Dagblaðið Vísir - DV - 03.10.2008, Síða 52
föstudagur 3. október 200852 Ferðir DV
Á ferðinni
GaGnleGar heimasíður
eftirfarandi síður komu þeim sólveigu Pét-
ursdóttur og bryndísi sævarsdóttur að góð-
um notum við skipulagningu níu mánaða
ferðar þeirra:
roundtheworldflights.co.uk
couchsurfing.com
horizonsunlimited.com
umsjón: Ásgeir jónsson asgeir@dv.is
Flýja kreppuna
Vinkonurnar sólveig Pétursdóttir og Bryndís sævarsdóttir ætla að flýja íslensku
kreppuna og skella sér í níu mánaða ferðalag um hálfan heiminn. Báðar stunda þær
brimbrettaíþróttina af kappi og ætla því að elta öldurnar í Ástralíu auk þess sem stefn-
an er sett á mótorhjólaferð um Malasíu og snjóbrettarennsli í Austurríki. Þær ætla að
leyfa lesendum DV að fylgjast með ferðum sínum og sýna fram á að hægt sé að halda í
slíkt ferðalag með litla sem enga peninga á milli handanna.
Sólveig Pétursdóttir og Bryn-
dís Sævarsdóttir ákváðu fyrir ein-
ungis mánuði að flýja saman land
og skella sér í níu mánaða ferða-
lag. „Við erum báðar búnar að vera
á miklum flækingi síðustu ár en
sjaldan ferðast saman. Kreppan
stöðvar okkur ekki því við lítum svo
á að við séum að flýja hana,“ seg-
ir Sólveig en þær stöllur hafa ver-
ið á milkum flækingi síðustu ár en
sjaldan ferðast saman.
Tilhlökkunin er því mikil enda
styttist óðum í brottfarardaginn átt-
unda október.
Ferðast á ódýra mátann
„Upprunalega ætluðum við að
fara beint til Ástralíu að vinna og
halda síðan til Austurríkis eftir ára-
mót. Þegar við fórum að grennslast
fyrir um ódýra flugmiða til Ástral-
íu fundum við vefsíðu sem bauð
upp á flug þangað með nokkrum
aukastoppum á leiðinni. Það mun-
aði ekki miklu í verði svo við slóg-
um til. Leið okkar mun því einnig
liggja til Taílands, Taívan, Malasíu
og Japan,“ segir Bryndís og Sólveig
bætir við:
„Þar sem við erum ekki með
mikla peninga á milli handanna
verður þetta algjört „low budget“-
ferðalag. Við ætlum að leitast við
að hafa ferðina okkar sem ódýr-
asta og þá sérstaklega þegar kem-
ur að gistingu, mat og fararmáta.
Við höfum haft upp á nokkrum
löndum okkar á þeim svæðum
sem leið okkar liggur um og höfum
við sníkt hjá þeim gistingu. Einnig
ætlum við að nýta okkur svokallað
„couchsurfing“ sem er samfélag á
veraldrarvefnum. Fólk skráir sig á
vefsíðuna og býður ferðalöngum
fría gistingu í þeim tilgangi að fá
hana endurgoldna síðar.“
Á mótorhjóli um malasíu
Sólveig er með mótorhjólapróf
og það hefur verið draumur henn-
ar að ferðast um heiminn á einu
slíku. Undanfarið hefur hún verið
að vinna í kaupum á mótorhjóli í
Taílandi.
„Eftir ófáa tölvupósta og söfn-
un upplýsinga á vefnum hefur sú
niðurstaða fengist að óráðlegt sé að
kaupa hjólið í Taílandi. Það er lítið
mál að fjárfesta í hjóli þar en það
er aðra sögu að segja um að koma
því svo úr landi. Það er víst mjög al-
gengt að skjöl sem fylgja mótorhjól-
um séu fölsuð og þeim því mein-
aður aðgangur að öðrum löndum.
Við ætlum að fylgja ráðum þeirra
reyndu og kaupa frekar hjól í Mal-
asíu en þess ber þó að geta að flest-
ir mæltu með Singapore. Nú erum
við að rannsaka ferlið við að senda
fákinn yfir til Ástralíu,“ segir hún.
Boðið til Taívan
Taívan var nú upphaflega ekki
partur af prógrammi stelpnanna
enda langt úr þeirra leið. Það vill
þó svo skemmtilega til að foreldrar
Bryndísar verða þar í október þeg-
ar þær verða í Taílandi. „Það vill svo
ennþá skemmtilegar til að þau voru
svo elskuleg að bjóða okkur yfir til
sín í nokkra daga. Eftir að við lend-
um í annað skiptið í Bangkok er
stefnan tekin niður í gegnum Taí-
land og Malasíu til litla punktsins
neðst á Malasíuskaganum. Singa-
pore – Sydney er næsti leggur,“ segir
Bryndís.
„Við verðum í þrjá mánuði í Ástr-
alíu að ferðast, sörfa og vinna,“ seg-
ir hún og stelpurnar útskýra fyrir
blaðamanni og lesendum að brim-
brettafólk á Íslandi tali um það að
sörfa þegar brimbrettaíþróttin er
stunduð.
„Við gerum okkur fulla grein fyrir
því að þetta er leiðinda enskusletta
en þar til það að stunda brimbretta-
íþróttina fær íslenskt sagnorð mun-
um við notast við það að sörfa í skrif-
um okkar um ferðina,“ segir Sólveig.
„Við erum báðar búnar að vera
að sörfa hér á Íslandi en einnig far-
ið utan, meðal annars til Filippseyja,
Costa Rica og Balí þar sem sjórinn
er töluvert notalegri.“
Íslendingar geta ekki fengið
skammtíma vinnuvísa í Ástralíu,
ólíkt bæði Dönum og Norðmönn-
um, svo stelpurnar vonast til þess
að komast í svarta vinnu þar í landi.
„Líklegast er að það felist í því að
tína ávexti af trjám,“ segir Bryn-
dís hlæjandi yfir tilhugsuninni um
ávaxtatínslu.
renna sér í Ölpunum.
Eftir Ástralíuævintýrið er stefn-
an tekin á Austurrísku Alpana en
bæði Sólveig og Bryndís hafa rennt
sér á snjóbretti frá unglingsaldri
jafnt hérlendis sem erlendis.
„Þegar „base-tanið“ okkar er
orðið gott tökum við u-beygju
norður á bóginn til Austurrísku
Alpanna með viðkomu í Tókýó.
Við stoppum að lokum í Ölpunum
í nokkra mánuði að renna okkur á
snjóbretti og skíðum. Báðar höfum
við rennt okkur frá unglingsaldri á
Íslandi sem og erlendis. Það verð-
ur farið nánar í saumana á því þeg-
ar nær dregur nýju ári,“ segir Sól-
veig en hægt verður að fylgjast með
ferðum vinkvennanna á bloggsíðu
þeirra á dv.is og í pistlum sem birt-
ast hér á ferðasíðunni í vetur.
„Það verður vonandi hægt að
taka sér okkur til fyrirmyndar, læra
af mistökunum, hæðast að heimsku
okkar og hlæja að húmornum,“ seg-
ir Sólveig hress að lokum.
krista@dv.is
Ekkert heima-
nám um helgar
Íslensk stelpa var um daginn að
passa börn hér í noregi og
stökkbrá þegar kom í ljós að þau
þurftu ekkert að læra heima um
helgar. Vinnu á að framkvæma á
vinnutíma, meðan það á að vera frí
um helgar. ef til vill hefðu
Íslendingar gott af því að skoða
þessa hugmyndafræði nánar.
oftast þegar maður stendur í
einhverjum framkvæmdum
segjast samstarfsmenn ætla að
„kíkja á þetta um helgina“.
niðurstaðan er þó oftast sú að það
er lítið kíkt á um helgina, annað en
eurosport eða sýn. og samt gerir
þessi tilfinning um að maður eigi
að vera að gera eitthvað annað
það að verkum að maður á aldrei
raunverulega frí. alveg frá því
maður byrjar í skóla sex ára gamall
hefur maður það alltaf á tilfinning-
unni að eiga í raun að vera að gera
eitthvað annað. enda hefur það
margoft sýnt sig að Íslendingar eru
manna lengst í vinnunni, en eru
mikið að dóla sér og skreppa
meðan á vinnutíma stendur. Í
skandinavíu er vinnutími styttri en
mun skýrar afmarkaður.
Það er reyndar annar munur á
norska skólakerfinu og því
íslenska. norðmenn reyna að líta
hlutina jákvæðari augum. Það eru
fimm megineinkunnir veittar.
Hæsta einkunn er „sérstaklega
gott“ og sú næsthæsta er „mjög
gott“. Það að rétt ná er kallað
„gott“. að falla er hins vegar
„nokkuð gott“. Þegar menn rétt
skrifa nafnið sitt og reyna ekki einu
sinni er tekið sterkar til orða. Þá er
sagt að það sem þeir hafa gert sé
„lítið gott“. að þessu leyti eru þó
norðmenn að nálgast Íslendinga
og eru að fara að innfæra kerfi sem
nær frá 1 til 6.
Þessi vingjarnleiki sem endur-
speglast í einkunnakerfinu nær til
hæstu hæða stjórnsýslunnar. jens
stoltenberg forsætisráðherra er
með sína eigin facebook-síðu. Þar
má meðal annars sjá að ráðherra
er mikill áhugamaður um
aðþrengdar eiginkonur (sjónvarps-
þættina) og horfir gjarnan á þá
eftir að eiginkonan fer að sofa.
meira ógnvekjandi er að hinn
uppáhaldssjónvarpsþátturinn
hans er þátturinn um mafíuforingj-
ann tony soprano. spurning hvaða
áhrif það hafi á yfirvöld í noregi.
kannski fara þau einnig meira að
minna á hin íslensku?
Valur Gunnarsson skrifar
frá noregi
elTa Öldurnar
sólveig og bryndís hafa
verið mikið á brimbretti
og ætla meðal annars
til Ástralíu að „sörfa“.
dV mynd:Karl PeTerson
sPræKar í KrumPuGalla.
Vinkonurnar hafa fjárfest í
nokkrum misljótum krumpugöll-
um og þegar sólveig tekur bryndísi
á háhest í krumpugallanum verður
til karakterinn sóldís.
Bryndís Til VinsTri oG
sólVeiG Til hæGri.
Vinkonurnar ætla að leyfa
lesendum dV að fylgjast með níu
mánaða ferðalagi sínu um heiminn.