Dagblaðið Vísir - DV - 22.10.2010, Qupperneq 29
Tónleikaröð óperunnar Vetrartónleikaröð Íslensku
óperunnar hefst þriðjudaginn 26. október klukkan 12.15. Mánaðarlega verða
haldnir hádegistónleikar þar sem hópur ungra einsöngvara tekur þátt ásamt
Antoníu Hevesi, píanóleikara við Íslensku óperuna. Þá munu þekktir gestasöngv-
arar einnig koma fram. Nokkrir söngvaranna eru úr Óp-hópnum svokallaða,
sem stofnaður var á síðasta ári og Íslenska óperan átti farsælt samstarf við í allan
fyrravetur en fleiri söngvarar bætast nú í hópinn. Á þessum fyrstu tónleikum
verður leikið atriði úr Così fan tutte, Brottnáminu úr kvennabúrinu og Brúðkaupi
Fígarós eftir Mozart, Spaðadrottningunni eftir Tsjaikovsky og Carmen eftir Bizet.
VinjeTTuháTíð á hVolsVelli Vinjettuhöfund-
urinn og fagurkerinn Ármann Reynisson stendur fyrir Vinjettuhátíð
á Hvolsvelli á laugardaginn. Hátíðin fer fram á Kaffi Eldstó milli 15 og
17 á laugardag. Lesið verður upp úr verkum Ármanns auk þess sem
tónlistaratriði verða á dagskrá. Ármann les ásamt þeim Guðlaugu
Ósk Svansdóttur oddvita, Stefáni Steinssyni lækni, Auði F. Halldórs-
dóttur kennara, Bjarna Eiríki Sigurðssyni Njálufræðingi, Önnu Þöll
Bjarnadóttur leikkonu og þeim Heiðrúnu Huld Jónsdóttur og Kára
Benónýssyni, nemendum við Hvolsskóla. Aðgangur ókeypis.
fösTudagur
n Páll flytur sín bestu lög
Páll Rósinkranz heldur tónleika í Salnum
í Kópavogi á föstudagskvöldið þar sem
hann flytur sín bestu lög auk nýs efnis.
Margir gestir verða á tónleikunum og
má þar nefna Magnús Þór Sigmundsson,
Margréti Eir, Jökul Jörgensen og Gunnar
Bjarna Ragnarsson. Miðinn kostar 3.500
krónur en tónleikarnir hefjast klukkan
20.00.
laugardagur
n Styrktartónleikar með Kristjáni
Á laugardaginn klukkan 17.00 mun hóp-
ur listamanna undir forystu hins kynngi-
magnaða Kristjáns Jóhannssonar efna
til tónleika í Víðistaðakirkju í Hafnarfirði
til styrktar MND félaginu á Íslands. Auk
Kristjáns syngja stórsöngvarar á borð
við Gissur Pál Gissuarson, Önnu Sigríði
Helgadóttur, Hallveigu Rúnarsdóttur og
Kristján Inga Jóhannesson. Tónleikarnir
hefjast klukkan 17 og það kostar 3.500
krónur inn sem renna óskiptar til MND
félagsins.
n Töfraflautan með Sinfó
Sinfóníuhljómsveit Íslands heldur um
þessar mundir mikla tónleikaröð fyrir alla
aldurshópa. Á laugardaginn er komið að
hinu sígilda ævintýri um töfraflautuna
og verða tvennir tónleikar í boði. Klukk-
an 14 og 17. Það kostar 1.700 krónur á
tónleikana sem fara að sjálfsögðu fram á
heimavelli Sinfóníuhljómsveitar Íslands,
Háskólabíói. Þetta er eitthvað sem ekkert
barn má missa af.
n Skímó í Sjallanum
Það verður heldur betur alvöru ball í
Sjallanum á Akureyri um helgina, nánar
tiltekið á laugardagskvöldið. Skítamórall
ætlar að troða upp en með í för verður
plötusnúðurinn Atli skemmtanalögga.
Það kostar aðeins 1.000 krónur í forsölu
og 1.500 krónur við dyr.
n Páll flytur sín bestu lög
Páll Rósinkranz verður aftur á ferðinni í
Salnum í Kópavogi á laugardagskvöldið
þar sem hann flytur sín bestu lög auk nýs
efnis. Margir gestir verða á tónleikunum
og má þeirra á meðal nefna Magnús
Þór Sigmundsson, Margréti Eir, Jökul
Jörgensen og Gunnar Bjarna Ragn-
arsson. Miðinn kostar 3.500 krónur en
tónleikarnir hefjast klukkan 20.00.
n A.T.L. á Re-play
Í tilefni af nýja mixdisknum Too Cool 4
Skool ætlar DJ A.T.L. að halda rosalegt
útgáfupartí á skemmtistaðnum Re-play
á Grensásvegi. A.T.L. vann plötusnúða-
keppni djkeppni.is um daginn og ætlar
að halda upp á það með því að gefa út
þetta nýja mix. DJ Exos hitar upp fólkið
með alvöru teknó-tónum.
Einstök saga einstaks manns
Blaðamaðurinn Henry Birgir
Gunnarsson skrifar 10.10.10 – At-
vinnumannssögu Loga Geirsson-
ar. Bókin fjallar um árin fjögur sem
landsliðsmaðurinn í handbolta
og silfurdrengurinn Logi Geirs-
son byggði sig upp hér heima til að
komast í atvinnumennsku og svo
þau sex ár sem hann var í herbúð-
um eins stærsta liðs Þýskalands,
TBV Lemgo.
Í aðdraganda útgáfu bókarinnar
byggði Logi upp mikla spennu þar
sem hann lofaði sleggjum og ein-
stökum sögum. Óhætt er að segja
að staðið sé við allt sem lofað var.
Logi dregur hvergi undan og talar
afskaplega opinskátt um alla hluti,
svertir marga menn og ekki síst
sjálfan sig. Logi Geirsson er einstak-
ur maður og þar sem hann gefur
sig allan í bókina tekst Henry Birgi
Gunnarssyni að rita einstaka bók.
Bókin er skrifuð á mannamáli
ef svo má að orði komast. Kannski
eru helst til of margar slettur og ný-
legt slangur fyrir allra hörðustu ís-
lenskufræðingana en bók um Loga
Geirsson gat svo sem aldrei verið
rituð á fornmáli.
Það var ósjaldan sem ég skellti
upp úr við að lesa sögu Loga enda
sumir hlutir sem hann tekur upp á
algjörlega án fordæmis. Hann lýs-
ir risinu upp á toppinn, hvernig
heimurinn svo hrundi í kringum
hann eftir eina stund á HM 2007
og allt þar á milli. Talar hann opin-
skátt um fjármál sín, samningavið-
ræður þar sem hann og bróðir hans
lugu að stjórnarmönnum Lemgo og
margt annað áhugavert.
Bókin er stútfull af skemmti-
legum myndum úr einkasafni sem
glæða hana miklu lífi. Einnig eru
minnismiðar úr samningaviðræð-
um Loga við Lemgo og áður óséðir
tölvupóstar. Einn þeirra súmmerar
Loga vel upp. Hann sendir þá fyrr-
verandi landsliðsmanni Þýska-
lands, Daniel Stephan, tölvupóst
ungur að aldri þar sem hann seg-
ir í stuttu máli: „Hæ, ég heiti Logi
Geirsson. Ég spila handbolta og þú
ert uppáhaldshandboltamaðurinn
minn. Einn daginn verðum við
samherjar hjá Lemgo.“
Það rættist og úr varð sex ára
tímabil sem Henry Birgir Gunn-
arsson kemur frábærlega til skila í
skemmtilegri bók. Tómas Þór Þórðarson
föstudagur 22. október 2010 fókus 29
Hvað er að
GERAsT?
10.10.10
ATvinnumAnnssAGA
loGA GEiRssonAR
eftir Henry Birgi Gunnarsson
Útgefandi: Forlagið.
258 blaðsíður
bækuR
þannig. Því ákváðum við að leita á
önnur mið,“ segir Baltasar en vegna
samningaviðræðna sem drógust á
langinn kom Universal aftur að mynd-
inni og mun nú gera Contraband.
„Við fórum í viðræður við Relativity
media en vorum aldrei búnir að ganga
frá samningum við það fyrirtæki. Þetta
eru harðir viðskiptamenn sem vildu
fækka dögum og Working Title sem
er á bak við okkur voru ekki sáttir við
það. Working Title vildi tryggja sem
flesta tökudaga þannig að gæðin yrðu
sem mest. Þá kom Universal aftur inn í
þetta og vildi gera myndina með meiri
peningum. Það er náttúrulega alveg
frábært því Universal er stórt kvik-
myndaver.“
Stærsta verkefnið
Baltasar flytur nú brátt út til þess að
taka upp Contraband en hún verður
ekki skotin í stúdíói heldur „on loca-
tion“ eins og það heitir, mest í New
Orleans og Panama. Þótt Inhale sé
stórmynd verður Contraband miklu
stærri enda með risann Universal
á bak við sig. „Þetta er miklu stærra
hvað varðar dreifingu og stærð. In-
hale er indí-mynd sem þýðir þó ekki
að hún sé ekki góð. Það tekur bara
lengri tíma að koma þannig mynd-
um á koppinn. Contraband er Holly-
wood-stúdíómynd,“ segir Baltasar. En
hvernig verður hún frábrugðin hinni
upprunalegu mynd eftir Óskar Jón-
asson?
„Það er til dæmis verið að smygla
öðrum hlutum. Þú smyglar ekki
brennivíni í Bandaríkjunum. Það er
því önnur uppbygging. Það eru önn-
ur lögmál þarna sem þarf að vinna út
frá. Við höfum breytt ýmsu til að gera
hana eins trúlega og hægt er,“ segir
Baltasar sem mun leigja gámaskip til
þess að taka upp atriðin sem gerast á
sjónum.
Á bekkinn ef illa tekst til
Stærra verkefni fylgir meiri ábyrgð
enda peningamenn á bak við mynd-
ina sem vilja sjá dollarana sína aftur.
Ljóst er að Contraband getur skot-
ið Baltasar upp á stjörnuhimininn
rétt eins og hún getur aftrað honum
frá frekari frama takist illa til. „Það
eru ákveðnar kröfur þarna því menn
eru náttúrulega ekki að henda pen-
ing í þetta nema þeir vilji fá hann til
baka. Þetta er harður heimur. Þetta
er bara úrvalsdeildin og ef þú stend-
ur þig ekki þá ferðu á bekkinn. Svo er
náttúrulega alls konar vesen og drulla
í kringum þetta á bloggsíðum og því
um líkt. Þetta er ormagryfja því mað-
ur er að fara út í harðari heim en mað-
ur verður bara að standa og falla með
því,“ segir Baltasar sem hefur nóg á
sinni könnu þessa dagana eins og
vanalega.
„Það er alveg nóg að gera hjá mér
núna. Það er líka fínt því mér finnst
gaman að vinna. Ég er samt að reyna
eiga eitthvert fjölskyldulíf með þessu,“
segir Baltasar Kormákur.
tomas@dv.is
sTuTT sTórra
högga á milli
Þetta er harður heimur. Þetta er
bara úrvalsdeildin og ef
þú stendur þig ekki þá
ferðu á bekkinn.
HvERT vERKEfnið
Á fæTuR öðRu
Baltasar var að klára sitt
stærsta verkefni hingað
til og ræðst nú í gerð
risa Hollywood-myndar.
Mynd EggERT JóHAnnESSon