyrnu-
og sjónvarpsmaður, sér eftir að hafa
ráðist á samstarfsfélaga sinn um
helgina.
44.983 hafa lesið
2 Tólf ára drengur hengdi sig eftir skóla í gær
Sorg ríkir í Eccles-bæ á Englandi eftir að
tólf ára drengur hengdi sig.
31.461 hefur lesið
3 „Hann hefur nokkra daga til að skila þessu“
Verslunarrekandi við Laugaveg lýsti eftir
þjófi á samfélagsmiðlinum Facebook.
19.877 hafa lesið
4 Eldra fólk með fordómaSigrún Heiða Pétursdóttir er með
þriggja ára barn á brjósti.
11.448 hafa lesið
Helgarblað 4.–7. apríl 2014
Land tækifæranna
Ó
nefndur hippi kallaði forsætis-
ráðherra „pólitískan fábjána“.
Það er að hluta til rétt. Sig-
mundur Davíð Gunnlaugsson
er að mati Svarthöfða of hreinskilinn
og heiðarlegur til þess að ná löngum
frama í pólitík. En hann er alls ekki fá-
bjáni; hann skilur grundvallarhugs-
un siðmenningarinnar – viðskipti og
gagnkvæman ávinning!
Alla tíð hefur Svarthöfði hugsaði í
sóknarfærum og lausnum, Svarthöfði
er nefnilega gífurlega jákvæður
einstaklingur.
Fæstir vilja til að mynda greiða
mikið fyrir vatnsglas, en eftir nokkra
daga í eyðimörkinni myndu flestir
gefa aleiguna fyrir að svala þorstan-
um. „I got him by the balls“ myndi
sniðugur kaupsýslumaður hugsa, og
myndi að svo búnu nýta frelsi sitt til
að selja viðkomandi vatnsglas á verði
í samræmi við eftirspurnina. Allir
græða!
Þess vegna er það rétt hugsun hjá
Sigmundi að mikil sóknarfæri séu í
loftslagsbreytingum fyrir Íslendinga.
Við gætum til dæmis farið að taka
skatt af þeim sem vilja sigla um nýja
leið norðan við Ísland. Við gætum
hafið gjaldtöku í samræmi við fógeta-
úrskurð, líkt og við Geysissvæðið.
Það er ákveðin neyð í loftslags-
breytingum. Suma mun skorta vatn,
aðrir munu fá of mikið af því. Sum-
um verður of kalt, öðrum of heitt. Enn
aðrir munu leita á náðir annarra varð-
andi húsaskjól, mat eða vatn. Þannig
mun eftirspurnin aukast gífurlega á
sumum stöðum og framboð aukast
annars staðar. Fyrir snjalla kaupsýslu-
menn eru tækifærin á hverju strái.
Seltjarnarnesið á kaf? Snilld, það er
sóknarfæri! Loksins fá þeir að gjalda
fyrir öll þessi ár af lágu útsvari. Setj-
um upp tollahlið við Seltjarnarnes og
rukkum í samræmi við eftirspurn. Þeir
sem vilja enn fá afslátt af útsvarinu
geta bara búið á flekum bundnum við
Eiðistorg, eða öllu heldur; Eiðissker.
Drepst fiskurinn út af því að sjór-
inn er orðinn svo súr? Snilld. Sniðug-
ur kaupsýslumaður sér sóknarfærið
í að selja indverskt kirsuberjakakó í
pökkum og mysuprótein með því.
Breytir Golfstraumurinn um
stefnu og fer til Portúgal? Geðveikt!
Svarthöfði á hlutabréf í 66°N og sér
fram á fjármagnstekjur!
Ísland framtíðarinnar er nefnilega
Ísland tækifæranna! n
Ný veisla Umsjón: Henry Þór Baldursson
Hreinar línur í Reykjavík
M
ér er stundum sagt að
stjórnmálaflokkar séu
allir eins. Stefna þeirra
sé keimlík, þeir lofi öllu
fögru fyrir kosningar en
hafi í raun það eina markmið að
komast til valda. Svo fæ ég ýmist að
heyra að flokkarnir séu sammála um
allt eða geti aldrei komið sér saman
um neitt. Ég hef svo sem skilning á
þessu öllu. Stjórnmálaflokkarnir eru
sammála um mjög margt, þó fjöl-
miðlar fjalli oftast bara um ágrein-
inginn þegar hann er til staðar. Stefn-
an getur virkað keimlík, sérstaklega í
borgarpólitíkinni, og frambjóðendur
einsleitur hópur.
Vinstrihreyfingin
grænt framboð
Vinstri græn eru þó að mörgu leyti
frábrugðin öðrum framboðum. Við
höfum ögrað samfélaginu og hefð-
bundnum stjórnmálum gegnum tíð-
ina með framsæknum hugmyndum
um hvernig bæta megi samfélagið og
við höfum alltaf valið hugsjónir um-
fram vinsældir. Við munum áfram
gera það. Í Reykjavík snýst málefna-
leg sérstaða Vinstri grænna fyrst og
fremst um þrennt: Áherslur í skóla-
og frístundamálum, umhverfis- og
auðlindamálum og trú á opinbera
þjónustu. (Fyrir utan að vera eina
framboðið sem treystir konu til að
leiða lista. Það er ekki lítið.)
Grunnþjónusta við
börn verði gjaldfrjáls
Á næsta kjörtímabili verður að
byggja aftur upp traust milli skóla-
samfélagsins og borgaryfirvalda eftir
harkalegar sameiningar og niður-
skurð sem gengið hefur mjög nærri
starfseminni. Þá verður að hefjast
handa við afnám gjaldheimtu borg-
arinnar vegna skóla- og frístunda-
mála. Þannig getum við haft raun-
veruleg áhrif á ráðstöfunartekjur
barnafólks og stuðlað að sanngirni.
Flöt gjaldheimta upp á tugi þúsunda
á hverjum mánuði umfram útsvarið
er ósanngjörn og afnám hennar er
fullkomlega raunhæft markmið.
Borgin axli ábyrgð í
umhverfis- og auðlindamálum
Til að sporna við loftslagsbreyting-
um af mannavöldum verður Reykja-
víkurborg að draga úr útblæstri gróð-
urhúsalofttegunda. Við verðum að
breyta samgönguháttum, stuðla að
orkuskiptum, fjölga hjólastígum,
bæta almenningssamgöngur og
nærþjónustu í þéttari byggð. Þannig
drögum við úr notkun einkabílsins
og skaðlegum áhrifum hans. Fram-
ganga Orkuveitunnar á Hengils-
svæðinu hefur verið óábyrg og nýt-
ing auðlindarinnar allt of ágeng.
Ábyrg nýting auðlindarinnar krefst
þess að við endurskoðum fram-
leiðslugetu Hellisheiðarvirkjunar og
sláum öllum frekari virkanaáform-
um þar á frest.
Enga einkavæðingu
opinberrar þjónustu
Á kjörtímabilinu hafa allir flokkar í
borgarstjórn sýnt áhuga á einkavæð-
ingu opinberrar þjónustu. Allir nema
Vinstri græn. Stefna Sjálfstæðisflokks
kemur auðvitað ekkert á óvart, hann
vill „leysa krafta einkaframtaks-
ins úr læðingi“ hvar sem því verður
við komið og leyfa einkaaðilum að
græða á almannaþjónustu eins og
öllu öðru. Meiri vonbrigðum valda
aðgerðir meirihluta Besta flokks og
Samfylkingar. Þau hafa nú selt hlut
Reykvíkinga í HS-Veitum til einka-
aðila og Gagnaveita Reykjavíkur er í
söluferli. Ferðaþjónusta fatlaðra hef-
ur verið boðin út og gistiskýli fyrir
utan garðsmenn er ekki lengur rekið
af borginni. Það er skýlaus krafa
Vinstri grænna að opinber þjónusta
sé á forræði almennings, að enginn
geti grætt á grunnþjónustu og að
hún verði aðgengileg öllum borgar-
búum. Það hefur sýnt sig hvað eftir
annað að einkarekstur hentar ekki í
grunnþjónustu. Hann leiðir til verri
og dýrari þjónustu.
Einlæg kosningaloforð
Sérstaða Vinstri grænna felst í kjarki
og staðfestu. Við höfum og við mun-
um áfram standa með hugsjónum
okkar og setja mál á dagskrá jafnvel
þótt við mætum ekki skilningi til að
byrja með. Ég fullyrði að það sé hægt
að afnema gjaldheimtu fyrir leik-
skóla, grunnskóla og frístundaheim-
ili jafnvel þótt aðrir flokkar efist. Ég
fullyrði að það sé hægt að koma í
veg fyrir ofnýtingu á Hengilssvæðinu
og að við getum spornað með öfl-
ugri hætti gegn loftslagsbreytingum
af mannavöldum jafnvel þótt aðr-
ir flokkar efist. Ég fullyrði að það sé
betra fyrir fjárhag, þjónustu og sam-
félag í Reykjavík ef grunnþjónustan
er rekin af hinu opinbera og á for-
ræði almennings. Jafnvel þótt aðrir
flokkar efist. Við Vinstri græn mun-
um standa með þessum áherslum
okkar. Um það er engin ástæða til að
efast. n
„Ég fullyrði að
það er hægt að
afnema gjaldheimtu fyrir
leikskóla, grunnskóla og
frístundaheimili
Könnun
Hljópstu 1. apríl?
8,4%
91,6%
n Nei n Já 251 ATKVÆÐI
Svarthöfði
Land tækifæranna Ísland fram-
tíðarinnar er Ísland tækifæranna.
Mynd rEUTErs
sóley Tómasdóttir
oddviti Vinstri-grænna í Reykjavík
Kjallari
Mynd sIGTryGGUr ArI
Mest lesið
á DV.is