Dagblaðið Vísir - DV - 13.07.2012, Side 37
Afþreying 37Helgarblað 13.–15. júlí 2012
Sakamál 30 manns lágu í valnum í Bogotá þann 4. desember 1986 í kjölfar morðæðis sem hafði runnið á uppgjafahermanninn Campo Elías Delgado. Fyrstu fórnarlömbin voru stúlka sem var nemandi hans og móðir hennar. Síðan stakk hann eigin móður til bana og myrti 6 manns í sama húsi. Þá fór hans á veitingastaðinn Pozzetto þar sem hann fékk sér ríkulega máltíð. Síðan lét hann kúlum rigna yfir gesti á veitingastaðnum og myrti þar 20 manns og einum betur. Málalyktir urðu þær að hann féll fyrir kúlum lögreglunnar.U m s j ó n : K o l b e i n n Þ o r s t e i n s s o n k o l b e i n n @ d v . i s
R
ifrildi Woo Bum-kon, suður-kóresks
lögreglumanns, og kærustu hans,
Chun Mal-soon, síðdegis 26. apríl,
1982, átti eftir að hafa afdrifaríkar
afleiðingar – og banvænar. Tilefni rifrild-
isins var ekki merkilegt og óhætt að segja
að Woo hafi gert úlfalda úr mýflugu – nán-
ast í orðsins fyllstu merkingu – því Chun
hafði vakið hann með því að slá til flugu
sem var á bringu hans.
Í bræði rauk Woo á dyr, tilkynnti sig
kláran til vinnu á lögreglustöð sinni,
klukkan fjögur síðdegis, og settist þar að
mikilli drykkju. Þegar hann kom heim
klukkan hálf átta um kvöldið lét hann
hendur skipta, gekk í skrokk á kærustu
sinni og braut allt og bramlaði. Síðan lá
leið hans í vopnabúr lögreglunnar þar sem
honum tókst fyrir slembilukku að komast
yfir nokkuð magn vopna og skotfæra.
Um klukkan hálf tíu um kvöldið hófst
blóðbaðið þegar Woo hóf skothríð á gang-
andi vegfarendur á markaðstorgi í þorp-
inu Torongni. Kærasta hans særðist í skot-
hríðinni, en hún hafði heyrt skothríðina
og ákveðið að kanna hverju sætti.
Næsti áfangastaður Woo var pósthús
nágrannaþorpsins Kungryu þar sem hann
skaut til bana þrjá starfsmenn og skar á
símaleiðslur. Síðan fór Woo þorp úr þorpi
og nýtti sér að hann var í einkennisbún-
ingi lögreglunnar. Þannig komst hann inn
á heimili fólks þar sem hann skaut það
miskunnarlaust til bana.
Með þessum hætti tókst Woo að myrða
átján manns í Ungye og 24 í Pyongchon.
Í einu þorpanna skipaði hann sextán ára
dreng að færa sér gosdrykk úr verslun í
grenndinni. Eftir að hafa fengið drykkinn
skaut hann drenginn og alla fjölskyldu hans.
Flest fórnarlamba Woo féllu fyrir
byssu kúlum en í einu tilviki myrti hann
heila fjölskyldu með handsprengju.
Þrátt fyrir að lögreglu hefði borist vit-
neskja um ódæðisverkin strax í upphafi
tókst Woo að halda uppteknum hætti í
átta tíma. Árla morguns 27. apríl eftir að
hafa gengið berserksgang í fimm þorpum
festi Woo tvær síðustu handsprengjurnar
við sig. Hann faldi sig á bóndabýli þar sem
hann hélt öldruðum bónda og fjölskyldu
hans föngnum. Þegar lögreglan nálgað-
ist bæinn sprengdi Woo sjálfan sig og fjöl-
skylduna í loft upp, en bóndinn sjálfur
slapp með skrekkinn, illa særður.
Alls féllu 57 fyrir hendi Woo og 35
særðust.
Á
dauðadeild Texas í
Bandaríkjunum dvelur
um þessar mundir kona
nokkur sem hefur ríkis-
borgararétt í hvort tveggja
Bandaríkjunum og Bretlandi. Um-
rædd kona, Linda Anita Carty,
var sakfelld og dæmd til dauða
í febrúar 2002 fyrir mannrán og
morð á konu á þrítugsaldri, Joönu
Rodriques. Talið var að tilgangur
Lindu hafi verið að ræna nýfædd-
um syni Joönu.
Sjálf segist Linda hafa ver-
ið fórnarlamb eiturlyfjasala sem
hugsuðu henni þegjandi þörfina
því hún hefði verið uppljóstrari.
Linda hefur áfrýjað dauðadómn-
um en ekki haft erindi sem erfiði
og er nú svo komið að áfrýjunar-
möguleikar hennar eru uppurnir.
Ef fer sem horfir gæti Linda orðið
fyrsta breska konan sem tekin er af
lífi í Bandaríkjunum síðan 1955 er
Ruth Ellis var tekin af lífi, en það
er önnur saga. Einnig yrði Linda
fyrsta breska blökkukonan sem
tekin væri af lífi í meira en eina öld
– en það er einnig önnur saga.
Villti á sér heimildir
Linda fæddist á St. Kitts 1958 og
er breskur ríkisborgari því á þeim
tíma laut eyjan breskum yfirráð-
um. Hún flutti til Bandaríkjanna
árið 1982 og fékk bandarískan rík-
isborgararétt.
Árið 1992 var Linda sakfelld
fyrir bílþjófnað og fyrir að þykjast
vera starfsmaður bandarísku al-
ríkislögreglunnar FBI.
Linda fékk tíu ára skilorðs-
bundinn dóm gegn því að ger-
ast uppljóstrari fyrir fíkniefna-
deildina. Sem uppljóstrari kom
hún upplýsingum á framfæri sem
leiddu til handtöku í tveimur mál-
um. En uppljóstraraferill Lindu
rann sitt skeið þegar hún var sjálf
handtekin vegna fíkniefna.
Sjálf hélt Linda því fram að
hún hefði verið ráðin af vini sín-
um hjá lögreglunni í Houston og
að vinna hennar hafi leitt til þess
að fjöldi fíkniefnasala hafi verið
handtekinn og hald lagt á fíkni-
efni að andvirði þúsunda Banda-
ríkjadala.
Þóttist vera þunguð
Samkvæmt málskjölum réð-
ust Linda og þrír vitorðsmenn
hennar, Gerald Anderson, Chris
Robinson, og Carlos Williams,
inn á heimili Lindu þann 16. maí
2001. Höfðu fjórmenningarnir
hana á brott með sér og þriggja
daga gamlan son hennar, en tveir
aðrir sem voru á heimilinu voru
keflaðir og skildir eftir.
Linda var kefluð með einangr-
unarlímbandi auk þess sem plast-
poki var settur um höfuð hennar
og festur um háls hennar. Henni
var síðan fleygt í farangursrými
bifreiðar þar sem hún kafnaði.
Grunsemdir lögreglunnar í
garð Lindu vöknuðu þegar í ljós
kom að hún hafði ítrekað fullyrt
að hún myndi brátt eignast barn
– en ekkert benti til þungunar.
Nágranni sem lögregla talaði við
sagðist hafa setið í bíl með Lindu
og rekið augun í barnabílstól.
Linda hafði fullyrt að hún væri
barnshafandi, en bar þess engin
merki, að mati nágrannans.
Í kjölfarið hafði lögreglan sam-
band við Lindu og bað hana að
koma á lögreglustöðina í smá
spjall. Í viðtalinu fullyrti Linda
að bæði bifreið hennar og dóttur
hennar kynnu að hafa verið nýttar
í glæpsamlegum tilgangi og vísaði
lögreglunni á báðar bifreiðirnar. Í
annarri var barn – á lífi – en í hinni
var kvenmaður í skottinu – látinn.
Fingraför Lindu var að finna út um
allt í báðum farartækjunum auk
ýmiss dóts sem tengist hvítvoð-
ungnum.
Sönnunargögn
Við réttarhöldin kom ýmislegt í
ljós, meðal annars það að Linda
og eiginmaður hennar höfðu skil-
ið að borði og sæng snemma í maí
2001 og þá hafði Linda tilkynnt
honum að hún bæri barn hans
undir belti. Daginn fyrir morðið,
15 maí, hafði Linda upplýst ná-
granna sinn um að hún ætti að
fæða daginn eftir, en ekkert við
líkamsástand Lindu benti til þess.
Slíkt hið sama hafði hún sagt við
eiginmann sinn.
Reyndar hafði Linda sagt kunn-
ingjakonu sinni, þann 15. maí, að
hún væri búin að eiga.
Eiginmaður Joönu bar að
þegar ráðist var inn á heimili
þeirra hjónanna hefði einn inn-
rásarmannanna svarað farsíma
sínum og sagt: „Við erum komn-
ir inn. Viltu það?“ Síðan hefði
hann kallað að „hún“ væri fyrir
utan. Síðan hurfu þeir á brott með
barnið með sér.
Móðir Lindu sagði að dóttir sín
hefði aldrei minnst á að hún væri
barnshafandi og hefði aldrei litið
út fyrir að vera það heldur.
Að auki kom vitnisburð-
ur Söruh nokkurrar Hernandez,
sem hafði kynnst Lindu í fangelsi
Lindu ekki vel. Linda hafði beðið
Söruh að skrifa fyrir sig bréf, því
hún vildi ekki að rithöndin þekkt-
ist. Bréfið átti að vera frá ein-
hverjum Óskari og staðfesta að
„Chris“ og „Zeb“ hyggðust koma
Lindu í klípu. Þeir hefðu tekið bif-
reið Lindu traustataki og komið
barninu fyrir í henni.
Linda Carty var sakfelld fyr-
ir morð þann 16. febrúar, 2002,
og dæmd til lífláts með banvænni
sprautu.
n Linda gekk langt til að eignast barn n Það kostaði eina konu lífið
missti
vitið
Gerði úlfalda úr mýflugu
Bíræfið
Barnsrán
„Bréfið átti að
vera frá ein-
hverjum Óskari og
staðfesta að „Chris“
og „Zeb“ hygðust
koma Lindu í klípu.
Linda Carty Bíður örlaga
sinna á dauðadeild í Texas.