Dagblaðið Vísir - DV - 04.04.2014, Blaðsíða 54
Helgarblað 4.–7. apríl 201454 Fólk
Sykurlaus
víkingur
„Hér í Bandaríkjunum gerast
hlutirnir,“ segir næringar-
fræðingurinn Þorbjörg Hafsteins-
dóttir sem nýlega gaf út bókina
The Sugarfree Viking þar ytra. Vel-
gengnin ríður ekki við einteym-
ing því MGM hefur ákveðið að
gera samnefnda kvikmynd um
líf hennar. Frá þessu segir Þor-
björg á Facebook-síðu sinni og að
myndin verði frumsýnt í nóvem-
ber. Hún segir einnig frá því að í
myndinni leiki hún ekki sjálfa sig,
til þess hafi verið valin leikkona
sem er 10 árum yngri.
„Hjartað er fullt af þakklæti,“
segir Þorbjörg að lokum í upp-
hafi útrásar sem virðist ætla að
verða hin lukkulegasta og í allt
öðrum anda en efnahagsvíking-
anna Íslensku.
Fetar í fótspor mömmu
Sonur Írisar í Buttercup er bassaleikari Ring of Gyges
É
g næ ekki upp í nefið á mér,
ég er svo rosalega stolt af
honum,“ segir tónlistarkonan
Íris Kristinsdóttir en elsta barn
hennar, Kristinn Freyr Óskarsson,
spilar á úrslitakvöldi Músíktilrauna
sem fram fer í Hörpu á laugardaginn.
Hljómsveit Kristins Freys og fé-
laga heitir Ring of Gyges. Íris hefur
lítið heyrt í bandinu enda upptek-
in sex barna móðir ef með er talinn
stjúpsonur hennar. „Hljómsveitin
er svo nýskriðin fram að ég hef bara
heyrt demó. Ég er samt að fara á
laugardaginn að horfa á þá og mun
þá hlusta í fyrsta skiptið að alvöru. Ég
veit samt að þeir eru á góðri siglingu
og hafa verið að troða upp í Hafnarf-
irði til dæmis.“
Íris tók aldrei sjálf þátt í Músík-
tilraunum en hún var virkur í sveita-
ballamenningunni hér á árum áður
með sveitum á borð við Buttercup og
Ber. „Ég hef aldrei tekið þátt í nein-
um svona keppnum. Þetta er örugg-
lega mjög skemmtilegt,“ segir hún en
neitar því aðspurð að hafa ýtt synin-
um út í tónlistina. „Ég hef aldrei þrýst
á hann eða reynt að hafa áhrif. Þessi
tónlistaráhugi kemur algjörlega frá
honum sjálfum. Ég bara styð hann
og ef þetta er það sem hann vill þá
er það bara frábært. Þetta er líka svo
frábær drengur. Það er svo hollt að
vera í kringum tónlist, ég þekki það
sjálf,“ segir Íris sem bíður spennt eftir
laugardeginum.
„Ég ætla sko ekki að láta mig vanta
í salinn. Ég styð strákinn minn alla
leið.“ Kristinn Freyr lýsir tónlist Ring
of Gyges sem framsæknu þungarokki
en hann spilar á bassa í bandinu. Að-
spurður segist hann sjálfur hlusta á
sveitir á borð við Dream Theatre og
Opeth. En hvað með íslenska tónlist?
„Það er bara Buttercup,“ segir hann
hlæjandi að lokum. n
indiana@dv.is
Mæðgin Íris er ofsalega stolt af elsta barninu sínu sem er að feta sín fyrstu spor í tónlist-
arbransanum. Mynd Úr einkasafni
Hleður
batteríin
í Portúgal
Leikarinn atli rafn á eftir að sakna Páls úr Englum alheimsins
V
ið fjölskyldan erum í
sveitinni hjá mömmu að
hlaða batteríin,“ segir leik-
arinn Atli Rafn Sigurðar-
son sem er kominn í frí til
Portúgals eftir annasaman tíma í
Þjóðleikhúsinu.
Atli Rafn hefur farið með hlutverk
Páls í Englum alheimsins á fjölum
leikhússins síðasta árið en 137 þús-
und manns horfðu á síðustu sýn-
inguna sem sýnd var í beinni út-
sendingu RÚV um síðustu helgi.
saknar Páls
Atli segir endalokum Engla alheims-
ins fylgja blendnar tilfinningar. „Mér
fannst ofsalega gaman að leika í
þessari sýningu og mun sakna henn-
ar og Páls. Ég viðurkenni að það féllu
nokkur tár á bak við, eftir að tjaldið
var fallið. Ég mun alltaf muna eftir
þessari sýningu, hlutverkinu og
þessu ferðalagi öllu. Að því leyti mun
ég sakna hennar.
En svona stóru hlutverki fylgir
líka mikið álag; þessi stemming hef-
ur verið í lífi mínu í meira en ár og
það er líka ákveðinn léttir að losna
undan því. Og svo þarf að fara rýma
til í höfðinu fyrir ný verkefni. Mín
reynsla sem leikari er einmitt að það
er skemmtilegast að æfa og frum-
sýna en minna skemmtilegt þetta
endurtekningarferli, að sýna kvöld
eftir kvöld. Þessi sýning hefur hins
vegar verið það lifandi að maður
hefur haft rými til að uppgötva nýja
hluti og halda áfram með sköpun-
ina og það hefur verið einstaklega
ánægjulegt.“
ekki bara íþróttir í beinni
Atli segir hópinn á bak við Engla
alheimsins stoltan af beinu út-
sendingunni. „Maður fann það alveg
strax daginn eftir að hvert sem mað-
ur fór hafði fólk verið að fylgjast með.
Þetta var sögulegur atburður og fyrst
áhuginn var svona mikill sýnir það
okkur að það eru ekki aðeins beinar
útsendingar af íþróttakappleikjum
sem höfða til fólks. Auðvitað var
þetta vinsæl sýning í leikhúsinu og
því var fyrirfram ákveðinn áhugi á
þessari tilteknu sýningu en að mínu
mati er fjöldi sýninga til þess fallinn
að sýna í sjónvarpi,“ segir hann og
viðurkennir að fjöldinn sem horfði
hafi komið honum á óvart. „Það er
einfaldlega stórkostlegt að svona
margir hafi horft á og eftir því sem
ég best veit þá er þetta enn opið á
netinu og því enn hægt að horfa.“
kósí í Portúgal
Atli nýtur lífsins í Portúgal. „Við
erum bara að borða aspas úr garðin-
um og taka því rólega á milli þess
sem ég er að vinna í verkefni sem
verður í leikhúsinu næsta vetur.
Þetta er bara kósí; stærsti höfuðverk-
urinn hvern dag er hvað eigi að vera
í matinn það kvöldið. Mjög þægilegt
sem sagt,“ segir hann og viðurkenn-
ir að hann njóti þess í botn að geta
eytt tímanum með fjölskyldunni,
en sonurinn, Dagur Rafn, er að-
eins fimm mánaða. „Það er einfald-
lega meiriháttar að geta loksins eytt
meiri tíma með barninu og vera
heima á kvöldin og um helgar og
það úthvíldur.“ n
indíana Ása Hreinsdóttir
indiana@dv.is
„Það er einfald-
lega meiriháttar
að geta loksins eytt meiri
tíma með barninu.
Hótel mamma Atli nýtur
lífsins í sveitinni hjá mömmu
í Portúgal með konunni og
Degi Rafni sem er aðeins fimm
mánaða. Mynd sigtryggur ari
Hleypur í kring-
um eldfjall
Veðurfréttakonan spræka, Elísa-
bet Margeirsdóttir, heldur til Jap-
an í lok apríl og ætlar að hlaupa í
kringum eldfjallið Fuji. Leiðin er
160 kílómetra löng. Svo sannar-
lega löng leið, en Elísabet er
þrautreynd hlaupakona og hefur
áður tekist á við erfiðar og langar
vegalengdir. Árið 2011 hljóp hún
120 kílómetra leið í sjö þúsund
metra hækkun. Hún reyndi aft-
ur við hlaupið í fyrra en þá gekk
henni ekki eins vel.
„Ég var með rosalega háan
púls og mikla mæði,“ segir hún frá
og greinir frá því að hún hafi ekki
verið tilbúin að fórna heilsunni til
þess að komast í mark.
Síminn
hringdi í beinni
Gissur Sigurðsson fréttamaður
hjá 365 fékk óvænta símhringingu
þegar hann las upp morgunfréttir
á Bylgjunni að morgni miðviku-
dags. „Það var þannig að ég vissi
ekki að skipverjarnir á Herjólfi
hefðu hringt sig inn veika heldur
sagði bara frá því sem stóð á
heimasíðu Herjólfs að það yrði
siglt í dag. Þá var einn hlustandi
sem vissi af þessu og hringdi bara
strax í mig til að láta mig vita, þó
ég væri í beinni að lesa fréttirn-
ar,“ segir Gissur hlæjandi. Hann
lét símhringinguna ekki á sig fá
og hélt áfram að lesa. „Ég kann að
meta það vera í svona góðu sam-
bandi við hlustendur og er honum
þakklátur fyrir að láta mig vita,“
segir Gissur sem hringdi til baka í
manninn að fréttatíma loknum.