Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 11.12.2009, Qupperneq 41

Dagblaðið Vísir - DV - 11.12.2009, Qupperneq 41
Séð og Heyrt en á þessum tíma vann hún sem markaðs- og sölufulltrúi á útvarpsstöðinni Steríó 895. Átti þetta ekki eftir að vera síð- asta skiptið sem Playboy hafði sam- band við ísdrottninguna eins og hún er kölluð. Einn viðmælandi DV sagði þó að tilboðið árið 2000 hefði ekki verið alvöru tilboð heldur hefðu út- sendararnir einungis sagt Ásdísi að hún væri sæt og ætti að sitja einhvern tímann fyrir hjá Playboy. Fundu ástina í Retro Tvítug stofnaði Ásdís módelskrif- stofuna model.is sem seinna fékk nafnið Ice Models Management og var hún meðal annars með umboð fyrir Hawaiian Tropic-keppnina og seinna Ford-keppnina. Skömmu eftir áramótin 2002/2003 kynntist hún knattspyrnumanninum og fyrrverandi Herra Íslandi, Garð- ari Bergmann Gunnlaugssyni, sem þá spilaði með ÍA. Hann stundaði nám við Fjölbrautaskóla Vesturlands og var aðeins nítján ára þegar þau kynntust. Hún var 23 ára og bæði áttu þau barn úr fyrri samböndum. Garð- ar kemur úr mikilli knattspyrnuætt og er bróðir tvíburanna Arnars og Bjarka. Hann og Ásdís fundu ástina í Kringlunni - í versluninni Retro sem Garðar vann í á þessum tíma og var í eigu Arnars og Bjarka. „Ég fann hann í versluninni Ret- ro í Kringlunni. Ég var svo dolfallin að ég féll alveg fyrir honum [...] Ætli ég fari ekki að halda með Skagan- um núna,“ sagði Ásdís í samtali við Séð og Heyrt. Garðar var ekki held- ur óánægður með kvenkostinn sem hann tók strax eftir í verslunarmið- stöðinni. „Það var ekki annað hægt enda er hún glæsileg kona. Við féllum hvort fyrir öðru.“ Bað hennar með ljóði Síðla sama ár trúlofuðu Garðar og Ásdís sig. Garðar gerði sér lítið fyr- ir og fór á skeljarnar og bað Ásdísar með frumsömdu ljóði. „Þetta er ekkert dýrt kveðin ljóð með stuðlum og höfuðstöfum, held- ur bara eitthvað sem mér dettur í hug um Ásdísi. Mér dettur oft eitt- hvað í hug þegar ég er að fara að sofa á kvöldin og sendi henni það sem SMS,“ sagði Garðar í viðtali við Séð og Heyrt um stóru stundina. Hann bað hennar á veitingastaðnum Mad- onnu þegar allir gestirnir höfðu yfir- gefið staðinn. Ekki löngu síðar vakti það mikla athygli þegar Garðar og Ásdís slitu trúlofun sinni og fóru hvort sína leið- ina. Þau byrjuðu aftur saman nokkr- um mánuðum seinna og í byrjun árs 2005 tilkynntu þau að fyrsta barnið væri á leiðinni. „Við ákváðum að byrja aftur sam- an. Það var ekki hægt að láta ævin- týrið enda svona. Við vorum í krísu eins og gengur og gerist hjá mörg- um. Mér fannst það ekkert of alvar- legt, alla vega ekkert óleysanlegt [...] Ég býst við að barnið verði ofdrekrað. Svo má alveg gera ráð fyrir að það verði annað hvort Ungfrú eða Herra Ís- land árið 2020,“ sagði Ás- dís í samtali við Séð og Heyrt. Þann 29. júlí árið 2005 kom Hektor Berg- mann í heiminn. Brúðarkjóllinn saumað- ur í Vegas Um mitt ár 2006 var komið að stóru stundinni. Garðar og Ás- dís létu gefa sig saman í blíð- skaparveðri í Dómkirkjunni. Síðan var rölt yfir á Sjávarkjall- arann þar sem boðið var upp á sex rétta matseðil. Hjónin eyddu brúðkaupsnóttinni á svítu á hóteli í miðborginni og héldu síðan í brúðkaups- ferð til Lanzarote seinna sama haust. Brúðarkjóllinn var sérsaumaður í Las Ve- gas þar sem hún var fyrr á árinu og hitti margar fræg- ustu stjörnur heims, þar á meðal Óskarsverðlauna- hafann Cuba Gooding Jr. og hasarmyndahetjuna Bruce Willis í partíi í boði kvikmyndaframleiðandans Jerry Bruckheimer. Hún fór aftur í svipað partí í ár til að sýna sig og sjá aðra. Vissi ekki hvar hún var Garðar skrifaði undir samning við sænska félagið IFK Norrk- öping árið 2007. Það ár lenti Ásdís í alvarlegu umferðaró- happi, komin sjö mánuði á leið með sitt þriðja barn. Hún þurfti að eyða nokkrum dögum á sjúkrahúsi og segir móðir hennar að bakmeiðsl- in hafi versnað um helming eftir óhappið. Ásdís lýsti lífsreynslunni í viðtali við blaðið Sirkus þann 9. mars árið 2007. „Þetta var hrikaleg lífsreynsla en ég þakka guði fyrir að barnið hafi sloppið. [...] Þegar ég rankaði við mér á sjúkrahúsinu vissi ég hvorki hver ég var né að ég væri ófrísk. Garðar grey- ið fékk áfall og hefur ekki enn jafnað sig,“ sagði Ásdís. Stuttu seinna birtist viðtal í Séð og Heyrt við Trausta Davíð Karls- son, manninn sem Ásdís keyrði á. Þar sagðist hann ekki hafa feng- ið krónu greidda úr tryggingunum vegna slyssins. Í fréttinni kom fram að tryggingum Ásdísar hefði verið sagt upp vegna vanskila. DV sagði af því fréttir fyrir stuttu að Ásdís hefur stefnt tryggingafé- laginu Verði vegna deilu um hvort tryggingin hafi verið í gildi en fyrir- taka í málinu fór fram 6. nóvember síðastliðinn. Óviss með Búlgaríu Victoria Rán Garðars- dóttir fæddist 21. apríl árið 2007. Í ágúst árið eftir skrifaði Garð- ar undir þriggja ára samning við búlg- arska liðið CSKA Sofia og varð þá fyrsti ís- lenski knatt- 11. desember 2009 föstudagur 41 „ÁsdÍs rÁN gEtur aLLt“ Fyrstu skrefin Björn Blöndal tók fyrstu myndirnar af Ásdísi þegar hún var aðeins fjórtán ára. „Ég myndi ekki segja að hún væri ein af skærustu stjörnum Búlgaríu eða að einhver kvíði því að hún sé kannski á förum frá Sofiu.“ Gerir ekkert druslulegt Ásdís sat fyrir í tímaritinu Bleikt og Blátt en var ekki mjög djörf eins og myndin sýnir. LjÓSmyndaRi: BjöRn BLöndaL Fræg á síðum Séð og Heyrt Ásdís hefur nokkrum sinnum verið Séð og Heyrt stúlkan en sá titill hefur komið þeim nokkrum á kortið. Á forsíðu Ok! Ásdís og Garðar töluðu meðal annars um íslensku jólin í viðtali við búlgarska Ok! „Hún hefur ekki breyst mikið. Það er helst að var- irnar á henni hafi þykknað aðeins.“ hELgarbLað
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.