Dagblaðið Vísir - DV - 22.10.2010, Page 12
12 fréttir 22. október 2010 föstudagur
ÁHYGGJUFULL YFIR
AFSTÖÐU VALTÝS
„Það er merkilegt hversu ólík
áhyggjuefni okkar Valtýs eru. Hann
virðist hafa mestar áhyggjur af um-
ræðunni. Ég hef mestar áhyggjur
af stöðunni í málaflokknum,“ segir
Guðrún Jónsdóttir, talskona Stíga-
móta, um efni svarbréfs Valtýs Sig-
urðssonar sem hann sendi dóms-
og mannréttindaráðuneytinu.
„En Valtýr sýnist mér hafa mestar
áhyggjur af gagnrýnni umræðu.“
Forsaga málsins er sú að ríkis-
saksóknari reifaði skoðanir sínar
á nauðgunarmálum í tveimur við-
tölum í DV. Í framhaldinu barst
dómsmála- og mannréttindaráð-
herra fjöldi athugasemda vegna
þeirra viðhorfa sem komu fram
í viðtölunum. Samkvæmt dóms-
málaráðuneytinu bárust athuga-
semdir frá breiðum hópi fólks. Ekki
síst frá þolendum kynferðisbrota. Í
framhaldinu fundaði ráðherra með
ríkissaksóknara og greindi honum
frá viðbrögðunum og óskaði eftir
greinargerð frá embættinu. Ríkis-
saksóknari skilaði greinargerð
sinni í liðinni viku.
Ómakleg ummæli og umræða
í ógöngum
Í svarbréfinu segir Valtýr það há-
alvarlegt mál að því sé haldið fram
að embættismenn ríkissaksókn-
ara vinni markvisst gegn fram-
gangi kynferðisbrota og að þol-
endum kynferðisbrota sé ekki
trúað í réttarkerfinu. Hann gagn-
rýnir framgöngu Guðrúnar Jóns-
dóttur, talskonu Stígamóta, og seg-
ir framsetningu gagnrýni hennar á
embættið ekki hvetjandi fyrir þol-
endur kynferðisbrota og draga úr
tiltrú þeirra á réttlátri málsmeð-
ferð. Hann tekur sérstaklega fram
að í fjölmiðlaumfjöllun um ráð-
stefnu um nauðganir og viðbrögð
samfélagsins hafi verið vitnað í orð
Guðrúnar Jónsdóttur sem kvaðst
upplifa réttarkerfið sem „svika-
myllu“.
Svikamylla
Guðrún segir Valtýr taka ummæli
hennar úr samhengi og greinilega
ekki hafa heyrt eða skilið hvað hún
átti við. Með svikamyllu hafi hún
vísað í barnaspilið myllu sem flest
fólk á hennar aldri þekki. Nái ein-
hver að búa til svikamyllu eigi aðr-
ir ekki möguleika á að vinna, samt
fara allir eftir reglunum. Hún hafi
tekið sérstaklega fram að hún væri
ekki að gagnrýna einstakar persón-
ur innan þessa sviðs, heldur væri
mikið brottfall á þekktum málum
á öllum stigum meðferðar. Það
gerðist hjá Stígamótum, hjá Neyð-
armóttöku, lögreglu, saksóknara-
embættinu og fyrir dómstólum.
„Það sem ég átti við er að þegar
það hefur orðið ákveðin framþró-
un í meðferð kynferðisbrotamála
breytist eitthvað annað til mótvæg-
is svo framþróunin verður í raun
lítil sem engin. Ég get nefnt dæmi.
Þegar Neyðarmóttakan var stofn-
uð voru miklar væntingar til þess
að fleiri mál enduðu með dómi.
Það gerðist hins vegar ekki. Það
sem gerðist var að ofbeldismenn
tóku til þess mótleiks að breyta
framburði sínum á þann veg að
þeir neituðu því ekki að samræði
hefði átt sér stað nú þegar hægt var
að sanna það heldur staðhæfðu að
það hefði verið með vilja kvenn-
anna.“
Réttarkerfið þarf að vera
trúverðugt
Guðrún telur að það sé ansi margt
sem fæli konur frá því að kæra. „Í
fyrsta lagi er fjöldi kvenna sem leit-
ar sér aldrei hjálpar. Flestar bregð-
ast við með því að leitast við að
halda áfram lífi sínu eins og ekk-
ert sé. Þegar þær svo komast að
því að það gengur ekki vel, þá leita
þær til okkar hjá Stígamótum oft
árum og áratugum eftir ofbeldið.
Hluti kvenna leitar til neyðarmót-
töku stuttu eftir nauðgun og stærri
hluti þess hóps kærir. Lítil rann-
sókn á Stígamótum sýndi að 75
prósentum kvenna sem kæra ekki
finnst þær ekki hafa neitt að kæra
því þeim finnst ofbeldið vera þeim
sjálfum að kenna. Besta leiðin til
þess að konur kæri er að þær geti
treyst lögreglu, saksóknurum og
dómurum til þess að höndla málin
fordómalaust og af virðingu. Við-
tölin í DV við ríkissaksóknara, fyrr-
verandi yfirmann kynferðisbrota-
deildar og þær tölur sem koma frá
embætti ríkissaksóknara eru ekki
hvatning til kvenna um að leita
réttar síns. Réttarkerfið þarf að
sýna fram á að það geti tekið á móti
þessum konum þannig að þær fái
að halda reisn sinni.“
Gagnrýni mannréttinda-
nefndar
Í bréfinu segir ríkissaksókn-
ari framsetningu Guð-
rúnar hvað varðar ár-
angur embættisins í
rannsókn og meðferð
kynferðisbrotamála til
þess fallna að vekja van-
traust brotaþola á rétt-
arvörslukerfinu. Hann
segir enn fremur árang-
urinn vera
veru-
leg-
an.
Guðrún segist hafa áhyggjur af
því að ríkissaksóknari telji árangur
í kynferðisbrotamálum verulegan
og segir þær tölur sem hann birti
í svarbréfi sínu í engum takti við
þann veruleika sem birtist á hverj-
um degi á Stígamótum.
„Valtýr kallaði mig á teppið í
vetur, eins og hann segir í bréfinu.
Ástæðan var sú að það var viðtal við
mig í Mogganum þar sem verið var
að fara yfir fjölgun kynferðisbrota og
ég spurð út í þá fjölgun. Ég benti á að
á undanförnum áratug hefur orðið
gífurleg fjölgun á þekktum brotum
og það kemur fram hvort sem skoð-
aðar eru tölur frá Stíga mótum eða
embættinu sjálfu og það
sama á sér stað víða í
Evrópu og sérstaklega
í Norður-Evrópu þar
sem staða kvenna er
hvað sterkust í jafn-
réttismálum og kon-
ur sætta sig ekki við
nauðgun. Fjölgun
dóma er í engu sam-
ræmi við aukinn fjölda
þekktra brota,
hvorki
á
Íslandi né í löndunum í kringum
okkur. Þetta er áhyggjuefni flestra
þeirra sem að málum koma. Þess
vegna var settur á laggirnar vinnu-
hópur á vegum embættis ríkis-
saksóknara sem fór yfir meðferð á
nauðgunarmálum á tveimur 5 ára
tímabilum frá 1997–2006. Tölurn-
ar sem ég hef notað í málflutningi
mínum koma beint úr skýrslunni
sem varð til á skrifborði ríkissak-
sóknara sjálfs, ég bjó þær ekki til,“
segir Guðrún.
Kveinka sér undan umræðu
„Ég sakna þess að hafa ekki heyrt
ákæruvaldið deila þessum áhyggj-
um, heldur virðist sama yfirvald
fyrst og fremst kveinka sér undan
umræðunni. Þá vil ég minna á að
Ísland fékk á sig gagnrýni mann-
réttindanefndar Sameinuðu þjóð-
ana sem árið 2005 lýsti áhyggjum
yfir miklum fjölda þekktra nauðg-
ana samanborið við fjölda lög-
sókna á Íslandi. Ísland var áminnt
um að tryggja að ekki væri látið hjá
líða að refsa fyrir nauðgun. Get-
ur verið að ríkissaksóknara finnist
nefnd Sameinuðu þjóðanna líka
komin út í hættulega umræðu en
þar er vitnað í sömu tölur og ég hef
notað?“
Konur krefjast afsagnar
Í bréfinu segir Valtýr það ekki sann-
færandi viðbrögð að krefjast af-
sagnar þeirra sem gera tilraun til
þess að ræða málefnalega um kyn-
ferðisbrot. Í niðurlagi bréfsins seg-
ir hann að nauðsynlegt sé að opin
og heiðarleg umræða geti farið
fram um þessi mál enda snerti
úrlausnarefnið samfélagið allt.
Þar segir: „Brotaþolar kynferð-
isbrota eiga, eins og aðrir þegnar
þjóðfélagsins, að telja sig búa í rétt-
arríki. Því er afar mikilvægt að þeir
skilji hlutverk ákæruvaldsins og að
ákvörðun um að hætta rannsókn
máls hjá lögreglu eða niðurfelling
máls hjá embætti ríkissaksóknara
hafi ekkert með þá fullyrðingu að
gera að þeim sé ekki trúað.“
„Ég er hjartanlega sammála því
að brotaþolar eigi rétt á því,“ segir
Guðrún. „Veruleikinn er hins vegar
sá að Ísland getur varla talist réttar-
ríki þegar að þessum málum kem-
ur. Brotaþolar kynferðisbrota mæta
of oft óréttmætri tortryggni og for-
dómum.
Ekki faglegt
Guðrún segir opinbera umfjöllum
ríkissaksóknara gagnrýniverða.
„Það eru ekki fagleg vinnubrögð
að ríkissaksóknari skyldi hand-
pikka út nokkur niðurfelld mál og
afhenda blaðamanni og fjalla um
þau opinberlega. Til okkar hringdu
konur sem hrylltu sig yfir því ef
svona hefði verið farið með þeirra
mál. Það hefði verið allt annað ef
þarna hefði farið fram fagleg rann-
sókn á öllum niðurfelldum málum
sem hefði síðan verið hægt að ræða
um á faglegum grundvelli.
Konur á Íslandi sætta sig ekki
við að vera nauðgað. Réttarkerfið
þarf að auka á trúverðugleika sinn
til þess að taka á móti konum svo
þær haldi reisn sinni. Ég hlakka
til þess að vera boðuð á fund með
dómsmálaráðherra, ríkissaksókn-
ara og þeim öðrum sem ráðherra
boðar. Ég ætla að leyfa mér að vona
að við getum í sameiningu gert Ís-
land að fyrirmyndarréttarríki – líka
fyrir konur sem er nauðgað.“
KRiStjana GuðbRandSdÓttiR
blaðamaður skrifar: kristjana@dv.is
...þá leita þær til okkar hjá
Stígamótum oft árum
og áratugum eftir
ofbeldið.
Í greinargerð ríkissaksóknara um ummæli sem hann lét falla um kynferðisbrotamál er sett fram gagnrýni
á framsetningu máls Guðrúnar jónsdóttur, talskonu Stígamóta. Guðrún jónsdóttir svarar ávirðingum
ríkissaksóknara í hennar garð.
Guðrún gagnrýnd Valtýr
Sigurðssongagnrýnirtalskonu
Stígamótaogtelurframsetn-
inguhennarleiðaumræðuum
kynferðisbrotamálíógöngur.
athugasemdir frá
breiðum hópi fólks
Dómsmálaráðuneytinu
bárustathugasemdir
víðaaðvegnaummæla
ríkissaksóknara.Ekki
sístfráþolendum
kynferðisbrota.