Dagblaðið Vísir - DV - 03.10.2008, Blaðsíða 47
föstudagur 3. október 2008 47Sport
Íslendingaslagur Í reading Það verður Íslendinga-
slagur í ensku Championship-deildinni á laugardaginn þeg-
ar reading tekur á móti burnley. Í reading eru eins og al-
þjóð veit Ívar Ingimarsson og brynjar björn gunnarsson en
sá síðarnefndi er kominn til baka eftir meiðsli og hefur leikið
síðustu tvo leiki reading sem byrjunarliðsmaður. Í burnley
er Jóhannes karl guðjónsson en Jói kalli skoraði fallegasta
mark ársins hingað til í síðasta leik burnley og hefur skorað
í tveimur síðustu leikjunum. Ívar og brynjar þurfa því að
passa að félagi þeirra komist ekki í skotfæri.
Magnús dæMir keflvíkingurinn Magnús Þórisson
mun dæma bikarúrslitaleik kr og fjölnis sem fram
fer á Laugardalsvellinum klukkan 14.00 á morgun,
laugardag. Þetta er í fyrsta skipti sem Magnús dæmir
bikarúrslitaleik. Honum til aðstoðar verða aðstoðar-
dómararnir gunnar gylfason og Jóhann gunnarsson.
Leikurinn er líka sérstakur fyrir þá tvo herramenn en
þeir munu hætta að dæma og flagga fyrir ksÍ eftir
leikinn. fjórði dómari verður eyjólfur Magnús kristins-
son og Jón sigurðsson verður eftirlitsmaður ksÍ.
„Heilsan er bara fín. Ég er núna
að vinna upp formið,“ segir Friðrik
spurður um líðan sína í dag. Fyrir ári
leit út fyrir að ferillinn hjá Friðriki
væri á enda þegar alvarlegar hjart-
atruflanir gerðu vart við sig. Frið-
riki og hans fólki var mjög brugðið
enda virtust veikindin alvarleg. „Ég
var með einhverjar taugabilanir í
hjartanu og þeir krukkuðu eitthvað
í það. Fyrst fór ég í hjartaþræðingu
þar sem þeir fundu engin svör.“
stuðaður í takt
„Ég byrjaði að spila aftur viku
seinna en var ekki ég sjálfur. Ég var
hálfsmeykur satt best að segja. Ég
spilaði samt út tímabilið og í síð-
asta leiknum í deildinni lenti ég í
miklu samstuði og þá festist púls-
inn á mér í 150 slögum á mínútu. Þá
var ég lagður inn og stuðaður í takt.
Þá hélt ég bara að þetta væri búið
og var byrjaður að sætta mig við
það. Mér var líka sagt á þeim tíma
að gleyma körfuboltanum.“
Á að passa sig
Friðrik fór svo í aðra aðgerð
sem heppnaðist vel og í júlí í sum-
ar byrjaði hann léttar æfingar með
liðinu.„Eftir aðgerðina hefur hing-
að til ekkert komið upp á til að
hafa áhyggjur af og fyrst þeir gáfu
mér grænt ljós heldur maður bara
áfram. Eins og tímabilið endaði
núna síðast hafði ég engan áhuga á
að hætta í sportinu. Ég vildi reyna
að gíra mig upp til að vera með
þótt það væri ekki nema til þess að
ná í lið eftir flóttann frá liðinu eft-
ir tímabilið. Læknarnir sögðu mér
reyndar að reyna að minnka álagið
og dempa mig aðeins niður,“ segir
Friðrik sem er annálaður baráttu-
hundur og gefur allt í leikinn. Hvort
hann fylgi fyrirmælum læknanna
verður að koma í ljós en DV telur
líkurnar á því minni en engar.
spilað á síldartunnuhring
Friðrik, sem ólst upp í Vest-
mannaeyjum, er spurður út fyrstu
skrefin í körfunni í einangruðu
bæjarfélagi án körfuboltafélags.
„Mér fannst ég vera ágætur hand-
boltamaður en veit ekki hvort fleiri
séu sammála því. Ég var ömurleg-
ur í fótbolta með tvo jafnslæma
vinstri fætur. En annars var maður
í öllu því sem hægt var að stunda í
Eyjum. Körfuboltinn hjá mér byrj-
aði inni í botnlanga á Höfðavegin-
um. Við bjuggum til körfu úr síldar-
tunnuhring og svo var bara djöflast.
Svo fór þetta að þróast þegar hægt
var að fá körfuspjald í verslun og
við slógum saman peyjarnir í eitt
slíkt.“
Fyrsti leikurinn
landsliðsleikur
Þegar Friðrik var 15 ára varð
hann svo einn af stofnendum körfu-
knattleiksdeildar Týs, síðar ÍBV. „Ég
var eitt ár hjá þeim og var valinn í
landsliðið á þeim tíma. Fyrsti opin-
beri leikurinn minn var með lands-
liðinu, sem telst frekar sérstök byrj-
un á ferlinum. Eftir þetta ár í Eyjum
má segja að þetta hafi byrjað, ég
fór vestur á Ísafjörð með stuttri
viðkomu í KR og átti frábær tvö ár
með KFÍ. Ég gekk svo loks til liðs
við Njarðvíkinga ´98 og er búinn
að vera þar síðan fyrir utan þriggja
mánaða tilraun um aldamótin við
atvinnumennsku í Finnlandi sem
stóð ekki undir neinu og mér líkaði
það dæmi illa.“
Kæti í Kína
Friðrik er fljótur til svars þegar
hann er spurður um stærstu stund-
irnar í sportinu. „Það var þegar við
fórum til Kína með landsliðinu, það
var ógleymanlegt. Við spiluðum á
móti Yao Ming og upplifðum ótrú-
lega ferð. Og svo eru það titlarnir
og sigrarnir, þeir eru alltaf jafnsæt-
ir.“
aftur í landsliðið
Við snúum okkur að komandi
tímabili sem byrjaði fyrr hjá Frið-
riki en hann átti von á. „Landsliðs-
þjálfarinn hafði samband við mig
rétt eftir Þjóðhátíð (í Eyjum) og þó
svo að ég ásamt læknunum hefði
ákveðið að halda landsliðinu fyrir
utan þetta sló ég til og spilaði síð-
ustu leiki liðsins núna í sumarlok.
Heilsan hefur haldist góð eftir það
og núna er tímabilið fram undan.“
Hörkumót fram undan
Tímabilið fram undan verður
magnað að mati Friðriks. „Þetta
verður örugglega sterkasta mótið
síðan ég byrjaði í efstu deild. Við
erum búnir að fá góða leikmenn
aftur heim og þetta verður gríðar-
lega öflugt mót. Við í Njarðvík erum
komnir með nýjan þjálfara, Val
Ingimundarson, sem er mjög hæf-
ur maður og skemmtilegur karakt-
er. Það er búið að vera flott að æfa
undir honum í sumar,“ segir Friðrik
en vill ekkert tjá sig um brotthvarf
Teits Örlygssonar sem þjálfaði liðið
á síðasta tímabili. „Við erum næst-
um með nýtt lið í ár. Aðeins 3 til 4
leikmenn frá því á síðasta tímabili
verða áfram en mér líst vel á lið-
ið okkar. Ég væri reyndar til í að fá
einn stóran strák í viðbót með mér
þar sem við erum í lægra lagi. Ann-
ars er það er nokkuð ljóst að KR og
Grindavík verða sterkustu liðin í
vetur. Maður sér það bara á hópn-
um hjá báðum. Grindavík er til að
mynda með sjö fyrrverandi lands-
liðsmenn og KR með mjög góða
leikmenn innanborðs.“
endar í ÍBV?
Aðspurður í lokin hvort hann
gæti hugsað sér að spila með öðru
liði en Njarðvík svarar Friðrik: „Nei,
ég á ekki von á því en ef eitthvað
væri yrði það með ÍBV í handboltan-
um. Við spiluðum nokkrir hlunkar,
gamlir ÍBV-leikmenn, við núver-
andi meistaraflokk ÍBV og unnum
þá. Ég gat því státað af því á Þjóð-
hátíðinni að vera Vestmannaeyja-
meistari í handbolta, leikmönnum
liðsins til mikils ama.“
Dugguvogi 2 / s: 557 9510 / www.patti.is
Patti lagersala
Opnunartími : Mánudaga - Föstudaga frá 9 til 18 og Laugardaga frá 11 til 16
í 4 mism
unandi á
klæðumBjóðum
1 5 tungu
sófa
verð áður 139.000
kr.69.000,-
á aðeins
yfir 200 gerðir af sófum
VERÐHRUN
sVeinn waage
blaðamaður skrifar: sveinn@dv.is
Ferill í deildarkeppni
kr 1993-1995
Þór ak. 1995-1996
kfÍ 1996- 1998
Njarðvík 1998-2007
Leikir 239
stig 2.825
fráköst 2.290
HeiMild KKÍ
VAR SAGT AÐ GLEYMA
KÖRFUBOLTANUM „...fyrst þeir gáfu mér grænt ljós heldur maður bara áfram.“
Friðrik erlendur stefánsson er körfuboltaáhugamönnum að góðu kunnur. Þessi 32 ára Eyjapeyi í Njarðvík-
urliðinu er einn af leikjahæstu leikmönnum efstu deildar. Hann æfir nú af kappi fyrir sitt 16. tímabil. Á
sama tíma í fyrra leit út fyrir að ferillinn væri úti þegar óvænt hjartabilun gerði vart við sig. Í viðtali við DV
segir Friðrik frá nýafstöðnum veikindum, rifjar upp fyrstu skrefin á ferlinum og spáir í næsta tímabil.
einbeittur á línunni
friðrik tekur vítaskot með
landsliðnu í leik gegn
svartfjallalandi í september
síðastliðnum.
Kunnugleg sjón fyrirliðinn tekur á
móti deildarmeistaratitlinum 2007.