Dagblaðið Vísir - DV - 03.10.2008, Page 18
föstudagur 3. október 200818 Helgarblað
„Það hefur verið mjög þungt hljóð í
mörgum. Fólk er hreinlega orðið ótta-
slegið um framtíð sína og fjölskyldu
sinnar. Ef stjórnvöld grípa ekki til að-
gerða munu mörg heimili ekki ráða
við ástandið.“
Jóhann bendir á að tilbúið sé
frumvarp Björgvins G. Sigurðsson-
ar viðskiptaráðherra um greiðslu-
aðlögun. Ef frumvarpið verður að
lögum geta heimili sem komin
eru í greiðsluþrot af óviðráðanleg-
um ástæðum, svo sem þeim geng-
issveiflum sem nú koma illa við
marga, fengið metið hversu stóran
hluta höfuðstóls lána það getur ráðið
við. Ef niðurstaðan yrði sú að heim-
ili gætu aðeins greitt um 60 prósent
yrðu allar skuldir þess lækkaðar sem
því nemur. Fyrirmynd að slíkum lög-
um er sótt til hinna Norðurlandanna
þar sem gjaldþrotum fækkaði gífur-
lega í kjölfar lagasetningarinnar.
„Ég veit að viðskiptaráðherra er
mjög umhugað um þetta mál og að
það fái afgreiðslu hratt,“ segir Jó-
hannes sem skorar á Björgvin að
leggja frumvarpið fram sem allra
fyrst á nýsettu Alþingi.
Jóhannes segir alla græða á því ef
frumvarpið yrði að lögum. „Heimil-
islífið gæti haldið áfram án þess að
fólk þyrfti að lýsa sig gjaldþrota og
stunda svarta vinnu, lánveitendur
fengju meira af skuldinni greitt til
baka. Það er sama hvort litið er til
lánveitandans, einstaklingsins eða
þjóðfélagsins. Allir græða.“
Hann leggur áherslu á að það
þurfi að bjarga heimilunum og
stjórnvöld megi ekki láta sitt eft-
ir liggja þar. „Það er ekki nóg að
bjarga bönkum og fyrirtækjum.“
Milljónahækkun lána
tuttugu milljóna króna íbúðalán
hefur hækkað um tvær milljónir á
einu ári þrátt fyrir að greitt hafi
verið af því mánaðarlega.
Mynd Stefán KarlSSon
„Ef íslenska krónan styrkist ekki
fljótlega og verulega þurfa stjórn-
völd að undirbúa sértækar aðgerðir
til að bjarga fjölskyldunum í landinu
og ég nefni þá sérstaklega það fólk
sem er með íbúðalán sín í erlendum
gjaldmiðlum.“