Dagblaðið Vísir - DV - 13.07.2012, Síða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 13.07.2012, Síða 16
Þetta vilja nýju flokkarnir 16 Fréttir 13.–15. júlí 2012 Helgarblað n Fjöldi nýrra framboða mun bjóða fram í næstu Alþingiskosningum n DV sendi nokkrar spurningar á forsvarsmenn nýju flokkanna Þ ann 27. maí árið 2013 kýs íslenska þjóðin nýtt Al- þingi. Þótt enn sé tæpt ár í kosningar og úti sé stillt blíðskaparveður blása vindar breytinga kröftug- lega úti um allt land. Traust á Al- þingi er í sögulegu lágmarki og fylgi stjórnar flokkanna tveggja hefur verið í frjálsu falli síðan þeir mynduðu saman ríkisstjórn árið 2009. Spurningin er ekki hvort þjóðin vilji breytingar heldur í hvaða formi þær verða. Í stöðunni eru tveir kostir. Annars vegar að veita þeim, sem bylt var úr valda- stóli með búsáhöldum, vald sitt á ný; Framsóknarflokknum og Sjálf- stæðisflokknum. Sú hugmynd virðist falla landsmönnum vel í geð, ef marka má nýjustu skoð- anakannanir. Hins vegar stend- ur þjóðinni til boða nýr valkostur, róttækari valkostur. Átta nýir flokk- ar hafa boðað þátttöku sína í vænt- anlegri kosningabaráttu. Þeir eru jafn fjölbreyttir og þeir eru margir. En fyrir hvað standa þeir? DV leit- aði til forsvarsmanna flokkanna og sendi þeim nokkrar spurningar. Svörin má sjá hér að neðan. Spurningar 1 Hvar staðsetjið þið ykkur á hinum pólitíska skala (hægri/vinstri)? 2 Hvað aðgreinir ykkur frá: a. Þeim flokkum sem sæti eiga á Alþingi? b. Hinum nýju framboðunum? 3 Á Ísland að ganga í Evrópusambandið? 4 Hvers vegna á fólk að kjósa ykkur? Guðmundur Franklín Jónsson Vill afnema tolla. 1 Hægri grænir, flokkur fólksins (HG) er til hægri við XD ( ef XD er 6 á skal­ anum 1 til 10 eru HG 7,5). Hægri grænir er raunsæisflokkur og leggur áherslu á sjálf­ bærni og að njóta náttúrunnar án þess að ganga á möguleika komandi kynslóða til hins sama. 2 a. Munurinn á HG og fjórflokknum (X4) er: HG vill beint lýðræði og hafa tvær þjóðaratkvæðagreiðslur á ári með níu spurningum í hvert skipti um umdeild mál­ efni og leggja síðan niðurstöðurnar fyrir Alþingi. b. HG heldur uppi vörnum fyrir markaðshag­ kerfið, eignarétt, trausta peningaútgáfu, friðsöm milliríkjaviðskipti, lága skatta og sem minnst ríkisafskipti. 3 HG er alfarið á móti inngöngu Íslands í ESB. Aðlögunarferlinu að ESB verður umsvifalaust að hætta, draga umsóknina til baka og framhaldið eingöngu eftir bindandi þjóðaratkvæðagreiðslu. 4 Ef þú vilt leiðréttingu á verðtryggð­um húsnæðislánum, afnám tolla, vörugjalda og 30% lækkun á eldsneytis­ verði þá kýstu Hægri græna. Hægri grænir 1 Utan fjórflokksins. 2 a. Við ætlum að stjórna hagsmuna­aðilum en ekki vera undir þeirra stjórn. Við ætlum að innleiða frelsi með ábyrgð. Við ætlum að verja almenning gegn viðskiptasjúski. Við ætlum að stunda stjórnmál sem þola dagsljós. Við ætlum að halda öllu landinu í byggð. b. Við höfum ekki enn náð fullum kjör­ þokka. 3 Sé það vilji þjóðarinnar í þjóðar­atkvæðagreiðslu, annars ekki. 4 Það byrjar á að horfa í spegil, spyr: Vil ég búa í svona samfélagi? Sé svarið ekki afdráttarlaust JÁ, ætti það að íhuga DÖGUN sem valkost í næstu kosn­ ingum. 1 Lýðfrelsisflokkurinn er hófsamur borgaralegur flokkur á hægri væng íslenskra stjórnmála. Okkar fyrirmyndir eru borgaraflokkarnir/hægriflokkarnir á hinum Norðurlöndunum og í Þýskalandi. 2 a. Sjálfstæðisflokkurinn hefur á síð­ustu tveimur áratugum flutt áhersl­ ur sínar meira og meira í átt að áherslum í bandarískum stjórnmálum. Margar þær áherslur eru okkur ekki að skapi. Lýðfrelsis­ flokkurinn aðhyllist frelsi einstaklingsins og trúir á mátt einkaframtaksins eins og felst í nafni flokksins. Að því leyti eigum við ekki samleið með miðju/vinstriflokkum eins Samfylkingunni og Framsókn. b. Flest nýju framboðanna eru leidd af fólki sem kemur af vinstri væng stjórnmálanna. Við eigum takmarkaða samleið með því fólki. Muninn á Hægri grænum og Sjálf­ stæðisflokknum þekkjum við ekki. 3 Ef horft er til hagsmuna launa­fólks en ekki bara hagsmuna LÍÚ og ef aðildarsamningurinn stendur undir væntingum þá teljum við að hagsmunum launafólks sé best borgið með því að Ísland, eins og önnur frjáls ríki Evrópu, taki fullan þátt í efnahagsamstarfi Evrópu og hér verði tekin upp evra innan 5 til 10 ára. 4 Kynnt þú þér heimasíðuna okkar, lydfrelsisflokkurinn.net. Þá sérð þú að með því að kjósa Lýðfrelsisflokkinn þá ert þú að kjósa nýja tíma inn í íslenskt sam­ félag því Lýðfrelsisflokkurinn mun standa fyrir breytingum og uppbyggingu. Dögun Lýður Árnason Vill að fólk líti í spegil. Guðbjörn Guðbjörns- son Vill taka upp evru.Lýðfrelsisflokkurinn Baldur Eiríksson blaðamaður skrifar baldure@dv.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.