Dagblaðið Vísir - DV - 04.04.2014, Qupperneq 37
Lífsstíll 37Helgarblað 4.–7. apríl 2014
Of mikið skokk
getur verið slæmt
Þeir sem hlaupa of mikið geti dáið fyrir aldur fram
F
lestum líður vel eftir að hafa
farið út að hlaupa. Ný rann
sókn bendir hins vegar til þess
of mikil hlaup geti verið slæm
fyrir okkur og jafnvel leitt til þess að
fólk deyi fyrir aldur fram.
Rannsóknin, sem gerð var í
rannsóknarstöðinni í Lehigh Valley
heilsumiðstöðinni í Pennsylvaníu í
Bandaríkjunum, leiddi í ljós að þeir
sem færu milliveginn lifðu lengst.
Það er, þeir sem hvorki hreyfa sig og
mikið né of lítið. Þá kynnu margir
að spyrja hver sé hinn gullni meðal
vegur? Rannsakendur vilja meina að
um 2–3 tíma skokk eða hlaup á viku
sé gott fyrir mann. Sé farið yfir það
þá sé það orðið of mikið. Þeir sem
eru undir þeim tíma í hreyfingu yfir
vikuna eiga jafnmikið á hættu að
deyja fyrir aldur fram og þeir sem
fara yfir tímann.
Rannsakendur vita þó ekki af
hverju þetta stafar en það virðist
ekki tengjast hjartaheilsu. Um 3.800
hlauparar tóku þátt í rannsókninni,
bæði karlar og konur og meðalaldur
þeirra var 46 ár.
70 prósent þátttakenda hlupu
yfir 30 kílómetra á viku. Tekið var
inn í rannsóknina hvort fólk tæki,
hvort það væri með háan blóð
þrýsting, hátt kólesteról eða hefði
reykt.
Doktor Martin Marsumura,
sem stjórnaði rannsókninni, segist
ekki segja fólki að hætta að hlaupa
vegna niðurstaðna rannsóknarinn
ar. Hann hins vegar bendir fólki
sem hleypur mikið á að fylgjast
með gangi slíkra rannsókna og hafa
þetta í huga. „Það sem við skiljum
ekki ennþá er hve nákvæmlega má
hlaupa mikið áður en það bitnar á
heilsunni,“ sagði hann í samtali við
Health Daytímaritið. Hann ráð
leggur fólki að hlaupa ekki meira en
í 2–3 tíma á viku og ekki of mikið. n
Of mikil hlaup slæm? Rann-
sóknin bendir til þess að það geti
verið slæmt að hlaupa of mikið. Takk fyrir okkur!
Smiðjuvegur 9 • 200 Kópavogur • Sími 535 4300 • Fax 535 4301
Netfang axis@axis.is • Heimasíða www.axis.is
Þökkum frábærar viðtökur gesta á
Hönnunarmars síðastliðna helgi.
Þar kynntum við meðal annars Einrúm hljóðsófa,
Lauf leikskólastóla, Stemmu skólahúsgögn,
Strending fjölnota húsgagn og símaklefa.
Hönnuður: Sturla Már Jónsson Húsgagna og innanhúsarkitekt
m
ag
gi
os
ka
rs
.c
om
Þ
að eru til ótal ráðleggingar
um hvernig á að ná sem
bestum svefni. Ef þú vilt
lækka líkur á heilablóðfalli,
offitu, sykursýki og krabba
meini, þá skaltu passa að gera ekki
eftirfarandi hluti.
16.30 Þambaðu kaffibollaEf þú þarft að
klára verkefni fyrir
lok vinnudagsins
eða þrauka síðstu
klukkutímana sem
eftir eru af vaktinni
getur verið freist
andi að þamba einn
eða tvo kaffibolla. En áður en þú
skellir í þig espressobolla skaltu
hafa í huga að það tekur líkamann
um það bil 10 klukkustundir að
vinna úr koffíninu, þannig að koff
ínið er líklegt til að halda fyrir þér
vöku löngu eftir að vinnu deginum
lýkur.
21.00 Borðaðu stóra próteinríka máltíð Það
er mikilvægt að borða næringar
ríka máltíð á hverjum degi en ekki
fresta kvöldmatnum of lengi, því
þá fer líkaminn að
melta máltíðina
þegar hann á að
vera í hvíld. Það
fer mikil orka í
að brjóta niður
prótein í fæðu, sem
getur haldið þér vakandi lengur.
21.30 Stressaðu þig uppÞegar þú ert að ganga
frá eftir matinn, passaðu þig á
því að stressast ekki upp yfir því
hvað þú átt eftir að gera mikið
fyrir svefninn. Það er
auðvelt að stressa
sig á hlutunum
en svefnkannanir
sýna að ef þú
stressast mikið
upp fyrir svefninn
getur það haldið þér
vakandi enn lengur.
22.00 Einn fyrir svefninn Þó að einn
drykkur hafi róandi
áhrif á þig fyrst
um sinn hefur
drykkurinn þau
áhrif að draum
svefn minnkar en
djúpsvefn eykst, sem setur svefn
ferlið úr skorðum. Þetta endar með
því að þú færð ekki eins góða hvíld
um nóttina.
22.05 Kveiktu á sjónvarpinuTylltu þér
í sófann og settu
á einhverja
spennumynd
með nóg af
sprengingum,
skothljóðum og
sírenum til að koma
náttúrulegu streituviðbrögðunum
af stað. Ljósið frá sjónvarpinu
hjálpar líka til við að halda þér
vakandi.
23.00 Skrúfaðu frá ofnunumFlestum finnst óþægi
legt að skríða undan sænginni á
morgnana og fara í
ísköld fötin en sér
fræðingar segja
að maður hvílist
betur í köldu
herbergi og
mæla með að hafa
hitastigið í svefnher
berginu í kringum 15–19 gráður.
23.05 Leggstu í rúmið með fartölvu eða iPad
Skært ljósið frá tækinu
mun tryggja að
heilinn minnki
framleiðslu
serótóníns, en
það er hormón
sem eykur syfju
tilfinningu.
23.35 Kvíddu fyrir fundinum sem þú þarft að mæta
á daginn eftir Passaðu að byggja
upp mikinn kvíða vegna kynn
ingarinnar sem þú
þarft að halda
á morgun eða
hvernig þú átt að
ná endum saman
út mánuðinn.
Rannsóknir sýna
að ef maður fer í rúm
ið áður en maður nær að róa niður
hugann skilar það sér í verri svefni.
Til að auka áhrifin er gott að liggja
sem fastast áfram og reyna að
sofna. Oft er best að standa aðeins
upp og gera eitthvað róandi, til
dæmis að lesa.
07.00 Notaðu „snooze“-ið oftÞað er voða freistandi að
fá þessar auka fimm
mínútur af svefni
en sannleikurinn
er sá að ef þú
notar takkann
oft á morgnana
ertu að fá slæman
brotakenndan svefn og
sérfræðingar telja að mikil notkun
hans geti stafað af undirliggjandi
svefnvandamáli.
Svona nærðu versta
svefni lífs þíns
Nokkur ráð til að vakna örugglega dauðþreyttur