Dagblaðið Vísir - DV - 03.10.2008, Side 21

Dagblaðið Vísir - DV - 03.10.2008, Side 21
föstudagur 3. október 2008 21Umræða Þegar maður á ekki orð yfir ástandið og langar ekki einu sinni til að tala um það er svo skrýtið hvernig þjóð- sögurnar detta inn með allar sínar dæmalausu líkingar. Þessi stutta tröllasaga sem fylgir hér á eftir hefur gengið á milli fólks og skipt um merkingu eftir því hve- nær hún er sögð og hvernig vindur- inn blæs. Mér verður oft hugsað til hennar og í dag finnst mér hún fjalla um heimsku nýfrjálshyggjunnar sem hefur vaðið uppi með alla sína dynti, frjáls eins og fuglinn sem stel- ur úr annarra hreiðrum, fyrirhyggju- laus um allt nema sjálfa sig enda ein- göngu með það markmið að sletta í góm sinnar truntulegu græðgi. En svona er þjóðsagan: Einu sinni voru tröllahjón með börnin sín tvö á göngu um landið. Þegar á leið þrammið og tröllin voru orðin vegamóð og þreytt datt þeim í hug að skjótast í kirkju, hvíla lúin bein og safna þreki til áframhald- andi ferðar. Fljótlega álpuðust þau fram á guðshús og hugsuðu sér gott til glóðarinnar að setjast niður um hríð. Þegar hér er komið sögu verður að geta þess að tröll mega alls ekki tala í kirkju vegna þess að geri þau það breytast þau í steina. Nema hvað, tröllafjölskyldan einsetti sér að passa nú trantinn og þegja á meðan á messu stæði og gúffa bara í sig nestið sitt – en flest- ir vita að tröll eru bæði sísvöng og gráðug. Þegar messan var svo hálfn- uð týndi tröllastákurinn vitrænunni – flestir vita líka eru tröll ekki miklar mannvitsbrekkur – beygði sig smjatt- andi að systur sinni og hvíslaði: – Hallast lína á höfði þínu, Hall- freða systir mín góð. Þá svaraði tröllastelpan og tróð kjamma í kjaft: – Vel sé þér, Bokki bróðir, að þú segir mér til lýta minna. Tröllamóðirin sem kjamsaði á pungi gat ekki þagað og sagði: – Bláfleðill, bóndi minn, heyrir þú hvað börnin okkar eru að segja? Og bóndanum Bláfleðli blöskr- aði, lagði frá sér sláturkepp og sagði: – Leppasvunta, láttu þau þegja. En nú hafði hið voðalega gerst, tröllin höfðu öll talað í kirkjunni og það var ekki að sökum að spyrja: Þegar þau komu út undir bert loft breyttust þau öll í steina. Og þar standa þau enn steinrunnin beint fyrir framan kirkjuna og þeir sem ekki trúa þessu geta sannreynt það með því að skoða alla hnullunga sem híma fyrir framan íslenskar kirkjur og eitt er víst: Það þarf ekki að leita lengi til að finna tröllafjöl- skylduna sem kunni ekki að gæta sín vegna þess að heimskan og grægin, þær leiðindasystur, réðu öllu henn- ar æði. Þegar harðnar á dalnum má allt- af skilja þjóðarsálina með því að lesa sögurnar hennar. Í þeim ligg- ur nefnilega arfur sem er gulli betri og mun endanlegri en loftbólur nýfrjálshyggjunnar í hlutabréfum bankanna. Þannig er það. Hver er konan? „Hress og oftast kát í blóma lífsins.“ Hvað drífur þig áfram? „Hef ekki hugsað út í það. Líklega áhugi á mörgu og ögranir. kannski bara gleð- in yfir því að hafa orðið til og mega taka þátt í lífinu þegar öllu er á botninn hvolft.“ Hver er uppáhaldssjónvarps- þátturinn þinn? „Ég horfi lítið á sjónvarp þó að þar sé margt skemmtilegt á boðstólum.“ Hvert var uppáhaldsleikfangið þitt sem krakki? „Það var allt eftir aldri. fannst alltaf gaman í útileikj- um.“ Hvað er lúxus í þínum augum? „Næði í faðmi náttúrunnar.“ Hvað ertu búin að vera forstjóri Krabbameinsfélagsins lengi? „síðan í júní 1992.“ Skilar átakið árangri? „Það vona ég sannarlega. Þessi bleiki litur sem er svo sýnilegur í október minnir konur á að mæta í brjóstakrabba- meinsleit og hún er svo mikilvæg forvörn. Þetta er árveknisátak og konur eru miklu duglegri að mæta í október en endranær. síðan er þetta einnig fjáröflunarátak og að þessu sinni beinist það að því að ljúka söfnun fyrir endurnýjun tækjabúnað- ar á Leitarstöðinni. til þess þurfum við að selja 40.000 bleikar slaufur. salan á þeim gengur mjög vel, þær rjúka út. Ég vona bara að allir fái slaufu sem vilja.“ Hvernig kom það til að þú fórst að starfa fyrir Krabbameinsfé- lagið? „Ég byrjaði sem sjálfboðaliði í stjórn félagsins 1988 og lét svo tilleiðast að taka að mér starf forstjóra í hlutastarfi ásamt öðrum störfum um tíma. Þetta hefur undið upp á sig og nú vinn ég hér eingöngu að fjölbreyttum og áhugaverðum verkefnum.“ Eru Íslendingar meðvitaðir um átakið? „Já, og það nýtur mikils velvilja og stuðnings enda málstað- urinn góður. fólk skilur mikilvægi hans. fyrir það erum við þakklát. flestir vita nú að bleika slaufan er einkennismerki baráttunnar gegn brjóstakrabbameini í októbermánuði og að krabbameinsfélagið nýtir hana fyrir þann málstað.“ Hvort styður þú Söruh Palin eða Joe Biden? „Þekki hvorugt en styð fremur það sem Joe biden stendur fyrir.“ Snar í snúningum ökumaður bifreiðar sem kviknaði í við Holtagarða um hádegisbilið í gær getur þakkað eigin snarræði fyrir að hann slasaðist ekki. bíllinn var á ferð og um leið og eldurinn kviknaði keyrði ökumaðurinn út í kant og stökk út. bifreiðin varð snögglega alelda en slökkvilið kom fljótt og slökkti eldinn. Mynd Sigtryggur Ari JóHAnnSSon Hvað finnst þér um þjóðstjórnarHugmynd davíðs OddsOnar? „Í grunninn finnst mér æskilegt að hafa einhvern hagfræðing í seðlabankan- unm og það væri ágætt ef seðlabanka- stjórinn hefði eitthvað meira til efnhagsmálanna að leggja en svona uppástungur. Helst vildi ég að þetta væri vettvangur bestu hagfræðing- anna frekar en eftirlaunadjobb uppgjafa pólitíkusa.“ VAlur gunnArSSon, 32 ára ritHöfuNdur „eins og ég skil það sem hann er að segja er verið að stuðla að alþjóðavæð- ingu sem ég er alfarið á móti. Það er bara verið að skipta heiminum upp í gull-, silfur- og bronsstéttir á meðan það ætti að færa valdið til fólksins.“ gunnAr BJörgVinSSon, 26 ára strætóbÍLstJóri „saknar davíð þess ekki bara að stjórna meiru? Mér sýnist hann bara að vera að bjóða sig fram til þess að stjórna landinu aftur.“ Jón trAuSti SigurðArSon, 26 ára LögfræðiNeMi „eru þetta ekki síðustu orð uppgjafa- stjórnmálamanns? Maður veltir fyrir sér hvort fólk viti hverjir sitja í stjórn seðlabankans. Þarna eru Hannes Hólmsteinn og Halldór blöndal. af hverju eru þessir menn ekki búnir að segja af sér? annars er það kaldhæðin tilviljun að ári eftir að Jöklu var sökkt var glitnir þjóðnýttur. Þetta er bara hefnd Jöklu.“ ElÍSABEt JöKulSdóttir, 50 ára LJóðskáLd Dómstóll götunnar „Ég veit ekki um þetta, ég held að þeir ráði ekki við ástandið. Mér sýnist þeir allir vera imbar sem fara með völdin. Ég veit ekki lengur hvorir eru vitlausari, ríkisstjórnin eða þeir sem stjórna seðlabankanum.“ SæVAr SigurJónSSon, 71 árs eLLiLÍfeyrisÞegi kjallari mynDin guðrún AgnArSdóttir, forstjóri krabbameinsfélagsins, segir söluna á bleiku slaufunni ganga vel og að þær rjúki út. Byrjaði sem sjálfBoðaliði maður Dagsins VigdÍS grÍMSdóttir rithöfundur skrifar „Í dag finnst mér hún fjalla um heimsku nýfrjálshyggj- unnar sem hefur vaðið uppi með alla sína dynti, frjáls eins og fuglinn sem stelur úr annarra hreiðrum.“ Tröllafans og truntugræðgi

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.