Dagblaðið Vísir - DV - 03.10.2008, Side 29
Konan
GönGum til Góðs
Rauði krossinn skorar á fólk að gerast sjálf-
boðaliðar í klukkustund laugardaginn 4.
október og Ganga til góðs fyrir landssöfnun
Rauða krossins. Söfnunarféð rennur óskert
í verkefni til að sameina fjölskyldur í Kongó
sem hafa sundrast vegna stríðsátaka. Fólk
sem vill Ganga til góðs með Rauða krossin-
um fyrir gott málefni er hvatt til að skrá sig á
raudikrossinn.is eða í síma 570 4000. UmSjón: KOLBRÚn pÁLÍnA hELGADóTTIR kolbrun@dv.is
Í þeirri kreppu sem skollin er á er nauðsynlegt að bregðast við, halda að sér höndum og
breyta um lífsstíl. DV tók saman nokkur ráð og hugmyndir að því hvernig hægt er að
spara en um leið styrkja fjölskylduböndin og láta sér líða vel.
Hvað borðar þú í morgunmat?
„Ég borða ýmist próteinsjeik með
ávöxtum, hafragraut eða
hirsigraut með sojamjólk og
banana.“
Hvar líður þér best?
„heima með syni mínum.“
Hvernig heldur þú þér í formi?
„mér finnst skemmtilegast að lyfta.
Er að byrja núna aftur af fullum
krafti. mér líður rosalega vel þegar
ég hef tekið hressilega á því. Síðan
reyni ég að hjóla eins mikið og ég
get og fara í skvass þegar mér
tekst að finna makker í það.“
Hvaða snyrtivörur notar þú
dagsdaglega?
„Kanebo-bronsinggelið og
maskara fyrir utan öll kremin og
hreinsigræjurnar sem flest eru frá
La praire sem hentar vel minni
húð.“
Hvar kaupir þú helst föt?
„hvar sem er falleg föt að finna á
þokkalegu verði“.
Hvað gerir þú þegar þú vilt
dekra við sjálfa þig?
„Þá kveiki ég á kertum heima hjá
mér, lita mig og plokka, set á mig
andlitsmaska og fer í fótabað fyrir
framan góða bíómynd. Veit fátt
betra á föstudagskvöldi.“
Hvert er þitt helsta
fegurðarráð?
„nægur svefn og hreint og hollt
mataræði. Ég borða mikið af fiski
nú í seinni tíð sem virkar vel. Ég er
líka hætt að spara við mig í góðum
andlitskremum. Þau hafa sitt að
segja.“
Gott oG Gaman í
kreppunni
Vinnið Heimilisstörfin saman
Í stað þess að fá konu til að skúra eins og al-
gengt er orðið ætti öll fjölskyldan að hjálpast að
við húsverkin og spara þar af leiðandi aurinn í
leiðinni.
Búið til einn skipulagðan hreingerninga-
dag í viku eða bara einn seinnipart þar sem all-
ir fjölskyldumeðlimir fá verkefni og leggja sitt
af mörkum. Á stórum heimilum getur skapast
góð stemning við þrifin og ekki sakar að hafa
góða tónlist á fóninum. Í stað þess að borga ut-
ankomandi aðila fyrir þrifin getur fjölskyldan
lagt sambærilegan pening fyrir í ferðasjóð fyrir
fjölskylduna.
nýtum matinn betur
Samkvæmt könnun sem Sorpa og fleiri gerðu í
maí kom í ljós að Íslendingar henda mat fyrir 3,4
milljarða á ári. Talið er að matur fyrir 811 krón-
ur lendi í ruslinu í hverri viku á hverju heimili
og það er þá oftast kál eða salat. Það er mikil-
vægt að henda ekki matnum heldur reyna að
nýta hann. Þegar ávextirnir eru orðnir slappir
er sniðugt að frysta þá. Hægt er að skera ávext-
ina í bita, frysta þá og nota þá seinna í skyr-
hristinga. Þegar bananarnir eru orðnir brúnir
þarftu ekki að henda þeim heldur skaltu frekar
stinga þeim í frystinn. Banana er hægt að nota
í bananabrauð og fleira sniðugt. Þegar avóka-
dóið, mangóið og spínatið er farið að láta á sjá
er hægt að stinga því í frystinn og nota í skyr-
hristinga og hægt er að steikja spínatið. Einnig
er ágætt að venja sig á að taka afganga með sér
til vinnu daginn eftir og spara sér þannig pen-
inginn í mötuneytinu.
búið til matseðil fram í tímann
Nú þegar matvælaverð hækkar gríðarlega er
tími til að spá í matarkostnaðinn. Farðu í Bón-
us einu sinni í viku og kauptu eins mikið og þú
getur. Skoðaðu tilboð, kauptu og frystu. Fáðu
fjölskyldumeðlimi til að verja með þér kvöld-
stund í að skoða uppskriftir og ákveða matseðil
fram í tímann. Allir geta komið með hugmyndir
og matseðillinn þar af leiðandi orðið skemmti-
lega fjölbreyttur. Fólk sem vinnur mikið lendir
í því að þurfa að versla í dýrari búðunum eft-
ir að lágvöruverðsverslunum hefur verið lokað.
Laugardagar geta verið innkaupadagar.
tökum slátur
Af einhverjum ástæðum hefur sláturgerð átt
undir högg að sækja undanfarin ár eins gott og
það nú er. Hjálpumst að við að halda hefðum
eins og sláturgerð við og lærum það af þeim
sem eldri og reyndari á þessu sviði eru. Bjóddu
konunum úr fjölskyldunni heim og gerið ykk-
ur glaðan dag við sláturgerð. Bæði börn sem og
fullorðnir kunna vel að meta þennan íslenska
mat á köldum vetrarkvöldum.
sultum
Sultutíðinni er við það að ljúka en þó ber að
minnast á sultugerð í þessum kreppuráðum.
Bjóðið fjölskyldunni í berjamó, tínið í nokkra
veglega poka og búið til úrval af góðri sultu fyr-
ir veturinn. Notið afgangana í bakstur og út á
skyr með rjóma. Einnig má frysta berin og nýta
í skyrhristinga.
bökum
Á tímum sem þessum er tilvalið að baka meira
af brauði og sætabrauði til að eiga. Því er hægt
að stinga í frystinn og það er ekki lengi að þiðna
ef gestir koma óvænt í heimsókn. Það er miklu
ódýrara en að fara í bakaríið. Sniðugt er að
baka brauð, flatkökur, kanilsnúða, brauðboll-
ur og bara allt sem hugurinn girnist. Gott er að
fá hjálparhönd frá börnunum því ekki leiðist
þeim að fá að taka þátt í eldhússtörfunum.
bjóðið fjölskyldunni
í spilakVöld
Í stað þess að fara í bíó eða annað sem kost-
ar dágóðan skilding fyrir stóra fjölskyldu skaltu
frekar bjóða til spilakvölds. Hér áður fyrr var
mikið um að vinahópar og fjölskyldur spiluðu
saman og fengu ungir sem aldnir að taka þátt.
Hægt er að búa til hinar ýmsu spilakeppnir eða
bara taka því rólega og spila olsen olsen.
leikum Við börnin
Það þarf ekki alltaf að fara eitthvað, kaupa eitt-
hvað eða gera eitthvað sem kostar peninga.
Njótum þess að vera heima um helgar og leik-
um við börnin okkar. Kennum þeim leikina
sem við lærðum ung að aldri og hjálpum þeim
að nota hugmyndaflugið við að búa til sína eig-
in. Haldið náttfatapartí, föndrið saman, farið í
göngutúra með nesti og búið til skemmtileg-
ar fjölskylduhefðir án þess að þær kosti heilan
helling.
tilvalið að baka Eitthvað
sem allir í fjölskyldunni geta
tekið þátt í og börnin hafa
sérstaklega gaman af.
bónus býður betur Það getur
munað heilum helling að versla
þar sem maturinn er ódýrastur,
sérstaklega ef þú ert að kaupa
fyrir alla vikuna.
FöSTUDAGUR 3. OKTóBER 2008 29Konan
katrín júlíusdóttir
ALÞInGISmAðUR
GÓÐ ANDLITS-
KREM SEGJA SITT