Dagblaðið Vísir - DV - 11.12.2009, Blaðsíða 40
40 föstudagur 11. desember 2009 helgarblað
Ásdís Rán Gunnarsdóttir fæddist á
sjúkrahúsinu á Egilsstöðum 12. ág-
úst árið 1979, dóttir Gunnars Vign-
issonar og Eyglóar Gunnþórsdóttur
sem nú eru skilin. Hún bjó á Egils-
stöðum um árabil og einnig nokkur
ár á Höfn. Eygló segir Ásdísi hafa ver-
ið afar duglega sem barn.
„Hún var rosalega nákvæm og
dugleg. Hún var mjög dugleg að
passa systur sína en hún var níu ára
þegar hún fæddist. Hún sá voðalega
mikið um hana meðan ég var að
vinna. Hún var líka mjög dugleg að
læra, ofsalega samviskusöm og mátti
ekki missa úr einn einasta tíma.“
Þó að Ásdís sé mikil glamúrpía í
dag segir Eygló hana hafa unað sér
vel í sveitinni.
„Hún var ofsalega ánægð í sveit-
inni. Hún æfði bæði körfu- og fót-
bolta og reið alltaf berbakt á villtum
hestum. Ég var í hálfgerðum vand-
ræðum með hana frá því að hún var
níu til ellefu ára. Einu sinni elti einn
hesturinn hana og beit hana í bak-
ið þannig að það sáust för á bakinu
á henni. Hún var alltaf að djöflast í
hestunum. Ég skildi ekki hvernig hún
þorði þessu. Hún var ofurhugi og er
það enn. Hún lætur ekkert stoppa
sig. Ef hún bítur eitthvað í sig þá læt-
ur hún það takast.“
Heppin að halda lífi
Ásdís lagði hestamennskuna og
íþróttirnar á hilluna fjórtán ára göm-
ul þegar hún ákvað að verða fyrir-
sæta. Sama ár lenti hún í alvarlegu
bílslysi og var nær dauða en lífi.
„Það var hræðilegt þegar keyrt
var á hana. Hún var að hlaupa yfir
götu rétt fyrir ofan Laugardalshöll-
ina þegar bíll keyrði á hana á fullri
ferð. Hún kastaðist yfir götuna og
glímir enn við bakmeiðsli. Hún
var bara heppin að halda lífi,“ segir
Eygló.
Aðspurð hvernig henni hafi litist
á framaval dóttur sinnar segir Eygló
að hún hafi aldrei óttast að hún gæti
ekki spjarað sig.
„Unglingar segja ýmislegt sem
maður veltir sér ekki upp úr en ég átti
alveg eins von á því að hún myndi
fara svona langt. Ég þekki hana það
vel og veit að ef hún ákveður eitthvað
hættir hún ekki fyrr en henni tekst
það. Hún þrífst ekki öðruvísi en á
fullu. Hún er ekki ljónynja fyrir ekki
neitt.“
Í pels í 10. bekk
Ásdís var á unglingsaldri þegar hún
flutti til Reykjavíkur og bjó um stund
í Bakkahverfinu í Breiðholti og stund-
aði nám í Breiðholtsskóla. Kennari í
skólanum segir hana hafa farið sínar
eigin leiðir, sama hvað hver sagði.
„Allan tíunda bekk gekk hún í pels-
líki. Hún var eina stelpan í bekknum
sem gerði það. Hún var mjög fram-
úrstefnuleg í fataburði og hafði sinn
eigin stíl. Hún hafði engan áhuga á
að láta segja sér fyrir verkum og vildi
ráða öllu sjálf. Hún er mjög sjálfstæð
stúlka,“ segir kennarinn og rifjar upp
atvik þar sem klæðaburður fyrirsæt-
unnar vakti athygli.
„Þegar Ásdís var í tíunda bekk fór
hún í vettvangsferð á Þingvelli með
skólanum. Ásdís lét sig ekki muna
um að mæta á pinnahælum og gekk
á þeim klukkutímum saman á stígun-
um í þjóðgarðinum. Hún kvartaði ekki
fyrr en í blálokin og tók meira að segja
þátt í þrautakóngi eftir allt saman.“
Kennarinn segir Ásdísi lítið hafa
breyst eins og hann sér hana í fjöl-
miðlum í dag.
„Hún var þokkalegur námsmað-
ur og ein af vinsælu stelpunum. Hún
hefur ekki breyst mikið. Það er helst
að varirnar á henni hafi þykknað að-
eins.“
Uppgötvuð á hárgreiðslustofu
Björn Blöndal ljósmyndari tók fyrstu
myndina af Ásdísi þegar hún var fjór-
tán ára. Þá var Ásdís að vinna sem
aðstoðarstúlka á hárgreiðslustofunni
Hödd hjá Eiríki sem var einn heitasti
hárgreiðslumaðurinn á þeim tíma.
Ásdís lærði hárgreiðslu í Iðnskólan-
um en lauk ekki prófi þar sem hún
var kasólétt. Eiríkur bað Björn um
að mynda hana því hana langaði svo
að verða fyrirsæta en myndin birt-
ist aldrei opinberlega. Fimmtán ára
byrjaði hún að sitja fyrir og nokkrum
árum síðar tók Björn mynd af henni
sem birtist í Séð og Heyrt. Markaði
það upphaf glæsts ferils fyrirsætu
sem virðist ekki eiga sér nein tak-
mörk.
Björn er sá ljósmyndari sem hefur
myndað Ásdísi oftast. Hann tók strax
eftir því að hún var bráðefnileg fyrir-
sæta.
„Þegar ég lít til baka var þetta allt-
af í henni. Hún ætlaði sér alltaf að
komast á toppinn. Hennar helsta
einkenni í gegnum tíðina er hvað
hún er fylgin sér. Til að ná langt úti
þarftu að hafa bein í nefinu. Ég held
því fram að engin íslensk fyrirsæta
hafi náð þeim árangri sem Ásdís hef-
ur náð, hvorki fyrr né síðar. Ég þori
að éta hattinn minn upp á það,“ seg-
ir Björn.
Skálaði í gullkampavíni
„Ég held að hún hafi alltaf verið
glamúrpía. Við vorum einhvern tím-
ann í boði fyrir mörgum árum þar
sem skálað var í freyðivíni með gulli
í. Þetta var vinsælt þá og löngu fyr-
ir árið 2007. Ásdísi fannst þetta vera
toppurinn og sagði að svona myndi
hún örugglega skála ef hún væri
fræg,“ segir Björn. Hann segir Ásdísi
vera mjög ákveðna, sem er ekki allt-
af jákvætt, en hefur komið henni á
þann stað sem hún er í dag.
„Stundum finnst mér hún of
ákveðin. Hún er ekki frek en hún er
mjög ákveðin. Það er kannski það
sem hefur komið henni þangað sem
hún er í dag. Hún veit alltaf hvern-
ig hún vill hafa hlutina, til dæmis í
myndatöku. Ef þú lítur á stelpur sem
hafa fengið mikla athygli hér heima,
til dæmis ungfrú Ísland, hefur þeim
staðið athygli að utan til boða en
þær hafa aldrei klárað dæmið þó að
þær hafi viljað það. Ásdís hefur allt-
af klárað dæmið. Hún er mjög ýtin
manneskja. Flestar stelpur gefast
upp en Ásdís var næstum þrítug þeg-
ar hún sló í gegn og búin að eign-
ast þrjú börn. Margar hefðu verið
búnar að láta þennan draum fjúka.
Hún hefur alltaf sagt: „Þetta kemur.“
Hún hefur alltaf verið jákvæð,“ segir
Björn.
Eignaðist barn ung
Um fimmtán ára aldurinn kynntist
hún barnsföður sínum, Grími Val-
tý Guðmundssyni. Þann 28. júlí árið
1997 eignuðust þau soninn Róbert
Andra. Þá var Ásdís aðeins rétt tæp-
lega átján ára. Ásdís og Grímur voru
saman í sjö ár áður en leiðir skildu
og Róbert Andri býr hjá föður sínum
í dag. Í viðtali við Fókus 6. júlí árið
2001 sagði Ásdís það hafa verið mjög
erfitt að eignast barn svo ung.
„Ég var sautján ára þegar ég átti
hann og mæli ekki með því. Þetta er
samt búið að vera frábær reynsla og
hefur þroskað mig mjög mikið.“
Í viðtali við Séð og Heyrt í lok árs
2001 talaði Ásdís opinskátt um sam-
bandsslitin við Grím.
„Við Grímur hættum saman í góðu
og erum vinir áfram. Við höfum verið
saman í tæp sjö ár og átt alveg ynd-
islegan tíma saman. Nú skilur hins
vegar leiðir en þetta er búið að vera
mjög lærdómsríkur tími. Ég var mjög
ung þegar við byrjuðum saman, að-
eins 15 ára, og það getur líka verið
dálítið erfitt upp á framtíðina að gera
þegar pör byrja of ung saman. Ég var
17 ára þegar við eignuðumst barn
saman. Þetta er samt mjög erfiður
tími að ganga í gegnum svona um
jólin en ég verð bara að takast á við
þetta eins og það er.“
Í viðtalinu sagðist Ásdís ætla að
einbeita sér að ferlinum en þá starf-
aði hún sem markaðs- og sölustjóri
veflausnakerfa hjá Hausverk aug-
lýsingastofu auk þess að sinna fyrir-
sætustörfum. Ljóst var strax þarna að
Ásdís ætlaði sér að ná langt.
„Ég stefni á að láta meira að mér
kveða í íslensku viðskiptalífi næstu
árin,“ sagði Ásdís.
Róbert Andri er tólf ára í dag og
segir Eygló, móðir Ásdísar, hann allt-
af fara til móður sinnar á sumrin.
„Þetta er indælis strákur, voða-
lega ljúfur og góður. Hann er algjör
mömmustrákur.“
Fyrsta Playboy-tilboðið
Árið 2000 stundaði Ásdís nám í við-
skipta- og rekstrarfræði hjá Iðn-
tæknistofnun. Árið eftir var Ásdís
annar umsjónarmaður hnefaleika-
þáttarins Íslenskir hnefaleikakappar
ásamt Snorra Jónssyni. Þátturinn var
sýndur á Skjá einum og fjallaði um
íslenska drengi sem kepptu í hnefa-
leikum.
Í júlíviðtalinu í Fókus það ár sagði
Ásdís frá tilboði sem henni barst frá
karlatímaritinu Playboy. Hún og vin-
kona hennar höfðu hitt útsendara frá
Playboy þegar þeir voru á landinu
og fóru þær tvisvar út að borða með
þeim. Útsendararnir vildu fá Ásdísi
strax út en hún vildi hugsa sig um.
„Það voru allir mjög almennilegir
og það voru meira að segja tvær kon-
ur í hópnum. Þetta eru fagmenn sem
vinna við að leita að stelpum. Það var
enginn að horfa perralega á mann.“
Í afmæli sitt þetta árið sem hald-
ið var á Astró mætti Ásdís í Playboy-
búningi; svörtum kjól með slaufu og
kanínueyru.
„Ég kom svona klædd til að gera
smá grín að sjálfri mér. Gestum brá
svolítið í brún þegar þeir sáu kanínu-
búninginn minn en fólk jafnaði sig
fljótlega,“ sagði Ásdís í samtali við-
Ísdrottningin Ásdís Rán Gunnarsdóttir er einn umdeildasti Íslendingurinn. Þegar hún var fjórtán ára var hún
heppin að halda lífi eftir alvarlegt umferðaróhapp. Hennar nánustu lýsa henni sem ákveðinni og duglegri konu
sem lætur engan vaða yfir sig. Hún segist sjálf vera fræg í Búlgaríu og að búlgörskum fjölmiðlum kvíði deginum
sem hún yfirgefur landið. Búlgarskur blaðamaður segir svo ekki vera heldur sé hún aðeins lítillega fræg.
„ÁsdÍs rÁN getur allt“
Hörð í horn að taka
Viðmælendur DV eru
sammála um að Ásdís
lætur ekki vaða yfir sig.
LjóSmyndaRi: BjöRn BLöndaL
„Hún kastaðist
yfir götuna og
glímir enn við
bakmeiðsli.
Hún var bara
heppin að
halda lífi.“