Dagblaðið Vísir - DV - 03.10.2008, Blaðsíða 50
föstudagur 3. október 200850 Helgarblað DV
umsjón: kolbrún pálína helgadóttir kobrun@dv.is
Hollur
matur
mikilvægur
börnum
Þrjár máltíðir á dag
börn ættu að borða þrjár
aðalmáltíðir og tvo til þrjá millibita
á dag. mikilvægt er að byrja
daginn á morgunverði. hins vegar
eru ekki öll börn lystargóð strax á
morgnana og er lausnin þá að
taka með sér hollt og gott nesti í
skólann.
meira af ávöxtum og
grænmeti
íslensk börn borða mun minna af
ávöxtum og grænmeti en æskilegt
væri miðað við hollustu þeirra.
stuðla má að því að þau borði
meira með því að hafa ávexti og
grænmeti sem eðlilegan hluta af
öllum máltíðum. standi frammi
skál með niðurskornum ávöxtum
og grænmeti í handhægum bitum
er hún fljót að tæmast, ekki síst
þegar svengd segir til sín á milli
mála.
minnkum sykurinn
sykurneysla íslenskra barna er allt
of mikil. drekki börnin 2 til 3 glös
af gosi er sykurneysla þeirra komin
að efri mörkum þess sem ráðlagt
er. gosdrykkir innihalda það sem
oft er kallað tómar hitaeiningar.
verði sykur of fyrirferðarmikill í
fæði barna tekur hann pláss frá
öðrum hollum mat. Það er því
greinilega ekki rúm fyrir gosdrykki
og sætindi í daglegu fæði barna
heldur ætti það einungis að vera
til hátíðarbrigða. Þess í stað ætti
að hvetja börn til að drekka vatn
og að fullnægja sykurþörf sinni
með ferskum ávöxtum.
dagleg hreyfing
hreyfing er ekki síður mikilvæg
fyrir börnin en hollur matur.
börnum jafnt sem fullorðnum er
nú ráðlagt að hreyfa sig að
minnsta kosti 60 mínútur á dag. æ
fleiri rannsóknir sýna fram á
ávinning þess – bæði fyrir líkama
og sál – að heyfa sig reglulega og
auk þess er það nauðsynlegt til að
stuðla að eðlilegri líkamsþyngd.
& ínMatur
Lambahjörtu
með paprikusósu
Gestgjafinn gefur lesendum góðar
hugmyndir að ódýrum en gómsætum
mat í kreppunni í nýju og glæsilegu
tölublaði sem nýverið kom út. Þessi
bragðgóði og meinholli réttur lítur vel
út á borði og er hagstæður fyrir budd-
una. Í blaðinu má einnig læra slátur-
gerð frá a-ö en sú hefð hefur átt undir
högg að sækja undanfarin ár.
Ítalskt lambalæri
„Ég hef mjög gaman af því að bjóða
fólki í mat en hef ekki margar laus-
ar stundir segir Hrafnhildur Valdi-
marsdóttir, verkefnastjóri hjá Keili.
Starf mitt hjá Keili tekur mikinn tíma
en þar vinnum við að uppbyggingu
þekkingarsamfélags á Vallarheiði, þar
sem áður var varnarsvæði bandaríska
hersins. Hjá Keili hafa á einu ári um
1.700 námsmenn og fjölskyldur þeirra
sest að og tæplega 400 nemendur
stunda nú nám við skólann, rúmu ári
eftir stofnun hans. Auk þess erum við
þessa dagana að taka í notkun frum-
kvöðlasetrið Eldey í samvinnu við Ný-
sköpunarmiðstöð Íslands, Þróunar-
félag Keflavíkurflugvallar og Háskóla
Íslands. Í stað þess að sleppa matar-
boðunum reyni ég því að elda fljót-
lega en góða rétti án þess að setja allt
á hvolf. Lambalærið hennar mömmu,
Guðnýjar Lindu Magnúsdóttur, stend-
ur alltaf fyrir sínu en uppskriftin er
bæði fljótleg og góð. Með lambalær-
inu hef ég gjarnan mangósalat með
dijon- og agave-sósu, það þarf ekki að
útbúa sósu með lærinu þar sem soðið
er notað sem sósa.
n lambalæri
n 3-4 hvítlauksrif
n 1 kg kartöflur
n 100 gr brætt smjör
n 1 sítróna
n 1 ½ bolli sjóðandi vatn
n 4 tsk. maldon-salt
n 1 tsk. pipar
n 5 tsk. oregano
aðferð: hvítlauksrif skorin í bita og
stungið í kjötið, kartöflur skornar í
tvennt og settar í fat ásamt kjötinu.
smjörið brætt, blandað með safa úr
sítrónu og hellt yfir allt, sjóðandi
vatni hellt meðfram. að lokum er
kryddinu blandað saman og stráð
yfir kjöt og kartöflur. bakað við 225°C
neðarlega í ofni í 1½ klst. kartöflur
og læri sett á fat en soðið sett í
sósuskál og fitan fleytt af.
mangósalat:
n ½ mangó vel þroskað
n klettasalatsblanda
n furuhnetur, ristaðar
n 1 tsk. dijon-sinnep
n 2 tsk agave-síróp
n 3-4 msk. sýrður rjómi
aðferð: mangó skorið í bita og
blandað við salat og furuhnetur.
sinnepi, agave-sírópi og sýrðum
rjóma blandað saman og hellt yfir
eftir smekk.
Ég skora á Hlédísi Sveinsdóttur athafnakonu
og stofnanda kindur.is. Hjá henni keypti ég
kind síðastliðinn vetur, kindin átti tvo hrúta í
vor sem fjölskyldan sótti á fjall um síðustu
helgi en hrútunum ætla ég svo að láta slátra.
Afurðirnar skila sér svo í frystikistuna hjá mér
eftir nokkrar vikur.
M
atg
æð
ing
ur
inn
uppskrift: úlfar finnbjörnsson
mynd: kristinn magnússon
Lærðu að eLda
ef þig langar að auka getu þína í eldhúsinu
er þetta rétti tíminn til að skrá sig á mat-
reiðslunámskeið. hvort sem þig dreymir
um sushi-gerð, ítalska matargerð eða að
læra að gera dýrindis eftirrétti er allt í boði.
mörg sveitarfélög bjóða upp á matreiðslu-
námskeið þetta haustið sem og skólar en
einnig er mikið um að einkaaðilar og matsölu-
staðir bjóði upp á kvöld- og helgarnámskeið í matargerð.
ÍtaLskt LambaLæri með kartöfLum:
uppskrift fyrir 4
n 800 g lambahjörtu
n salt
n nýmalaður pipar
n 2 msk. olía
n 2 beikonsneiðar, skornar í bita
n 1 rauð paprika, skorin í bita
n 1 msk. paprikuduft
n 4 dl vatn
n 1 dl rjómi
n 1 krukka grilluð paprika, safi sigtaður frá
n sósujafnari
skerið hjörtu til helminga og hvern helming
í 7-8 lengjur. skerið himnur og fitu frá.
kryddið hjörtun með salti og pipar og látið
krauma á vel heitri pönnu í 2 mín. bætið
beikoni og paprikubitum á pönnuna og látið
krauma í 1 mín. stráið þá paprikudufti yfir og
látið krauma í 30 sek. til viðbótar. bætið vatni
á pönnuna og látið malla við vægan hita í 1
klst. hellið rjóma og grillaðri papriku á
pönnuna og þykkið með sósujafnara. berið
fram t.d. með kartöflumús og salati.
dominique og eymar, vínráðgjafar
gestgjafans, mæla með malbec-víni, ekki of
kraftmiklu. trivento reserve Cabernet
malbec eða hreinu malbec frá norton eða
Catena.