Dagblaðið Vísir - DV - 03.10.2008, Síða 6
„Við erum með merktan miða í miða-
sölunni handa Sóleyju og ef hún
treystir sér til skulum við bera á hana
olíu og leyfa henni að taka snúning í
búrinu,“ segir Eiður Birgisson, annar
eigenda skemmtistaðarins 800-Bar
á Selfossi, en á laugardaginn verð-
ur haldið svokallað Dirty-Night, eða
sóðakvöld eins og það gæti kallast á
íslensku.
Kvöldið er umdeilt en lögreglan
er með málið til skoðunar. Ástæðan
er sú að bareigendurnir auglýsa fá-
klæddar barmeyjar og stúlkur í búr-
um auk þess sem erótísk kvikmynd
verður sýnd. Auglýsing vegna kvölds-
ins vakti einnig hneykslan margra á
Selfossi auk þess sem Sóley Tómas-
dóttir, femínisti og varaborgarfull-
trúi, hafði samband við lögregluna í
kjölfarið.
Enginn neyddur í búrið
„Það hefur enginn haft samband
við okkur frá lögreglunni,“ segir
Eiður, vert og skipuleggjandi sóða-
kvöldsins umdeilda. Hann fullyrð-
ir að mikill munur sé á strippi og að
vera fáklæddur, tilgangurinn sé að-
eins að halda heitt kvöld. Hann segist
ekki hafa orðið var við að kvöldið sé
mikið gagnrýnt, auðvitað séu sum-
ir viðkvæmari en aðrir. Hann bend-
ir á að engin stúlka verði neydd inn í
búrið til þess að hrista skankana. Allt
sé þetta gert með samþykki fullorð-
inna einstaklinga. Hann segir kvöld-
ið hafa fengið jákvæðar viðtökur.
„Ég fæ ekki séð að það sé ólöglegt
að vera fáklæddur,“ segir Eiður.
Klám á Akureyri
Þetta er í annað sinn sem Dirty-
Night er haldið en áður var það
haldið í september á Akur-
eyri. Þá var gjörningurinn
gagnrýndur harkalega
af sumum bæjarbúum.
Lögreglan mætti á vett-
vang en að sögn Eiðs
voru engin afskipti
höfð af samkomunni
af hálfu lögreglunn-
ar í það skiptið. Að-
spurður hvers kyns
erótík verði til sýn-
is á Selfossi svar-
ar Eiður því til að
enn eigi eftir að
kaupa þær mynd-
ir sem verða sýnd-
ar. Hann játar hins
vegar fyrir blaða-
manni að klám hafi verið til sýnis á
Akureyri þegar sóðakvöldið var hald-
ið þar. Þess má geta að klám og dreif-
ing þess er ólögleg.
Kjánalegir drengstaular
„Það er ólöglegt að sýna klám og
öll dreifing á því er ólögleg,“ segir
Sóley Tómasdóttir femínisti og lýs-
ir jafnframt yfir furðu sinni á að lög-
reglan hafi ekki stöðvað miðasöl-
una sem hófst í gærkvöldi. Hún segir
engan eðlismun á því að konur séu
fáklæddar eða naktar, hvort tveggja
er ólöglegt. Þá skrifar Sóley á blogg-
ið sitt að samkvæmt lögum um veit-
ingastaði, gististaði og skemmtana-
hald sé veitingastöðum óheimilt að
gera út á nekt starfsmanna eða ann-
arra sem á staðnum eru.
„Þetta eru
aumingja
dreng-
staular
sem telja
sig meiri
menn
með þessu
og það er
kjánalegt,“
segir Sól-
ey en
aðspurð hvort hún þiggi boð Eiðs
segir hún það ekki svaravert.
Áður áminntir
Þegar haft var samband við lög-
regluna á Selfossi sögðu þeir málið
til skoðunar hjá embættinu. Sú skoð-
un hófst þegar auglýsingin birtist í
bæjarblöðum á Selfossi en hún þykir
í grófara lagi. Hann segir óljóst hvort
lögreglan aðhafist nokkuð enn sem
komið er en bendir á að skemmti-
staðurinn hafi fyrir stuttu fengið við-
vörun eftir að starfsmenn hans urðu
uppvísir að því að selja ungmennum
undir aldri áfengi inni á staðnum. Þá
fengu þeir áminningu sem getur orð-
ið undanfari sviptingar á áfengisleyf-
inu. Yfirlögregluþjónninn á Selfossi
segist frekar eiga von á því að eig-
endur staðar- ins vilji frekar vera
rétt- um megin
við lögin.
föstudagur 3. október 20086 Fréttir DV
Vertinn og skemmtistaðaeigandinn Eiður Birgisson býður femínistanum Sóleyju Tómas-
dóttur á umdeilt kvöld á Selfossi sem heitir Dirty-Night, eða sóðakvöld eins og það gæti
útlagst á íslensku. Sjálf hefur Sóley haft samband við lögregluna og vill meina að staðar-
haldarar séu að brjóta lög með því að hafa fáklæddar barmeyjar og stúlkur í búrum.
VILJA FEMÍNISTA
Á SÓÐAKVÖLDIÐ
Sandkorn
n Hannes Smárason var eitt
rómaðasta andlit útrásarinn-
ar og íslenska efnahagsund-
ursins þar til hann hvarf þegar
FL-Group
hrapaði með
miklum
skelli. Síðan
þá hefur lítið
sem ekkert
til Hannes-
ar spurst en
margir hafa
forvitnast
um afdrif hans. Þannig hefur
Egill Helgason meðal annars
lýst eftir Hannesi á bloggsíðu
sinni. Hannes er nú kominn í
leitirnar en Séð og heyrt greinir
frá því að Hannes hafi það gott í
London. Þar býr hann við góðan
kost í Knightsbridge ásamt unn-
ustu sinni, börnum og barn-
fóstru.
n Fólk ber sig vel í herbúðum
Skjás eins þessa dagana enda
virðist almennur fjárskortur og
krepputal ýta undir áhorf á frí-
stöðina. Þau boð hafa verið látin
út ganga að áhorf á stöðina hafi
aldrei mælst jafnmikið og nú,
frá því að rafrænar áhorfsmæl-
ingar hófust á Íslandi. En það er
að vísu ekki ýkja langt síðan sú
tækni tók við af gamaldags dag-
bókarfærslum. Skemmtiþáttur-
inn Singing Bee virðist sam-
kvæmt nýjum mælingum koma
sterkur inn auk þess sem hinn
geðstirði læknir House klikkar
ekki frekar en fyrri daginn.
n Blaðakonan tannhvassa,
Agnes Bragadóttir, fór mikinn í
Íslandi í dag á Stöð 2 á miðviku-
dagskvöld þar sem hún mætti
lögmanninum Sigurði G. Guð-
jónssyni. Þau ræddu vitaskuld
fyrst og fremst stóra Glitnis-
málið og voru eins ósammála
og hugsast getur. Í orrahríðinni
hélt Agnes því fram að skuldir
Stoða, sem
greiða þurfi
fyrir áramót,
nemi 130
milljörð-
um króna.
Sömu tölu
birti hún svo
í fréttaskýr-
ingu í Morg-
unblaðinu daginn eftir. Þessi
tala mun vera úr lausu lofti grip-
in og Stoðir sáu sig knúnar til að
leiðrétta blaðamanninn í gær og
í yfirlýsingu frá fyrirtækinu kom
fram að afborganir af lánum
Stoða sem koma til gjalddaga
síðustu þrjá mánuði ársins 2008
nema alls 3,8 milljörðum króna.
Þannig að Agnesi skeikaði um
rúmlega 126 milljarða króna. Þá
voru vinnubrögð Agnesar átal-
in í yfirýsingu Stoða sem mátti
í raun skilja sem svo að Agnes
væri stórhættuleg á viðkvæm-
um tímum.
„Ég fæ ekki séð að það
sé ólöglegt að vera fá-
klæddur.“
vAlur grETTiSSon
blaðamaður skrifar: valur@dv.is
umdeild auglýsing
auglýsing fyrir kvöldið er
heldur djörf og gefur
tóninn fyrir kvöldið.
Sóley Tómasdóttir Virðir boð eiðs
um að mæta á sóðakvöld að vettugi.
Hún segir þá strákstaula sem séu að
framkvæma ólöglegan gjörning.
Eiður Birgisson Ætlar að halda
sóðakvöldið þrátt fyrir andmæli
sóleyjar og þó svo lögreglan ætli
að fylgjast með.