Fréttablaðið - 03.12.2014, Qupperneq 14
3. desember 2014 MIÐVIKUDAGUR| FRÉTTIR |
„Við stöndumst ekki þær kröf-
ur alþjóðasamfélagsins sem við
höfum skuldbundið okkur til,“
segir Inga Guðrún Kristjáns-
dóttir, aðferðafræðikennari við
Háskóla Íslands, um lögbundinn
rétt fanga til náms.
Fjárskortur hefur valdið því
að staða námsráðgjafa við Fjöl-
brautaskóla Suðurlands er ekki
fullmönnuð sem hefur mikil áhrif
á nám fanganna að sögn Ingu Guð-
rúnar. Máli hennar til stuðnings
má benda á að í skýrslu Ríkis-
endurskoðunar 2008 kom fram að
námsárangur fanga hafði batn-
að töluvert á milli ára og var það
rakið til starfs námsráðgjafa sem
þá starfaði í fullri stöðu. Mælti
Ríkis endurskoðun með því að hlúa
að því fyrirkomulagi til frambúð-
ar.
Dregur úr afbrotatíðni
Inga Guðrún fylgdi eftir átta föng-
um í námi á Litla-Hrauni í rann-
sókn sinni á vægi menntunar og
fræðslustarfs í fangelsum. Á rann-
sókn sinni byggði hún meistararit-
gerðina „Nám er besta betrunin“
í uppeldis- og menntunarfræði
árið 2010 sem er fyrsta eigindlega
langtímarannsóknin á þessu sviði.
„Rannsóknir sýna fram á að
þeir fangar sem leggja stund á
nám eru ólíklegri en aðrir fang-
ar til að lenda aftur í afplánun.
Menntun er mikilvægur liður í
því að draga úr ítrekunartíðni
afbrota,“ segir hún og vísar
meðal annars í rannsókn Helga
Gunnlaugssonar frá árinu 2007.
Menntunarstaða íslenskra fanga
er verri en annars staðar á Norð-
urlöndum og stærri hluti hefur
átt erfitt uppdráttar í grunnskóla.
Hins vegar er áhugi á menntun
meðal fanga meiri hér en á Norð-
urlöndunum og í því felast tæki-
færi. Þá er einnig merkilegt að á
Íslandi eru fleiri fangar hlutfalls-
lega í háskólanámi. Það eru ýmsar
ástæður fyrir því að námsráðgjafi
er mikilvægur í námi fanga. Brot-
inn námsferill þeirra krefst grein-
ingar og það þarf að leita stuðn-
ings fyrir þá fanga sem hafa ekki
nauðsynlegar undirstöður úr
grunnskóla.“
Vantar námsskrá
Fyrir utan skerta námsráðgjöf
nefnir Inga Guðrún að fangar
sækist eftir að fá að fara í verk-
nám, en fái almennt ekki. Námið
þyki of dýrt, þá sé aðgengi að
námi ekki auðvelt í öllum fang-
elsum. Aðgengi að námi sé gott
á Litla-Hrauni en verra í öðrum.
Þá þurfi menntamálayfirvöld
að semja námsskrá fyrir fanga.
Námsskrá fyrir almenna nem-
endur henti ekki þessum hópi. Það
eru önnur og fleiri markmið með
námi fanga en almennra nemenda.
Þessi hópur hefur orðið útundan,“
segir Inga Guðrún.
„Verknámið er það fyrsta sem
var skorið niður eftir hrun. Því
má ekki gleyma, að nám er lyk-
ill aftur út í samfélagið. Það veit-
ir tækifæri sem dregur úr nei-
kvæðum áhrifum þess að hafa
verið fangi og að vera fyrrver-
andi fangi. Prófgráða er vega-
nesti og verknámið veitir fleiri og
skilvirkari tækifæri fyrir fanga.
Það opnar skýrari leiðir út í sam-
félagið.“
Föngum er lögbundinn réttur
til náms (Lög um fullnustu refs-
inga nr.49/2005), sem þýðir að
ASKÝRING | 14
KENNSLA FANGA
Mismunað í námi vegna fjárskorts
Föngum er mismunað hvað varðar lögbundinn rétt þeirra til náms eftir því hvar þeir afplána og niðurskurður í námsráðgjöf hefur slæm
áhrif á árangur þeirra í námi. Þá er mörgum fanga meinað um verknám sem þykir gefa þeim greiða leið aftur í samfélagið.
Kristjana Björg
Guðbrandsdóttir
kristjanabjorg@frettabladid.is
Verknámið er það fyrsta sem var skorið niður eftir
hrun. Því má ekki gleyma, að nám er lykill aftur út í
samfélagið. Það veitir tækifæri sem dregur úr neikvæðum
áhrifum þess að hafa verið fangi.
Inga Guðrún Kristjánsdóttir, aðferðafræðikennari við Háskóla Íslands
FRÉTTABLAÐIÐ/ VALLI
SKORTUR Á ÚRRÆÐUM
Mikill skortur er á verknámi
sem gagnast föngum vel
þegar komið er út í sam-
félagið eftir afplánun.
FRÉTTABLAÐIÐ/ STEFÁN
Hraunbær 123 | s. 550 9800 | skatar.is
Gæðajólatré - sem endist ár eftir ár!
Þessi jólatré eru í hæsta gæðaflokki auk
þess að vera mjög falleg og líkjast þannig
raunverulegum trjám. Einföld samsetning.
Fæst einnig í Hagkaupi
Smáralind, Skeifunni og Garðabæ.
• Ekkert barr að ryksuga
• Ekki ofnæmisvaldandi
• 12 stærðir (60-500 cm)
• Íslenskar leiðbeiningar
• Eldtraust
• Engin vökvun
• 10 ára ábyrgð
• Stálfótur fylgir
Opnunartímar:
Virkir dagar kl. 09-18
Laugardagar kl. 11-18
Sunnudagar kl. 12-18
Falleg jólatré Guðmundur Ingi Þóroddsson er for-maður félags fanga, Afstöðu. Hann var
tiltölulega nýlega fluttur hingað til lands
frá Danmörku þar sem hann hlaut 12 ára
fangelsi fyrir innflutning á fíkniefnum.
Þar áður afplánaði hann sjö ára dóm frá
árinu 2000, en þá var hann dæmdur fyrir
innflutning á 3.850 e-töflum og sölu og
dreifingu fíkniefnanna hérlendis.
Guðmundur Ingi stundar fjarnám í
Verslunarskólanum og afplánar dóm sinn
í fangelsinu á Akureyri. Hann deilir á
Fangelsismálastofnun og segir hana vilja
að fangar á Akureyri borgi skólabækurn-
ar sjálfir. Slíkt gangi gegn þeirri hugsun
að nám sé betrun og gangi gegn gildandi lögum.
„Fangaverðirnir keyptu fyrir okkur skólabækurnar. Það
varð allt brjálað í Fangelsismálastofnun og vörðunum var
gert að draga kostnaðinn frá dagpeningum okkar,“ segir
Guðmundur Ingi.
„Föngum er bæði mismunað eftir landshlutum og
eftir kynferði. Konur í Kvennafangelsinu í Kópavogi fá
til dæmis aðeins kennara til sín einu sinni í viku og geta
ekki stundað fullt nám heldur kannski aðeins í einu fagi.
Við fáum ekki kennslu hingað til okkar á Akureyri en hér
er herbergi með tölvum og þannig getum við stundað
fjarnám. Við erum þrír sem erum í fjarnámi hér á Akur-
eyri og við þurfum að greiða allt sem viðkemur náminu.
Á Litla-Hrauni fá fangar námsbækur og námsaðstoð.“
Guðmundur Ingi flosnaði upp úr framhaldsskóla, „Ég
hef ekki verið í skóla í 20 ár fyrr en nú. Ég hef setið inni
áður, með stóran dóm á bakinu. Þá var ég ekki í námi. Nú
er ég í námi og með ákveðna framtíðarsýn, í framhaldinu
langar mig að taka BA-próf í spænsku og seinna réttindi
í löggiltri skjalaþýðingu. Fangar geta ekki greitt fyrir
fjarnám. Til þess hafa þeir ekki tekjur. Ég gæti ekki gert
það með peningum úr fangelsinu. Ef ég hefði ekki fengið
peninga utan að, þá hefði ég ekki átt kost á því að stunda
nám. Ég hef ekki rétt á því að fara í háskóla fyrr en ég
er búinn að sitja inni í fimm ár. Ég myndi hins vegar
vilja nýta tímann betur. Best væri að ég gæti útskrifast
í fangelsinu svo ég hafi veganesti þegar ég losna. Það
hætta flestir sem ég þekki og hafa hug á háskólanámi,
þeir hafa ekki efni á því.“
Segir fanga þurfa að kaupa skólabækur
GUÐMUNDUR INGI
ÞÓRODDSSON,
formaður Félags
fanga
námsframboð skuli alltaf standa
til boða. „Það er afar misjafnt á
milli fangelsa hvernig staðið er að
þessum rétti og hvernig aðgengi
að námi birtist. Það þarf að bjóða
föngum sambærileg tækifæri til
náms óháð því hvar þeir afplána.
Þess vegna er mikilvægt að semja
námsskrá þar sem skilgreint er að
hverju skal stefnt.“
43%
fanga eru
í námi
180 manns afplána
dóma í fangelsum
ríkisins. Hluti þeirra
fanga sem stunda nám
hefur ekki aðgang að
námsráðgjöf.
7
fangar eru
í háskólanámi
Þrátt fyrir að staða ís-
lenskra fanga einkennist
af lélegum grunni þá fara
hlutfallslega flestir fanga
á Íslandi í háskólanám
miðað við Norðurlönd.
77
fangar eru
innritaðir í nám
Námsráðgjafi metur
þarfir fanga. Nám er
öflug betrun eins og
rannsóknir hafa leitt í
ljós. Fjárskortur hefur
hamlað föngum í námi.
10%
aukin aðsókn
á milli ára
Íslenskir fangar skera
sig úr á Norðurlöndum
og hafa meiri áhuga á
námi. Inga Guðrún Krist-
jánsdóttir telur tækifæri
í viðhorfi fanga.
64
eru skráðir í nám
á vegum FSu
Ingi Ingason er kennslustjóri
á Litla-Hrauni og á Sogni og
hefur náð góðum árangri.
Nám í FSu er vinsælt meðal
fanga sem óska þó eftir meiri
áherslu á verknám.
9
nemendur stunduðu
fj arnám frá Akureyri
Guðmundur Ingi Þóroddsson er í
afplánun í fangelsinu á Akureyri
og stundar fjarnám við Verslunar-
skóla Íslands. Hann segir fanga
þurfa að kaupa eigin skólabækur
sem sé í trássi við lög.