Dagblaðið Vísir - DV - 03.10.2008, Síða 41
föstudagur 3. október 2008 41
Tilboð í október
Litun og plokkun
Tilboðsverð = 2.800.-
Verð áður = 3.700.-
Allar GOSH snyrtivörur með 10% afsl.
Allar aðrar meðferðir með 12% afsl.
! Alla fimmtudaga og föstudaga fram í nóvember verða nemar
! Alla fimmtudaga og föstudaga fram í nóvember verða nemar
hjá okkur á stofuni. Þegar að pantaðir eru tímar hjá
snyrtifræðingum á stofuni er hægt að fá aðra meðferð
samtímis með 30% afsl hjá nemanum.
„Verið velkomin í hlýlegt og róandi umhverfi
og látið streituna líða úr ykkur í amstri
dagsins“
Við erum staðsett í Glæsibæ!
Sími: 517-9291
Allar nánari upplýsingar er hægt að finna á www.vilji.is
Einnig er hægt að senda okkur póst á vilji@vilji.is
Helgarblað
hann mikill rekstrarmaður og hann
treysti því ekki neinum betur til að
leysa þá stöðu sem upp er komin hjá
Glitni. Augljóst sé hins vegar að ekki
allt sé á hans forræði í þeim málum.
Rak áhöfn í reiðikasti
Spurður út í skapið stóra sem
flestir nefna kvittar Konráð Alfreðs-
son undir það. „Hann er líka kom-
inn af þannig kyni. Hann rýkur upp,
en það fer fljótt úr honum.“ Skapofsi
Þorsteins hefur jafnvel orðið til þess
að hann rak heilu áhafnirnar. Konráð
kann eina sögu af slíku.
„Þorsteinn vildi einu sinni að
Akureyrin færi strax aftur út eftir
að hún var búin að landa úr ein-
um túrnum. Þá kom upp ágrein-
ingur um hvort þetta væri löglegt
samkvæmt túlkun á kjarasamningi,
en þetta var í raun ólöglegt sam-
kvæmt hljóðan samningsins. Ég var
staddur uppi í brú skipsins ásamt
áhöfninni, þar á meðal Þorsteini
Vilhelmssyni skipstjóra. Þá kom
Þorsteinn Már inn og sagði: „Það
eru allir reknir!“ Hann var gjörsam-
lega snældubrjálaður. Það tók smá
tíma að settla þetta en að lokum
fengu allir plássið aftur nema einn.
Honum leið betur með að láta ekki
einn fá pláss. En hann fékk plássið
nokkrum mánuðum seinna,“ segir
Konráð og hlær.
Brimöldurnar sem gengið hafa
yfir Þorstein Má undanfarna viku
finnst Konráð hann hafa staðið vel
af sér. „Mér finnst hann hafa komið
vel út úr þeim viðtölum sem hann
hefur verið í. Ég veit svo sem ekki
hvað ég á að tjá mig mikið um þetta
Glitnismál, en ég er einn af þeim
sem eru hallir undir samsæris-
kenningarnar. Mér finnst það ekki
spurning að hann var blekktur og
svikinn.“
Ekki maður uppgjafar
Konráð er fljótur að svara þegar
hann er spurður hvort hann sjái fyr-
ir sér að Þorsteinn segi skilið við fjár-
málaheiminn í kjölfar fíaskósins sem
hófst fyrir um viku. „Þorsteinn Már
er ekki maður uppgjafar. Ef hann sér
að hann gæti gert einhverja hluti sem
koma þessu á réttan kjöl aftur verður
hann þarna áfram.“
Og Konráð er ekki á því, eins og
sumir viðmælenda blaðsins, að Þor-
steinn eigi endilega að halda sig við
sjávarútveginn. „Hann er feikilega
góður í sjávarútvegi og það vita allir
hvað hann getur þar. En þetta er ekki
bara að veiða, þetta er líka bisness.
Og ég held að hann kunni ýmislegt
fyrir sér í bisness.“
Þrátt fyrir að hafa verið innmúr-
aður sjálfstæðismaður í gegnum
tíðina hefur Þorsteinn ekki verið á
lista flokksins í kosningum. Konráð
Alfreðsson segir enda að hann yrði
afleitur stjórnmálamaður. „Hann
er ekki sú týpa. Hann er til dæmis
of skapmikill fyrir það.“ Til marks
um hversu berlega Þorsteinn læt-
ur óánægju sína í ljós má benda
áhugasömum á að fylgjast með Þor-
steini þegar Þórhallur Gunnarsson
kynnir inn viðtalið við hann í Kast-
ljósinu síðastliðinn þriðjudag sem
sjá má á vef ríkisútvarpsins. Þór-
hallur rangfeðrar þar Þorstein, seg-
ir hann Vilhjálmsson, sem verður til
þess að sægreifinn lemur í borðið og
lætur einnig í ljós gremju sína með
stuttu en kraftmiklu hrópi. Hrópi
sem hvaða skipstjóri sem er gæti
verið stoltur af.
Fleyg eru orð Þorsteins: „Guggan verður áfram gul og gerð út frá Ísafirði.“ Þau stóðust ekki og að sögn kunnugra særir
það Þorstein mjög ef einhver rifjar upp þá staðreynd í hans áheyrn.
Þá kom Þorsteinn Már
inn og sagði: „Það eru
allir reknir!“ Hann var
gjörsamlega snældu-
brjálaður. Það tók smá
tíma að settla þetta en
að lokum fengu allir
plássið aftur nema einn.