Dagblaðið Vísir - DV - 03.10.2008, Síða 58
Framhaldið af einum umtalað-
asta og vinsælasta þriðju kynslóð-
ar tölvuleik fyrr og síðar er vænt-
anlegt 7. nóvember næstkomandi.
Það er framhaldið af Gears of War
á Xbox 360. Fyrri leikurinn þótti
setja ný viðmið bæði í grafík og
spilun á sínum tíma og á leikur-
inn sér stóran aðdáendahóp um
allan heim. Væntingarnar verða
því miklar þegar gripurinn ratar
loks í hillur verslana.
Í upphafi Gears of War 2 út-
skýrir sama kvennmannsröddin
og úr fyrri leiknum hvernig mál-
um er háttað á Jörðinni síðan í
Gears 1. Mannkynið hefur haldið
áfram að berjast gegn hinum ill-
vígu Locust-skrímslum. Þrátt fyr-
ir stanlausa baráttu á jörðu niðri
og leysigeislaárásir utan úr geimi
hefur kvikindunum aukist ásmeg-
in. Eina vígi manna er nú borgin
Jacinto og þar ganga þeir Marcus
Phoenix og Dominic Santiago inn
í upphafi leiks.
Það sem hefur gerst á meðan
á stríðinu stóð sem hefur stráfellt
mannkynið er þróun sjúkdóms
sem heitir ryðlungað. Ekki er
mikið vitað um sjúkdóminn.
Meðan á spilun leiksins stendur
er hægt að safna dagblöðum sem
hægt er að lesa. Þau útskýra hvað
gerðist á milli Gears 1 og 2.
Fjöldinn allur af nýjum vopn-
um og möguleikum er í leikn-
um. Til dæmis eflist leikmaður
manns við að drepa andstæð-
inginn á sem fjölbreyttastan hátt
og hefur ýmsum nýjum leiðum
verið bætt þar inn. Þá er einnig
fjöldinn allur af nýjum óvinum til
að tæta í sundur. En náir þú því
ekki er alveg öruggt að þeir tæta
þig í sundur.
asgeir@dv.is
Kínverjar
hlera SKype
Kanadísk mannréttindasamtök
hafa upplýst að upp hafi komist
um stórfellda hlerun kínverskra
stjórnvalda hjá þeim sem noti
samkiptaforritið Skype í Kína en
með Skype-forritinu er hægt að
spjalla saman líkt og gegnum
hefðbundinn síma auk þess að
geta tengt vefmyndavél og senda
textaskilaboð. Hlerun stjórnvalda
virðist þó mestmegnis beinast að
textaskilaboðum milli Kínverja
sjálfra þótt vitað sé um tilvik þar
sem hleruð voru samtöl milli
Kínverja og erlendra aðila.
Hlerun textaskilaboðanna gekk
þannig fyrir sig að þegar ákveðin
orð komu upp voru skilaboðin í
heild send á vefþjón stjórnvalda
ásamt upplýsingum um send-
anda og viðtakanda.
Fyrirætlaðri ferð bandarískrar geimferju að
Hubble-geimsjónaukanum hefur verið frestað
fram á næsta ár eftir að alvarleg bilun varð í
sjónaukanum sem gerir það að verkum að engar
myndir eru sendar til jarðar eins og er.
Hubble-sjónaukinn sem er í rúmlega 560
kílómetra fjarlægð frá jörðu hefur í átján ár sent
myndir úr geimnum til jarðar og verið ómetan-
legur þáttur í rannsóknum vísindamanna á
alheiminum auk þess að veita almenningi sýn á
fegurð og undur himingeimsins.
Bandaríska geimferjan Atlantis átti að hefja ferð
sína að sjónaukanum 14. október næstkomandi
með sjö geimfara innanborðs til að sinna
hefðbundnu viðhaldi auk þess að bæta tveimur
nýjum mælitækjum við sjónaukann. Vegna
bilunarinnar hefur hins vegar orðið að fresta
ferðinni fram á næsta ár þar sem væntanlega þarf
að skipta um mikilvæga hluta í stýribúnaði
sjónaukans. Tæknimenn bandarísku geimferða-
stofnunarinnar, NASA, telja þó að fram að því sé
mögulegt að skipta yfir á svokallað varakerfi í
sjónaukanum þannig að áfram verði hægt að
nýta hann til rannsókna og senda myndir og upp-
lýsingar til jarðar. Gert er ráð fyrir að reynt verði
að fara að sjónaukanum í fyrsta lagi í febrúar
2009. palli@dv.is
AlvArleg bilun í
Hubble-sjónAukAnum
FöSTudAGur 3. okTóBer 200858 Helgarblað DV
Tækni
umSjóN: PÁLL SVANSSoN palli@dv.is
Ný DS-vél
Þriðja kynslóð af Nintendo dS verður gefin út
í japan í nóvember. Vélin heitir dSi og verður
hægt að taka myndir með henni, niðurhala
leikjum og spila músík. markmið Nintendo er
að þeirra sögn að breyta dS frá einhverju sem
er að finna á öllum heimili yfir í nokkuð sem
allir einstaklingar eiga. Skjár vélarinnar verður
þá stækkaður og rauf fyrir minniskort bætt við
svo eitthvað sé nefnt.
MK-Safn á pS2
leikjafyrirtækið Midway ætlar að
gefa út sérstakt þriggja leikja
safn af Mortal Kombat á PS2.
Mortal Kombat eru einhverjir
vinsælustu bardagaleikir fyrr og
síðar en þeir leikir sem verða í
þessari sérútgáfu verða Mortal
Kombat: Deception, Mortal
Kombat: Armageddon og Mortal
Kombat: Shaolin Monks. Mortal
Kombat-serían er ein sú best
selda frá upphafi en meira en 26
milljón leikir hafa selst um heim
allan.
StyttiSt
í GearS
noKia Með tón-
liStarpaKKa
Stærsti farsímaframleiðandi
heims, Nokia, mun í næstu viku
kynna Comes with Music,
tónlistarþjónustu og fría áskrift
sem fylgir völdum símum frá
fyrirtækinu. Ólíkt tónlistarþjón-
ustu Apple-fyrirtækisins, þar sem
borga þarf fyrir hvert einstakt lag
sem sótt er í gegnum iTunes-
verslunina, geta áskrifendur
Comes with Music sótt eins mörg
lög og þeir vilja hvert tólf
mánaða áskriftartímabil og
haldið þeim eftir að tímabilinu
lýkur. Fyrirtækið mun á sama
tíma kynna fyrsta Nokia-símann
með snertiskjá og má segja að
frændur okkar Finnar séu farnir
að velgja Apple-fyrirtækinu
undir uggum.
Hubble-sjónaukinn er í rúmlega 560
kílómetra fjarlægð frá jörðu og hefur
þjónað okkur í 18 ár.
Gears of War 2 kemur úr
7. nóvember um allan heim.
Gears of War 2 Bíður
upp á mikið af nýjungum.
Nýir óvinir eru öflugir
og stórhættulegir.