Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 11.12.2009, Qupperneq 27

Dagblaðið Vísir - DV - 11.12.2009, Qupperneq 27
Hver er maðurinn? „Stefán Máni rithöfundur.“ Hvað drífur þig áfram? „Ætli það sé ekki bara einhver geðtruflaður metnaður.“ Hvar ertu uppalinn? „Á Ólafsvík.“ Hvert fórstu síðast í frí? „Til Súðavíkur. Það var alveg mjög gaman.“ Hvar vildirðu helst búa ef ekki á Íslandi „Í Bandaríkjunum og þá líklega í Kaliforníu. Ég er mjög hrifinn af Bandaríkjunum.“ Ertu mikið jólabarn? „Já, ég er það. Ég er löngu byrjaður að kveikja á kertaljósum og svona. Ég er svona leyni-einkajólabarn sem hef bara virkilega gaman af þessu.“ Hvar varstu þegar þú fékkst fregnirnar um að Ódáðahraun hafi verið selt? „Úff, það man ég ekki. Líklega bara heima að vinna. Það er langlíklegast.“ Er Ódáðahraun þín besta bók? „Ég held ekki. Tilfinningin er að bókin Svartur á leik sé mín besta bók eða þá nýja bókin, Hyldýpi. Það er alltaf auðvelt að vera hrifinn af því nýjasta sem maður skrifar að ógleymdu næstu bók sem er alltaf sú besta.“ Verður þú að vinna við kvik- myndina? „Nei, ekki neitt.“ Hvern viltu sjá leika aðalhlut- verkið? „Ólaf Darra. Hann er stór og breiður og drulluflottur og ég held að hann gæti túlkað Óðinn mjög vel.“ Er enn ein bókin í bígerð? „Já, ég er alltaf að vinna.“ Hvað borðarðu á aðfangadag? „Lambakjöt með öllu hinu hefð- bundna.“ BjörgVin BjörgVinsson 39 Ára BÍLSTJÓri „Svínahamborgarhrygg. Það er alltaf þannig. Fékk reyndar kalkúna þegar ég borðaði hjá tengdó en núna þegar maður heldur jólin heima hjá sér er það bara aftur það sem maður ólst upp við.“ Einar HÓlm magnússon 35 Ára, viNNur við SKiLTagerð „Ferskan svínahrygg og reyktan hamborgarhrygg. Það er venja í minni fjölskyldu.“ ragnHEiður KEtilsdÓttir 50 Ára, uMSJÓNarMaður MöTuNeyTiS Íav „Svínahamborgarhrygg. Það hefur verið venjan í mörg ár og má ekki breyta til.“ sEssElja ingÓlfsdÓttir 58 Ára LJÓSMÓðir Dómstóll götunnar rithöfundurinn stEfán máni seldi kvikmyndaréttinn að bók sinni Ódáðahraun en það er þriðja bókin sem keyptur er rétturinn að. Leikstjórinn ragnar Bragason leikstýrir Ódáðahrauni sem framleidd verður af Sagafilm. Leyni-einka- jóLabarn „Hamborgarhrygg.“ BjarKi Ólafsson 35 Ára, vöruMerKJaSTJÓri HJÁ ÍSLeNSK aMerÍSKa maður Dagsins Árið 1871 gersigraði Þýskaland Frakk- land í stríði. Í kjölfarið var Þýskaland óumdeilanlega öflugasta herveldi Evrópu og bar höfuð og herðar yfir önnur ríki. Haustið 1914 héldu þýskir hermenn syngjandi af stað á vígstöðv- arnar, vissir um að þessu yrði lokið fyr- ir jól. En síðan gerðist hið ómögulega. Stríðið fór ekki eins og til var ætlast og Þýskaland gafst upp í nóvember 1918. Í kjölfarið fylgdu miklir róstutímar, en einnig mikil gróska í hugmynda- fræði og listum, sem skilaði sér í lista- mönnum eins og Berthold Brecht og Fritz Lang. Um tíma virtust Þjóðverj- ar staðráðnir í að gera upp fortíð sína, en í staðinn gengu þeir lýðskrumar- anum Hitler á vald sem sannfærði þá um að Þýskaland væri „bestasta“ land í heimi. Herinn hafði ekki feng- ið að vinna, heldur hafði hann verið svikinn af stjórnmálamönnum sem höfðu stungið hann í bakið. Þjóðverjar ákváðu að reyna aftur að leggja und- ir sig heiminn og beittu fyrir sig nýrri tækni, loftárásum, sem væri betri en sú gamla. Þær tilraunir enduðu í Sta- língrad og í Dresden. rambó og rýtingsstungan Árið 1945 gersigruðu Bandaríkin bæði Þýskaland og Japan í stríði. Í kjölfarið voru Bandaríkin óumdeilanlega öfl- ugasta herveldi í heimi og báru höfuð og herðar yfir önnur ríki. En 20 árum síðar héldu bandarískir hermenn af stað til Víetnam, fullvissir um að þeir myndu vinna auðveldan sigur á frumstæðri þjóð. En síðan gerðist hið ómögulega. Stríðið fór ekki eins og til var ætlast og Bandaríkjamenn drógu sig úr hernaðarátökunum árið 1973. Í kjölfarið fylgdu miklir róstutímar, en einnig mikil gróska í hugmyndafræði og listum, og í listamönnum eins og Martin Scorsese og Francis Copp- ola. Um tíma virtust Bandaríkjamenn staðráðnir í að gera upp fortíð sína, en í staðinn gengu þeir lýðskrumaranum Reagan á vald sem sannfærði þá í stað- inn um að Bandaríkin væru „bestasta“ land í heimi. Herinn hafði ekki fengið að vinna, heldur hafði hann verið svik- inn af stjórnmálamönnum, eins og Sylvester Stallone segir í fyrstu Rambó myndinni. Bandaríkjamenn ákváðu að reyna aftur að leggja undir sig heiminn og beittu fyrir sig nýrri tækni, loftárás- um, sem væri betri en sú gamla. Þær tilraunir enduðu í Afganistan og í Írak. Þorskastríð í vitund þjóðar Íslenska lýðveldið hefur ekki átt í bein- um stríðum (fyrir utan stuðning við innrásina í Írak), en hefur eigi að síð- ur átt í átökum við nágrannaþjóðir sín- ar. Helsta dæmið um slíkt eru þorska- stríðin, sem lauk endanlega árið 1976. Tókst Íslendingum þá að vinna glæst- an sigur yfir sjálfu Bretaveldi. Þó að þau átök hafi þjappað þjóðinni saman getur vel verið að þau hafi einnig haft mjög slæm áhrif á þjóðarvitundina. Við urðum einhvern veginn sannfærð um að fyrst við gátum unnið Breta, hlytum við að vera ótrúlegum kostum búin. Í kringum aldamótin 2000 fóru þeir atburðir af stað sem áttu eftir að leiða til næstu deilu við Breta. Nú átti að færa landhelgina alla leiðina til London, sem myndi verða leikvöllur íslenskra auðmanna. Rétt eins og í þorskastríð- unum virtist sem Bretar hafa ekki roð (ef svo má að orði komast) við okkar mönnum. En síðan gerðist hið ómögu- lega. Ísland tapaði í útrásinni. Endalok útþenslustefnu Í raun voru Þjóðverjar strax búnir að tapa seinni heimsstyrjöld árið 1943, og líklega sáu flestir það nema þeir sjálfir. En þjóðin hafði enn tröllatrú á leiðtogum sínum sem höfðu áður fært þeim svo mikla sigra í upphafi og ákvað að berjast áfram. Kostaði þetta ótalmörg mannslíf, ekki síst þýsk, og hrikalega eyðileggingu í Evrópu. Þegar árið 1968 var ljóst að Banda- ríkjamenn voru búnir að tapa í Víet- nam. Eigi að síður héldu þeir áfram í fimm ár í viðbót, sem kostaði mörg mannslíf og gríðarlega eyðileggingu. Í byrjun árs 2006 var flestum öðrum en Íslendingum ljóst að íslenska efnahag- sundrið var búið. Eigi að síður ákváðu leiðtogarnir að halda ballinu áfram í rúm tvö ár í viðbót. Þetta kostaði okk- ur Icesave, og margar af öðrum helstu skuldum þjóðarinnar. Íslenska lýðveldið hefur nú í fyrsta sinn orðið undir á afgerandi hátt á út- þenslustefnu sinni. Tími uppgjörs og endurskoðunar og vangaveltna um hvort málsstaðurinn hafi verið rétt- ur til að byrja með. Steingrímur J. Sig- fússon er því í svipuðu hlutverki og Gustav Stresemann eða Jimmy Cart- er, sem þarf að taka við ónýtu búi og friðmælast við umheiminn. Vonandi tekst honum betur til en þeim, því lýð- skrumararnir eru aldrei langt undan. Heimsstyrjaldir, Víetnam og þorskastríð mynDin góð stemning Fjöldi fólks kom og skemmti sér vel á jólaballi fatlaðra á miðvikudagskvöld. mynd raKEl ÓsK kjallari umræða 11. desember 2009 föstudagur 27 Valur gunnarsson rithöfundur skrifar „En síðan gerðist hið ómögulega. Ísland tapaði í útrásinni.“
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.