Dagblaðið Vísir - DV - 04.04.2014, Side 50
50 Menning Sjónvarp Helgarblað 4.–7. apríl 2014
Svo æli ég úr
mér iðrunum
Þ
egar þar að kemur get ég
sest niður fyrir framan
tölvuna mína, slegið inn
vefslóðina á skuldaleið
réttingarvél ríkisstjórn
arinnar, fengið mér kaffisopa úr
appelsínugula fantinum mínum
og sótt um niðurfellingu á verð
tryggða húsnæðisláninu mínu. Ég
á sannarlega rétt á þessu eins og
þúsundir annarra Íslendinga.
Þetta verður víst eins auðvelt
og þægilegt fyrir mig og að „panta
pítsu“. Nema í stað pítsunnar
mun ég panta mér pening. Í stað
þess að borga 20 falt kostnaðar
verð fyrir hveitisull fæ ég allt fyrir
ekkert; skuldaniðurfellingu með
tölvustriki fyrir einungis örfáar
mínútur af tíma mínum. Hver get
ur hafnað slíku kostaboði?
Ég get svo hallað mér aftur í
stólnum þegar ég verð búinn að
sækja um aurinn, hugsað um
hvað þetta sé nú frábært og tek
ið til við að hripa niður grein um
hvað þessi peningapöntunar
vél ríkisstjórnarinnar er galin frá
upphafi til enda. Allt frá því að
Sigmundur Davíð byrjaði að del
era um hrægamma og 300 millj
arða eignaupptöku úr þrota
búum kröfu hafa bankanna við
örvæntingarfulla kjósendur, til
sögulegs kosningasigurs hans
vorið 2013 og hálf fjarstæðu
kenndrar biðar þjóðarinnar eftir
efndum á þessu galna loforði, og
loks á endanum til þessarar allt
öðruvísi niðurstöðu á kosninga
loforðinu sem ég var að enda við
að nýta mér.
Mér finnst þetta í heildina vera
fráleit saga; saga sem er ekki síð
ur absúrd á sinni hátt en það sem
gekk á á Íslandi árin fyrir hrunið.
Fyrri sagan snýst um misnotkun
á bólu en sú seinni um misnotk
un á neyð. Saga um kosninga
lygar og brigsl, saga um auðtrúa
og örvæntingarfulla kjósendur,
saga um taugaspenntan og van
stilltan framsóknarformann sem
er andlit þessara „stærstu svika
íslenskrar stjórnmálasögu“ þar
sem orðalagið „tilgangurinn helg
ar meðalið“ hefur öðlast eina sína
ógeðfelldustu birtingarmynd.
Sigmundur Davíð keypti heil
ar kosningar með þessu loforði
sem endaði sem þessi hortittur í
pöntunarvél sem ég var að ljúka
við að nota.
Og lokakaflinn í þessari sögu
er eiginlega einn sá áhugaverðasti
því hann snýst um það hvernig ég
gat haft geð í mér til að nýta mér
eitthvað sem ég er svo mikið á
móti. Ég kaus hvorki Framsóknar
flokkinn né Sjálfstæðisflokkinn
þannig að ríkisstjórnin vinnur
ekki í mínu pólitíska umboði. Ég
bað ekki um þessa skuldaniður
fellingu, þvert á móti. Skulda
niðurfellingin sem ég var að panta
mér er röng að svo mörgu leyti, og
ég veit það, en samt ákvað ég að
taka við henni: Hún er siðferði
lega röng – hvað annað er hægt að
segja um það að ljúga að kjósend
um til að komast til valda; hún er
efnahagslega vafasöm – hún er
fjármögnuð með skattfé og kann
að ýta undir verðbólgu; hún er
óþörf og nýtist fólki sem þarf ekki
á henni að halda – ég þarf ekki
nauðsynlega á henni að halda þó
auðvitað sé fínt að fá milljón og ég
á vin sem er tekjuhár og barnlaus
lögfræðingur sem ætlar að nýta
sér skuldaúrræðið þrátt fyrir að
vera vel settur fjárhagslega; hún
er líka hugsanlega ólögleg – hluti
fjármagnsins sem nota á í skulda
niðurfellinguna er ekki í hendi og
verður sóttur sem skattur í þrota
bú föllnu bankanna og kann sú
skattlagning að vera brot á lögum.
En ég tek samt þátt í þessu af því
ég græði á því og af því ég get það.
Að þessu leyti er ég í sömu
sporum og þúsundir annarra Ís
lendinga sem telja skuldaleið
réttingarnar vera þvætting frá
upphafi til enda, allt frá kosninga
áróðrinum um hrægammana til
peningapöntunarmaskínu ríkis
stjórnarinnar. En við pöntum
okkur peninginn með óbragð í
munni.
Ef ég, og þúsundir annarra Ís
lendinga, tek þátt í þessu hvaða
skilaboð sendir það þá til Fram
sóknarflokksins? Ekki eingöngu
hefur flokkurinn náð að kaupa
fjórðung kjósenda til greiða sér at
kvæði heldur líka fengið meirihluta
þjóðarinnar til að nýta sér peninga
vélina sem þessi sami meirihluti
greiddi ekki atkvæði sitt og sem
hluti hans hefur gagnrýnt harka
lega í meira en heilt ár. Hvað kenn
ir þessi staða stjórnmálamönnum
um réttmæti þess að gefa kjós
endum óraunhæf kosningaloforð?
Á endanum gleypir meirihlutinn
við því með glýju í augum sem að
eins minnihlutinn vildi. Endurtek
ur sagan sig ekki? Er ekki málið að
Framsókn lofi næst 120 prósent
húsnæðislánum?
Ég halla mér fram í stólnum
mínum, grúfi mig yfir skrifblokk
ina og píri augun yfir párinu.
Nú ætla ég brátt að setja punkt
aftan við þessa grein. Ég er með
pennann í hendi en ég fæ mig
bara ekki til að skrifa meira því ég
get það ekki. Mér líður alls ekki
vel. Ég ætla að leggja pennann frá
mér, hreiðra um mig á gólfinu í
fósturstellingu í smá stund og fara
svo inn á klósett og æla úr mér
iðrunum. n
„Er ekki málið
að Framsókn
lofi næst 120 prósent
húsnæðislánum?
Sjónvarpsdagskrá
RÚV Stöð 2 SkjárEinn Stöð 2 Sport
R
eykjavík Film Festival eða Kvik
myndahátíð í Reykjavík verður
haldin í september. Hátíðin
mun fara fram í Bíó Paradís og
á fleiri stöðum í borginni dagana 12.–
21. september næstkomandi. Það er
sjálfseignarstofnunin Heimili kvik
myndanna, rekstraraðili Bíó Paradís
ar, sem stendur fyrir hátíðinni.
Kvikmyndahátíð í Reykjavík var
upphaflega rekin af fagfélögum kvik
myndagerðarmanna á árunum 1996–
2001. Hún tók við af Kvikmyndahátíð
Listahátíðar sem starfrækt var annað
hvert ár frá 1978.
Skipað hefur verið í stjórn há
tíðarinnar en í henni sitja Bergsteinn
Björgúlfsson (FK), Guðrún Edda Þór
hannesdóttir (SÍK), Friðrik Þór Frið
riksson (SKL), Birna Hafstein formað
ur (FÍL), Dögg Mósesdóttir (WIFT) og
Sjón (FLH).
Á vefsíðu hátíðarinnar verður
innan skamms kynnt dagskrá og
fyrir komulag hátíðarinnar, en ljóst
er að auk sýninga á því nýjasta úr
kvikmyndagerð heimsins verð
ur sérstök áhersla lögð á tengsla
myndun íslenskra og erlendra kvik
myndagerðarmanna. n
Haldin í Bíó Paradís og víðar
Kvikmyndahátíð Reykjavíkur í september
Sunnudagur 6. apríl
Stöð 2 Sport 2
Bíóstöðin
Gullstöðin
Stöð 3
07.00 Morgunstundin okkar
07.04 Háværa ljónið Urri (15:52)
07.14 Tillý og vinir (26:52)
07.25 Múmínálfarnir
07.35 Hopp og hí Sessamí
08.00 Ævintýri Berta og Árna
08.05 Sara og önd (27:40)
08.15 Kioka (3:52)
08.22 Kúlugúbbarnir (18:20)
08.45 Hrúturinn Hreinn (7:20)
08.52 Disneystundin (13:52)
08.53 Finnbogi og Felix (12:26)
09.15 Sígildar teiknimyndir
09.22 Herkúles (13:21)
09.45 Skúli skelfir (23:26)
09.55 Undraveröld Gúnda
10.08 Chaplin (39:52)
10.15 Alla leið (1:5) 888 e
11.00 Sunnudagsmorgunn
12.10 Skólahreysti (1:6) 888 e
12.55 Söngkeppni framhalds-
skólanna 2014 (Úrslit) e
14.25 Fum og fát
14.30 Svipmyndir frá Noregi e
(Norge Rundt)
14.40 Meistaramót Íslands
í badminton
16.40 Leiðin á HM í Brasilíu
(5:16) e
17.10 Táknmálsfréttir
17.20 Stella og Steinn (7:10)
17.33 Friðþjófur forvitni (7:9)
17.56 Skrípin (5:52) 888
18.00 Stundin okkar
18.25 Hvolpafjör (2:6) (Hvalpek-
uller)
19.00 Fréttir
19.20 Veðurfréttir
19.25 Íþróttir
19.40 Landinn 888
20.10 Brautryðjendur 888 (8:8)
(Auður Eir Vilhjálmsdóttir)
20.40 Stundin 7,9 (3:6) (The
Hour II) Stundin er
spennandi bresk verð-
launaþáttaröð sem gerist á
sjónvarpstöð BBC árið 1956.
Á dögum kalda stríðsins
var bilið milli þess að segja
sannleikann og svíkja
föðurlandið stutt. Aðal-
hlutverk: Romola Garai, Ben
Whishaw og Dominic West.
21.35 Afturgöngurnar (8:8)
(Les Revenants) Loka-
þáttur þessara dulmögn-
uðu verðlaunaþátta þar
sem einstaklingar sem
talið var að væru látnir,
dúkka upp í litlu fjallaþorpi
eins og ekkert hafi í skorist.
Leikarar: Anne Consigny,
Frédéric Pierrot og Clotilde
Hesme. Atriði í þáttunum
eru ekki við hæfi barna.
22.30 Ástarsorgir (Kære-
stesorger) Ungt fólk
fótar sig í tilhugalífinu. Ástir,
afbrýðisemi, sakleysi og
framhjáhald á umbrota-
tímum sjöunda áratugarins.
Atriði í myndinni eru ekki við
hæfi ungra barna.
00.25 Sunnudagsmorgunn e
01.35 Útvarpsfréttir
08:30 Evrópudeildin
10:10 Evrópudeildarmörkin
11:00 NBA 2013/2014
12:50 Spænski boltinn 2013-14
14:30 Formula 1 2014
17:30 Spænski boltinn 2013-14
19:10 NBA
19:35 Meistaradeild Evrópu
21:15 Meistaradeildin
21:45 Formula 1 2014
00:05 Meistaradeild Evrópu
09:00 -20:20 Premier League
20:20 Premier League 2013/14
(West Ham - Liverpool)
22:00 Premier League 2013/14
(Chelsea - Stoke)
23:40 Premier League 2013/14
(Cardiff - Crystal Palace)
01:20 Premier League 2013/14
09:50 Office Space
11:20 The Marc Pease
Experience
12:45 Try Seventeen
14:20 Good Night, and Good
Luck
15:55 Office Space
17:25 The Marc Pease
Experience
18:50 Try Seventeen
20:25 Good Night, and Good
Luck
22:00 Source Code
23:35 The Vow
01:20 James Dean
02:55 Source Code
10:45 Simpson (19:22)
11:05 Friends
11:30 Mindy Project (19:24)
11:50 Suburgatory (19:22)
12:10 Glee (19:22)
12:55 Hart of Dixie (19:22)
13:35 Gossip Girl (19:24)
14:20 The Carrie Diaries (6:13)
15:00 Pretty Little Liars (19:22)
15:45 Top 20 Funniest (11:18)
16:30 Amazing Race (6:12)
17:15 Lying Game (3:10)
17:55 Men of a Certain Age (7:12)
18:40 The New Normal (20:22)
19:00 Bob's Burgers (9:23)
19:25 American Dad (12:18)
19:45 The Cleveland Show (10:22)
20:05 Unsupervised (12:13)
20:45 Bored to Death (3:8)
21:10 The League (6:13)
21:30 Deception (5:11)
22:10 Glee 5 (9:22)
22:50 The Vampire Diaries (8:22)
23:30 Bob's Burgers (9:23)
23:50 American Dad (12:18)
00:10 The Cleveland Show
00:30 Unsupervised (12:13)
01:10 Bored to Death (3:8)
18:10 Strákarnir
18:35 Friends (24:25)
19:00 Seinfeld (12:13)
19:25 Modern Family (4:24)
19:50 Two and a Half Men (8:23)
20:15 Viltu vinna milljón?
21:00 Twenty Four (6:24)
21:40 Twenty Four (7:24)
22:25 Krøniken (22:22)
23:30 Ørnen (22:24)
00:30 Ally McBeal (23:23)
01:15 Viltu vinna milljón?
01:55 Krøniken (22:22)
07:00 Barnatími
07:01 Strumparnir
07:25 Waybuloo
07:45 Ævintýraferðin
08:00 Algjör Sveppi
09:40 Ben 10
10:05 Victorious
10:30 Nágrannar
10:50 Nágrannar
11:10 Nágrannar
11:30 Nágrannar
11:50 Nágrannar
12:15 60 mínútur (26:52)
13:00 Mikael Torfason
- mín skoðun
13:50 Spurningabomban
14:40 Heimsókn
15:05 Modern Family (5:24)
15:35 Léttir sprettir
16:05 Um land allt
16:40 Geggjaðar græjur
17:00 Ísland Got Talent
18:23 Veður
18:30 Fréttir Stöðvar 2
18:55 Sportpakkinn (32:50)
19:10 Steindinn okkar
- brot af því besta
19:45 Ísland Got Talent
21:00 Mr. Selfridge (8:10) Önnur
þáttaröðin auðmanninn
Harry Selfridge, stofnanda
stórverslunarinnar
Selfridges og hún gerist
á róstursömum tímum í
Bretlandi þegar fyrri heims-
styrjöldin setti lífið í Evrópu
á annan endann.
21:50 The Following 7,7 (11:15)
Önnur þáttaröðin af þessum
spennandi þáttum en
síðasta þáttaröð endaði
í mikilli óvissu um afdrif
fjöldamorðingjans Carroll
einnig hvað varðar söguhetj-
una Ryan Hardy. Eitt er víst
að nýtt illmenni verður kynnt
til leiks í þessari þáttaröð en
það er ekki þar með sagt að
Joe Carroll hafi sungið sitt
síðasta. Nýr sértrúarsöfnuð-
ur er að myndast og leiðtogi
hópsins er jafnvel hættulegri
en Carroll.
22:35 Shameless 8,7 (3:12)
Bráðskemmtileg þáttaröð
um skrautlega fjölskyldu.
Fjölskyldufaðirinn er
forfallinn alkóhólisti,
mamman löngu flúin að
heiman og uppátækjasamir
krakkarnir sjá um sig sjálfir.
23:30 60 mínútur (27:52)
00:15 Mikael Torfason
- mín skoðun
01:00 Daily Show: Global
Edition
01:25 Nashville (13:22)
02:10 The Politician's
Husband (3:3)
03:10 The Americans (4:13)
03:55 American Horror Story:
Asylum (12:13)
04:40 Red Lights
06:00 Pepsi MAX tónlist
11:45 Dr. Phil
12:25 Dr. Phil
13:05 Dr. Phil
13:45 Once Upon a Time (13:22)
14:30 7th Heaven (13:22)
15:10 90210 (13:22)
15:50 Parenthood (13:15)
Bandarískir þættir um
Braverman fjölskylduna í
frábærum þáttum um lífið,
tilveruna og fjölskylduna.
16:35 Friday Night Lights (12:13)
17:15 Ice Cream Girls (2:3)
Endurfundir Poppy og
Serenu reynast afdrifaríkir
og vekja upp spurningar um
myrka sameiginlega fortíð
þeirra. Báðar halda þær
fram sakleysi sínu en það er
ljóst að einhver er að ljúga.
18:00 The Good Wife (8:22)
18:50 Hawaii Five-0 7,5 (15:22)
Steve McGarrett og félagar
handsama hættulega
glæpamenn í skugga
eldfjallanna á Hawaii í
þessum vinsælu þáttum.
Sérsveitin rannsakar morð
á fasteignasala og móðir
Dannys mætir óvænt til
Hawaii með sláandi fréttir í
farteskinu.
19:40 Judging Amy (10:23)
20:25 Top Gear (4:7)
21:15 Law & Order (9:22)
Spennandi þættir um störf
lögreglu og saksóknara
í New York borg. Maður
finnst látinn í kjölfar þess
að hann stefndi stóru
flugfélagi.
22:00 The Walking Dead 8,7
(14:16) Þættir sem hafa
slegið öll fyrri áhorfsmet
áskriftarstöðva í Banda-
ríkjunum. Rick Grimes og
félagar þurfa að glíma við
uppvakninga utanfrá og
svikara innanfrá í þessum
hrollvekjandi þáttum sem
eru alls ekki fyrir viðkvæma.
22:45 The Biggest Loser -
Ísland (11:11)
00:35 Elementary (13:24)
01:25 Scandal (12:22)
02:10 Pig Farm
03:00 Beauty and the
Beast (2:22)
03:45 The Walking Dead (14:16)
04:30 The Tonight Show
05:20 Pepsi MAX tónlist
Ingi Freyr Vilhjálmsson
ingi@dv.is
Helgarpistill