Dagblaðið Vísir - DV - 11.12.2009, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 11.12.2009, Blaðsíða 4
Sandkorn n Óvissan um líf ríkisstjórn- arinnar vex með hverri viku. Upphlaup Ögmundar Jón- assonar alþingismanns við afgreiðslu Icesave eftir aðra umræðu hefur sett allt á annan endann. Þar er hann sagður hafa fjarstýrt Ásmundi Daðasyni þingmanni, sem greiddi atkvæði með ríkis- ábyrgð, til að greiða atkvæði gegn tveimur seinni liðum frumvarpsins. Svavarsfólkið í VG er ævareitt út í Ögmund og vill hann útlægan sumt. Flokk- urinn er á barmi klofnings enn eina ferðina. n Ögmundur Jónasson og Lilja Mósesdóttir, þingmenn VG, greiddu bæði atkvæði gegn frumvarpi samherja sinna. Andrúmsloftið innan þing- flokks VG nálgast því frost- mark, bæði gagnvart Ögmundi og Lilju. Hún er greini- lega kulvís ef marka má sætaskip- an í matsal Alþingis þar sem samherjar deila gjarnan sömu borðum. Lilja er sögð hafa flúið vinstri-grænu borðin. Hún sest nú gjarnan að snæð- ingi með þingmönnum Hreyf- ingarinnar. Það er vísbending um að hún sé farin að hugsa sér til hreyfings. n Össur Skarphéðinsson utan- ríkisráðherra hefur lýst því yfir að Varnarmálastofnun verði lögð niður í núverandi mynd og verkefnum hennar verði stýrt undir nýju skipulagi innanríkis- ráðuneyt- is þar sem sparnaður verður hafð- ur að leiðar- ljósi. Starfs- fólki, þeirra á meðal forstjóranum, Ellisif Tinnu Víðisdóttur, verður sagt upp störfum en einhverjir end- urráðnir. Í ljósi róttækra sparn- aðaraðgerða og yfirvofandi endaloka þótti óbreyttum kjós- anda sérkennilegt að Varnar- málastofnun hefði nú fest kaup á og fengið afhenta fyrir nokkr- um dögum fimm til sex Lazy Boy-hægindastóla sem kosta um 100 þúsund krónur hver. 4 föstudagur 11. desember 2009 fréttir Útrásarvíkingarnir Hannes Smárason, fyrrverandi forstjóri FL Group, og Lýð- ur Guðmundsson, forstjóri Exista, búa í lúxusvillum á besta stað í miðborg Lundúna. Frá þessu greindi Sigrún Davíðsdóttir, pistlahöfundur Spegils- ins á RÚV, í vikunni. Í Speglinum greindi Sigrún frá glæsiheimilum útrásarvíkinganna tveggja í miðborginni á sama tíma og þeir eigi í erfiðleikum með að mæta greiðslum af háum skuldum sínum á Íslandi. Lúxusvilla Hannesar er met- in á jafnvirði ríflega 600 milljóna ís- lenskra króna og segir pistlahöfund- urinn húsið hafa verið keypt í fyrravor af skúffufélagi forstjórans fyrrverandi. Félagið sé í skattaskjóli á Guernesey. Villan á konuna Villan hans Lýðs er ekki síður verðmæt því hún er metin á tólf milljónir punda eða nærri 2,5 milljarða íslenskra króna. Sigrún tekur fram að sam- kvæmt fasteignaupplýsingum komi fram að snemma á árinu hafi húsið verið flutt yfir á nafn eiginkonunn- ar. Húsið er skammt frá Pont- stræti, nánar tiltekið við Cadog- an-torg, sem er nærri íbúð sem Hannes átti áður en skilanefnd Landsbankans tók yfir. „Sam- kvæmt opinberu yfirliti býr Lýð- ur Guðmundsson við þetta torg, en Lýður er eins og kunnugt er annar aðaleigandi Exista. Sam- kvæmt upplýsing- um hjá einum fasteignasala eru ellefu herbergi í húsinu, þar af átta svefnher- bergi, einnig gufubað, heilsurækt og sundlaug. Með því fylgir einnig bakhús sem í upphafi var hesthús og þjónahí- býli en húsin þarna eru flest frá því á 19. öld,” sagði Sigrún í pistli sínum. Sigrún telur að hátt verð á húsi Lýðs endurspegli eftirspurn meðal auðmanna eftir húseignum á þessum eftirsótta stað. Hún bendir einnig á að skammt frá sé hús til sölu og verðmið- inn sé upp á rúma 4,5 milljarða. Stæll á Hannesi Hús Hannesar er í hinu fræga Notting Hill-hverfi, nánar tiltekið við Talbot- veg, og er þrjú hundruð fermetrar að stærð, á fjórum hæðum. Samkvæmt lýsingu Sigrúnar eru í húsinu meðal annars fjögur svefnherbergi, öll með sérbaðherbergi, margmiðlunarher- bergi, skrifstofa og vínkjallari. Húsinu fylgi líka garður, bæði fyrir framan og aftan húsið, og á því sé þakverönd. Í pistlinum veltir Sig- rún því fyrir sér hver hafi lánað fyrir þess- um verðmætu húseignum á besta stað. „En hver var það þá sem lánaði til þessara veglegu húsa- kaupa að Tal- bot vegi í apr- íl 2008? Það var Kaupþing Singer & Friedlander, bankinn sem Ár- mann Þorvalds- son stýrði. Tímasetningin er athygl- isverð því þarna í apríl 2008 var alveg einstaklega erfitt að fá lán. Í bók sinni rifjar Ármann upp að þeir Hannes hafi kynnst fyrir alvöru í Boston þar sem báðir voru við nám. Einnig segir Ár- mann frá því að Singer hafi fjármagn- að ýmsar fjárfestingar FL Group sem svo enduðu í lágflugi eins og kunnugt er,” sagði Sigrún. Þrátt fyrir að vera greiðslu- eða gjaldþrota hérlendis búa útrásarvíkingarnir Hannes Smárason og Lýður Guðmundsson í lúxusvillum í Lundúnum. Gufubað, heilsurækt- araðstaða, sundlaug, margmiðlunarherbergi og vínkjallari eru meðal lystisemdanna sem víkingarnir njóta í verðmætum glæsiíbúðum sínum. LÚXUSLíf í LUndÚnUm TrauSTi HafSTeinSSon blaðamaður skrifar: trausti@dv.is Talbot-villan Hannes býr í þessu glæsilega húsi á fjórum hæðum. Þar er meðal annars að finna margmiðlunarherbergi, vínkjallara og þakverönd. Glæsileg híbýli Hannes lifir í lúxus í miðborg Lundúna. Hér sjáum við glæsilega borðstofu útrásarvíkingsins. Konan skráð Snemma á árinu færði Lýður glæsieign sína í Lund- únum yfir á eiginkonuna. Í húsinu eru átta svefnherbergi, gufubað, heilsuræktaraðstaða og sundlaug. „Það er alveg á hreinu að við erum fylgismenn hennar,“ segir Guðrún Sigurbjörnsdóttir, aðdáandi Kleo- pötru Kristbjargar Stefánsdóttur, for- stjóra Gunnars Majoness. Um leið og Kleopatra Kristbjörg Stefánsdóttir stýrir Gunnars Majon- esi er hún vinsæll talsmaður gegn neysluhyggju. Boðskapinn boðar hún í sjálfshjálparbók sinni, Hermik- rákuheimi, sem kom út árið 2006, og hefur fyrir vikið hlotið lof og aðdáun stuðningsmanna. Aðdáendahópur Kleopötru fer sífellt vaxandi og eft- ir að DV fjallaði um málefni henn- ar hafa birst við hana viðtöl í bæði Fréttablaðinu og Morgunblaðinu. Guðrún er í hópi aðdáenda sem hittast reglulega og ræða þann góða boðskap sem þeir telja að birtist í Hermikrákuheimi Kleopötru Krist- bjargar. Aðspurð segir Guðrún hóp- inn nokkuð stóran en meðlimirn- ir þekki hinn andlega leiðtoga ekki neitt. „Við höfum áhuga á hennar boðskap. Við erum stór áhugahópur um Kleopötru en við þekkjum hana ekki neitt. Við höfum öll lesið bók- ina hennar og hún er mjög athyglis- verð. Öll erum við sammála hennar boðskap og bókin hennar er rosa- lega góð. Við ræðum bókina henn- ar gjarnan yfir kaffibolla og dáumst að boðskapnum. Stundum lesum við upp úr bókinni því okkur finnst Kleopatra æðisleg. Kleopatra er mjög hreinskilin og opinská, það hlýtur að vera að hún búi yfir rosa miklum andlegum hæfileikum. Kleopatra er mjög áhugaverð manneskja sem hef- ur frá mörgu áhugaverðu að segja,“ segir Guðrún. trausti@dv.is Margir aðdáendur Kleopatra Kristbjörg er bæði forstjóri Gunnars Majoness og andlegur leiðtogi margra aðdáenda sinna. Fjölmennur hópur hittist reglulega og les upp úr bókum Majónesforstjóra: Aðdáendum Kleopötru fjölgar
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.