Dagblaðið Vísir - DV - 22.10.2010, Blaðsíða 32
32 Viðtal 22. október 2010 föstudagur
Kynbunndinn launamunur, kynbund-ið ofbeldi og annað misrétti eru ástæður þess að konur eru hvattar til þess að rísa upp úr sætum sínum og
ganga út af vinnustaðnum á mánudaginn klukk-
an 14.25. Tímasetningin er þessi af því að konur
hafa að meðaltali 65,65% af heildarlaunum karla.
Á sunnudaginn eru þrjátíu og fimm ár liðin frá
fyrsta kvennaverkfallinu þegar um 25.000 kon-
ur fjölmenntu í miðbæinn með það að marki að
störf kvenna yrðu metin til jafns við karla.
Vegna kvennafrídagsins langaði okkur að vera
með sterka konu á forsíðunni, konu sem er öðr-
um fyrirmynd. Af því tilefni óskuðum við eftir við-
tali við Björk sem ruddi brautina, ekki bara fyrir
íslenskar konur heldur íslenska listamenn. Er hin
fullkomna kona í hlutverkið. Nokkrum mínútum
seinna barst svarið: „Takk. Ég er bara mjög heiðr-
uð. Hlýja, Björk.“
Næsta verkefNi
Hún er reyndar stödd í New York
og ekki væntanleg heim fyrr en í
næstu viku þannig að við ákveð-
um að spjalla saman í síma og
kasta á milli okkar spurningum
á netinu. Klukkan er langt geng-
in í átta þegar við náum sam-
an í síma. Hún er búin að funda
stöðugt í dag og er nú á leið út á flugvöll. Ferðinni
er heitið til San Francisco. „Það er alveg brjálað
að gera hjá mér,“ segir hún og hlær létt. „Ég er
að vinna að verkefni sem ég hef verið í síðan ég
kláraði síðustu plötu. Ég fór út fyrir nokkra fundi
og er að vinna í praktískum málum. Svo kem ég
aftur heim á miðvikudaginn. Ég er bara að nýta
vetrarfrí Ísadóru. Hún er í Melaskóla og er núna
í vikufríi.“
vill veNjulegt líf
Björk býr hálft árið á Íslandi og hefur gert það
frá því að hún var í Sykurmolunum. „Ég hef bara
alltaf látið frekar lítið fyrir mér fara því mér finnst
alveg nóg leka heim frá útlöndunum. Þannig að
ég veiti yfirleitt aldrei viðtöl þegar ég er heima og
fólk veit voða lítið af mér. Það er bara út af þessum
náttúrumálum að ég er meira í fjölmiðlum núna
en áður.“
Í viðtali sem ég tók um árið sagði Björk að það
væri bæði vegna þess að hún vildi ekki að fólk
fengi nóg af henni og eins til að geta verið heima
í friði. „Það skiptir líka mjög miklu máli að geta
komið til Íslands og gengið um göturnar án þess
að fólk sé að stoppa mann, bara verið venjuleg.
Ég vil ekki vera á forsíðunni á blaðinu í Melabúð-
inni, það er svolítið sjokk. Þannig að mér finnst
best að vera ekkert í umræðunni á meðan ég er
hér á landi. Því hef ég neitað flestum viðtölum hér
heima.“
Ólíkir foreldrar
Yfirleitt ver hún hálfu ári hér heima og hinum
helmingi ársins ver hún í New York. Ísadóra er
hálft ár í skóla á Íslandi og hálft ár í New York.
„Þetta eru ólíkir heimar. En hún á líka ólíka for-
eldra,“ segir Björk og hlær en hún er í sambúð
með myndlistarmanninum Matthew Barney.
„Þannig að með því að gera þetta svona tekst
okkur að líma þetta saman. Mun betur en ef við
værum aðeins í öðru landinu. Mér skilst að þetta
sé ekki eins óalgengt og halda mætti hér í New
York. Þar búa margir sem eiga maka frá öðrum
heimsálfum sem geta ekki hugsað sér að vera þar
allt árið um kring því hún er náttúrulega brjáluð
þessi borg. Það virkar betur svona og veitir meiri
stöðugleika að vera alltaf á sama árshluta í sama
skólanum þó að börn þurfi að fara á milli skóla á
hverju ári en að vera kannski þrjú ár í öðru land-
inu og flytja svo á milli landa. Það er víst betri
reynsla af þessu. Nú er bara komin svona ryþmi á
þetta,“ segir hún og hlær létt.
YfirþYrmaNdi borg
Síðast þegar ég talaði við Björk talaði hún líka um
það hversu yfirþyrmandi New York gæti verið. Til
að ná andanum dvaldi hún oft í húsbátnum sín-
um og var meira að segja búin að fara á honum
yfir Atlantshafið, til Mexíkó og Túnis. „Ég fæ auð-
veldlega innilokunarkennd þegar ég er í borgum.
Með þessu móti get ég verið ná-
lægt einhverju náttúruafli. Þá
verð ég venjuleg, sting mér aftur
í samband.“
Hún segir að það sé mun auð-
veldara að vera í borginni þeg-
ar hún veit að það er aðeins til
skamms tíma. „Þetta er náttúru-
lega miklu betra þegar ég veit
að ég ætla bara að vera þar frá
því í janúar fram í maí. Þá kann
ég mikið betur á það. Það verður viðráðanlegra.
Síðast þegar við töluðum saman vorum við byrj-
uð á þessu en við vorum ekki komin lengra með
það. Núna gengur það betur, það er komið lengra.
Þannig að það er viðráðanlegra að vera úti.“
stÓr spurNiNg
Á þessum tíma var Björk að fylgja Volta eftir með
heimsreisu og berjast fyrir auðlindum Íslands
með náttúrutónleikum sem var varpað út um all-
an heim. Ég spyr hvernig líf hennar hafi breyst síð-
an þá. Hún svarar ekki, þegir lengi og dæsir annað
slagið, ahm, uhm, ehm og hlær. „Þetta er svo stór
spurning. Ég veit það ekki. Ég gæti ekki einu sinni
sagt besta vini mínum það. Ég veit ekki hvar ég er
stödd í lífinu í dag. Ég verð að fá að hugsa um það
í flugvélinni og segja þér það síðan.“
Eftir flugferðina fæ ég tölvupóst með ýmsum
svörum en ekki svar við þessari spurningu. En líf
Bjarkar breytist ört og list hennar um leið. Enda
hefur oft verið sagt að það sem einkenni Björk
einna helst sé að hún komi stöðugt á óvart, sé allt-
af að smíða nýja tóna, þróast og þroskast. Björk
segir samt að sumt breytist aldrei. „Það er ákveð-
in hryggjarsúla í því sem ég geri sem heldur öllu
uppi og breytist aldrei.“ Hún hlær þegar hún seg-
ir að hún sé alltaf með sömu röddina, hún semji
alltaf eigin lög og hún sé alltaf íslensk. „Ég er líka
alltaf kona,“ segir hún og hlær enn. „Það er svo
margt sem breytist aldrei. Aðrir hlutir breytast
alltaf. Eins og lífið sem breytist hvort sem mér lík-
ar það betur eða verr. Þannig að sumir hlutir eru
allt öðruvísi núna en þegar ég var að semja síð-
ustu plötu.“
má ekki tala um það
Hún vill samt ekki tala um það að hvaða leyti
þessi plata verður ólík þeirri síðustu. „Það er erf-
itt að tala um það núna. Ég hef brennt mig á því
áður að eyðileggja hluti sem ég ætla að gera með
því að tala um þá. Það er svo erfitt að ætla að gera
eitthvað sem ég er búin að tala um. Það er miklu
betra að gera það fyrst og tala svo um það,“ seg-
ir hún og hlær þessum létta og dillandi hlátri sín-
um.
Heima með börNuNum
Björk vinnur alla daga en starfið er fjölbreytt.
Suma daga semur hún tónlist, aðra daga útset-
ur hún hana, byggir hljóðfæri, æfir með tónlist-
armönnum, pælir í sjónrænu þáttunum, skipu-
leggur tónleikaferðir, fer á tónleika, í plötubúðir,
upptökur, söngtíma og Guð má
vita hvað. „Þetta er mjög fjöl-
breytt starf. Engir tveir dagar eru
eins. Þeir eru allir mjög ólíkir. Það
veltur allt á því hvað ég er að gera
hverju sinni. Það er allt önnur
orka í gangi í upphafi plötu þeg-
ar ég er að semja tónlistina og í
lok plötu þegar ég er að taka hana
upp. Þegar ég er á tónleikaferð er það líka ólíkt
öllu öðru. Þetta er mjög gott því þetta er mjög fjöl-
breytt. Það hentar mér. Ég vinn líka mikið heima
og er þar af leiðandi mikið heima með börnun-
um. Síðustu sextán ár hef ég meira og minna
unnið í stúdíóum heima hjá mér. Þannig að þegar
börnin koma heim úr skólanum er ég heima. Það
hefur virkað vel og er mér mikilvægt.“
sjálfstæð í æsku
Sjálf ólst hún upp hjá móður sem vann úti. „Ég
kom heim eftir skóla og var ein heima þar til hún
kom heim úr vinnunni.“ Að sama skapi veitti
móðir hennar henni mikið frelsi til þess að gera
það sem hana langaði til, eins og kom fram í áð-
urnefndu viðtali. Reglulega fór hún ein í Elliðaár-
dalinn með tjald og svefnpoka þar sem hún gerði
sig heimakomna í nokkra daga og upplifði hálf-
gerða einbúafantasíu. Síðar fór hún að ferðast á
puttanum um landið með tjaldið á bakinu.
„Ég er þakklát henni fyrir að treysta á að ég
vissi sjálf hvað væri mér fyrir bestu. Ég fékk sjálf
að ráða mjög miklu í mínu lífi. Mamma hlustaði
á mig og það hvað ég vildi og leyfði mér að fylgja
eðlisávísuninni. Á sama hátt reyni ég að hlusta
á börnin mín. Láta þau setja upp aðstæður og
ákveða fyrir sig sjálf, þannig að þau læri að axla
ábyrgð og læri af mistökunum án þess að ég ráðs-
kist með þau.“
muNuriNN á siNdra og ísadÓru
Hún segir að þau systkinin, Ísadóra og Sindri,
séu mjög ólík og því nálgast hún þau með ólíkum
hætti. „Það er ekki bara það að þau séu strákur og
stelpa. Þau eru líka ólíkir einstaklingar. Ég verð að
fara svolítið eftir þeim. Leyfa þeim að ráða ferð-
inni. Þau eru bara eins og þau eru,“ segir hún ein-
læg.
Hún hefur einnig sagt frá því að það var mik-
ill munur á því að eignast Sindra og Ísadóru. Þá
sagði hún: „Þegar ég var með Sindra lítinn var ég
einstæð. Við ákváðum aftur á móti strax að ala
Ísadóru saman upp. Þá var ég sem sagt það sem
er kallað einstæð móðir, núna er ég í sambandi.
Þá eignaðist ég strák, núna eignaðist ég stelpu.
Það er líka mikill munur á því að vera tvítug eða
36 ára þegar þú eignast barn. Þegar Sindri var lít-
ill gaf ég honum tíma. Við vorum alltaf saman. Ég
var enn í Sykurmolunum og var með honum alla
daga fyrstu sex árin í hans lífi, ég rétt fór frá hon-
um til að syngja á tónleikum á kvöldin þegar hann
svaf hvort sem var. Þegar ég eignaðist Ísadóru
var ég búin að gera fullt af plötum og á allt öðr-
um stað í þróunar- og þroskaferlinu. Ég var mjög
heppin, ég hætti aldrei að vinna en gat samt verið
mikið með henni. Ég gat ráðið barnapíu og hljóð-
mann sem voru heima hjá mér, þannig að ég gat
verið með barn á brjósti en samt stokkið inn í her-
bergi til að vinna. Þegar ég var með Sindra var ég
einstæð og átti ekki krónu en hafði allan tímann
í heiminum. Núna hef ég ekki eins mikinn tíma
með Ísadóru en get borgað fólki fyrir að vinna fyr-
ir mig.“
alltaf NáiN
Þau Sindri eru enn mjög náin og býr hann hjá
henni. Hann fer þó ekki alltaf með henni út leng-
ur. „Hann hefur stundum komið með mér. Hann
er orðinn 24 ára gamall. Hann er ekki barn leng-
ur.“ Stundum er sagt að konur eigi erfitt með að
sjá á eftir sonum sínum fullorðnast. Björk hlær
bara þegar hún er spurð að því hvort henni þyki
þetta erfitt. „Að hann sé orðinn fullorðinn? Já,
nei, nei. Endilega,“ segir hún og hlær. Henni hefur
ekki reynst erfitt að sleppa tökunum.
vildi ekki segja þetta við síN börN
Eitt af því sem konur eru alltaf að fást við er að
sameina starfsferil og móðurhlutverkið. Björk
ákvað snemma að láta
það ganga. „Ég var alin
upp af mömmu sem sagði mér að það hefði ver-
ið hellingur af hlutum sem hún hefði getað gert
ef ekki hefði verið fyrir mig og okkur börnin. Mér
fannst það svolítið skrýtið. Ég tók það til mín og
vonaði að mín kynslóð yrði sú kynslóð kvenna
sem myndi ekki segja þetta við börnin sín. Ég var
nefnilega alveg: „Já, en ef þú hefðir viljað gera eitt-
hvað hefði ég bara viljað koma með. Ekki málið.“
Mér fannst þetta afsökun og
tók þann pól í hæðina að ég ætl-
aði bæði að sinna starfi mínu og
eignast börn. Ferðalög reynd-
ust síðan hluti af mínu starfi og
kannski oftar og meira en mig
langaði til. Ég lagaði mig að þeim
aðstæðum og sameinaði þetta
tvennt, sumt hætti ég reyndar við
og gerði ekki en aðra hluti gerði ég. Enginn get-
ur nefnilega sest niður og planað líf sitt. Það bara
gerist. Það er enginn með eitthvert súperplan,
jafnvel þótt það virðist vera þannig, þá er það
aldrei þannig. Við erum flest að reyna að impró-
visera jafnóðum.“
sameiNar Ólík Hlutverk
„Sem konu þykir mér mjög mikilvægt að horfa á
heildina, sambandið við fjölskylduna, ástarsam-
bandið, feril minn sem tónlistarkona, vini mína
og félagslíf. Öll fyrirhöfnin við að sameina þetta
allt er mikilvægur þáttur, ekki bara í praktískum
málum heldur snýst þetta líka um viðhorf til lífs-
ins. Líkt og sjálfbærni, þar sem þú ert ábyrg fyrir
því að endurnýta rusl og nota það aftur, fara vel
með náttúruna og skila til baka því sem þú tekur.
Það er þetta flæði milli ólíkra þátta í lífinu og lífs-
stílnum. Ég trúi mjög sterkt á afl sem ég verð að
beygja mig fyrir.“
Aðspurð hvort hún sé að tala um Guð segir
hún: „Nei, alls ekki. Ekki Guð. Ég er bara að tala
um flæði, að það sé streymi á milli ólíkra þátta í lífi
mínu. Að ég geri ekki bara eitthvað eitt núna og
slökkvi þá um leið á öllu hinu. Að það séu tengsl á
milli allra þátta í mínu lífi.“
frelsið er afstætt
Að sama skapi er einkalífið mikilvægt. „Ég fer
ennþá ein út í náttúruna. Það þurfa allir sína ein-
veru. Líka börn. Þau þurfa líka sitt prívatlíf. For-
eldrarnir eiga ekkert alltaf að vera að hnýsast í það
sem þau eru að gera,“ segir hún og hlær.
Frelsið er afstætt í hennar huga. „Ég set mér
takmörk, hef aga og brýt síðan reglurnar. Í mín-
um huga snýst þetta um endalausa könnun á
sjálfum sér, hvaða reglur ég þarf og hvar þarf að
brjóta þær. Svo getur það orðið að reglu að brjóta
ákveðnar reglur en síðan kem ég mér á óvart og
brýt þær með því að halda þeim og svo framveg-
is.“
leitar lausNa
Lífið getur verið púsluspil og hvað þá þegar mað-
ur býr í tveimur löndum og vinnur starf sem krefst
þess að maður fari reglulega heimshorna á milli.
Björk gerir þó lítið úr því. „Ég held að þetta sé ekk-
ert meira púsl hjá mér en öðrum. Ég held að allir
séu alltaf að púsla. Hversu mikið á ég að vera með
vinum mínum? Á ég að vera meira með þeim í ár
en á síðasta ári? Barnapíur og barnaheimili skipta
líka máli. Þetta er jafn flókið hjá mér og öðrum.
Svo er það líka þannig að fólk er ánægt og síð-
an verður það óánægt. Þá þarf að ræða málin. Ég
tek bara einn dag í einu. Um leið og ég hef fund-
ið lausn sem virkar kemur á daginn viku seinna
að hún virkar ekki lengur. Ég held að þetta sé eitt-
hvað sem allir eru alltaf að fást við, alveg enda-
laust og í raun finnst mér það mjög heilbrigt.“
tilfiNNiNgar skipta máli
Allt í einu slitnar sambandið. Björk keyrði undir
brú. Hún hringir strax aftur. Það er óhjákvæmi-
legt að spyrja hana út í jafnréttismálin. Hvort
hún upplifi sig sterkt sem konu eða hvort
hún sé yfirleitt meðvituð um það. „Flesta
daga er ég ekkert að pæla í því. Það kem-
ur náttúrulega fyrir þegar ég veit að ég
er í aðstæðum sem ég væri ekki í ef
ég væri karlmaður. Eins og núna.
Ef ég væri maður værum við ekki
að tala um börn, tilfinning-
ar og jafnrétti. Þú sérð mjög
sjaldan viðtöl við Baltasar
Kormák um börnin hans
og tilfinningar. Hvort það
sé jafnrétti í kvikmynda-
bransanum og hvern-
ig hann upplifi það að
Lærði margt af mömmu
„Ég þori, get og vil!“ er eitt frægasta slagorð
kvennabaráttunnar. Það á einnig vel við um eina
frægustu konu heims, Björk Guðmundsdóttur,
sem hefur ávallt farið eigin leiðir í lífi og list. Hún
ræðir um kvenhetjur, barnauppeldi, poppbransann
og einkalífið, umræðuna sem er stundum við það
að buga hana og óvænta gjöf frá Evu Joly. Móðir
Bjarkar sagði stundum að það væri ýmislegt sem
hún hefði ekki getað gert vegna barnanna. Björk
ákvað að svoleiðis yrði það ekki hjá henni. að
henni myndi takast að sameina ferilinn, móðurhlut-
verkið, ástarsambandið og félagslífið. fósturlands-
ins fegursta freyja sýnir á sér nýja hlið í viðtali við
Ingibjörgu Dögg Kjartansdóttur.
Mér finnst það hrika-
lega leiðinlegt.
Stundum tekur það
úr mér allan mátt.
Þetta eru ólíkir heim-
ar. En hún á líka
ólíka foreldra.