Dagblaðið Vísir - DV - 11.12.2009, Blaðsíða 24
24 föstudagur 11. desember 2009 fréttir
Um níutíu prósent tekna kylfingsins
Tigers Woods má rekja til auglýsinga-
samninga sem hann hefur gert við
hin ýmsu fyrirtæki. Nú virðist sem
síðustu uppljóstranir um kvennamál
Tigers séu kornið sem fyllir mælinn
hjá styrktaraðilum hans sem einn af
öðrum setja hann út af sakrament-
inu, þvert á yfirlýsingar um hið gagn-
stæða skömmu eftir að frásagnir um
hjúskaparbrot hans komust í há-
mæli.
Samkvæmt bandaríska fjölmiðla-
könnunarfyrirtækinu Nielsen þarf
að fara aftur til 29. nóvember til að
finna auglýsingu með Tiger Woods
sem send var út á besta tíma. Um var
að ræða 30 sekúndna auglýsingu frá
Gillette. Sú auglýsing var sýnd níu
sinnum í nóvembermánuði en hvarf
með öllu eftir 29. nóvember. Svipaða
sögu er að segja af fimmtán öðrum
auglýsingum með honum.
Brestir í harðviðnum
Það varð snemma ljóst að ósætti Tig-
ers og Elinar, eiginkonu hans, bíl-
slysið og ástarævintýri Woods utan
hjónabands drægju dilk á eftir sér.
Strax þann þrítugasta nóvember
neyddist Tiger Woods, vegna rauna
sinna, að tilkynna að hann tæki ekki
þátt í sínu eigin góðgerðargolfmóti,
Chevron World Challenge.
Samfara fjölgun í ástkvennafans
Woods hefur þeim fækkað sem vilja
binda sitt trúss við hann og liðin er
sú tíð, um sinn að minnsta kosti, þeg-
ar hann var talinn auglýsingavænsti
íþróttamaður heims.
Í fyrradag bárust heimsbyggðinni
þau tíðindi að orkudrykkjarframleið-
andinn Gatorade, sem er í eigu Peps-
iCo, hefði ákveðið að rifta samningi
sínum við Tiger Woods og má leiða
líkur að því að um sé að ræða upphaf
þess sem koma skal.
„Tekin fyrir mánuðum“
„Við ákváðum fyrir mánuðum að
hætta með Gatorade Tiger Focus-
herferðina, sem og nokkrar aðrar, til
að skapa svigrúm fyrir aðrar nýjung-
ar árið 2010,“ sagði í yfirlýsingu Peps-
iCo.
Tiger Woods gerði fimm ára samn-
ing við Gatorade árið 2007, sem hljóð-
aði upp á um 100 milljónir banda-
ríkjadala og við riftun má ætla að Tiger
verði af um 40 milljónum dala.
Fróðlegt verður að sjá hvort Ga-
torade hefur haft einhver áhrif á Tiger
Woods því Gatorade Tiger Focus-her-
ferðinni var beint að íþróttamönnum
og vefsíðu drykkjarins segir að drykk-
urinn sé „hannaður með íþrótta-
menn í huga, til að hjálpa þeim að
verða jafn sterkir andlega og þeir eru
líkamlega.“
Nú er ljóst að gjálífi er Akkilesar-
hæll hinnar föllnu hetju og að veru-
lega muni reyna á andlegan styrk
hans á komandi dögum.
Eiginkonan hugði á brottför
Til hvaða ráða Elin Nordegren, eigin-
kona Tigers, grípur til er of snemmt
að segja. Samkvæmt eldri fréttum
hugði hún á brottför og hafði fest
kaup á húsi heima í Svíþjóð ásamt
tvíburasystur sinni.
Á vefsíðu Daily Mail er haft eft-
ir vinkonum Elinar að hún hafi vit-
að af kvensemi Tigers áður en þau
gengu í hjónaband. „Elin hafði tal-
að við aðra golfara og konur þeirra
um villtu partíin hans Tigers. Þegar
hún spurði Tiger um þau, sagði hann
að hann myndi láta af þeim. Og hún
trúði honum. En hann stóð ekki við
það,“ hefur Daily Mail eftir einni vin-
kvenna Elinar.
Einnig hefur blaðið eftir ónafn-
greindum vinum Elinar að hún sé
eyðilögð manneskja vegna umfangs
meintrar ótryggðar hans en hún ætli
ekki að fórna hjónabandinu.
„Hún er skilnaðarbarn og það
er ekki líklegt að hún vilji að Sam
og Charlie [börn hjónanna] gangi í
gegnum slíkt,“ er haft eftir vini Elinar í
bandaríska tímaritinu People.
Ástkona verður skúrkur
Síðan Tiger setti afsökunarbeiðni á
vefsíðu sína fljótlega eftir slysið og
fyrstu uppljóstranirnar, hefur ekki
heyrst mikið frá honum. Hann hef-
ur ekki rætt frekar við lögreglu og var
gert að greiða á annað hundrað dala
sekt vegna umferðaróhappsins.
Á sama tíma kjaftar hver tuska á
nokkrum meintra ástkvenna hans.
Sumar segja safaríkar sögur af sam-
skiptum þeirra í sturtunni eða bíl-
skúrnum, en aðrar fara fínna í sak-
irnar. Rachel Uchitel var fyrsta konan
sem nefnd var í tengslum við kyn-
lífsævintýri Tigers og hefur hún ekki
farið varhluta af almenningsálitinu
síðan. „Allar sögur þurfa skúrk og
hetju. Ég er gerð að skúrki. Fólk hef-
ur kallað mig hjónabandsdjöful, gull-
grafara, skækju, hóru. Ég hef gert
mistök en þannig er ég ekki. Ég bý yfir
Auglýsendur virðast ekki ætla að fyrirgefa Tiger Woods þann siðferðisbrest sem einkennt hefur líf hans og heims-
byggðin hefur verið upplýst um undanfarna daga. Samkvæmt vinum Elinar Nordegren, eiginkonu Tigers, hyggst
hún þó ekki fórna hjónabandinu að sinni. Án efa verður þó erfitt að bæta þá bresti sem komnir eru í sambandið.
SKÖMM TIGERS WOODS
„Elin hafði talað við
aðra golfara og konur
þeirra um villtu partíin
hans Tigers.“
„VaRlEGa OG MEð lEynD
VERðuM VIð áVallT SaMan“
- Daðursleg SMS-skilaboð á milli Tigers Woods og kokteilgengilbeinunnar Jaimee
Grubbs, í lauslegri þýðingu.
26. júlí, klukkan 23.22
Jaimee (J): ég fór út í kvöld til að koma vini mínum á óvart í afmælinu hans
Tiger (T): hvaða gjöf gafstu nakinn líkama þinn
J: haha nei armbandsúr ég svaf ein
T: ein með honum meinarðu
J: haha ég hefði óskað þess
27. september, klukkan 18.38:
J: sakna þín
T: það er æsandi og hver er nýja strákaleikfangið þitt
J: ekkert nýtt strákaleikfang ... er enn tómhent ... verið á 2 alvörustefnumótum
síðustu 2 mánuði :(
T: ég þarfnast þín
J: komdu þá og heimsæktu mig! ég þarfnast þín
T: ég mun gera þig uppgefna bráðum
J: hvenær bráðum? ég er komin með nýtt húðskart
T: í alvöru. Hvar
J: ég var að senda þér mynd af því... á kinninni fyrir neðan augað... lítill demantur
T: sendu hana aftur. É fékk hana ekki
T: þú þarft að fá smá athygli frá mér
27. september, klukkan 20.45
T: áttu nýjan kærasta
J: ég hitti ekki einu sinni nokkurn... nei... þú getur verið kærastinn minn ;)
T: þá er ég hann
J: ég óska þess
T: varlega og með leynd verðum við ávallt saman
18. október, klukkan 15.40
T: sendu mér eitthvað óþekktarlegt
J: sumir hlutir eru þess virði að bíða eftir lol... svo er ég í vinnunni
T: farðu inn á bað og taktu hana [myndina?]
J: haha þú gengur fram af mér
TIGER WOODS
Eldrick Tont „Tiger“ Woods, fæddur
30 . desember 1975, í Cypress í
Kaliforníu.
Vann sinn fyrsta stóra titil 1997 í
Masters-mótaröðinni
Státar af 71 sigri á mótum PGA,
sambands atvinnukylfinga og er í
þriðja sæti með tilliti til sigra
Hefur unnið á fjórtán stórmótum
atvinnukylfinga og er í öðru sæti í
því tilliti.
Álitinn auglýsingavænsti íþróttamað-
ur sögunnar, og um 90 prósent tekna
koma frá auglýsingasamningum.
Fyrsti íþróttamaðurinn sem verður
milljarðamæringur, í dölum talið,
samkvæmt tímaritinu Forbes, og var
í fjórða sæti á lista Forbes yfir hæst
launaða fræga fólkið 2009.
KolBEinn þorsTEinsson
blaðamaður skrifar: kolbeinn@dv.is
Gatorade hefur rift samningi við Tiger
Tiger Woods mun þurfa á andlegum styrk að
halda nú sem aldrei fyrr. Mynd Af vEfsíðu GATorAdE
„þú færð til baka það sem þú gefur“ Gillette-auglýsingar með
Tiger hafa horfið af sjónvarpsskjám vestanhafs. Mynd Af vEfsíðu GillETTE
Klámmyndaleikkona númer eitt
Holly Sampson, önnur tveggja klám-
myndaleikkvenna sem tengjast Tiger.
Jaimee Grubbs Iðrast og biður
eiginkonu Tigers fyrirgefningar.