Dagblaðið Vísir - DV - 03.10.2008, Blaðsíða 72
n Guðlaugur Þór Þórðarson
heilbrigðisráðherra fór í frí til Afr-
íku á dögunum. Þangað fór hann
í safaríferð og hafði alla fjölskyld-
una með sér í ferðalagið. Ráð-
herrann og fjölskylda hans hafa
væntanlega haft nóg að gera því
í Keníu er meðal annars að finna
ljón, hlébarða, vísunda, flóðhesta
og fíla. Heilbrigðisráðherrann
skeleggi ætti því
að koma fíl-
hraustur aft-
ur til lands-
ins til að
takast á við
þá kreppu
sem skollin
er á íslensku
þjóðinni.
Fílar hann Afríku?
Fréttaskot 512 70 70
DV borgar 2.500 krónur fyrir fréttaskot sem leiðir til fréttar. fyrir fréttaskot sem Verður
aðalfrétt á forsíðu greiðast 25.000 krónur. fyrir besta fréttaskot Vikunnar greiðast allt
að 50.000 krónur. alls eru greiDDar 100.000 krónur fyrir besta fréttaskot hVers mánaðar.
Poppkóngurinn Bubbi Morthens
fékk eina milljón fyrir að spila öll sín
bestu lög á sameiningartónleikum
Odda, Gutenbergs og Kassagerðar-
innar í gærkvöldi. Blásið var til tón-
leikanna af því tilefni að þessi þrjú
fornfrægu fyrirtæki hafa nú samein-
ast undir merkjum Odda. Ákveðið
var að fagna samrunanum með stæl
og fá sjálfan Bubba til þess að flytja
rjómann af lögum sínum í Kassa-
gerðinni en þar hljómuðu slagar-
ar á borð við Ísbjarnarblús, Stál og
hníf, Hiroshima og Fjöllin hafa vak-
að. Ekki aldeilis ónýtt í kreppunni að
fá verkalýðsþjóðsöngva á borð við
Stál og hníf beint frá kónginum sjálf-
um en þrátt fyrir að hart sé í ári voru
seðlarnir sem Bubbi fékk fyrir söng-
inn víst ekki prentaðir hjá Odda og
því síður fluttir til Bubba í kassavís.
Bubbi hefur látið hressilega að
sér kveða í kreppunni enda er hann
aldrei betri en þegar á móti blæs og
syrtir í álinn. Þannig hefur hann tal-
að opinskátt um hrakfarir sínar á
hlutabréfamarkaði og hefur brýnt
stjórnvöld til þess að fara nú að gera
eitthvað róttækt í efnahagsmálun-
um. Í gær lét Bubbi þau boð út ganga
að hann ætlaði sér að mótmæla að-
gerðaleysi stjórnvalda á Austurvelli í
næstu viku.
n Næntís-popparinn Haddaway
mun heiðra og gleðja Íslendinga
með nærveru sinni á NASA í kvöld
og fjölmargir aðdáendur hans ætla
að leggja leið sína niður í bæ til
þess að bera „one hit wonderið“
augum. Einn þessara aðdáenda er
vöðvatröllið og hljómborðsleikar-
inn Gillzenegger sem heldur varla
vatni yfir poppstjörnunni. „Ég á lík-
legast eftir að stökkva upp á svið og
reyna að slumma hann,“ segir Gillz
á bloggi sínu. Kappinn þylur síðan
upp ævisögu Haddaways en varla
hef- ur nokkurs staðar
verið skrifað
jafnítarlega um
söngvarann og
á bloggi Gillz.
Hann heldur
einnig fram að
What is love? sé
eitt af þekkt-
ustu popplögum
í heimi ásamt Hey
Jude með Bítlunum
og It‘s my life með
Dr. Alban.
n Haffi Haff er nú kominn í sjöttu
vinnuna sína en fyrsti þátturinn af
I‘m Haffi á Monitor TV er nú kom-
inn á netið. Í þessum fyrsta þætti
skellir Haffi sér á lesbíuball á Q-
bar og reynir að pikka upp lesbíu.
Þættirnir eru í „sketcha“-formi og
verða eingöngu tæpar fjórar mínút-
ur á lengd. Haffi er svo sannarlega
einn mesti vinnuþjarkur landsins
en að auki starfar hann sem stílisti
á Vikunni, útvarpsmaður á Flass,
förðunarmeistari og stílisti hjá MAC
auk þess að vera að
vinna að sinni
fyrstu breiðskífu.
Hægt er að horfa
á I‘m Haffi á
heimasíðu
Monitors, mon-
itor.is
Í KenÍa með
villidýrum
reynir
við lesbÍur
Bubbi Morthens fékk milljón fyrir bestu lögin sín í Kassagerðinni:
HvalreKi Í Kreppunni
Bubbi er alltaf bestur í kreppu
og lætur nú heyra í sér víða og
tróð til að mynda upp í
kassagerðinni í gær fyrir milljón.
Ætlar að „slumma“
Haddaway