Dagblaðið Vísir - DV - 03.10.2008, Blaðsíða 36
Þegar ég var barn fylgdist ég mikið með fréttum og las blöðin upp til agna,“ seg-ir Þórhallur Gunnarsson,
dagskrárstjóri Sjónvarps og ritstjóri
Kastljóss, sem snemma fékk áhuga
á fréttum. „Pabbi var mikill fréttafík-
ill og var fréttatíminn heilög stund
á mínu heimili, það mátti helst ekki
tala á meðan á honum stóð. Ég
komst því að þeirri niðurstöðu að
fréttir væru stórmerkilegar.“
Rökræddi við foreldrana
Eftir að hafa fylgst með þeim
átökum sem áttu sér stað í dagleg-
um fréttum um tíma fór Þórhallur
smátt og smátt að fá aukinn áhuga
á stjórnmálum. „Ég fór að rökræða
um pólitíkina við foreldra mína, þau
Gunnar Þór Þórhallsson vélfræðing
og Lillý Guðbjörnsdóttur kennara
en þar sem þau voru vel að sér, eldri
og vitrari, voru þau fljót að slá mig út
af borðinu, en ég reyndi alltaf.“ Þór-
hallur segir föður sinn hafa haft mjög
sterkar skoðanir og lagði Þórhallur
því í vana sinn að vera ósammála
honum til þess eins að ná honum á
flug. „Stundum leiddi þetta til þess
að allt varð brjálað og daginn eftir
spurði ég stundum sjálfan mig: Var
þetta virkilega það sem mér fannst?“
Af rökræðunum dró Þórhallur
þó mikinn lærdóm sem honum hef-
ur nýst vel í starfi. „Í rauninni skiptir
ekki máli hvert málið er heldur að sjá
allar hliðar á því.“
Sjúklegur áhugi
Eitt mál hreyfði þó sérstaklega við
Þórhalli. „19. nóvember árið 1974,
dagurinn sem Geirfinnur hvarf, sit-
ur mér fast í minni. Ég gleymi því
aldrei þegar blaðið kom sem lýsti
eftir manni. Þá gerði ég mér auðvit-
að enga grein fyrir hvað myndi ger-
ast í framhaldinu.“ Þegar hæstarétt-
ardómarnir voru gefnir út í málinu
gerði Þórhallur sér ferð upp á Lands-
bókasafn til þess eins að komast yfir
þá og lesa. Þess má geta að Þórhallur
var aðeins unglingur. „Þarna byrjaði
einhvers konar sjúklegur áhugi hjá
mér á dagblöðum, mér fannst allt í
kringum þau svo spennandi.“
Þegar Þórhallur fór á sjóinn
nokkrum árum seinna segist hann
enn frekar hafa lært að meta góð
dagblöð. „Þetta gekk þannig fyrir
sig að þegar við komum í land feng-
um við öll þau blöð sem höfðu kom-
ið út á meðan við vorum til sjós og
þau þurfti maður að láta sér duga út
næsta túr. Þar af leiðandi las mað-
ur þau upp til agna.“ Þetta varð til
þess að Þórhallur áttaði sig á hversu
margar vel skrifaðar greinar leyndust
í blöðunum. „Í dag flettir fólk blöð-
um á ógnarhraða og fer þar af leið-
andi oft á mis við hinar bestu grein-
ar,“ segir hann.
Lífið tók u -beygju
Með þennan mikla áhuga á fjöl-
miðlum varð Þórhallur snemma
ákveðinn í að mennta sig á því sviði.
„Ég sótti um skóla bæði í Bandaríkj-
unum og í Bretlandi og komst inn í
þá báða. Bandaríkin freistuðu og var
stefnan því tekin þangað.“ Rétt áður
en Þórhallur ætlaði út breytti lífið
hins vegar um stefnu með þeim af-
leiðingum að hann setti námið á bið.
„Dóttir mín Gunnur kom í heiminn
og má því segja að plönin hafi aðeins
breyst, sem betur fer,“ segir Þórhallur
og ljómar. Hann sótti því um í Leik-
listarskóla Íslands og komst þar inn
og hóf nám þrátt fyrir að áhuginn
lægi annars staðar.
Spurður hvort námið hafi ekki
reynst honum vel síðar meir í heimi
fjölmiðlanna segir hann það örugg-
lega svo. „Ég er ekki mjög meðvitað-
ur um það en án efa hefur reynslan
úr skólanum hjálpað mér töluvert.
Eflaust hefur þetta komið út í formi
þess að ég hef átt auðvelt með að
hjálpa öðrum þegar kemur að sviðs-
framkomu og sviðskrekk.“ Þórhall-
ur leggur einnig áherslu á að maður
leiki seint í fjölmiðlum. Þar gildi að
vera sannur sjálfum sér.
Tólf ára í útvarpinu
Fyrsta reynsla Þórhalls af störfum
við fjölmiðla var áður en hann komst
í fullorðinna manna tölu. „Aðeins
tólf ára gamall var ég beðinn um að
lesa jólakveðjur á Rás 2,“ segir hann
og hlær. „Það var mikil upplifun að
koma inn í stúdíó og finna fyrir öllum
þjóðþekktu röddunum sem þarna
höfðu hljómað sem og finna lyktina
þarna innandyra, sem var sérstök.“
Síðar meir varð það útvarpsþátt-
urinn Glataðir snillingar á Rás 2 sem
varð hin raunverulega frumraun Þór-
halls. „Ég og Fjalar Sigurðsson vinur
minn slógum á létta strengi í þessum
frábæra þætti að okkar mati og vor-
um svo hápólitískir þess á milli. Okk-
ur fannst við ógurlega sniðugir en út-
varpsráð var ekki alveg á sama máli.“
Í framhaldi af útvarpsþættinum
byrjaði Þórhallur með þátt í sjón-
varpinu ásamt fjölmiðlakonunni
Súsönnu Svavarsdóttur. Þar fjölluðu
þau um mörg hitamál þjóðfélagsins,
samanber mál eldri borgara, ein-
elti og samskipti kynjanna. Þáttur-
inn sem fékk gífurlegt áhorf var mjög
umdeildur að sögn Þórhalls. „Sumir
fussuðu og sveiuðu yfir okkur, aðrir
nutu þess að horfa á okkur og aðrir
horfðu eingöngu á okkur í þeim til-
gangi að hneykslast,“ segir Þórhallur
sem virðist hafa gaman af því að rifja
upp þessi fyrstu ár ferilsins.
Lét drauminn rætast
Eftir viðkomu bæði í útvarpi og
sjónvarpi ásamt því að hafa verið
fastráðinn leikari í Borgarleikhús-
inu í ein fimm ár var komið að því að
láta gamlan draum rætast. Þórhall-
ur hélt því til London þar sem hann
hóf mastersnám í sjónvarpsfrétta-
mennsku. „Þetta var svolítið frels-
andi tími og bara frábær í alla staði
enda búinn að ganga með þennan
draum í maganum lengi.“
Þórhallur hefur þægilega nær-
veru og státar af einstaklega öruggri
framkomu og skal því engan undra
að hann hafi verið ráðinn á Stöð 2
strax að náminu í sjónvarpsfrétta-
mennsku loknu. Ásamt Jóhönnu Vil-
hjálmsdóttur stjórnaði hann morg-
unsjónvarpinu í tvö farsæl ár. Úr
morgunsjónvarpinu hélt dúettinn
vinsæli í Ísland í dag þar sem hann
hélt áfram að gleðja áhorfendur með
nærveru sinni í tvö ár til viðbótar.
Þrátt fyrir mikla velgengni á Stöð
2 hikaði Þórhallur ekki við að taka
nýju atvinnutilboði þegar breyting-
ar urðu á stöðinni. „Sjónvarpsstöð-
in NFS varð til og mér leist satt best
að segja mjög illa á þá hugmynd að
stofna einhverja hliðarsjónvarpsstöð
sem gerði ekkert annað en að þynna
út það efni sem fyrir var á Stöð 2. Mér
hefði fundist réttast á þessum tíma
að styrkja Stöð 2 og þá þætti sem þar
voru.“
Ný tækifæri
„Fljótlega eftir að Páll Magnússon
tók við sem útvarpsstjóri RÚV bauð
hann mér vinnu sem ritstjóri Kast-
ljóssins. Ég tók því boði og hafði að-
eins eina tíu daga til að búa til nýjan
þátt. Það tók alla tíu dagana að kynn-
föstudagur 3. október 200836 Helgarblað DV
Dagskrárstjóri Sjónvarps og
ritstjóri Kastljóss Þórhallur gunnars-
son gegnir stóru hlutverki hjá rÚV.