Dagblaðið Vísir - DV - 04.04.2014, Blaðsíða 61
Helgarblað 4.–7. apríl 2014 Brúðkaup 5
Stjörnurnar gifta sig líkt og við hin. Sumar
oftar en meðalmaðurinn en það er önnur
saga. Hér má sjá nokkrar þekktar stjörnur á
brúðkaupsdaginn.
Tom Crusie og
Katie Holmes
Giftu sig árið 2006
og skildu í kjölfar
Íslandsheimsóknar
árið 2012.
Dansað Gleðin á að vera við völd í
brúðkaupum og körfuboltastjarnan
Michael Jordan hafði þá reglu í hávegum
þegar hann gekk í það heilaga með Yvette
Prieto. Veislan var haldin í Flórída.
Grace Kelly og Rainier Grace Kelly
varð prinsessa í Mónakó þegar hún giftist
Rainier III, fursta, árið 1956.
Ekki slæmur strákur Aaron
Paul, sem er einna best þekktur fyrir
að leika eiturlyfjaneytanda í Break-
ing Bad, kvæntist Lauren Parsekian
í Malibu ekki alls fyrir löngu.
Fórnaði krúnunni
Edward, hertogi af
Windsor, kvæntist
Wallis Simpson, frá-
skilinni konu í júní 1937,
og gaf frá sér krúnuna.
Ákvörðun Edwards var
mjög umdeild.
Marilyn Monroe og Joe DiMaggio Giftu sig hjá borgardómara í San Francisco árið 1954.
Sam og söngfuglinn Tónlistarkonan Lily Allen gekk í
hjónaband með sínum heittelskaða Sam Cooper í júní 2011.
Flottar Ellen DeGeneres og Portia
de Rossi gengu í hjónaband á heim-
ili sínu í Los Angeles í ágúst 2008.
Ljómuðu Brad Pitt og Jennifer
Aniston giftu sig í Malibu árið 2000.
Á ströndinni Megan Fox og Brian Austin Green
gengu í það heilaga á Hawaii árið 2010. Er til róman-
tískari staður til að gifta sig á en sjálf ströndin? Með
þeim á myndinni er sonur Brians, Kassius.
Stjörnurnar á
brúðkaupsdaginn