Dagblaðið Vísir - DV - 13.07.2012, Page 54
Erla og Björk fá góðar kveðjur
n „Hvað ætlarðu að kaupa fyrir peninginn sem frúin í Strasbourg gaf þér?“
M
jömikið [sic] til hamingju!
P.S. Hvað ætlarðu að kaupa
fyrir peninginn sem frú-
in í Strasbourg gaf þér?“
skrifaði Sigrún Ósk Kristjánsdóttir,
stjórnandi Ísland í dag, á vegg Erlu
Hlynsdóttur, fréttakonu á Stöð 2. Til-
efni kveðjunnar var mikill sigur Erlu
og Bjarkar Eiðsdóttur, ritstýru Séð
og heyrt, fyrir Mannréttindadóm-
stól Evrópu þar sem íslenska ríkið
var dæmt til að greiða þeim samtals
um tíu milljónir króna í skaðabæt-
ur vegna dóma Hæstaréttar þar
sem þær voru dæmdar fyrir meið-
yrði vegna ummæla sem þær höfðu
beint eftir viðmælendum sínum í
blaðaviðtölum. Skírskotar Sigrún
með kveðjunni skemmtilega til leiks-
ins frúin í Hamborg þar sem þátt-
takendur eru spurðir hvað þeir ætli
að kaupa fyrir peninginn sem frúin
í Hamborg gaf þeim en svörin mega
ekki innihalda ákveðin orð. Mann-
réttindadómstólinn er staðsettur í
Strassborg svo spurning Sigrúnar
gæti ekki hafa verið meira viðeig-
andi. Erla svaraði henni um hæl og
sagði að peningurinn færi að mestu
leyti í lögfræðikostnað.
Fjölmargir aðrir hafa skilið eftir
skemmtilegar kveðjur á Facebook-
síðum þeirra Erlu og Bjarkar, en
Tobba Marinós skrifaði stöðuupp-
færslu á síðuna sína þar sem hún vís-
aði til Bjarkar: „tók utan um hetjuna
sína Björk Eiðsdóttur og sagði klökk:
ég sagði það alltaf – þú ert hrönn og
sein!“ Ekki virtust allir skilja hvað
„hrönn og sein“ átti að þýða en
Björk útskýrði það: „„Sönn og hrein“
Tobba style!“
54 Fólk 13.–15. júlí 2012 Helgarblað
Sigur Erla og Björk unnu stórsigur fyrir Mannréttindadómstól Evrópu í vikunni.
Vill ekki Svein
Andra aftur
„Nei, það er ekki að fara að gerast,“
segir Kristrún Ösp Barkardóttir í
viðtali í Barnablaðinu, aukablaði
Vikunnar, aðspurð hvort hana langi
ekki til að byrja aftur með Sveini
Andra Sveinssyni, barnsföður sín-
um. Hún segir þau þó vera sátt og
ágætisvini í dag þrátt fyrir að hún
hafi farið hörðum orðum um hann
í viðtali í Vikunni í fyrra. Að sögn
Kristrúnar náðu þau að vinna úr
sínum málum, en hún áttaði sig
á því að það væri ekki gott ef þau
væru ósátt ef hann væri barnsfaðir
hennar, sem kom svo á daginn.
Í viðtalinu í Barnablaðinu
viðurkennir Kristrún að hún beri
tilfinningar til ákveðins manns en
hafi þó nóg annað að gera þessa
dagana en að sinna ástarlífinu.
Hún sé ekki á neinni hraðferð og
vilji ekki flana að neinu.
Fær sér ís annan
hvern dag
Knattspyrnumaðurinn Gylfi Þór
Sigurðsson, sem nýlega skrifaði
undir samning við knattspyrnu-
liðið Tottenham, fer í ísbúðina
annan hvern dag þegar hann er
staddur á Íslandi. Þetta viður-
kennir hann í viðtali í Monitor. „Ég
er ekki enn kominn með reikn-
ing en ég ætti kannski að fara að
redda því,“ sagði knattspyrnumað-
urinn. Hann er þó ekki það mikill
egóisti, að eigin sögn, að hann láti
loka ísbúðinni og þrífa hana fyrir
sig áður en hann mætir og fær sér
einn með dýfu – líkt og sagt var í
gríni að Tom Cruise hefði gert í Ís-
búð Garðabæjar á dögunum.
Hafa aldrei
spilað Lykke Li
Hallfríður Þóra Tryggvadóttir
skrifaði á dögunum pistil í Frétta-
blaðið sem hún lét heita „Lykke Li
lætur mig „hvíla eyrun““ og þar er
hún með ádeilu á útvarpsstöðv-
arnar sem hún segir að ofspili vin-
sæl lög. Jafnframt segir hún frá því
að útvarpsstöðin X-ið sé að ofspila
lag Lykke Li, I Follow Rivers, og
segist hún jafnvel stundum þurfa
að leggja bílnum sínum úti í kanti
og gráta. Máni Pétursson og félagar
hans á X-inu voru síður en svo sátt-
ir við þessa staðhæfingu hennar og
segja að nefnt lag hafi aldrei verið
spilað á X-inu og settu færslu þar
að lútandi inn á Facebook-síðu
stöðvarinnar á fimmtudag.
Fitnessdrottning
á frystitogara
Þ
etta er mjög erfitt en ótrúlega
skemmtilegt,“ segir fitness-
drottningin Kristrún Svein-
björnsdóttir en hún er háseti
á Baldvini Njálssyni GK 400.
Kristrún er Íslandsmeistari unglinga
í fitness en þessi 19 ára Borgfirðingur
veigrar sér ekki við að slá úr 30 kílóa
frystipönnum um borð. Hún er eina
konan í 25 manna skipshöfn en segir
strákana um borð taka sér vel.
„Þeir taka mér æðislega vel, strák-
arnir um borð. Þeir eru mjög ljúfir
við mig. Hlógu reyndar aðeins að
mér þegar þeir sáu mig fyrst upp
á dekki en svo bara sýndi ég þeim
hvað ég gat. Þannig að þeir eru bara
ánægðir með mig. En hlífa mér ekki
neitt, sem er mjög fínt.“ Kristrún segir
það ekki skemma að vera í formi í há-
setastarfinu. „Nei, það skemmir sko
ekki. Þetta er mjög erfitt og það tekur
á að vera að meðhöndla pönnur sem
eru flestar í kringum 30 kíló,“ en þetta
er í fyrsta skipti sem Kristrún er til
sjós. Hún hélt í sinn annan túr í gær,
fimmtudag.
Kristrún stefnir á að keppa í fit-
ness í haust og þarf hún því að passa
matarræðið til að halda línunum í
lagi. „Það er svolítið erfitt að passa
matarræðið mikið um borð. Ég verð
bara að borða það sem er í matinn
hverju sinni. En ég borða reyndar
aldrei máltíðina eftir vakt, áður en ég
fer að sofa. Þá fæ ég mér bara minn
prótínsjeik,“ segir Kristrún sem vinn-
ur á átta tíma vöktum um borð og því
ýmist 8 eða 16 tíma á sólarhring.
Kristrún hefur náð glæsilegum
árangri í fitness þrátt fyrir að hafa að-
eins stundað sportið í tæpt ár. „Ég
keppti á mínu fyrsta móti í nóvem-
ber í fyrra, þá í módel-fitness. Ég
lenti þar í öðru sæti og keppti svo úti
á Arnold Classic í Bandaríkjunum og
lenti þar í fimmta sæti,“ en Arnold
Classic er eitt stærsta vaxtarræktar-
og fitnessmót heims. „Ég ákvað svo
þegar ég kom heim að breyta í fit-
ness,“ en þar er lögð áhersla á meiri
vöðvamassa og „skurð“ eins og það
er kallað. Sú breyting heppnaðist
heldur betur því Kristrún varð Ís-
landsmeistari unglinga í greininni.“
Þó að Kristrún sé einungis nýbyrj-
uð að stunda fitness hefur hún alltaf
hreyft sig mikið og verið í góðu formi.
„Ég var í samkvæmisdansi í átta ár
áður en ég fór að lyfta,“ en hún segir
það án efa hafa hjálpað sér að ná ár-
angri.
Kristrún stefnir á að keppa á bikar-
mótinu í fitness í nóvember en hún
íhugar einnig að fara aftur á Arnold
Classic. „Það er ekki ákveðið en ég
er að spá í að fara á Arnold Classic á
Spáni í september,“ segir þessi harð-
duglegi sjómaður að lokum.
asgeir@dv.is
n Kristrún er Íslandsmeistari í Fitness n „Strákarnir mjög ljúfir við mig“
Kristrún Sveinbjörnsdóttir
Togarajaxl og Íslandsmeistari unglinga í fitness.
Frábær
árangur
Kristrún hefur
bara stundað
fitness í tæpt ár.