Dagblaðið Vísir - DV - 13.07.2012, Síða 8
Félag Karls gjaldþrota
n Gert að greiða upp í skuldir til Arion banka
H
áttur ehf. verður tekinn
til gjaldþrotaskipta til að
greiða upp í skuldir til
Arion banka. Þetta var
niðurstaða Héraðsdóms
Reykjavíkur í dag, en að auki er fé-
laginu gert að greiða 300 þúsund
krónur í málskostnað. Háttur ehf. í
eigu Karls Wernerssonar. Félaginu
var stefnt af Arion banka vegna
skuldastöðu þess. Samkvæmt síð-
asta birta ársreikningi félagsins,
frá árinu 2008, var tap upp á nærri
1.200 milljónir króna. Í árslok 2008
var eigið fé félagsins orðið neikvætt
um nærri þúsund milljónir króna.
Skuldirnar eru í ársreikningnum
sagðar vera við Kaupþing og eru
þær í japönskum jenum og sviss-
neskum frönkum. Þessi staðreynd
skýrir tap félagsins sem rekja má
til verðhruns íslensku krónunn-
ar í samanburði við þessa gjald-
miðla. Félagið átti að greiða nærri
560 milljónir króna af skuldum
sínum árið 2009. Háttur hélt utan
um hlutabréfaeign Karls Werners-
sonar í ýmsum fyrirtækjum, svo
sem Hljóðfærahúsinu, Grand Spa
og Hrossaræktunarbúinu Feti ehf.
Þá á Háttur ehf. fimm fasteignir
í Síðumúla auk jarðarinnar Efri-
Rauðalækjar við Hellu. Eignir voru
metnar á rúmlega 1.700 milljónir
króna. Þar af var viðskiptavild fé-
lagsins metin á rúmlega 600 millj-
ónir króna og fasteignir félags-
ins á nærri 850 milljónir króna.
Karl Wernersson var stærsti eig-
andi eignarhaldsfélagsins Milesto-
ne sem meðal annars var einn af
stærstu hluthöfunum í Glitni fyrir
hrunið 2008. Háttur skuldaði Karli,
eða félagi í hans eigu, rúmlega
1.200 milljónir króna árið 2009.
8 Fréttir 13.–15. júlí 2012 Helgarblað
R
íkisendurskoðun er enn
með gámamálið svokallað
til skoðunar. DV greindi frá
málinu á síðasta ári en það
snýst um tugmilljóna króna
bætur sem íslenska ríkið hefur greitt
hjónunum Skafta Jónssyni og Krist-
ínu Þorsteinsdóttur vegna gáms sem
utanríkisráðuneytið flutti fyrir þau
til Bandaríkjanna en skemmdist á
leiðinni. Ríkið flutti gáminn þar sem
Skafti er sendiráðsnautur í íslenska
sendiráðinu í Washington D.C., höf-
uðborg Bandaríkjanna. Í flutningun-
um komst sjór inn í gáminn og olli
tjóni.
Sveinn Arason ríkisendurskoð-
andi staðfesti við DV í mars síðast-
liðnum að rannsókn á gámamálinu
væri vel á veg komið. Samkvæmt
upplýsingum frá Ríkisendurskoðun
er rannsókninni þó ekki lokið og er
ekki séð fyrir endann á henni. Ekki
náðist í Svein sjálfan vegna málsins
þar sem hann er í sumarfríi. Íslenska
ríkið borgaði samtals 74 milljón-
ir króna í tjónabætur vegna tjónsins
og skoðar Ríkisendurskoðun með-
al annars af hverju ríkið tryggði ekki
gáminn hjá tryggingafélagi og hvaða
reglur gildi um slíka flutninga.
Furðar sig á
málsmeðferðartímanum
„Ég bíð eftir því að fá niður-
stöðu,“ segir Vigdís Hauksdótt-
ir, þingkona Framsóknarflokks-
ins, en hún kom af stað umræðu
um gámamálið á Alþingi eftir
að greint var frá því. Hún kallaði
eftir því að málið yrði rannsak-
að af Ríkisendurskoðun en það
var stofnunin sjálf sem ákvað að
taka málið til umfjöllunar. Vig-
dís hefur fylgst með málinu frá
því að Alþingi samþykkti auka-
fjárveitingu til utanríkisráðu-
neytisins til að standa straum af
bótagreiðslunni vegna málsins.
Hún furðar sig á því hversu lengi
málið hefur verið til meðferðar
hjá Ríkisendurskoðun. „Þetta
er náttúrulega alltof langur
málsmeðferðartími sem Ríkis-
endurskoðun hefur tekið sér í þetta
mál,“ segir Vigdís.
Vigdís hefur sjálf spurt ríkisend-
urskoðanda um málið þegar hann
hefur komið fyrir stjórnskipunar- og
eftirlitsnefnd sem hún á sæti í. „Ég
hef verið að spyrja hann að því
og þá hefur hann talað um að niður-
staða muni koma fljótlega,“ segir Vig-
dís um viðbrögð Sveins við spurn-
ingum sínum. „Sem sýnir að málið
er allt hið dularfyllsta.“
Þrískiptar greiðslur
Greiðslunum var skipt niður í þrennt.
Fyrsta greiðslan var greidd strax 6.
júlí 2011 en þá voru fjórar milljónir
greiddar til hjónanna frá tryggingafé-
laginu sem tryggði lítinn hluta gáms-
ins. Þann 16. ágúst sama ár fengu
þau svo greiddar fimmtán milljónir
króna frá ríkinu og svo 16. nóvember
fengu þau 59 milljónir króna til við-
bótar frá ríkinu. Tjónið er að mestu
tilkomið vegna listaverka sem voru
um borð í gámnum en mörg þeirra
voru hátt metin af bandaríska fyrir-
tækinu Amrestore Inc., sem sá um að
meta tjónið á listmunum fyrir ríkið.
Í svörum Eimskips við fyrirspurn
DV um málið frá því fyrr á árinu kom
fram að sjór flæddi inn í tvo aðra
gáma í umræddu tilviki. Það varð
hins vegar ekkert tjón á farminum í
þeim gámum.
Gámamálið enn hjá
Ríkisendurskoðun
n Milljóna bætur frá ríkinu skoðaðar n Langur málsmeðferðartími gagnrýndur
„Ég bíð
eftir því
að fá niðurstöðu
Aðalsteinn Kjartansson
blaðamaður skrifar adalsteinn@dv.is
Eina sem skemmdist Gámur Skafta og Kristínar var sá eini sem skemmdist í flutningun-um en sjór kom inn í tvo aðra gáma.
Bíður Vigdís Hauksdóttir
þingkona bíður eftir niður-
stöðu rannsóknar Ríkisendur-
skoðunar. Mynd SiGtryGGur Ari
Kannabisræktun
í Háleitishverfi
Lögreglan á höfuðborgarsvæð-
inu stöðvaði kannabisræktun í
íbúð í fjölbýlishúsi í Háaleitis-
hverfi eftir hádegi á miðvikudag.
Við húsleit á áðurnefndum stað
fundust tæplega 50 kannabis-
plöntur á ýmsum stigum rækt-
unar. Húsráðandi, kona um fer-
tugt, viðurkenndi aðild sína að
málinu, að því er fram kemur í
tilkynningu frá lögreglu.
Sem fyrr minnir lögreglan
á fíkniefnasímann 800-5005. Í
hann má hringja nafnlaust til að
koma á framfæri upplýsingum
um fíkniefnamál. Fíkniefnasím-
inn er samvinnuverkefni lög-
reglu og tollyfirvalda og er liður
í baráttunni við fíkniefnavand-
ann.
Skref í
rétta átt
Neytendasamtökin fagna
breytingu á reglugerð þar sem
dregið er úr innflutnings-
hömlum á landbúnaðarvöru.
Nú er ferðamönnum heimilt að
flytja til landsins allt að einu
kílói af ógerilsneyddum osti og
allt að þremur kílóum af hráu
kjöti sé það frosið og vottað sem
salmonellufrítt. Ekki þarf að
greiða aðflutningsgjöld vegna
þessa né leggja fram vottorð
vegna innflutnings á soðnum
kjötvörum eins og áður var.
Neytendasamtökin segja
þetta skref í rétta átt þótt ekki sé
það stórt. Hvetja Neytendasam-
tökin stjórnvöld til að ganga
lengra og fella niður tolla af
innfluttum ostum. „Slíkt væri
fyrsta skrefið í átt að aukinni
samkeppni á íslenskum
búvörumarkaði,“ segir á
heimasíðu samtakanna.
Gjaldþrota félag Arion banki stefndi
félagi Karls sem nú hefur verið tekið til
gjaldþrotaskipta.