Dagblaðið Vísir - DV - 03.10.2008, Síða 45
föstudagur 3. október 2008 45Helgarblað
Frægustu
Suðurnesja-
mennirnir
Leoncie
Indverska prinsessan Leoncie, eða Icy spicy eins og hún hefur
stundum kallað sig, er líklega þekktust fyrir lögin Ást á
pöbbnum, killer in the Park og Come on Victor. Leoncie bjó í
nokkur ár í sandgerði en varð hins vegar fyrir það miklum
fordómum þar í bæ að hún sá sér ekki annað fært en að flytja
úr bænum. reyndar gerði Leoncie meira en að flytja úr
bænum því hún yfirgaf Ísland og síðast þegar fréttist vann
hún ötullega að frægð og frama á breskri grundu.
Þorsteinn Eggertsson
ef Halldór Laxness er rithöfundur Íslands mætti kalla Þorstein
söngtextahöfund Íslands. Íslenskir tónlistarmenn hafa sóst
eftir textum frá honum við lög sín í áratugi og er nú svo komið
að Þorsteinn hefur samið fleiri texta en aðrir textahöfundar á
Norðurlöndum, að því er hann sjálfur greinir frá á vefsíðu
Poppminjasafns Íslands. rúmlega fjögur hundruð þeirra hafa
verið gefnir út á hljómplötum og geisladiskum. Þorsteinn, sem
er frá keflavík, er til að mynda textahöfundur margra laga
Hljóma auk þess að hafa samið ekki síðri lög en rabbabara
rúna, er ég kem heim í búðardal og fjólublátt ljós við barinn.
Vilhjálmur Vilhjálmsson
og Ellý Vilhjálmsdóttir
Á síðustu metrum síðari heimsstyrjaldar kom lítill drengur í
heiminn í Höfnum á suðurnesjum. drengurinn átti systur sem var
tæpum áratug eldri og átti eftir að verða ein ástsælasta söngkona
þjóðarinnar. en ef eitthvað var snart pilturinn fleiri strengi í hjarta
landsmanna þegar hann fór að láta að sér kveða á söngsviðinu með
lögum eins og Lítill drengur, söknuður og bíddu pabbi. Hann lést
hins vegar langt um aldur fram, einungis þrjátíu og þriggja ára að
aldri, í bílslysi í Lúxemborg. Þetta eru að sjálfsögðu Vilhjálmur
Vilhjálmsson og stóra systirin ellý Vilhjálms. um hana segir Þorsteinn
eggertsson textahöfundur að þótt hún hafi aldrei lært að lesa
nótur gat hún sungið beint eftir nótum lög sem hún hafði
aldrei heyrt áður þar sem hún var bæði óvenjulega
músíkölsk og fluggreind. ellý söng lengi með kk
sextettinum og ragga bjarna og á meðal
eftirminnilegustu laganna sem ellý söng
inn á plötu er hið undurfagra sveitin
milli sanda.
Kalli Bjarni
grindvíkingurinn karl bjarni guðmundsson varð stjarna á
einni nóttu þegar hann vann fyrstu Idol-stjörnuleitina á
stöð 2 árið 2003. en því miður fyrir þennan fína söngvara
hefur kalli bjarni ekki verið á síðum blaðanna og sjónvarps-
skjá landsmanna undanfarin misseri vegna sönghæfileik-
anna, heldur vegna eiturlyfjafíknar sinnar og fíkniefna-
smygls. Hann afplánar nú dóm á kvíabryggju þar sem hann
nýtir tímann til að semja lög og skrifa barnabók.
Jón Ólafsson
athafnamaðurinn og milljónamæringurinn Jón ólafsson er
keflvíkingur í húð og hár. Ýmsum sögum fer af vafasömu
hátterni hans á árum áður (úpps, nú verður blaðið örugglega
dregið fyrir dómstóla ... sem betur fer er þetta þó ekki á
ensku) en Jón þótti einnig ágætis tónlistarmaður. seinna
sneri hann sér að plötútgáfu undir merkjum skífunnar,
fjölmiðlarekstri og fleiru. undanfarin misseri hefur Jón svo
verið að hasla sér völl á vatnsmarkaðnum og telja margir að
hann eigi eftir að auka enn við auðæfi sín á þeim vettvangi.
Jóhann R. Benediktsson
einn umtalaðasti maður landsins síðustu vikurnar. eins og í
tilviki annþórs er Jóhann ekki suðurnesjamaður að upplagi
(fæddur og uppalinn í kópavogi) en þar sem hann tengist
þessum hluta landsins órjúfanlegum böndum sleppur hann
inn á listann. Jóhann hefur gegnt embætti sýslumanns á
suðurnesjum, og þar áður sýslumannsins á keflavíkurflug-
velli, síðustu ár við afar góðan orðstír. Vegna deilna við björn
bjarnason dómsmálaráðherra, sem urðu til þess að
ráðherrann auglýsti stöðu sýslumanns lausa til umsóknar,
sagði Jóhann upp störfum.
Teitur Örlygsson
suðurnesin hafa fætt af sér margar körfuboltastjörnurnar.
Má þar nefna sigurð og Val Ingimundarsyni, Jón kr.
gíslason, guðmund bragason, guðjón skúlason, fal
Harðarson og Helga Jónas guðfinnsson. en þegar velja á
einn úr er eiginlega óhjákvæmilegt að tína út Njarðvíking-
inn teit örlygsson, sigursælasta körfuknattleiksmann
Íslands frá upphafi. Á árunum 1984 til 2002 vann hann tíu
titla með Njarðvíkurliðinu, fleiri en nokkur annar hefur gert
hér á landi samkvæmt Wikipedia (þess ber að geta að
samkvæmt sömu heimild vann agnar friðriksson Ír tíu titla
í 1. deild karla, forvera úrvalsdeildarinnar). teitur lék 405
deildarleiki með Njarðvík og skoraði í þeim 6.579 stig, eða
16,2 stig að meðaltali í leik. teitur var fjórum sinnum valinn
leikmaður ársins í úrvalsdeild, oftar en nokkur annar
leikmaður hér á landi.