Dagblaðið Vísir - DV - 03.10.2008, Blaðsíða 46
föstudagur 3. október 200846 Sport
Sport Öll augu á Hull eftir frækinn sigur um síðustu helgi á arsenal munu sparkspekingar fylgjast grannt með Hull þegar það heim-sækir tottenham í enska boltanum um helgina. Hull gerði sér lítið fyrir og lagði arsenal, 2-1, á útivelli um síðustu helgi og fer nú á White Hart Lane þar sem það mætir tottenham. eftir sex leiki hefur Hull unnið þrjá og situr í 6. sæti deildarinnar með ellefu stig. Það var kannski frekar það sem búist var við af tottenham fyrir tímabilið. en tottenham situr rótfast á botni deildarinnar með tvö stig eftir sex leiki. aðeins gert tvö jafntefli og tapað fjórum leikjum.
„...Höfum unnið titilinn oftast, bik-
arinn oftast, erum bestir á Íslandi,“
syngur Miðjan, stuðningsmannafélag
KR, glatt um sitt lið á leikjum vestur-
bæjarstórveldisins. Þó deila megi um
hvort KR sé besta lið á Íslandi verður
ekki deilt við fyrri hluta lagsins. KR
hefur unnið Íslandsmeistaratitilinn
oftast allra liða og bikarmeistaratitil-
inn einnig, alls tíu sinnum af fjórtán
ferðum í úrslitin.
Fjölnir átti ótrúlegt bikarár í fyrra.
Liðið sem lék þá í 1. deildinni komst
alla leið í úrslit og veitti þar FH mikla
mótspyrnu. Leikar réðust ekki fyrr
en í framlengingu þar sem Matthías
Guðmundsson skoraði sigurmarkið.
Fjölnir lagði KFS, ÍBV og Fylki á leið
sinni í úrslitin. Leikurinn gegn þeim
síðastnefndu var einn af leikjum árs-
ins þar sem Fjölnir skoraði sigurmark-
ið, 3-2, eftir að hafa lent 2-0 undir.
Stemningslið
Gunnar Már Guðmundsson, fyr-
irliði Fjölnis, skoraði í bikarúrslita-
leiknum í fyrra. Hann skoraði einn-
ig gegn Fylki í undanúrslitunum en
hann átti frábært tímabil á sínu fyrsta
ári í Landsbankadeildinni. „Þessi
Fylkisleikur hafði allt að bera til þess
að verða lélegasti leikur ársins,“ segir
Gunnar spurður um þennan magn-
aða leik. „Bæði við og Fylkir vorum í
mikilli lægð þarna, við búnir að tapa
einhverjum fimm leikjum í röð. En
þetta var svona týpískur bikarleikur
og sigurinn gaf okkur virkilega mik-
ið,“ segir Gunnar en Fjölnir kláraði
tímabilið í deildinni á góðum nót-
um. „Þessi leikur gegn Fylki reif okkur
upp,“ segir Gunnar sem viðurkennir
að liðið hafi verið heppið með móth-
erja í keppninni í ár.
„Það kemur okkur kannski í sjálfu
sér ekkert á óvart að við séum komn-
ir aftur í úrslit. Við vorum tiltölulega
heppnir með drætti. Fengum bæði
Eyjaliðin, KFS og ÍBV, sem við kláruð-
um og svo Víking sem var í mikilli
lægð í sumar. Það var ekkert mál. En
við erum stemningslið og náum að
gíra okkur vel upp í svona bikarleiki,“
segir Gunnar.
Rísandi stórveldi
„Að klára tímabilið almennilega
var mikilvægt því þú vinnur ekkert
bikarleik ef þú ert að drulla upp á bak
annars staðar,“ segir Gunnar um lok
tímabilsins hjá Fjölni. Eftir að hafa
tapað hverjum leiknum á fætur öðr-
um rifu Grafarvogsstrákar sig í gang
og unnu meðal annars þrjá síðustu
leiki sína í deildinni. „Við náðum að
spila okkur í gang aftur og fórum að
spila okkar bolta. Það var málið.“
Gunnar segir reynsluna frá því í
fyrra eiga eftir að hjálpa liðinu mikið
í leiknum á laugardaginn. „Þetta eru
helvíti stórir leikir. KR er náttúrlega
stórveldi en við erum rísandi stór-
veldi,“ segir Gunnar léttur. „Það er ekki
sama stressið hjá okkur og í fyrra. Það
er spenningur fyrir leiknum en stress-
ið er ekki jafnafgerandi og var þá. Svo
spilaði blaðrið um FH-lánsmennina
líka inn í leikinn í fyrra,“ segir Gunn-
ar sem ætlar sér ekki að tapa tveimur
bikarúrslitaleikjum í röð. „Fyrst mað-
ur er nú kominn aftur í úrslit kemur
ekki til greina að tapa,“ segir Gunnar
ákveðinn að lokum.
Söng brjálaður með Miðjunni
Viktor Bjarki Arnarsson, leik-
maður KR, tekur nú þátt í sínum
fyrsta bikarúrslitaleik. Tímabil-
ið 2006 átti hann frábæru gengi að
fagna með Víkingi og var kjörinn
leikmaður Íslandsmótsins það ár.
Sama ár komst hann í undanúrslit
með Víkingi en tapaði, 4-0, gegn
Keflavík sem varð svo bikarmeistari.
Í ár fékk hann það leiðinlega hlut-
verk að sitja uppi í stúku í undanúr-
slitunum þegar KR lagði Breiðablik
í vítaspyrnukeppni en Viktor var í
banni í leiknum.
„Ég stóð efst í stúkunni og var
orðinn mjög stressaður. Ég trylltist
alveg þegar Breiðablik fékk dæmt
vítið. Svo var ég farinn að öskra allt
og syngja sem Miðjan gerði. Þetta
var öðruvísi tilfinning því ég er
aldrei svona stressaður í leikjum. En
þetta var frábær sigur og gefur okk-
ur mikið fyrir úrslitin,“ segir Viktor
um leikinn gegn Breiðabliki.
Eins og hver annar leikur
Sífellt er talað um pressuna á að
safna titlum í Vesturbænum en Vikt-
or segist ekkert verða var við það.
„Ég finn ekki fyrir slíku. Hvorki frá
stjórn, þjálfara eða neitt slíkt,“ seg-
ir Viktor sem segir Fjölnisliðið eiga
mikið inni. „Þetta Fjölnislið hefur
spilað frábærlega í sumar. Þeir unnu
okkur í fyrri umferðinni og þó seinni
leikurinn hafi kannski verið auð-
veldur á Fjölnir mikið inni. Við þurf-
um að leggja allt okkar í þetta því
það er ekkert gefins í svona leik.“
KR lék síðast til úrslita 2006 þegar
liðið tapaði gegn Keflavík. KR vann
bikarinn síðast árið 1999 þegar það
lagði ÍA, 3-1, í mögnuðum bikarúr-
slitaleik. Viktor segir KR-inga ekkert
ætla að breyta út af vananum fyrir
leikinn á laugardaginn. Allur undir-
búningur verði eins.
„Við förum í þennan leik eins og
hvern annan. Það verður ekkert far-
ið á hótel og sofið saman eða neitt
þannig. Við eigum bara að sofa í
okkar rúmum en ekki einhverjum
hermannabeddum,“ segir Viktor og
hlær.
Tvö lið með ólíkar bikarhefðir, KR og Fjölnir, mætast í bikarúrslitum karla á Laugardalsvelli á laugardaginn.
KR hefur unnið bikarinn oftast allra liða eða tíu sinnum en Fjölnir hefur aðeins einu sinni komist í úrslit. Það
var í fyrra sem Fjölnismenn komust í úrslit þegar þeir léku í 1. deildinni og töpuðu í framlengingu fyrir FH.
Þótt Fjölnir hafi komist í úrslit í fyrra segir gunnar Már guðmundsson, fyrirliði liðsins, Fjölni klárlega vera
litla liðið í leiknum. Viktor Bjarki arnarsson, leikmaður KR, tekur nú þátt í sínum fyrsta bikarúrslitaleik.
Allt undir
í lokAleik
tímAbilsins
TÓMaS ÞÓR ÞÓRÐaRSON
blaðamaður skrifar: tomas@dv.is
Frábær byrjun fjölnir lagði
kr, 2-1, í upphafi tímabilsins.
Barist á pöllunum Á meðan fjölnir berst við kr inni á vellinum munu káramenn
kljást við Miðjuna í stúkunni.
Fyrsti úrslitaleikurinn
Viktor bjarki arnarsson ætlar sér sigur
gegn fjölni á laugardaginn.