Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 22.10.2010, Qupperneq 16

Dagblaðið Vísir - DV - 22.10.2010, Qupperneq 16
16 fréttir 22. október 2010 föstudagur Vantraustið Veltir þjóðfélaginu á hlið Almenningur ber sáralítið traust til ís- lenskra banka og fjármálastofnana. Traust til Alþingis og stjórnvalda er einnig sára- lítið og nýjustu kannanir benda til þess að traust sem almenningur ber til annarra mikilvægra stofnana sé í algeru lágmarki um þessar mundir. Við slík skilyrði eykst hættan á ólgu og uppþotum og í versta falli gæti almenningur hætt að veita stjórn- völdum sínum nauðsynlegt lögmæti. Van- traustið er einnig dragbítur á efnahagslega uppbyggingu og dregur úr vilja manna til að hætta fé til uppbyggingar. Aðeins rúm þrjú prósent lands- manna segjast bera mikið traust til bankanna samkvæmt nýlegri könn- un MMR, Markaðs- og miðlarann- sókna. Þetta jafngildir því að einung- is um 7.000 kjósendur í landinu beri mikið traust til bankanna um þessar mundir. Traust sem landsmenn bera til Alþingis og ríkisstjórnarinnar hefur einnig minnkað miðað við eldri kann- anir MMR. Aldrei fyrr hafa þeir verið jafn fáir sem bera mikið traust til Al- þingis. Af um 230 þúsund kjósendum í landinu bera aðeins liðlega 17 þúsund mikið traust til Alþingis og fækkaði um 7 þúsund frá könnun MMR í vor. Athyglisvert er að lögreglan nýtur vaxandi trausts á meðan aðrar stofn- anir samfélagsins, svo sem Hæstirétt- ur og dómsmálaráðuneytið, eiga æ erfiðara með að ná tiltrú borgaranna. Um 80 prósent landsmanna bera mik- ið traust til lögreglunnar. Háskólar eiga einnig undir högg að sækja. Í könnun Capacent árið 2002 báru 87 prósent mikið traust til Há- skóla Íslands. Í könnun MMR nú hefur traustið fallið niður í tæp 68 prósent. Þetta má orða þannig að nærri 45 þús- und færri kjósendur beri mikið traust til Háskóla Íslands en árið 2002. Traust er auðlind Í skýrslu rannsóknarnefndar Al- þingis er fjallað um traust og mikil- vægi þess fyrir samfélagið og gang- verk þess. Fræðimenn líta enda svo á að traust borgaranna til yfirvalda sé mikilvæg auðlind í hverju lýðræð- isríki. „Þegar yfirvöldum er treyst geta þau tekið ákvarðanir án þess að þurfa að beita borgarana þvingun- um eða leita samþykkis þeirra fyr- ir öllum ákvörðunum. Þegar íbúar treysta yfirvöldum sætta þeir sig við að fórna skammtímahagsmunum sínum (til dæmis með hærri skött- um) fyrir langtímahagsmuni þjóðar- innar (til dæmis lækka verðbólgu). Traust er þannig mikilvæg forsenda þess að fulltrúalýðræði virki sem skyldi. Það má þó færa rök fyrir því að of mikið traust til yfirvalda sé ekki heldur æskilegt þar sem það getur dregið úr nauðsynlegum efasemd- um og aðhaldi borgaranna að yfir- völdum,“ segir í greinargerð Huldu Þórisdóttur í siðfræðikafla rann- sóknarskýrslu Alþingis. Bláeygir Íslendingar? Íslenska þjóðin er lítil, samstæð og einsleit. Hulda segir í rannsóknar- skýrslunni að ekki þurfi að koma á óvart að traust borgaranna hvers til annars og til ýmissa stofnana sam- félagsins hafi verið mikið og með því mesta sem gerist í Evrópu eins og fjöl- þjóðleg Evrópukönnun leiddi í ljós árið 2004. Í þeirri könnun voru Íslend- ingar í þriðja efsta sæti þegar spurt var um traust til kerfisins; aðeins Danir og Finnar treystu stofnunum sínum bet- ur og er þá átt við þing, réttarkerfi og lögreglu. Íslendingar voru í fjórða efsta sæti meðal 25 Evrópuþjóða varðandi traust sem borgararnir sýna stjórn- málamönnum og stjórnmálaflokk- um. Þeir treystu einnig bönkum og tryggingarfélögum sínum afar vel og voru í þriðja efsta sæti árið 2004. Loks treystu Íslendingar hver öðrum einnig mjög vel og höfnuðu í fjórða efsta sæti með 6,6 stig af 10 mögulegum. Vert er að endurtaka að traust sem Íslendingar bera til stofnana sinna er á hraðri niðurleið ef frá er talin lögregl- an. Athyglisvert er að í Frakklandi, þar sem allt logar í verkföllum og mótmæl- um gegn áformum ríkisstjórnarinn- ar um að hækka eftirlaunaaldur, ríkir ekki mikið traust til fjármálastofnana eða kerfisins. Frakkar halda sig í 15. til 24. sæti í Evrópukönnuninni sem hér er vitnað til. Minnsta traustið bera Frakkar til banka og tryggingarfélaga. Vantraustið slekkur á kerfinu Traust sem almenningur ber til Al- þingis, stjórnmálamanna og yfirleitt stjórnmálastéttarinnar hefur hrun- ið. Varla getur það talist viðunandi að aðeins 7,5 prósent beri mikið traust til Alþingis, en það jafngildir um 17 þús- und kjósendum eins og áður segir. Baldur Þórhallsson stjórnmála- fræðiprófessor segir að þverrandi traust til stjórnmálanna sé í eðli sínu grafalvarlegt. „Þetta dregur úr getu stjórnmálamanna til að hrinda brýn- um málum í framkvæmd. Þegar fólk treystir engan veginn ríkisstjórn og Alþingi setur það spurningamerki við lögmæti þeirra ákvarðana sem þessir aðilar taka.“ Baldur segir að þegar fjöldinn hætti að veita kjörnum fulltrúum lögmæti megi tala um stjórnmálakreppu sem bætist ofan á efnahags- og skulda- kreppuna. „Þetta er ekki einfalt sam- spil en afleiðingarnar eru augljósar. Reiðin og ólgan í samfélaginu er mik- il. Óróleiki og óstöðugleiki í stjórnmál- unum er einnig áberandi. Þingmönn- um hefur ekki tekist að vinna saman að lausnum. Nú fyrir helgi sagði for- maður Alþýðusambands Íslands að ríkisstjórnin stæði ekki við gerða samninga. Engu væri að treysta um að samingar héldu og það væri alveg nýtt. Það er einnig ný staða að stöð- ugur ágreiningur innan stjórnarliðs- ins verði í sífellu til þess að enginn veit hvort og þá hvaða mál hafi meirihluta- stuðning á þingi. Þetta endurspeglast svo í könnunum sem sýna að 70 pró- sent kjósenda eru reiðubúin til þess að kjósa nýtt afl til þings og vísa þar með fjórflokknum á dyr ef svo má segja.“ Ekki traustvekjandi Alþingi Baldur bendir einnig á að vinnubrögð- in innan þingsins séu allt annað en traustvekjandi á stundum og engu sé líkara en að þingheimur telji kjósend- ur illa gefna eða tómláta. „Fyrir fáein- um dögum lögðu sjö þingmenn fram tillögu um þjóðaratkvæðagreiðslu 6,7% 6,8% 18,8% 15,5% 31,6% 39,8% 53,5% 58,1% 41,9% 48,3% 3,1% 6,0% 6,8% 7,5% 10,9% 13,1% 14,7% 14,8% 16,6% 17,8% 17,9% 24,4% 24,7% 48,9% 52,1% 67,7% 80,9% 56,6% 60,7% 75,3% 73,5% 68,3% 75,2% 81,6% MiKiÐ trAUSt LÍtiÐ trAUSt Lögreglan Háskóli Íslands Ríkisútvarpið Háskólinn í Reykjavík Landsvirkjun Stéttarfélögin Evrópusambandið Stjórnarandstaðan VR Fjölmiðlarnir Lífeyrirssjóðirnir Seðlabankinn Ríkisstjórnin Alþingi AGS Fjármálaeftirlitið Bankakerfið Spurt var: Hversu mikið eða lítið traust berð þú til eftirfarandi aðila? Svarmöguleikar voru: Mjög lítið traust, frekar lítið traust, hvorki mikið né lítið traust, frekar mikið traust og veit ekki/vil ekki svara. Niðurstöður sýna fjölda þeirra sem svöruðu annað hvort mjög/frekar mikið eða lítið traust. 99,6% tóku afstöðu til spurningarinnar. BANKAKERFIÐ SKRAPAR BOTNINN Könnun MMR þann 15. október 2010. jóHAnn HAukSSon blaðamaður skrifar: johannh@dv.is Fjármálakerfi rúið trausti „Eftrúnað- urinnogtraustiðerekkifyrirhenditekur fyririnnlánogútlánogefnahagsstarf- seminlognastútaf,“segirGöranLind, ráðgjafiyfirstjórnarsænskaseðlabankans. Ekki traustvekjandi stjórnmál „Þarna erviðflokkakerfiðaðsakastogþá stjórnmálasiðmennigusemþaðhefur leittafsér,“segirBaldurÞórhallsson stjórnmálafræðiprófessor. Traust lagt á lögregluna Veramáað hófstilltframgangalögreglunnargagn- vartmótmælendumundanfarinmisseri hafiaukiðtiltrúogtrausttilhennar.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.