Dagblaðið Vísir - DV - 04.04.2014, Qupperneq 60
Helgarblað 4.–7. apríl 20144 Brúðkaup
Hafðu
þetta í
huga við
undirbúninginn
Átta algeng mistök sem verðandi brúðhjón eru gjörn á að gera
E
f brúðkaupsdagurinn á að
heppnast fullkomlega þarf
að huga að lygilega mörgum
hlutum við undirbúninginn.
Vitanlega er mikilvægt að
skipuleggja brúðkaupið tímanlega,
senda boðskortin út snemma og
svo framvegis. DV tekur hér saman
átta algeng mistök við undirbún
inginn. Þetta eru hlutir sem verð
andi brúðhjón verða einfaldlega að
hafa í huga.
1 Ekki bjóða of mörgum Að halda brúðkaup
kostar stórfé og eftir
því sem fleiri gest
um er boðið, þeim
mun meiri verður
kostnaðurinn. Auð
vitað vilja brúð
hjón bjóða sínum
nánustu vinum og
ættingjum. Ágætt ráð
er að setja ákveðinn há
marksgestafjölda og ákveða síðan
hverjum skal boðið í veisluna.
2 Veldu réttan sal Þetta ráð tengist ráðinu hér að fram
an. Það er mikilvægt að panta réttan
sal, sal sem tekur ekki of marga og
ekki of fáa. Eins og allir vita er allra
veðra von á Íslandi. Reynið að finna
sal með góðri verönd eða svölum
svo gestirnir geti skotist út í ferska
loftið.
3 Finndu ódýran ljósmyndara
Brúðkaupsmyndir er
ómetanleg minning
frá brúðkaupsdeg
inum og það skiptir
máli að myndirnar
séu góðar. Kynntu
þér vinnu ljós
myndarans áður
en þú ákveður að
kaupa þjónustu hans.
Almenna reglan er sú að dýr
ir ljósmyndarar eru betri en
þeir ódýru þótt það sé vissu
lega ekki algilt.
4 Fjárhagsáætlun Eins og fram kemur í fyrsta lið er dýrt
að halda stórt brúðkaup. Stór mis
tök sem verðandi brúðhjón gera er
að gera ekki fjárhagsáætlun. Gerið
ykkur í hugarlund hversu miklu þið
eru tilbúin að eyða – og umfram
allt getið eytt. Gerið það áður en
þið farið að leita að ljósmyndara,
brúðarkjólum eða öðru. Þetta þarf
ekki að taka mikinn tíma.
5 Smáatriðin Að einblína of mikið á smáatriðin getur
gert mann brjálaðan. Á Siggi
að sitja við hliðina á Hörpu
í brúðkaupinu eða á Palli
að vera við sama borð og
Óli? Líklega er þeim öll
um alveg sama. Í brúð
kaupi á gleðin að vera við
völd og of ítarlegur undir
búningur getur sett þig, eða
maka þinn, út af sporinu.
6 Láttu hótelið vita Fjölmörg brúðhjón
ákveða að fara á hótel eftir
veisluna og eiga þar saman
yndislega stund. Ekki klikka
á að láta hótelið vita að þetta
sé brúðkaupsnóttin ykkar. Á
Íslandi bjóða mörg hótel upp á
brúðkaupspakka sem gott getur
verið að nýta sér. Ef þetta gleym
ist er hætta á að kvöldstundin verði
ekki eins einstök og þið höfðuð
vonað.
7 Fötin þurfa að passa Alla langar til að líta vel út á
brúðkaupsdaginn og vera í góðu
formi. Það er í sjálfu sér gott og
blessað. Það kann samt ekki góðri
lukku að stýra að panta brúðar
kjól sem þú passar ekki í, tveimur
mánuðum fyrir brúðkaupsdaginn.
Ef þú ætlar að létta þig þarftu að
vera viss um að þú getir það.
8 Haldið tímaáætlun Það er leiðinlegt fyrir gesti að bíða
lengi eftir brúðhjónunum –
jafnvel þótt allir sýni því
skilning. Ekki aug
lýsa að veislan byrji
klukkan 16 ef hætta
er á að þið komið
ekki í hús fyrr en
klukkan 17.30. Ger
ið alltaf ráð fyrir að
hlutirnir taki aðeins
lengri tíma en þeir eiga
að taka.
Myndatakan Það
skiptir máli að velja
góðan ljósmyndara
fyrir brúðkaupið.
S
íðustu misseri hafa
margir reynt fyrir
sér í metnaðarfull
um kökubakstri
og er ekkert til sparað í
barnaafmælum, ferm
ingarveislum og jafnvel
brúðkaupum. En kapp er
best með forsjá, eins og sést á meðfylgjandi mynd
um og skyldi enginn taka að sér brúðartertubakstur
nema að vera nokkuð viss um að valda verkinu.
Ekki baka svona kökur
Vinsælustu
íslensku lögin
Lagaval í giftingum skiptir miklu
máli. Mörg falleg lög hafa texta
sem henta ekki þessu tilefni. DV
lék forvitni á að vita hver væru
vinsælustu lögin í íslenskum
brúðkaupum. Valdimar Kristjóns
son hljómborðsleikari spilar oft í
brúðkaupum en hann segir þessi
lög vera vinsælust.
Ást Lagið er eft
ir Magnús Þór
Sigmundsson
en varð vinsælt
í flutningi Ragn
heiðar Gröndal.
Ó, þú Mannakornslagið Ó, þú er
fallegt lag um ástina.
Undir þínum áhrifum
Fallegt lag frá Sálinni hans Jóns
míns.
Með þér Lagið
er eftir Bubba
Morthens en
hefur líka notið
mikilla vinsælda
í flutningi Ragn
heiðar Gröndal.
Þú fullkomnar
mig Hugljúft
ástarlag eftir Sálina
hans Jóns míns.
Neyðartaska
brúðhjóna
Á síðunni brudkaup.is er að finna
mikið af gagnlegum upplýsing
um fyrir brúðhjón. Þar er meðal
annars bent á að það sé
sniðugt fyrir brúð
hjón að hafa svo
kallaða neyðartösku
með sér á stóra deg
inum sem geymi
hluti sem verðandi
brúðhjón gætu þurft
að nota. Meðal þess
sem talið er upp eru
verkjatöflur, húðlitaða
plástra, hálsbrjóstsykur, dömu
bindi eða innlegg, púður, blaut
klútar, hárspennur, hreinsikrem,
fatarúlla, svitalyktareyði, hár
þurrku, hárvörur, tannbursta og
tannkrem, nál og tvinna, auka
sokkabuxur, öryggisnælur og
blettaeyði svo eitthvað sé nefnt.